Morgunblaðið - 15.11.1975, Side 32

Morgunblaðið - 15.11.1975, Side 32
A U(í LVSINÍi ASfMINN EH: 22480 J«»rgtinbl«öiíí jgnrgmttMaMI* AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JHorgnnbla&ií) LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975 Mesti lánssamningur íslendinga: 7,5 miDjarða „öiyggis,,-lánssanin- ingur vegna giviðsliislviildljindinga SEÐLABANKI Islands gekk f sfðustu viku frá lánssamningi á svo- kölluðum Evröpudollaramarkaði, en tilgangur lántökunnar er að styrkja greiðslustöðu fslands út á við. Lánsupphæðin er 45 milljónir dollara og samsvarar hún rúmlega 7.500 milljónum króna á núgildandi kaupgengi. Hér er um að ræða mesta lánssamning, sem gerður hefur verið af hálfu fslenzks aðila og er hann óvenjulegur að þvf leyti, að tilgangur hans er eingöngu að styrkja greiðslustöðu þjóðarbúsins út á við og tryggja að hægt verði að standa við allar greiðsluskuldbindingar þess, þrátt fyrir tímabundna gjaldeyriserfiðleika. Hér er um eins konar „öryggis“-lánssamning að ræða. Á blaðamannafundi sem hald- inn var f Seðlabankanum í gær, kom það fram (greinargerð bank- ans er birt í heild á bls. 14), að lánsféð er ekki tekið til þess að fjármagna framkvæmdir, eða koma í stað innlendra ráðstafana, er dragi úr innflutningi og greiðsluhalla við aðrar þjóðir. I Ráðherra- viðræður í Bonn á miðvikudag Nú mun vera afráðið að fs- lenzk viðræðunefnd fari utan til Bonn f næstu viku og eigi þar fundi með v-þýzkum ráða- mönnum um hugsanlega lausn á landhelgisdeilu þjóðanna. Er talið líklegast að fundurinn verði á miðvikudaginn. 1 íslenzku viðræðunefndinni sem fer til þessa fundar verða ráðherrarnir Einar Ágústsson og Gunnar Thoroddsen ásamt alþingismönnunum Guðmundi H. Garðarssyni og Þórarni Þór- arinssyni, Hans G. Andersen hafréttarfræðingi og Árna Tryggvasyni, sendiherra ís- lands í Bonn, auk fleiri. greinargerð bankans segir: „A hinn bóginn hlýtur Seðlabankinn að setja það mark öllu ofar, að tslendingar geti ætíð staðið við skuldbindingar sínar út á við, en bregðist það er hætt við, að þeir glati lánstrausti sínu með alvar- legum afleiðingum fyrir afkomu almennings og efnahagslegar framfarir. Það er einnig mikii- vægt að greiðslustaða þjóðarbús- Framhald á bls. 31. Seðlabankinn: VETUR — Enda þótt væta og þíðviðri sé enn- þá hér syðra er vetur genginn í garð í ýmsum öðrum landshlutum, þar sem jörð er orðin alhvít — samanber þessa mynd frá ísafirði. Verðbólguhraðinn helmingi minni á síðari hluta ársins en fyrri ALVARLEGASTA hættan, sem steðjar að þjóðarbúskap tslend- inga f dag er tvfmælalaust hinn gífurlegi greiðsluhalli við útlönd og sfvaxandi skuldabyrði, sem honum fylgir — segir f fréttatil- kynningu frá Seðlabanka íslands, sem Mbl. fékk f gær. Útlit er fyrir, að viðskiptahallinn verði f ár um 6 þúsund milljónum króna meiri en við var búizt fyrr á árinu, og gjaldeyrisstaðan er nú neikvæð um tæplega 3,300 milljónir króna á núgildandi gengi. Þótt nokkurs bata sé að vænta sfðustu tvo mánuði ársins, sést af þessu, að sá gjaldeyrissjóð- ur, sem Seðlabankinn hefur yfir að ráða, byggist nú eingöngu á erlendum lánum og þá fyrst og fremst frá Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum. í greinargerð Seðlabanka ís- lands (sem birt er á bls. 14) segir að sá fjárhagsvandi sem brýnast sé að leysa, sé hinn mikli halli sem enn er á ríkisfjármálunum. Hefur greiðsluhalli ríkissjóðs átt verulegan þátt í því að veikja stöðu þjóðarbúsins út á við á undanförnum tveimur árum, enda voru nettóskuldir ríkissjóðs við Seðlabankann í lok október- mánaðar komnar upp í 7.366 milljónir króna, en hækkunin frá áramótum nemur 3.500 milljón- um króna. Síðan segir í greinar- gerð bankans: „Það er yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar, að fjár- lög fyrir næsta ár verði afgreidd með greiðsluafgangi og séð verði fyrir eðlilegum niðurgreiðslum þeirra skulda, sem safnazt hafa að undanförnu. Þessu markmiði Framhald á bls. 31. Tíðindalaust á miðunum: Brezku ráðherrarnir koma til viðræðna í dag BREZKA viðræðunefndin, undir forustu Roy Hattersley aðstoðar- utanrfkisráðherra, er væntanleg til landsins f dag, til viðræðna við íslenzku viðræðunefndina. Fundir hefjast á sunnudag. Upp- haflega var álitið að Hattersley kæmi einn, en það hefur orðið ofan á að brezki aðstoðarutan- rfkisráðherrann kemur við fimmta mann. Ásamt honum eru Framhald á bls. 31. Ingunn Halldórsdóttir Sigurbjörn Árnason Tvennt látið eft- ir umferðarslys LÁTIN eru á Borgarspítalanum Sigurbjörn Árnason, 76 ára, og Ingunn Halldórsdóttir, 16 ára, bæði af völdum meiðsla sem þau hlutu f umferðarslysum. Þar með eru banaslysin í umferðiivni orðin samtals 29 og er það 4 slysum meira en nokkru sinni hér á landi á einu ári. Sigurbjörn heitinn varð fyrir bifreið á Kleppsvegi í Reykjavík að kvöldi 7. október s.l. Hann hlaut mikil brjóstmeiðsli í slysinu og lézt af meiðslum sínum í Borg- arspftalanum á fimmtudaginn. Sigurbjörn Árnason var um margra ára skeið húsvörður í Tjarnargötu 20 og átti þar heim- ili. Ingunn heitin hlaut mikla áverka í bifreiðarslysi að kvöldi mánudagsins 3. nóvember og var daginn eftir flutt flugleiðis til Reykjavíkur og í gjörgæzludeiTd Borgarspítalans, þar sem hún lá þar til hún lézt i gærmorgun. Hún komst aldrei til meðvitundar. Hún átti heimili að Einarsstöðum í Núpasveit, N-Þingeyjarsýslu. Ekki var alls kostar rétt farið með tildrög slyssins í frétt Morg- Framhald á bls. .‘M. Svanur fékk ekki að landa í Skagen: „Skiljum afstöðu Dananna,” - segir Ingimundur Ingimundarson skipstjóri á Svani „ VIÐ fengum ekki að landa síldinni f Skagen og erum nú á leið til Þýzkalands með aflann. Hætt er við að sfldin verði orð- in léleg loks er hún kemst á markað, þar sem við getum p ekki selt fyrr | en á mánudag. Um aðgerðir dönsku sjó- mannanna er það að segja, að fslenzkir I sjómenn f Norðursjó skilja þær mjög vel,“ sagði Ingimundur Ingimundarson, skipstjóri á Svani RE 45, en skipinu var vfsað úr höfninni f Skagen á Jótlandi f fyrrinótt, eftir að danskir sjómenn höfðu lokað höfninni fyrir erlendum skip- um. Ingimundur sagði, að Svanur hefði komið inn til Skagen um kl. 4 og þá strax verið tilkynnt af dönskum sjómönnum, að skipið fengi ekki að landa, þar sem sjómenh væru búnir að loka höfninni. „Þar sem maður skilur afstöðu þessara manna vel, þá kom ekki til neinna orðahnippinga, en ég fór fram á að fá olíu fyrir skipið, þar sem við vorum að verða olíulausir og var það auðsótt mál. Hún var tekin um borð og við fórum frá Skagen um kl. 7 í morgun, þannig að viðdvölin þar var ekki nema 3 tímar.“ Kvað Ingimundur Svan nú vera á leið til Cuxhaven og afl- inn væri um 1000 kassar eða 40 tonn, og fékkst hann austur af Hjaltlandi. Ekki vissi hann til þess, að fleiri skip væru á leið til Þýzkalands með afla, þar sem bræla væri á síldarmið- unum við Hjaltland og flest skipin lágu inni i Leirvík. Þetta er fyrsta veiðiferð Svans í Norðursjó um nokkurn tíma, en skipið kom á þessi mið fyrir nokkrum dögum, hafði áður verið á síldveiðum við Is- land. Ove Jensen hjá Niels Jensen og Co, umboðsaðila íslenzkra skipa í Hirtshals sagði, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann, að sjómenn þar væru á fundi, þar sem rætt væri um frekari aðgerðir. Fiskiskip frá Hirtshals hafa raðað sér upp Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.