Morgunblaðið - 15.11.1975, Page 1

Morgunblaðið - 15.11.1975, Page 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK Nær ekki í Sakharov Róm, 14. nóvember. AP YELENA, kona Andrei Sakha- rovs, sagði í dag að hún hefði ekki getað náð í mann sinn i sima siðan honum var bannað að fara til Óslóar og taka við friðarverðlaun- um Nóbels. Hún vildi ekkert um það segja hvort hún færi til Óslóar í stað manns sins og kvaðst enn gera sér von um að honum yrði leyft að fara. Nordfoto. HAFNBANN — Danskir sjómenn hafa lokað dönskum höfnum til að koma í veg fyrir löndun fisks úr erlendum skipum. Þessi mynd er frá Hanstholm þar sem höfninni var lokað með sjö skipum sem lágu hlið við hlið og fjórum öðrum bátum. Hin umdeilda andzíoníska ályktun allsherjarþingsins: Málaliðar reka MPLA á flótta „Margir uggandi um fram- tíð Sameinuðu þjóðanna” 0 SEM kunnugt er af fréttum hefur ályktun sú sem samþykkt var á allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna s.l. mánudags- kvöld um að zfonismi sé ein tegund kynþáttamisréttis valdið miklu umtali og reiði víða um lönd. Morgunblaðið hafði f gær samband við Pétur Sigurðsson afþingismann, sem nú er einn af fulltrúum þing- flokkanna f scndinefnd Islands hjá Sameinuðu þjóðunum og innti hann cftir andrúmsloft- inu f aðalstöðvunum eftir að þessi sögulega atkvæðagreiðsla fór fram. 0 „Þetta hefur að sjálfsögðu meir. Góðir menn hafa reynt að koma f veg fyrir að svo verði, en sá möguleiki er samt enn fyrir hendi að Bandarfkin, sem standa nú undir fjórðungi alls kostnaðar við rekstur Sam- einuðu þjóðanna auk þess sem þeir leggja til 170 milljónir doliara f frjálsum framlögum, muni draga til baka a.m.k. stóran hluta af þessum frjálsu framlögum sem farið hafa til þeirra rfkja sem snerust gegn fsrael. Þetta er ótti sem komið hefur upp, þótt á móti komi svo sú skoðun að þá muni Ara- barfkin mæta þcssu með nýju olfubanni og olfuhækkunum. Framhald á bls. 31. Luanda, 14. nóvember. AP. Reuter. RÁÐHERRAR hinnar nýju stjórnar alþýðulýðveldisins, sem marxistar hreyfingarinnar MPLA hafa stofnað f Angola, unnu em- bættiseiða f dag og harðir bardag- ar geisuðu á þremur vfgstöðvum f landinu. Málaliðar ógna raforku- veri höfuðborgarinnar. Lopo do Nascimento forsætis- ráðherra sagði að MPLA mundi berjast unz yfir lyki: „Við verð- um að draga fána byltingar- innar að húni og megum ekki hörfa fyrir óvin- inum.“ Agosthino Neto forseti sagði að stjórnin mundi fylgja stefnu hreyfingarinnar og hét á Portu- gala að gera al- þýðulýðveldinu kleift að halda velli. Hörð sókn sameiginlegs herliðs hreyfinganna FNLA og Unita úr suðri leiddi til þess í dag að MPLA hörfaði frá litlum hafnar- bæ suður af Luanda, Porto Am- boim, og 20 hvítir menn f bænum voru fluttir um borð í þýzkt flutn- ingaskip. Franco enn skorinn upp Madrid, 14. nóvember. Reuter. FRANCISCO Franco hers- höfðingi lifði af þriðja magaupp- skurð sinn á 11 dögum f dag. Læknar hans segja að líðan hans sé mjög alvarleg. Tveir þriðju magans voru fjar- lægðir í öðrum uppskurðinum. Sá uppskurður tók fjóra tíma en uppskurðurinn í dag tvo tíma. Málaliðar, bæði hvftir menn og blökkumenn sækja á undan meg- inliðsaflanum og munu vera bún- ir 25 brynvörðum bílum af Panth- ergerð og Aloiette-þyrlum. Tals- maður MPLA sagði í dag að hvítir málaliðar yrðu skotnir ef þeir næðust og Genfar-samþykktin um meðferð stríðsfanga næði ekki til þeirra. Framvarðarsveit málaliðanna virðist sækja til Dondo um 180 km suðaustur af Luanda og nálægs orkuvers, sem sér höfuðborginni fyrir rafmagni, þótt MPLA vilji ekki staðfesta það, MPLA kveðst hafa bætt aðstöðu sfna á norðurvigstöðvunum og umkringt hermenn FNLA í þorpinu Ucua Framhald á bls. 31. — segir Pétur Sigurðsson alþingismað- ur, sem nú situr á allsherjarþinginu vakið gffurlega athygli og strax daginnn eftir var haldinn hér f New York mjög fjölmennur útifundur vegna þessa máls,“ sagði Pétur Sigurðsson, „og það var mikill þungi f mönnum niðri f þinginu, sem kannski kom fyrst og fremst fram hjá Bandarfkjamönnunum. Mót- mælin hafa verið alveg gffurleg og margir voru hreinlega hræddir um að nú væri sjálf framtíð Sameinuðu þjóðanna f hættu, — að menn myndu ganga út og ekki mæta þarna PÉTUR SIGURÐSSON Hafnbann danskra fært út Frá Jörgen Harboe í Kaupmannahöfn. DANSKIR sjómenn færðu út hafnbann sitt f gær. Fisk- markaðir hafa vfða lamazt að nokkru og hafnbannið hefur einnig bitnað á fiskiðnaðinum. Sjómenn ákváðu jafnframt að stöðva flutninga á fiski erlendis frá til Ðanmerkur. siomanna Vegna hafnbannsins ákvað út- gerðarfyrirtækið Sessan Linien i dag að hætta að sigla með fisk til Danmerkur. Skömmu áður en ferja félagsins var væntanleg til Frederikshavn frá Svíþjóð til- kynntu sjómenn að þeir mundu stöðva flutningabíla svo að þeir kæmust ekki með fisk sem landa átti úr skipinu á markað. Sjó- menn hafa haft grun um að er- lendir sjómenn reyni að snið- ganga hafnbannið í Danmörku með því að landa i Noregi og Svíþjóð þannig að fiskurinn hafi verið fluttur þaðan til Danmerkur með bifreiðum eða ferjum. Gert var ráð fyrir því í gær- kvöldi að fleiri útgerðarfyrirtæki færu að dæmi Sessan Linien og stöðvuðu flutninga á fiski til Dan- merkur. Hafnbann sjómannanna hefur ekki náð til fisks sem fluttur er um Danmörku á markað í öðrum löndum. 1 þeim höfnum þar sem ekki er beint hafnbann er erlendum fiskiskipum vísað á brott, ekki sfður en í höfnum þar sem raun- verulegt hafnbann er. Sáralitill fiskur barst á fisk- markaði á Jótlandi í dag og því var byrjað að senda starfsmenn- ina i frí. Fiskiðnaðurinn er einnig í lamasessi. Fiskmjölsverksmiðj- ur eru í þann veginn að stöðvast. Fiskiðnaðar- og útflutningssam- band Danmerkur krafðist þess í gær í yfirlýsingu sem danski sjávarútvegsráðherrann, Poul Dalsager, fékk frá sambandinu að hann skærist í leikinn og tryggði það að fiskiðnaðurinn fengi þann fisk sem hann nauðsynlega þyrfti að fá til að halda framleiðslunni gangandi. Poul Dalsager gat hins vegar ekkert aðhafzt og var löglega af- sakaður þar sem hann sat fund Matvæla- og landbúnaðarstofn- unar Sameinuðu þjóðanna (FAO) í Róm. Framhald á bls. 31. Velur Ford blökkumann sem vara- forsetaefni? Durham, North Carolina, 14. nóvember. AP FORD forseti gaf f skyn f dag að til mála kæmi að hann veldi blökkumann sem varaforsetaefni sitt f forsetakosningunum á næsta ári. „Auðvitað ætti Ed Brooke að koma til greina,“ sagði hann. Brooke er öldungadéildar- maður repúblikana frá Massa- chusetts og f hinum frjálslynda armi flokksins. Ford fór lofsam- legum orðum um störf hans þar og í öldungadeildinni og kvað sig „líka vel við hann persónulega.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.