Morgunblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 15.11.1975, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975 Greinargerð Seðlabanka: Ohugsandi að fjármagna frekari hallarekstur ríkisins Skuldaaukning ríkissjóðs 3.500 milljónir frá áramótum HÉR birtist greinargerð Seðlabanka fslands um þá 45 milljðn dollara erlendu lántöku, sem bankinn hefur nú ráðizt f, en lánið er tekið til þess að koma þjóðinni yfir þá erfiðu greiðslustöðu, sem hún nú á f. Af þessu tilefni lýsir stjórn Seðlabankans einnig f þessari greinargerð skoðunum sfnum á stöðunni f efnahagsmál- um og stefnunni á næstunni. SEOLABANKASTJÓRAR A BLAÐAMANNAFUNDI — Frá vinstri eru: Davíð Ólafsson, Jóhannes Nordal, Guðmundur Hjartarson og Björn Tryggvason aðstoðarbankastjóri. 14. nóvember 1975. „I siðustu viku var af hálfu Seðlabankans gengið frá láns- samningi á svokölluðum Evrópu- dollaramarkaði. Hefur lánssamn- ingur þessi þann tilgang að styrkja greiðslustöðu Islands út á við. Lánsfjárhæðin er 45 millj. dollara og hún samsvarar rúmlega 7500 millj. króna á núgildandi kaup- gengi. Getur Seðlabankinn dregið á lánið, hvenær sem er á næstu þremur árum, en það sem þá hefur verið notað. skal endurgreitt á næstu þremur árum þar á eftir. Vextir af láninu verða breytilegir, og munu þeir fylgja vöxtum á hinum svokallaða millibanka- markaði í London. Um lántökuna hafa séð þrlr bankar, Citicorp International Bank Ltd., Krediet- bank S.A. Luxembourgeoise og Morgan Guaranty Trust Co. of New York. Alls eru 13 erlendir bankar aðilar að lánssamningnum. Er þetta stærsti lánssamningur, sem gerður hefur verið af hálfu íslenzks aðila, en hann er einnig óvenjulegur að því leyti, að til- gangur hans er, eins og áður segir, eingöngu að styrkja greiðslustöðu þjóðarbúsins út á við og tryggja, að hægt verði að standa við allar greiðsluskuldbindingar þess, þrátt fyrir tfmabundna gjaldeyriserfið- leika. Bankastjórn Seðlabankans vill þess vegna að það komi skýrt og ótvfrætt fram. að þetta lánsfé er ekki tekið til þess að fjármagna framkvæmdir eða koma í stað inn- lendra ráðstafana, er dragi úr inn- flutningi og greiðsluhalla við aðrar þjóðir. Á hinn bóginn hlýtur Seðla- bankinn að setja það mark öllu ofar, að íslendingar geti ætfð staðið við skuldbindingar sfnar út á við. en bregðist það er hætt við, að þeir glati lánstrausti sfnu með alvarlegum afleiðingum fyrir af- komu almennings og efnahags- legar framfarir. Það er einnig mikilvægt, að greiðslustaða þjóðarbúsins verði aldrei svo þröng, að stjórnvöldum gefist ekki færi á að takast á við efnahags- vandann með skipulegum hætti, en neyðist i þess stað til að gripa til skyndiráðstafana. Þeir erlendu bankar, er að láns- samningum þessum standa, hafa með honum lýst trausti sfnu á getu og vilja íslendinga til þess að takast einarðlega á við og leysa þann mikla efnahagsvanda, sem nú steðjar að. Hinn mikilsverði stuðningur, sem f þessu felst. er veittur i trausti þess, að íslenzk stjórnvöld láti einskis ófreistað til þess að standa við þessar og aðrar skuldbindingar, sem Islendingar hafa tekið á sig erlendis. Mun Seðlabankinn einbeita sér að þvi, að þessum markmiðum verði náð. Telur bankastjórnin þvi rétt, að gera að þessu tilefni nokkra grein fyrir skoðunum sfnum á stöðunni f efnahagsmálum og stefnunni á næstunni. Alvarlegasta hættan i þjóðar- búskap fslendinga f dag er tvi- mælalaust hinn gifurlegi greiðslu- halli við útlönd og sfvaxandi skuldabyrði, sem honum fylgir. Útlit er nú fyrir, að viðskiptahall- inn verði í ár um 6000 milljónum meiri en við var búizt fyrr á árinu, og gjaldeyrisstaðan er nú neikvæð um tæplega 3300 millj. kr. á nú- gildandi gengi. Þótt nokkurs bata sé að vænta sfðustu tvo mánuði ársins, sést af þessu. að sá gjald- eyrissjóður, sem Seðlabankinn hefur yfir að ráða, byggist nú eingöngu á erlendum lánum, og þá fyrst og fremst hjá Alþjóða- gjaldeyrissjóðnum. Þótt viðskipta- hallinn við útlönd verði hlutfalls- lega nokkru minni á þessu ári en árið 1974, hefur batinn orðið miklu hægari en vonir stóðu til, þrátt fyrir um 17% lækkun al- menns innflutnings. Orsakanna er fyrst og fremst að leita f minni útflutningstekjum vegna óhag- stæðs verðlags og sölutregðu, en einnig hefur á það skort, að það aðhald næðist, sem að var stefnt f rikisútgjöldum, opinberum fram- kvæmdum og fjárfestingarlánum. Óhagstæðar ytri aðstæður fáum við ekki við ráðið. og horfur um verðlag og eftirspurn eftir útflutn- ingsvörum íslendinga eru því miður enn tvfsýnar. Svigrúmið til þess að mæta frekari áföllum með skuldasöfnun er hins vegar á þrot- um, og einskis má þv! láta ófreistað til að tryggja mjög mikla lækkun viðstkipahallans á næsta ári. í yfirlýsingum rfkisstjórnar- innar að undanförnu hefur þessu verið lýst sem meginmarkmiði ! stefnu hennar f efnahagsmálum á næstunni. Til að ná þvf markmiði og draga samtfmis verulega úr verðbólgunni. hefur rfkisstjórnin boðað öflugar aðgerðir f fjármál- um rfkisins og aðhald f útlánum og útgjöldum til samneyzlu og fjár- festingar. Framkvæmd slfkrar stefnu krefst bæði almenns skiln- ings á eðli vandans og festu og aðhalds f stjórn efnahagsmála. Það er þvf mikilvægt, að allir þeir aðilar, sem ábyrgð bera á stjórn einstakra þátta efnahagsmála, leggist á eitt til að veita þessum aðgerðum brautargengi. Mun bankastjórn Seðlabankans stuðla að framgangi þessarar stefnu eftir mætti, en jafnframt vill hún að þessu tilefni benda á þau atriði hennar, sem hún telur skipta mestu máli. Sá fjárhagsvandi, sem nú er brýnast að leysa. er hinn mikli halli, sem enn er á rfkisfjármálun- um. Hefur greiðsluhalli rfkisstjóðs átt verulegan þátt f þvf að veikja stöðu þjóðarbúsins út á við á undanförnum tveimur árum, enda voru nettóskuldir rfkissjóðs við Seðlabankann f lok október- mánaðar komnar upp f 7366 millj. kr., en hækkunin frá áramótum nemur 3500 millj. kr. Það er yfir- lýst stefna rfkisstjórna:innar, að fjárlög fyrir næsta ár verði afgreidd með greiðsluafgangi og séð verði fyrir eðlilegum niður- greiðslum þeirra skulda, sem safn- azt hafa að undanförnu. Þessu markmiði verður að ná, enda er óhugsandi, að Seðlabankinn geti fjármagnað frekari hallarekstur rfkissjóðs. ef hann á að standa við þær skuldbindingar, sem hann hefur þegar tekið á sig gagnvart erlendum aðilum. Önnur orsök jafnvægisleysis á þessu ári hefur verið ör útlána- aukning fjárfestingarlánasjóða og mikil aukning opinberra fram- kvæmda, sem fjármagnaðar hafa verið með erlendu lánsfé. Nú er unnið að lánsfjáráætlun fyrir næsta ár. þar sem setja verður útlánum fjárfestingarlánasjóða og erlendum lántökum til opinberra framkvæmda þröng takmörk, er séu f samræmi við það megin- markmið efnahagsstefnunnar að stórlækka viðskiptahallann við út- lönd. Er að þvf stefnt, að þessar áætlanir verði afgreiddar f megin- atriðum ásamt fjárlögum fyrir lok haustþingsins. f þriðja lagi verður óhjákvæmi- legt að halda áfram á næsta ári verulegu aðhaldi ! útlánum bank- anna, en f þeim efnum hefur þó nokkur árangur náðst á þessu ári. Hins vegar er það skoðun Seðla- bankans, að við núverandi efna- hagsaðstæður ætti fyrst og fremst að reyna að ná jafnvægi með að- haldi f opinberum útgjöldum og fjárfestingu, svo að nauðsynlegar aðhaldsaðgerðir þurfi ekki að bitna á greiðslustöðu framleiðslu- atvinnuveganna. Ein af orsökum viðskiptahallans að undanförnu hefur verið mjög mikill innflutningur skipa, flugvéla og hvers kyns véla og tækja, sem fjármagnaður hefur verið með er- lendu lánsfé. Þessari vélvæðingu hefur fylgt stóraukin greiðslubyrði atvinnuveganna og lánasjóða þeirra vegna tiltölulega stuttra er- lendra lána. Það er að dómi Seðla- bankans nauðsynlegt, að sem fyrst verði endurskoðaðar reglur um erlendar lántökur í þvf skyni að draga um tima verulega úr innflutningi, sem eingöngu bygg- ist á erlendum lántökum. Með til- liti til hins mikla magns skipa og vélbúnaðar. sem flutt hefur verið inn á siðustu árum, ætti breyting f þessum efnum ekki að koma að sök, en hún mundi f senn gefa atvinnuvegunum tóm til þess að einbeita sér að betri nýtingu þessara tækja og grynnka á þeim erlendu skuldum, sem nú fþyngja rekstri margra fyrirtækja. Þær fjármálalegu aðgerðir. sem hér hafa verið raktar, hafa allar þann tilgang að hemja innlenda eftirspurnaraukningu og draga úr viðskiptahallanum við útlönd. Um leið eru þær önnur meginforsenda þess, að hægt verði að draga veru- lega úr verðbólguþróuninni á næstunni. Hin forsendan er, að samtímis takist að marka áfram hófsama stefnu f launamálum, en f þeim efnum hefur þegar náðst umtalsverður árangur á þessu ári. Vegna þeirra tiltölulega hóflegu kjarasamninga, sem gerðir voru fyrr á þessu ári, hefur nú þegar dregið mjög verulega úr verð- hækkunum, og verður verðbóigu- hraðinn væntanlega u.þ.b. helm- ingi minni á sfðara helmingi þessa árs en á fyrra helmingi áisins og á árinu 1974. Virðist verðbólgan nú þegar vera komin niður á svipað stig eða lægra en á árinu 1973. Enginn vafi er á þvf. að árangur sá, sem náðst hefur I þessu efni hefur átt mikinn þátt f þvf að tryggja viðunandi atvinnuástand f landinu og koma f veg fyrir enn meiri erfiðleika atvinnuveganna. Enn ný verðbólguskriða mundi tvf- mælalaust stefna bæði stöðunni út á við og atvinnuástandinu i alvarlega hættu. Verðbólgan virð- ist nú mjög hafa rénað f flestum viðskiptalöndum islendinga. Sú þróun gerir það auðveldara, en um leið enn brýnna, að vinna sem fyrst bug á þeirri hættulegu verð- bólgu, sem hér hefur rfkt um meira en tveggja ára skeið." Sigurlaug Bjarnadóttir formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna LAUGARDAGINN 8. nóvember var haldið f Reykjavfk þing Landssambands sjálfstæðis- kvenna. I upphafi þingsins gat Auður Auðuns, sem hefur verið formaður sambandsins s.l. tvö ár, þess að hún gæfi ekki kost á sér til endurkjörs. Nýkjörinn for- maður Landssambands sjálfstæð- iskvenna er Sigurlaug Bjarna- dóttir. Landssambandsþing eru haldin annað hvert ár og er kjör- tímabil sljórnar milli þinga. Um 110 fulltrúar vfðsvegar að af landinu sátu þingið. Geir Hall- grímsson, forsætisráðherra, flutti ávarp í u'pphafi þingsins. Hann ræddi um þátttöku kvenna f starfi Sjálfstæðisflokksins allt frá önd- verðu og minntist þess, að flokk- urinn hefði orðið flokka fyrstur til að skipa konur í trúnaðarstöð- ur. Það væri f sjálfu sér ekki lofsvert, en það væri skoðun sín, að þáttur kvenna væri enn alltof lítill á vettvangi stjórnmálanna. Hann sagðist hafa orðið þess var, að lengst af hefði gengið mjög erfiðlega að fá konur til að sinna stjórnmálum, en hins vegar væru þess nú merki, að hér væri að verða á breyting til batnaðar. For- sætisráðherra lagði á það áherzlu, að hér yrðu konur að sjálfsögðu að hafa sjálfdæmi um starfsvett- vang utan eða innan heimilis, allt eftir þvf sem einstaklingurinn kysi sjálfur. Þó mætti ekki gleym- ast, að uppeldisskyldum þyrfti að sinna, en sannfæring sín væri sú, að þar gæti enginn karl komið f konu stað. Um leið sagðist hann vera þeirrar skoðunar, að nú um stundir væri einstaklingsfrelsinu hættast að þvf leyti, að einstakl- ingurinn yrði undir í múg- mennsku þrýstihópaþjóðfélags- ins, og þessu mætti ekki gleyma þegar um væri að ræða umræður um jafnréttismál. Að ávarpi Geirs Hallgrímssonar loknu var á dagskrá skýrsla stjórnar og umræður um hana, en að því loknu voru lagðar fram tillögur um lagabreytingar. Aður en þær voru afgreiddar urðu um þær talsverðar umræður, en þá voru fluttar skýrslur aðildarfé- laga sambandsins, sem eru 18 að tölu. Aðalumræðuefni þingsins var hið alþjóðlega kvennaár Sam- einuðu þjóðanna, markmið þess og erindi til íslenzkra kvenna. Frummælendur voru Guðrún Er- lendsdóttir, formaður Kvennaárs- nefndar, sem rfkisstjórnin skipaði fyrr á árinu, Auður Auðuns, sem sagði frá Kvénnaársráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Mexíkó, Sigurlaug Bjarnadóttir, formað- ur Landssambands sjálfstæðis- kvenna. Ragnhildur Helgadóttir, er ræddi um Norðurlandaráð og verkefni þess í tilefni kvennaárs, og loks Björg Einarsdóttir, sem talaði um jafnstöðu karla og kvenna f ís- lenzku þjóðfélagi. Þrjár konur létu af störfum í stjórn Landssambands sjálfstæð- iskvenna á þinginu: Auður Auð- uns og Ölöf Benediktsdóttir, sem báðar hafa setið f stjórn frá stofn- un sambandsins, og Svava Kjart- ansdóttir á Selfossi. Voru þeim þökkuð störf þeirra í þágu sam- bandsins. Formaður hinnar nýkjörnu stjórnar er eins og áður segir, Sigurlaug Bjarnadóttir, en vara- formaður Margrét Einarsdóttir, Reykjavfk. Aðrar í stjórn eru: Ás- laug Ragnars, Reykjavík, ritari, Helga Guðmundsdóttir, Hafnar- firði, gjaldkeri, Sigríður Péturs- dóttir, Ólafsvöllum, Aslaug Frið- riksdóttir, Reykjavik, Geirþrúður H. Bernhöft, Reykjavík, Freyja Jónsdóttir, Akureyri, Ingibjörg Johnsen, Vestmannaeyjum, Krist- jana Ágústsdóttir, Búðardal, María Haraldsdóttir, Bolungar- vfk, Ragnheiður Þórðardóttir, Akranesi, Sesselja Magnúsdóttir Keflavik, og Sigríður Gísladóttir, Kópavogi. Þá kaus þingið átta fulltrúa f flokksráð: Sigríði Gísladóttur, Kópavogi, Jakobínu Mathiesen, Hafnarfirði, Ölöfu Benediktsdótt- ur, Reykjavik, Margréti Einars- dóttur, Reykjavík, Freyju Jóns- dóttur, Akureyri, Elínu Pálma- dóttur, Reykjavík, Sigríði Péturs- dóttur, Ólafsvöllum og Elfnu Jósepsdóttur, Hafnarfirði. "

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.