Morgunblaðið - 30.10.1975, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTOBER 1975
3
í?"
jPP
Yfirlýsing frá
stjórn Rithöfunda-
r
sambands Islands
VEGNA ummæla sem höfö eru
eftir Kristni Reyr og Jóhannesi
Helga í Morgunblaðinu og Tfm-
anum í dag, þess efnis að stjórn
Rithöfundasambands Islands hafi
einróma skorað á menntamálaráð-
herra, að hann „láti úthlutun fjár-
ins til viðbótarritlauna f ár ná
aftur til ársins 1970, þannig að
unnt sé að bæta fyrir misferli
nefndarinnar í fyrri úthlutun“,
vill stjórn Rithöfundasambands
Islands taka fram eftirfarandi:
1) Vegna framkominnar tillögu
ákvað stjórnin á fundi sfnum 6.
okt. 1975 einungis að „athuga við
ráðuneytið, hvort unnt mundi að
breyta reglum úm viðbötarrit-
laun, sem staðfestar voru í ráðu-
neytinu 22. sept. 1975“, eins og
segir i fundargerð, og var það
gert.
Stjórnin lagði engan dóm á
störf úthlutunarnefndar.
2) Tveir nefndarmenn í úthlut-
unarnefnd viðbótarritlauna gáfu
ekki kost á því að starfa áfram f
nefndinni. Annar þeirra, Þor-
leifur Hauksson, var tilnefndur
af kennurum í bókmenntum við
Háskóla tslands.
Reykjavík, 29. okt. 1975.
Stjórn Rithöfundasambands
Islands
Tugmilljóna tjón í bruna í Reykjavík:
Litlu munaði að stórslys yrði
þegar þakið féll á rústirnar
EKKI munaði nema hársbreidd
að slys yrði I brunarústum teppa-
verzlunarinnar Persfu hf. við
Skeifuna I gærmorgun, þegar,
hluti af þaki verzlunarhússins
féll. Aðalvarðstjóri hjá slökkvi-
liðinu hafði staðið þar sem þakið
féll, aðeins nokkrum sekúndum
áður en það gerðist og fjöldi
manns var auk þess f húsinu. Eft-
ir þetta var öllum bannað að vera
á ferli f rústunum og hefur t.d.
ekki ennþá reynst unnt að kanna
rústirnar til að leita þar upptaka
þessa mikla elds er orsakaði tjón
sem nemur túgum milljóna króna
hjá tveimur fyrirtækjum, Persfu
hf. og Stillingu hf.
Það var um klukkan 1.35 f fyrri-
nótt að fyrst varð vart við eldinn f
Persíu, sem er til húsa að Skeif-
unni 11. Stúlkur, sem vinna hjá
Brauð hf. þarna rétt hjá heyrðu
mikla sprengingu og héldu í
fyrstu að bíll hefði ekið af miklu
afli á húsið. Þær kfktu út og sáu
þá eldtungurnar standa út úr
gluggum Persíu og gerðu strax
viðvart. Slökkviliðið kom á stað-
inn með allt sitt lið og allan sinn
útbúnað og hóf slökkvistörf af
fullum krafti. Eldurinn varð strax
mjög magnaður, en slökkviliðinu
tókst að mestu að ráða niðurlög-
um hans á tveimur tfmum. Fyrir-
tækin Persía og Stilling eru í
sama húsinu og veggur á milli.
Komst eldurinn í gegnum hann og
yfir í Stillingu. Þar inni var verð-
mætur lager sem brann allur og
auk þess voru þar þrjár bifreiðir
sem allar náðust úr eldinum, en
skemmdust eitthvað. I Persíu
brann allt sem brunnið gat, en
þar var mikill teppalager, auk
þess sem húsið sjálft má telja
ónýtt. Að sögn forráðamanna fyr-
irtækjanna tveggja er erfitt að
meta tjón þeirra að svo stöddu, en
Ijóst að það skipti tugum milljóna.
Bæði fyrirtækin voru með vá-
tryggingar. Þetta er næst mesti
eldsvoði f Reykjavík á árinu, að-
eins bruninn í flugskýlinu á
Reykjavíkurflugvelli i janúar s.l.
var stærri. Sambyggð húsinu sem
brann eru tvö samskoriar hús, en
þau tókst bæði að verja, en í þeim
báðum voru geysimikil verðmæti.
Það var svo á tiunda tímanum í
gærmorgun að þakið féll að hluta
um miðbik hússins og var mesta
mildi að ekki skyldi verða slys.
Aðalvarðstjórinn stóð einmitt á
þeim stað þar sem þakið hrundi,
en var nýgenginn þaðan. Hafði
hann gengið til Rúnars Bjarna-
sonar slökkviliðsstjóra, en hann
stóð f dyragættinni. Þá var fjöldi
manns annars staðar í húsinu, og
einhverjir stóðu á þeim stað þar
sem þakið kom niður aðeins
stuttri stund áður. Morgunblaðið
hafði í gær samband við Rúnar
Bjarnason slökkviliðsstjóra og
innti hann eftir þessu atviki. Rún-
ar sagði: „Þetta er einmitt það
sem talið er það versta við svona
strengjasteypubyggingar. Þegar
BlL BJARGAÐ — Þremur bflum
gömlum Benz.
upp kemur magnaður eldur í
svona húsum getur þetta bæði
gerst á meðan slökkvistarf fer
fram og eins á eftir. Það sem
gerist er að þensla verður f steyp-
unni, járnið í steypunni missir
spennuna og steypubitarnir missa
styrkleika sinn. Þessi þensla get-
ur orðið til þess að steypubitarnir
ýti frá sér stoðunum og þá annað
hvort ryðji þeim um koll strax
eða þá að bitarnir dragast
saman og detta við kólnunina.
Við höfum haft þannig
fregnir af svona brunun er-
lendis frá að okkur hefur þótt
full ástæða til að vera á varð-
bergi. Þar hafa orðið stórslys
og jafnvel banaslys í svona brun-
Um. Og ég verð að viðurkenna, “
sagði slökkviliðsstjóri „að í þessu
tilfelli höfum við kannski farið
heldur óvarlega og hefðum átt að
vera búnir að loka þessu fyrr.“
Ljosmynd Sv. Þorm.
var bjargað úr Stillingu hf. Hér er verið að ýta einum þeirra út,
BRUNINN—Eldhafið var geysilegt eins og sjá má.
Mvndataka
hafnar
AUÐVELT - ÞÆGILEGT.
Látiö filmuna í pokann og stingið
honum í næsta póstkassa. Við
fullvinnum myndirnar á SILKI-
pappír og endursendum ásamt
nýrri litfilmu beint á heimili yðar.
FÆST í NÆSTU BÚÐ.
Æ mvndiðjan Æ
ASTÞORf
Pantanasími 82733