Morgunblaðið - 15.11.1975, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÖVEMBER 1975
15
Sýning á skipulagi
Breiðholtshverfanna
BORGARSTJÓRINN í
Reykjavík, Birgir ísleif-
ur Gunnarsson, opnaði f
gær sýningu á skipulagi
Breiðholtshverfanna í
Fellahelli, en sýningin
er á vegum Þrðunar-
stofnunar Reykjavíkur-
borgar. Áætlað er að sýn-
ingin standi f að minnsta
kosti tvær vikur, en til
þess að ekki verði trufl-
un á þeirri starfsemi,
sem fram fer f Fellahelli,
er sýningartími breyti-
legur. Sýningin skiptist í
fimm aðalkafla: 1. Yfir-
lit. 2. Bakkahverfi
(Breiðholt I). 3. Selja-
hverfi (Breiðholt II). 4.
Fella- og Hólahverfi
(Breiðholt III). 5. Verzl-
unar- og stofnanahverfi
(Mjódd). Sýnd eru bæði
Ifkön og teikningar með
útskýringum, og er sýn-
ingin hin aðgengilegasta.
í ávarpi sínu við opnun sýn-
ingarinnar gat borgarstjóri
þess að borgaryfirvöld hefðu
um nokkurt skeið haft á dag-
skrá sinni að kynna skipulag
fyrir borgarbúum. Hér væri um
nokkurs konar tilraun að ræða
til að kanna hver áhugi almenn-
ings væri, og áformað væri að
framhald yrði á slfkum kynn-
ingum á næstunni. Borgarstjóri
benti á að á sýningunni mætti
bæði sjá skipulag byggðra
hverfa og hugmyndir að skipu-
lagi óbyggðra hverfa, og gæfist
því tækifæri til að kynnast
markmiðum og möguleikum
skipulagsins annars vegar, en
koma fram með rökstuddar
athugasemdir hins vegar, ef
eitthvað mætti beturfara.
Að Ioknu ávarpi borgarstjóra
rakti Ólafur B. Thors,- forseti
borgarstjórnar, nokkuð sögu
byggingaframkvæmda f Breið-
holti, en hverfið dregur nafn
sitt af samnefndu býli sunnan-
vert í Fálkhól, sem Reykjavík
eignaðist árið 1920. Er Breið-
holtsland talið vera um 535
hektarar. Gerði Ólafur grein
fyrir framkvæmdum í hverju
hverfi fyrir sig og skýrði
nokkuð frá helztu framtíðar-
áformum þar. Bauð hann síðan
gestum að ganga um og skoða
sýninguna.
Vegna breytilegs sýningar-
tíma, er rétt að birta hér opn-
unartíma sýningarinnar fyrstu
vikuna:
Laugard. 15.11. 13—19
Sunnud. 16.11. 13—22
Mánud. 17.11. 17—22
Þriðjud. 18.11. 13—18
Miðvikud. 19.11. 17—22
Fimmtud. 20.11. 13—22
Föstud. 21.11. 13—17
Yfirlitsmynd af Breiðholti IH.eins og það mun lfta úr þegar fram Ifða stundir.
Ljðsmynd Sv. Þorm.
Bjartsýni
fyrir fund
æðstu manna
Rambouillet, Frakklandi,
14. nóvember. Reuter.
ÆÐSTU menn Bandarfkjanna,
Frakkiands, Vestur-Þýzkalands,
ftalíu og Japans koma saman um
helgina f RambouiIIet-kastala
suður af Parfs og ræða leiðir til að
draga úr mesta samdrætti f
heiminum sfðan á árunum eftir
1930 og halda verðbólgu f skefj-
um.
Japanski forsætisráðherrann,
Takeo Miki, lét í ljós bjartsýni
FRÉTTIR
fyrir þennan fyrsta leiðtogafund
sögunnar um efnahagsmál og
sagði að hann ætti að leiða til
„andans frá Ramboillet" með
alþjóðlegri samvinnu.
Vill „stillinsu”
fiskveiðilanda
Frá Mike Smartt í Hull
FORMAÐUR hafréttarráð-
stefnunnar, Alexander
Yankov, skoraði í gær á
allar fiskveiðiþjóðir að
sýna stillingu. Yankov er
sendiherra Búlgaríu í Bret-
landi og kom með þessa
áskorun sína í Hull þar sem
hann hefur verið í tvo daga
og meðal annars heimsótt
hafnarsvæðið þar.
Yankov sagði í tilefni
þess að samningur Breta
og Islendinga er runninn
út að hvers konar einhliða
aðgerðir gætu haft mjög
skaðleg áhrif á öll störf
hafréttarráðstefnunnar.
Hann hvatti til „meiri
hygginda“ og sagði að
engin svartsýni á þá töf
sem gæti orðið á störfum
ráðstefnunnar gæti rétt-
lætt einhliða ráðstafanir
sem gætu haft keðju-
verkanir í för með sér.
Frá brezku togurunum
bárust þær fréttir í gær að
varðskipin hefðu siglt milli
þeirra og aðvarað þá. Bill
Hardy Jr., skipstjóri
á Grimsby-togaranum
„Spurs“ sagði að honum
fyndist að brezka stjórnin
hefði brugðizt togara-
mönnum. „Henni hefur
ekki tekizt að tryggja sam-
komulag þótt hún hafi haft
tvö ár til þess að semja,“
sagði hann.
Schmidt treystir stöðu
sína fyrir kosningar
Mannheim, Vestur-Þýzkalandi,
14. nóvember. AP. Reuter.
HELMUT Schmidt kanslari
treysti stööu sína fyrir kosning-
arnar f Vestur-Þýzkalandi á næsta
ári verulega f dag þegar hann var
endurkjörinn varaformaöur
sósfaldemókrataflokksins (SPD)
meö yfirgnæfandi meirihluta
sem kom á óvart. Flokkurinn
ákvaö að leggja innbyröis ágrein-
ing til hliðar á þingi sfnu í Mann-
heim og sameinaðist um Schmidt
og formann flokksins, WiIIy
Brandt.
Schmidt og Brandt voru báðir
endurkjörnir með 407 atkvæðum
af 436 mögulegum og eins og við
var búizt voru gamalreyndir og
hófsamir forystumenn kjörnir í
35 manna stjórn flokksins.
Vinstrisinnar áttu þriðjung full-
trúa á flokksþinginu en urðu við
áskorunum um samstöðu með
hliðsjón af kosningunum sem
gætu bundið enda á valdaaðstöðu
flokksins.
Sextíu
einum
Beirut, 14. nóv. AP—Reuter.
GÖTUBARDAGAR milli mú-
hameðstrúarmanna og kristinna
manna lömuðu Beirut, höfuðborg
Lfbanon, f dag, og alda mannrána
og skotárása komu enn f veg fyrir
tilraunir til að leysa hin blóðugu
deilumál landsins. Heimildir inn-
an lögreglunnar hermdu að
a.m.k. 60 manns hefði verið rænt í
dag af ungum skæruliðum beggja
aðila, sem sumir virðast jafnvel
Sigur Schmidts er sérstaklega
athyglisverður vegna þess að
hann hefur aldrei þótzt vera
vinur vinstrisinna í flokknum.
Á síðasta flokksþingi sem var
haldið fyrir tveimur árum fékk
hann aðeins 268 atkvæði.
Hans Koschnick, borgarstjóri i
Bremen, var kjörinn varafor-
maður auk Schmidts með 391 at-
kvæði gegn 21. Hann tekur við af
Heinz Kiihn, forsætisráðherra í
Nordrhein-Westfalen, sem gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Formaður samstarfsflokks
sósíaldemókrata i rikisstjórn,
FDP, Hans Dietrich Genscher
varakanslari og utanrikisráð-
herra, sendi Schmidt heillaóska-
skeyti þar sem hann sagði að
flokksþing sósíaldemókrata og ný-
afstaðið þing frjálsra demókrata
sýndu að flokkarnir „stæðu ein-
huga á bak við sambandsstjórnina
og stefnumarkmið hennar.“
Brandt hefur verið formaður
sósíaldemókrataflokksins í 11 ár
rænt á
degi í
vera farnir að óhlýðnast yfir-
boðurum sfnum. Aðeins virðist þó
hafa dregið úr mannránunum því
f gær var um 200 manns rænt. Þá
hernidu heimildirnar að þrfr
menn hefðu beðið bana f bar-
dögunum f dag og fjórir særzt.
„Þetta er ljótasta dæmi um
villimennsku," sagði Rashid Kar-
ami forsætisráðherra i dag. „Við
getum ekki látið þetta viðgangast
lengur.“ Skotbardagarnir í dag
og úrslitin sýna að staða hans í
flokknum hefur ekki veikzt vegna
Guillaume-málsins sem varð til
þess að hann varð að láta af kansl-
araembættinu í fyrra.
Óttazt var að staða Brandts gæti
veikzt vegna nýrra ásakana um
hann og njósnarann Gúnter Guill-
aume í nýrri bók sem Der Spiegel
mun birta útdrætti úr um helg-
ina. Bókin er gefin út í New York
og höfundur hennar er David
Binder, fréttamaður New York
Times.
Gullaume hefur verið kvaddur
sem vitni í réttarhöldum vegna
útgáfu annarrar bókar og verður
spurður að þvf hvort hann hafi
verið milligöngumaður Brandts
og tveggja blaðakvenna sem sagt
er að hafi haft „náið samband"
við hann.
I kvöld gaf Herbert Wehner,
einn helzti leiðtogi SPD, út
óvenjulega yfirlýsingu þess efnis
að ummæli sem væru höfð eftir
honum í bók Binders væru röng.
aðeins
Beirut
voru í Furn-el-Shebbak, hverfi
kristinna manna, nærri dómshöll-
inni í Beirut.
Þessi nýja ofbeldisalda Ieysti úr
læðingi nýjar kröfur um að 18.000
manna her líbanska hersins yrði
beitt til að reka byssumenn mú-
hameðstrúarmanna og kristinna
af götunum. En Karami endurtók
hins vegar þá skoðun sína að slíkt
myndi ekki bera tilætlaðan
árangur.