Morgunblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NOVEMBER 1975
23
Ketill Pétursson
skipstjóri -Minning
Dáinn 8. nóvember 1975.
Ketill var fæddur í Öfeigsfirði á
Ströndum 7. maí árið 1912.
Foreldrar hans voru Pétur
Guðmundsson, útvegsbóndi þar,
sem nú er látinn og Ingibjörg
Ketilsdóttir, sem lifir son sinn og
dvelur nú á Hrafnistu.
Ketill var ásamt tvíburabróður
sfnum Guðmundi elstur sjö sona
þeirra, sem náðu fullorðins aldri
og eru þeir allir á lffi.
Ég kynntist ekki Katli fyrr en
hann kvæntist móður minni árið
1964. Hún sagði mér síðar, að
hann hefði oft verið búinn að
hugsa um það> hvernig ég mundi
taka þessu, þá fimmtán ára
stráklingur.
En þessu var ekki hægt að taka
nema á einn veg og ég tel það eitt
mitt mesta happ, að hafa fengið
að kynnast Kalla þó að þau kynni
hafi orðið allt of stutt.
Síðustu tuttugu árin var Ketill
á togurum Utgerðarfélags Akur-
eyringa, fyrst sem stýrimaður en
sfðar skipstjóri og sína siðustu
sjóferð fór hann á b/V Sólbak nú
í haust.
Það sem einkenndi Ketil, var
heiðarleiki hans og góðvild. Hann
var mjög vel látinn af skipsfélög-
um sínum og þeir eru ófáir, sem
verið hafa með honum til sjós og
sagt mér frá samskiptum þeirra,
en þau eru öll á sama veg, heiðar-
leikinn og góðmennskan hafa ein-
kennt þau.
Fyrir nokkrum árum kenndi
Ketill þess sjúkdóms, sem sigraði
hann að lokum. Tvívegis var hann
búinn að gangast undir stórar
aðgerðir f baráttu sinni og með
sinni ótrúlegu trú og kjarki komst
hann aftur á sjóinn þar sem hug-
ur hans var alla tíð.
Nú f haust þurfti hann enn að
gangast undir mikinn uppskurð,
sem virtist ætla að heppnast vel
og var hann farinn að tala um að
nú færi hann að koma heim.
Það varð ekki og nú er
söknuðurinn mikill á heimilinu
— Ársþing
hjá eiginkonu og syninum unga
sem þau eignuðust.
Við Didda og sonur okkar Einar
Már, sem á erfitt með að skilja að
Kalli afi sé horfinn, þökkum
honum hve vel hann reyndist
okkur til hinstu stundar.
Fari þú f friði
friður guðs þig blessi
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðmundur Sigurbjörnsson.
— Alþingi
Framhald af bls. 12
málsgrein: Þó skal framan-
greindur frádráttur vegna
vinnu eiginkonu bónda við
búrekstur aldrei nema lægri
fjárhæð en helmingi persónu-
frádráttar hjóna, enda gegni
hún ekki öðrum launuðum
störfum.
Garðakaupstaður
Frá frumvarpi til laga um
kaupstaðarréttindi til handa
Garðahreppi er sagt í frétt á
öðrum stað í blaðinu í dag.
— Mikið í húfi
Framhald af bls. 17
eru til þess að hreyfingarnar
muni taka höndum saman. í
fyrsta lagi hafi hvorki UNITA
né FNLA nokkur raunveruleg
tök á málaliðssveitum í suður-
hluta landsins sem sagðar eru
lúta stjórn fyrrum liðsforingja í
portúgalska hernum, meðlima í
Portúgalska frelsishernum,
ELP, sem berst fyrir áfram-
haldandi yfirráðum Portúgals í
Angóla.
Ennfremur ríkir djúpstætt
hatur á milli þessara stríðandi
fylkinga. Hafa hernaðarráð
þeirra náð tökum á stjórnmála-
ráðunum í þessari baráttu.
Telja íbúar Lúanda það mjög
ósennilegt, að hernaðararmur
MPLA, FAPLA, verði fáan-
Iegur til samvinnu við FNLA
eftir þau átök sem áttu sér stað
milli fylkinganna i júlí sl. en
þeim lyktaði með því, að FNLA
varð að láta undan síga og vorú
hermenn hreyfingarinnar
hraktir á brott úr höfuðborg-
inni. Telja borgarbúar mjög
ósennilegt að MPLA leyfi þeim
að koma til borgarinnar að
nýju.
En ef ekki tekst að ná hald-
bæru samkomulagi, er ekki
óhugsandi, að stríðið í Angóla
færist út, og að sunnanverð
Afríka verði að nýju Indó-
kina. Nágrannarnir hafa tekið
afstöðu í deilum fylkinganna og
eftir því sem baráttan harðnar,
er hættara við að þeir dragist
meira inn í hana. Að nýfengnu
sjálfstæði í Angóla eru það ekki
einungis stríðandi frelsisfylk-
ingar, sem berjast, heldur er
hér um að ræða stríð tveggja
heima með mismunandi hug-
myndafræði.
eigin niðurstöður i samanburði
þeim á „heildarkostnaði", sem
birtur var i Mbl. 29. október s.l.
9. Rétt er hjá greinarhöfundi,
að olfustyrkurinn mun vera tíma-
bundin ráðstöfun. Þess vegna
sýndi ég samanburðinn bæði með
og án áhrifa hans. Einingarverð á
heitu vatni og olíu eru einnig
timabundin. Við samanburð á
kostnaði eins og hann er i dag ber
að sjálfsögðu að draga frá endur-
greiðslu, sem í dag er innt af
hendi.
- Fáskrúðsfjarð-
arviðundrin
Framhald af bls. 18
ar, sveitarstjóra Búðahrepps, og
hefir nú uppskera af þeim við-
ræðum litið dagsins ljós og hljóð-
ar svo:
„Fáskrúðsfirði, 23. okt. 1975.
Héraðslæknir,
Jón Aðalsteinsson.
Hliðargötu 41, Búðum.
— Að gefnu tilefni óskast
blaðaúrklippur og önnur tilskrif
er upp hafa verið fest í Heilsu-
gæslustöðinni á Búðum, og ekki
snerta daglegan rekstur Heilsu-
gæslustöðvarinnar fjarlægð tafar-
laust.
Þá er þess vænst að framvegis
verði ekki hengt upp í húsakynn-
um Heilsugæslustöðvarinnar ann
að efni en það, er snertir beint
daglegan rekstur stöðvarinnar,
enda annað óheimilt samkvæmt
reglum um opinberar stofnanir.
Virðingarfyllst,
Samúel Ölafsson (sign)
sveitarstjóri Búðahrepps
Fáskrúðsfirði
(embættisstimpill).“
Svona var það. Nú hefur Samú-
el kveðið upp sinn dóm, í nafni
síns embættis, trúi ég. Því svo
segir bréfsefnið og embættis-
stimpill hans til um. — En með
hvers leyfi? Hreppsnefndar í
heild, — eða með leyfi Alberts
sem varaoddvita, eða hélt meiri-
hluti hreppsnefndar (þ.e.a.s.
Sjálfstæðisfl. og Framsókn)
hreppsnefndarfund i gegnum
sima til að afgreiða þetta mál? Þvl
að ekki hefir það verið tekið fyrir
né afgreitt á venjulegum hrepps-
nefndarfundi enn sem komið er.
Eða var þetta gert samkvæmt
skipun frá ráðuneyti?
Er lækninum hafði borist þetta
bréf, tók hann niður af vegg bið-
stofunnar ritsmíðina hans Al-
berts, en setti þess í stað upp bréf
„embættismannsins". Og viti
menn, tveim dögum seinna var
fréttin komin í Dagblaðinu.
Þess skal að lokum getið, að
Albert Kemp er heilbrigðisfull-
trúi þessa staðar, og heldur þykir
mér óliklegt, að starf heilbrigðis-
málafulltrúa eigi að vera fólgið í
þvi að tefja fyrir framgangi heil-
brigðismála og veitast með ósann-
indum að starfsfólki heilsugæsl-
unnar á opinberum vettvangi. —
En eitt er víst, að ekki hefur
okkur landsfólki gengið of vel að
fá til okkar lækna, enda ekki von
ef svo er víðar, sem hér er.
Bj.B.
— Gísli og . . .
Framhald af bls. 5
pianó, eftir Withold Lutoslawski.
— Flutningur sem þessi, samleikur
á tvö pianó, nýtur vaxandi hylli á
hljómleikum erlendis, og þó einkum I
Bandarlkjunum Allmargir planóleikar-
ar hafa getið sér mikinn orðstlr fyrir
samleik sinn, og hljómplötur með slik-
um samleik verða stöðugt algengari á
markaðinum. Mörg stórbrotin verk
hafa verið samin fyrir samleik á tvö
planó, og eru sum þeira orðin fast
viðfangsefni I erlendum hljómlistarsöl-
um, bæði þau, sem samin hafa verið i
sígildum stll og eins hin, þar sem ung
tónskáld leita nýrra og á stundum
allnýstárlegra tjáningarforma
Framhald af bls. 10
að móta starfsemi Hagsmuna-
samtaka hrossabænda og er
unnið að stofnun félagsdeilda
um allt lartd. Þegar hafa tveir
svonefndir sölufulltrúar tekið
til starfa en þeir eiga að gefa
upplýsingar um þau hross, sem
til sölu eru á þeirra svæði. 1
þessum mánuði verður haldinn
framhaldsstofnfundur samtak-
anna og verður þá endanlega
gengið frá lögum samtakanna.
Eins og getið var f upphafi
var fjallað um mikinn fjolda
mála á þessu þingi og er ætlun-
in að gera í næsta þætti grein
fyrir samþykktum þingsins. En
meðal samþykkta sem þingið
gerði var að unnið yrði að þvi
að gera fjárhagslega kleift að
ráða framkvæmdastjóra fyrir
L. H., sem hluta úr starfi,
samþykkt var að milliþinga-
nefnd um gæðingadóma héldi
áfram endurskoðun sinni,
samþykkt var að kjósa móta-
nefnd og skal nefndin raða
niður mótsdögum hestamanna-
félaganna i samráði við þau, þá
var samþykkt tillaga um járn-
ingar keppnishrossa og hjálpar-
tæki i reiðkeppni.
Síðasti liður þingstarfanna
voru kosningar og var kosið um
tvo menn i aðalstjórn og tvo í
varastjórn. Úr aðalstjórn áttu
að ganga Albert Jóhannsson,
formaður, og Hjalti Pálsson og
voru þeir báðir endurkjörnir.
Aðrir f stjórn L. H. eru Harald-
ur Sveinsson, gjaldkeri, Jón M.
Guðmundsson, ritari, og Egill
Bjarnason. Ur varastjórn áttu
að ganga Steinþór Gestsson og
Leifur Kr. Jóhannesson og voru
þeir einnig endurkjörnir.
Samþykkt var að næsta þing
yrði haldið á Hornafirði i boði
Hestamannafélagsins Hornfirð-
ings.
— Olympíu-
landsliðið
Framhald af bls. 30
sem valinn var í sumar eru þvi
aðeins þrjú eftir heima. Þau
Magnús Eiríksson, Katrin Frí-
mannsdóttir og Guðjón Ingi
Sverrisson. Þau eru þó engan veg-
inn úr leik þó svo að möguleikar
þeirra séu eðlilega minni en
þeirra, sem fá að æfa við beztu
aðstæður. Við þau hin segjum við
góða ferð og vonandi verður hægt
að segja fréttir af þeim hér á
síðunni á næstu vikum.
-áij
— Grótta
Framhald af bls. 30
Garðahreppur kl. 18.25:
STJARNAN — VÍÐIR
(3. deild karla)
Seltjarnarnes kl. 13.00:
AFTURELDING — UMFN
(2. fl. karla)
Seltjarnarnes kl. 13.50:
GRÓTTA — LEIKNIR
(2. fl. karla)
Seltjarnarnes kl. 14.40:
GRÓTTA— HAUKAR
(2. deild kvenna)
Seltjarnarnes kl. 15.45:
AFTURELDING — ÍA
(3. deild karla)
• •
— Oruggur
akstur
Framhald af bls. 3
lærðu ð bll við beztu ökuskilyrði
og án hálku og siðan kynnu þeir
alls ekkert með ökutæki að fara
við slikar aðstæður.
Þá kom þaðfram hjá Kristmundi
J. Sigurðssyni, að i sumum tilfell-.
um liti hann svo á að yfirvöld ættu
að beita háum sektum við
umferðarlagabrotum, en Krist-
mundur kvað leiðbeinandi sam-
vinnu lögreglu og fólksins i land-
inu það mikilvægasta framlag til
þessara mála, sem unnt yrði að
koma á. Hann kvað ekki rétt að
beita ávallt og miskunnarlaust
sektum við hverja smáyfirsjón —
með þvi yrði fólkið i andstöðu við
lögregluna, en henni væri nauð-
synlegt að fá það til góðrar sam-
vinnu við sig. Leiðbeinandi starf
lögreglunnar væri ómetanlegt og
með þvi næði lögreglan beztu
sambandi við fólkið. Hins vegar
sagði Kristmundur að til væru
menn i umferðinni, sem ekki færu
eftir neinum reglum. Þá menn
þyrfti að taka föstum tökum og
jafnvel svipta þá ökuleyfi þegar í
stað. Hann kvað lögregluna ekki
mega vera of bókstafstrúar vegna
smáyfirsjóna — á þeim þyrfti að
taka með sanngirni.
Baldvin Þ. Kristjánsson, félags-
málafulltrúi Samvinnutrygginga
og framkvæmdastjóri klúbbanna,
sagði að þeir væru einu frjálsu
félagasamtökin, sem létu
umferðaröryggismál til sin taka að
einhverju marki. Lágmark væri að
33 fundir væru haldnir um
umterðaröryggi á hverju ári á veg-
um klúbbanna. Á þessu ári hafa
verið haldnir 1 5 og 18 eru i undir-
búningi. Klúbbarnir eru 33.
Þá kom það fram á blaðamanna-
fundinum að á ári létust 300 þús-
und manns i umferðarslysum i
heiminum og 6 milljónir manna
slösuðust. 76 ár eru siðan fyrsta
umferðarslysið varð i heiminum,
en það var i New York árið 1899.
t
Konan mín, móðir, tengdamóðir og amma,
ÁSLAUG BJÖRNSDÓTTIR,
Borgarnesi.
lézt I Borgarpitalanum þriðjudaginn 1 1 nóv s.l
Utförin fer fram frá Borgarneskirkju þriðjudaginn 18
14 00.
nóv n k. kl
Ólafur Guðmundsson,
Aðalbjörg Ólafsdóttir, Jenni R. Ólason,
Birna Ólafsdóttir, Guðmundur I. Waage
og barnabörn.
— Um
samanburð
Framhald af bls. 18
í viðtali: „Gunnar sagði, að kynd:
ingarkostnaður með hitaveitu-
vatni væri nú 34% af kyndingar-
kostnaði með olíu,“ Þessar upp-
lýsingar yfirverkfræðingsins eru
í verulegu ósamræmi við hans
OPNUM [ DAG
LITAVER
GRENSÁSVEGI 8