Morgunblaðið - 15.11.1975, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1975 17
Ó o Hvort sem litið er á pólitísku hliðina eða auðinn sem þarna er að finna, þá er . . . <
Hörmulegustu styrjaldirnar,
sem háöar hafa verið í Afríku,
hafa verið í Kongó, sem heitir
nú Zaire, og í Nígeríu. Það er
augljóst mál, hvað þessi lönd
eiga sammerkt með Angóla,
sem nú rambar á barmi borg-
arastyrjaldar að nýfengnu
sjálfstæði frá Portúgal hér er
um að ræða þrjú auðugustu
ríkin í svörtu Afriku.
Angóla hefur yfir að ráða
gífurlegum olfulindum í
Cabinda-héraði, bæða ofan- og
neðansjávar. Bandaríska fyrir-
tækið American Gulf Oil
Company hóf þar olíuvinnslu
árið 1966. Framleiðslan nemur
nú 150.000—180.000 tunnum á
dag, en átæluð hámarksafköst
eru 300.000 tunnur daglega.
Vestur-þýzki auðhringurinn
Krupps grefur eftir járni i
Cassinga í suðurhluta landsins.
Þar eru einar auðugustu járn-
námur heirhs, sem vitað er um.
Helztu kaupendur eru Japanir.
Og i norðausturhluta landsins
er demanta að finna, og er það
aðallega Harry Oppenheimer,
auðkýfingur frá Suður-Afríku,
sem þar á hagsmuna að gæta.
Arið 1972 varð afraksturinn af
27 landsskikum, sem náðu yfir
50.000 ferkilómetra svæði.
2.400.000 karöt, að heildarverð-
mæti um 27 milljónir sterlings-
punda.
Það var dr. Antonio Salazar
sálugi, fyrrum einræðisherra i
Portúgal, sem árið 1964 veitti
erlendum fjárfestingaraðilum
heimild til að hagnýta sér auð-
lindir nýlendnanna og flytja
verðmæti úr landi. Leiddi hann
þar með yfir landið það fjár-
hagslega öngþveiti, sem þar rík-
ir nú, og endurspeglast í stjórn-
málalegu tilliti. Á næstu 5 ár-
um varð árleg aukning iðn-
framleiðslu 17% að jafnaði, og
árið 1970 höfðu tekjur af námu-
vinnslu tvöfaldast og námu 170
milljónum sterlingspunda.
Ágóðinn rann vitaskuld til risa-
fyrirtækjanna og í ríkisfjár-
hirzlur Portúgala.
Erlend fyrirtæki, sem hags-
muna eiga að gæta í Angóla,
hafa fulla ástæða til að vera
uggandi um sinn hag, ef
Alþýðuhreyfingin fyrir frelsun
Angóla (MPLA), sem hefur
höfuðborgina á valdi sinu, nær
tökum á landinu öllu. 12.
febrúar sl. ár, 10 vikum fyrir
valdaránið í Portúgal sendi
stjórnarnefnd MPLA frá sér
fréttatilkynningu, þar sem
getið var um 8 erlend fyrirtæki,
sem stunduðu olíuvinnslu í
landinu, og 21 til viðbótar, sem
gerði sér vonir um að fá leyfi til
slikrar vinnslu. í fréttatilkynn-
ingu þessari sagði blákalt:
„Það er stefna MPLA, að öll
félög, sem stunda olfuvinnslu,
hvar sem er í landinu, verði
umsvifalaust rekin frá þjóðar-
auðlindum vorum, jafnskjótt og
Angóla hlýtur sjálfstæði, sem
óhjákvæmilega verður. Munu
öll tæki þeirra og eignir verða
gerð upptæk.
Nýlega hafa borizt fréttir um,
að hermenn frá Zaire hafi gert
innrás inn á Cabinda-svæðið,
sem er á valdi MPLA. Opinber-
lega hefur verið frá þvi skýrt i
Zaire, að hermenn hafi farið
upp að landamærunum, en því
hefur hins vegar verið neitað,
að þeir hafi farið inn yfir þau.
Á hinn bóginn er alrangt að
líta á átökin í Angóla einungis í
ljósi efnahagslegra hagsmuna.
Enda þótt þeir séu þungir á
metunum, eru það ekki þeir
einir saman, sem steypt geta
landinu út I borgarastyrjöld, en
það er almennt álitið f heimin-
um, að hún sé óumflýjanleg i
þessu landi, sem telur einungis
6 milljónir manna, en er þó
fimmfalt stærri að flatarmáli
en Bretland.
Landfræðilegar ástæður vega
álíka þungt, ef ekki þyngra. I
suðri á Angóla landamæri að
Namibiu (Suð-Vestur-Afríku),
sem stjórnað er af Suður-
Afriku. Eru það 1.700 km að
lengd. 1 norðri liggur landið að
landamærum Zaire rúmlega
2.000 kflómetra. Mobutu Sese
Seko hershöfðingi, þjóðarleið-
togi i Zaire, sem nýtur mikillar
fjárhagsaðstoðar frá Bandarikj-
unum, hefur í. rúman áratug
gert tilraunir til að koma f veg
fyrir valdatöku MPLA. Meðan
á nýlendustriðinu stóð, tóku
hermenn Zaire til fanga og
drápu nokkra meðlimi MPLA.
Þeir gerðu upptæka heilu
skipsfarmana af vopnum, sem
hreyfingin hafði fengið senda.
Margir liðsmanna MPLA voru
teknir til fanga, þar á meðal
forseti hreyfingarinnar, dr.
Agostinho Neto, og síðan reknir
úr landi.
Dr. Henry Kissinger, utan-
rikisráðherra Bandarikjanna,
er einnig þeirrar skoðunar, að
mjög brýnt sé að koma í veg
fyrir, að MPLA nái völdum i
Angóla. Vitað er að utanríkis-
ráðuneytið hefur unnið að
nýrri langtímaáætlun varðandi
stefnuna gagnvart Afrikuríkj-
um.
Er hagsmunasvæðunum skipt
í þrjá hópa eftir mikilvægi. í
fyrsta hópnum eru m.a. S-Afr-
ika og Nigería. 1 öðrum hópn-
um eru annars vegar ríki, sem
tengd eru Bandarikjunum frá
fornu fari, svo sem Eþfdpía og
Líbería og hins vegar lönd, þar
sem þau eiga efnahagslegra
hagsmuna að gæta svo sem
Angóla og Zaire. Í þriðja og
síðasta hópnum er um að ræða
lönd, sem einungis eru mikil-
væg Bandaríkjamönnum frá
hernaðarlegu sjónarmiði svo
sem Kenya, Tanzanía, Súdan,
Sómaliaog Mósambik á strand-
lengju Austur-Afríku, þar sem
aðildarríki Atlantshafsbanda-
lagsins óttast athafnir sovézka
flotans á Indlandshafi.
Fyrir nokkrum vikum gerði
dr. Kissinger nokkrum öld-
ungadeildarþingmönnum grein
fyrir þvf i einkaviðræðum að
bandaríska leyniþjónustan
styddi keppinauta MPLA:
Þjóðarsamtök fyrir fullu sjálf-
stæði Angóla (UNITA) sem
hefur mestallan suðurhluta
Angóla á valdi sínu og þjóðlegu
frelsisfylkinguna (FNLA) sem
nýtur einkum stuðnings meðal
Bakongo-ættflokksins í norð-
austurhluta landsins, og Mo-
butu hershöfðingi hefur stutt
árum saman. Það er forseti
Zaire sem hefur verið milli-
liður um afhendingu þessa fjár,
en Kissinger vinnur nú að því
að fá Bandaríkjaþing til að
veita honum 56 milljónir doll-
ara fjárhagsstuðning vegna
neyðarhjálpar.
Einnig er til þess vitað, að
UNITA og FNLA hafi fengið
drjúgan fjárhagsstuðning frá
Frökkum fyrir milligöngu
Zaire. Giscard d’Estaing Frakk-
landsforseti kom til Kinshasa i
júlfmánuði sl. Heimildarmaður
úr föruneyti hans hefur lýst
yfir, að Mobutu hefði látið þau
orð falla, að hann hygðist inn-
lima Cabinda, og að d’Esting
hafi þá samþykkt að láta Zaire í
té vopn í skiptum fyrir olíu frá
Cabinda.
Loks má nefna Kínverja, sem
hafa veitt FNLA vopn og séð
um þjálfun á hermönnum
hreyfingarinnar. Þeir tóku að
láta að sér kveða árið 1973 að
beiðni nokkurra Afríku-
leiðtoga, eftir að MPLA hafði
beðið umtalsverðan hnekki, eft-
ir árásaraðgerðir Portúgala á
austurvíglinuna og vegna inn-
byrðis klofnings. Var þess farið
á leit við Kínverja, að þeir
veittu FNLA stuðning til að
koma f veg fyrir, að Portúgalir
flyttu hermenn til Mosambík,
þar sem einnig geisaði styrjöld.
En svo virðist sem samstarfið
hjá Kínverjum og FNLA hafi
ekki gengið sem skyldi, og
engar vopnasendingar hafa
komið frá Kína frá þvi f nóvem-
ber á síðasta ári.
' Það skiptir miklu máli fyrir
stjórnvöld í Pretóríu, hver aðil-
inn verður ofan á i valdabar-
áttunni i Angóla, þvi að þau eru
uggandi um framtiðaryfirráð
sín yfir Suð-Vestur Afriku eða
Namibíu. Margt bendir til þess
að samband sé á milli Þjóð-
frelsishreyfingar Namibiu
hreyfinga í Angóla. Áreiðan-
legar heimildir í Angóla herma,
að ástandið á yfirráðarsvæði
UNITA hafi verið hörmulegt sl.
sumar. Hafi matur verið af
mjög skornum skammti og hver
benzínlitri kostaði um 80
sterlingspund. En samkvæmt
upplýsingum frá portúgalska
hernum var eldsneyti sent frá
Namibiu. Portúgalskur flug-
maður kvaðst hafa séð ómerkta
flugvél af gerðinni Herkúles C
130 á flugvelli í Carmona, aðal-
bækistöðvum FNLA f sl.
mánuði. Kvaðst hann hafa
getað lesið einkennisstafi
Suður-Afriku i gegnum nýja
málningu. Og þá hafa
portúgalskir hermenn séð her-
gagnabfla á þessum slóðum,
augljóslega frá Suður-Afríku.
Stuðningur Rússa við MPLA
hefur ekki verið neitt laun-
ungarmál! Meðan á nýlendu-
stríðinu stóð, lögðu Rússar
hreyfingunni til mikið af vopn-
um og öðrum gögnum, enda
þótt flutningar væru ýmsum
annmörkum háðir og heilu
skipsfarmarnir kæmust aldrei
til skila. Á þessu varð ekki
ráðin bót fyrr en í mai sl., þegar
FNLA sendi allt að 10 þúsund
hermanna sinna inn í landið frá
bækistöðvum sínum í Zaire.
Þar af voru um 4.000 sendir til
höfuðborgarinnar Luanda.
Sovézk vopn, þar á meðal bryn-
varðir bílar og 112 millimetra
sprengjur, hafa verið sendar
flugleiðis um Kongó-
Brazzaville og vélunum lent á
yfirráðasvæðum MPLA við
strendur Angóla.
Sænskur blaðamaður, sem
nýlega átti leið um þjálfunar-
búðir MPLA, hefur skýrt frá
þvi, að þar hafi verið fjöldi
sovézkra leiðbeinenda. Og enn-
fremur er vitað að minnsta
kosti 200 Kúbumenn, sumir
segja 500, hafa leiðbeint
MPLA. Ekki eru menn á einu
máli um, hvort þeir hafi tekið
þátt í bardögum, Af hálfu
UNITA og FNLA hefur þvi
verið lýst yfir, að þeir hafi
barizt, en heimildir frá portu-
galska hernum herma hins
vegar, að um það séu engar
beinar sannanir.
Nokkur Afríkuríki hafa sent
MPLA vopnabúnað, þar á
meðal Mozambik og Tansania.
Julius Nyerere forseti Zambiu
studdi UNITA á timabili, en
ákvað síðan að veita aðeins
MPLA stuðning. Hins vegar
hefur hann reynt að koma á
samkomulagi með MPLA og
UNITA. MPLA hefur borizt
stuðningur frá Svíþjóð og Dan-
mörku, en hingað til hefur
hann aðeins Verið í mannúðar-
skyni. Þeir hafa sent bækur, lyf
og annað þess háttar, en ekki
sprengjur eða önnur hergögn.
Einingarsamtök Afríkuríkja
reyndu allt, sem i þeirra valdi
stóð, til að koma á samkomulagi
milli frelsishreyfinganna
þriggja, áður en Portúgalar
veittu Angóla sjálfstæði, en allt
kom fyrir ekki. Mjög litlar likur
Framhald á bls. 23
Portúgalskur hermaður kveður vinkonur sfnar tvær fvrir framan
landst jórahöllina f Luanda.