Morgunblaðið - 19.08.1975, Side 34

Morgunblaðið - 19.08.1975, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1975 Samsæri í Líbýu Kaíró, 18. ágúst: Reuter FULLTRtlI f byltingarráði Lfbýu, Bashir Hawadi majór, hefur verið handtekinn ásamt 30 öðrum yfirmönnum úr hernum eftir misheppnaða tilraun til að steypa Muammar Gaddafy ofursta af stðli, að sögn blaða I Kafró. Majórinn veitti viðnám, þegar hann var handtekinn, og særðist. Blöðin segja að helzti samstarfs- maður Hawadis majórs hafi verið annar fulltrúi úr byltingarráðinu, Omar E1 Meheisli majór, yfir- maður iðnvæðingaráætlunar Líbýu. Hann er sagður hafa flúið úr landi og komizt til Túnis. harðnað svo mjög að talið er óger- legt að koma samskiptum landanna í eðlilegt horf. Jafn- framt hafa Lfbýa og fleiri Araba- ríki gagnrýnt samninga Egypta og ísraelsmanna. Því er neitað að tilraun hafi verið gerð í síðustu viku til að ráðast á heimili Sadats forseta f Kaíró. Hann fór nýlega í kynnis- ferð til landamæra Líbýu og með því er talið að hann hafi viljað sýna Gaddafi að undirróðurstil- raunir hans í Egyptalandi yrðu ekki látnar viðgangast og leitað eftir stuðningi hirðingja, sem fara fram og aftur yfir landa- mærin í eyðimörkinni. Portúgalskir lögreglumenn bægja mannfjölda frá unglingi, er varð fyrir barðinu á bardagaseggjum, sem töldu hann vera kommúnista. Eins og sjá má á myndinni er pilturinn illa útleikinn eftir mannf jöldann. Um miðja sfðustu viku var öllum Líbýumönnum bannað að fara úr landi og um leið var Egyptum bannað að fara yfir landamærin til Libýu að sögn blaðanna. Þau segja að þessi ráðstöfun hafi verið gerð til að koma í veg fyrir að samsæris- mennirnir kæmust úr landi og afstýra því að fréttir um byltingartilraunina bærust úr landi. Fleiri fulltrúar úr byltingar- ráðinu er sagður viðriðnir bylt- ingartilraunina. Menn úr félagi frjálsra liðsforingja og yfirmenn í lýðveldisvarðsveitunum í Tripoli og Bengazi voru sömuleiðis sagðir viðriðnir samsærið. Samhljóða frásagnir um byltingartilraunina birtust í þremur Kafróblöðum og þær birt- ast samtímis því sem deilur Egypta og Líbýumanna hafa Bronfman bjargað úr prísund, heilum á húfi New York, 18. ágúst. Reuter SAMUEL Bronfman, erfingi whisky-fyrirtækisins Seagram, hefur verið leystur úr haldi og er við góða heilsu. Hann fannst bundinn og keflaður I fbúð f Brooklyn-hverfi, einni viku eftir að honum var rænt. Tveir menn af frskum ættum hafa verið handteknir; ákærðir fyrir að ræna Bronfman, og 2,3 milljón dollara lausnargjald sem þeir fengu greitt fannst óhreyft. OECD spáir bata í Bandaríkjunun París, 18. águst. Reuter. ATVINNULEYSI f Bandarfkjun- um verður enn um 8,5% um mitt næsta ár samkvæmt skýrslu sem Efnahags- og framfarastofnunin (OECD) birti í dag. t sfðasta mánuði var atvinnuleysi f Banda- rfkjunum 8,4% og I júnf 8,6%. Spáð er bata í bandarískum efnahagsmálum á síðari helmingi þess árs vegna aukinnar eftir- spurnar og aukinna húsbygginga. Vöruframleiðsla mun sennilega aukast um 6—6 'A% á ársgrund- velli á síðara árshelmingi. Hins vegar er varað við því að batinn geti hætt þegar ráðstafanir til að auka eftirspurn hætti að hafa áhrif. Sagt er að hægt sé að draga meira úr verðbólgu á þessu ári en bent er á að launahækkanir og verðlækkanir á hráefnum geti takmarkað áhrifin. OECD leggur til að gerðar verði ráðstafanir til að spara orku f Bandaríkjunum. Orkuneyzlan í Bandaríkjunum samsvarar rúm- lega helmingi orkuneyzlunnar í öllum 24 aðildarlöndum OECD. Ekki er búizt við fleiri hand- tökum. Sumar fréttir herma að mennirnir séu stuðningsmenn írska Iýðveldishersins (IRA) og hafi ætlað að senda lausnargjald- ið til Irlands. Lögregluyfirvöld segja þó ekkert benda til þess að IRA sé viðriðið málið. Bronfman fannst eftir að starfs- menn alríkislögreglunnar (FBI) höfðu rakið slóð bfls mannanna tveggja sem eru ákærðir fyrir ránið á honum, til Brooklyn. Þegar annar þeirra, Dominick Byrne, sá til þeirra, varð honum svo mikið um að hann hringdi i dóttur sína og sagði henni að hafa samband við New York- lögregluna og láta hana vita um dvalarstað þeirra. Tveir lögreglumenn fóru eftir ábendingu dótturinnar, hittu starfsmenn FBI skammt frá fbúðinni og brutust með þeim inn í íbúðina, þar sem þeir fundu Bronfman bundinn og keflaðan Samuel Bronfman en heilan á húfi. Nokkrum klukkustundum sfðar fengu þeir leitarheimild og fundu lausnar- gjaldið undir rúmi í nálægri íbúð. Framhald á bls. 25. • • Oryggi hert á N-írlandi Belfast, 18. ágúst. Reuter. ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR hafa verið hertar f Belfast f kjölfar aukinna ofbeldisverka undan- farna viku. Þrettán hafa beðið bana og um 200 særzt f óeirðum sfðustu átta daga. Dubcek flæmdur út úr stéttarfélagi sínu Prag, 18. ágúst. Reuter. ALEXANDER Dubcek, fyrrverandi leiðtogi Kommúnistaflokks Tékkóslðvakfu, hefur verið rekinn úr stéttar- félagi sínu vegna þess að bréf frá honum birtist í vestrænum blöðum í apríl, að því er áreiðan- legar heimildir herma. Dubeék mætti á sérstökum fundi s£m starfsmannafélag skógræktarráðuneytis Slóvakfu hélt um málið og bauðst til að lesa bréfið en boðinu var hafnað. I því kvartaði hann yfir lögregluofsóknum og varði stefnu þá sem hann fylgdi fyrir innrásina 1968. Flestir þeir sem hafa verið reknir úr Kommúnistaflokkn- um síðan 1968 eru enn félagar í stéttarfélögum og brottrekstur- inn gæti haft áhrif á möguleika Dubceks til að fá sér atvinnu í framtíðinni. Hins vegar er lögð áherzla á að ekki sé hægt að líta á Dubcek sem venjulegan laun- þega. Heimildirnar staðfestu að Dubcek hefði verið fluttur milli deilda f ráðuneytinu. Vísað var á bug sögusögnum um að Dubcek gróðursetti trjáplöntur eða starfaði sem stöðumæla- vörður. Dubcek sætti harðri gagnrýni á fundinum. Brottreksturinn virðist vera afleiðing harðrar gagnrýni sem hann hefur sætt vegna bréfsins af hálfu valda- manna, þar á meðal flokks for- ingjans, Gustav Husaks. Þótt kyrrð sé komin á eftir síð- ustu öldu ofbeldisverka eru hermenn á verði á götum Belfast. Leitað er að vopnum og sprengi- efni á fólki og f bflum f mörgum eftirlitsstöðvum f borginni og nágrenni hennar. I Londonderry hafa geisað götu- óeirðir í sólarhringa en einnig þar er kyrrð komin á. Talsmenn Irska lýðveldishers- ins (IRA) segja að vopnahlénu sem samið var um fyrir sex mánuðum verði ekki aflétt vegna óeirðanna sfðustu daga. Brezk yfirvöld segja að ákvæði um handtökur án dóms og laga verði aftur beitt ef óeirðirnar haldi áfram. Eins blóðug átök hafa ekki geisað á Norður-Irlandi í tvö ár og óttazt er að vopnahléð geti farið út um þúfur. Merlyn Rees, sem fer með málefni Norður-Irlands, varð að hætta við sumarleyfi sitt og fara til Belfast, þar sem hann hefur rætt við yfirmenn hersins og lögreglunnar. Alvarlegasti atburðurinn gerð- ist á miðvikudag þegar sprengja sprakk á bar og fjórir biðu bana og 40 særðust. Tveimur dögum síðar særðust 59 þegar sprengja sprakk í öðrum bar í Belfast. Rússar reknir Beirút. 18. ágúst — AP. NORÐUR-Yemen hefur ákveðið að reka úr landi alla sovézka hernaðarráðunauta fyrir lok mánaðarins. Blað f Beirút hefur þetta eftir frétta- ritara sfnum f Norður-Yemen og segir, að ráðstafanir þessar komi á sama tfma og landið heldur upp á 13 ára lýðveldis- afmæli. Byssa Sirhan Los Angeles 17. ágúst — Reuter. VEGNA þess að enn eru ýmsir þeirrar skoðunar, að Sirhan Sirhan hafi ekki staðið einn að morðinu á Robert Kennedy á Hotel Kitchen, hefur dómari fyrirskipað að prófskoti verði hleypt af byssu hans. Skot- færaskérfræðingur segir, að tvær kúlur hafi fundizt á morðstaðnum með ólíkum hlaupförum. Handtökur í Chile Santiago 17. ágúst — Reuter. ÖRYGGISSVEITIR hafa hand- tekið 44 prófessora, stúdenta og starfsmenn Chile-háskóla, að sögn embættismanns herstjórnarinnar. Þeir voru teknir á heimilum sfnum fyrir að hafa brotið lög, sem banna pólitfska starfsemi f landinu. Papadopoulos iðrast einskis Aþenu, 18. ágúst. Reuter. GEORGE Papadopoulos fyrrum forsætisráðherra herforingja- stjórnarinnar í Grikklandi segir I skriflegri yfirlýsingu til blaða- manna að byltingin f aprfl 1967 hafi verið gerð til þess að forða landinu frá kommúnisma og borgarastyrjöld. Papadopoulos sagði í yfirlýs- ingunni að hann hefði hreina samvizku. Hann sakaði Kon- stantfn fv. konung og stjórnmála- mennina í landinu um ábyrgðar- leysi. Papadopoulos hefur neitað öll- um sakargiftum í málinu gegn honum og 19 öðrum herforingj- um, en sagði í yfirlýsingunni að hann gæti ef hann vildi komið á framfæri við réttinn gögnum sem yrðu til þess að málsóknin gegn honum mundi hrynja til grunna. Hann sagðist þó ekki mundu gera það því klofningur ykist þá meðal grísku þjóðarinnar. 15 þyrstir Norðmenn hjá Svíum NÝLEGA snæddu 15 fulltrúar frá f jármálaráðuneytinu og samgöngumálaráðuneytinu f Noregi á Hotel Reisen f Stokk- hólmi I boði sænska sam- göngumálaráðuneytisins. Reikningurinn hljóðaði upp á 2.127 sænskar krónur og 65 aura, segir blaðið Express. Maturinn kostaði 975 sænskar krónur, að sögn blaðsins. Ráðuneytisstarfsmennirnir fengu þetta með matnum: 15 glös með meðalsterkum bjór (mellonöl), 8 snaps, 8 vodka, 8 genever, 3 dry-martini, 3 campari, 27 whisky, 1 sherry, 6 Marie Rouge, 17 Metropol cognac, 12 Drambui whisky- lfkjör, 11 gin. Samtals eru þetta 150 sjússar, það er 10 á mann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.