Morgunblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975
19
Fimmtugur:
Björgvin Jónsson
útgerðarmaður
Hinn kunni útgerðarmaður
Björgvin Jónsson er fimmtugur í
dag.
Björgvin.er mjög fjölhæfur og
einn hugmyndaríkasti maður,
sem ég hefi kynnst.
Hafði ég af honum góð kynni,
þegar ég byggði og rak söltunar-
stöðina Hafölduna h/f á Seyðis-
firði árin 1960 til 1963. Hafa þau
kynni haldist sfðan.
Björgvin hafði flutzt til Seyðis-
fjarðar 1952 með fjölskyldu sína
og bjó þar um 10 ára skeið.
Mátti með sanni segja, að hann
væri á þessum árum allt í öllu hjá
Seyðfirðingum: kaupfélagsstjóri,
í bæjarstjórn, tvisvar kosinn
alþingismaður, þótt framsóknar-
flokkurinn, sem hann bauð sig
fram fyrir, hafi ekki fegnið fleiri
mest
seldi
ár
eftir
ár
Pólar hf.
Einholti 6.
en 19 atkvæði við næstu
kosningar á undan.
Björgvin hvarf af þingi, þegar
Seyðisfjörður var ekki lengur sér-
stakt kjördæmi.
Björgvin er ættaður frá Eyrar-
bakka, kominn af kunnum
sjómannaættum. Þeir eru
þremenningar Björgvin og hinir
alkunnu bræður, skipstjórarnir
Þorsteinn, Eggert og Arni Gfsla-
synir. Björgvin er jafnskyldur
þeim bræðrum Eggert Þorsteins-
syni, fyrrverandi sjávarútvegs-
ráðherra, og Guðbirni Þorsteins-
syni skipstjóra.
Þótt Björgvin sé framsóknar-
maður hefur hann oft greint á við
suma ráðamenn flokksins í fjár-
málum og sjávarútvegsmálum.
Hann er einn af helstu and-
stæðingum hins ósanngjarna upp-
bótakerfis og svæða misréttis.
Þegar m.a. þeir, sem vel afla, eru
Iátnir greiða margföld gjöld til
þeirra, sem lítið afla vegna hins
fráleita sjóðakerfis, sem nú er að
ganga sér til húðar.
Björgvin hefur verið aðal-
eigandi útgerðarfélagsins
Glettings og framkvæmdastjóri
þess frá stofnun 1956. Hafa valist
til hans miklir aflamenn. Fyrir
nokkrum árum byggði Björgvin
stórt fiskverkunarhús í Þorláks-
höfn og hefur hin síðustu ár rekið
útgerð sfna þaðan.
Björgvin hefur ásamt Benedikt
Sveinssyni hrl. annast skipasölu
við góðan. orðstír í nokkur ár.
Björgvin er höfðingi heim að
sækja og nýtur hann þar myndar-
skapar konu sinnar, Ólínu Þor-
leifsdóttur, skipstjóra, í Neskaup-
stað Guðjónssonar. Er hún 5. ætt-
liður frá Jóni presti Þorsteinssyni
f Reykjahlíð og á Hólmum við
Reyðarfjörð, en til hans er rakin
hin nafnkunna Reykjahlíðarætt.
Þeim Björgvin og frú Ólínu
hefur orðið sex barna auðið.
Þriggja sona og þriggja dætra.
Elstu börnin eru uppkomin og
gift. öll eru þau hin efnilegustu
og foreldrum sinum til sóma.
Ég og kona mín flytjum þeim
hjónum og fjölskyldu þeirra
beztu árnaðaróskir við þessi tfma-
mót og óskum þeim langra og
góðra Iffdaga með þökk fyrir ágæt
kynni. Sveinn Benediktsson
KjnunRinn
Skuggar leika
fyrir dansi
til kl. 2.
Borðpantanir
frá kl. 15.00
i síma 19636.
Kvöldverður
framreiddur
INGÓLFS - CAFÉ
GÖMLU DANSARNIR í KVÖLD KL. 9
HG-KVARTETTINN LEIKUR
SÖNGVARI MARÍA EINARS
Aðgöngumiðasalan er opin frá kl. 7 sími 12826.
HELLUBÍÓ
leika í kvöld.
Gestur kvöldsins söngvarinn
Elnar Kllnk ALLIR í HELLUBÍÓ
Sætaferðir frá B.S.I. og Torgi, Kefla
vík. Nafnskírteini.
KYNNUM
NÝJA
HLJOMSVEIT
DRIFT
PARADIS
lelkur
í kvöld