Morgunblaðið - 15.11.1975, Qupperneq 22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÖVEMBER 1975
%
22
Þórhallur Jónsson
frá Loðmundarfirði
F. 10. desember 1928.
D. 9. nóvember 1975.
Hann verður kvaddur af frænd-
um, vinum og samstarfsfélögum í
dag kl. 10.30 árd. í Dómkirkjunni.
Kynni okkar Þórhalls hófust í
verandaherberginu í gamla
sjúkrahúsinu á Akureyri fyrir 23
árum. I marzmánuði 1952 var ég
farþegi með Grumman-flugbáti
sem lenti á Akureyrarpolli um
hádegisbilið. Guðmundur Karl yf-
irlæknir ætlaði að gera tilraun til
að lækna mig af berklum með
rifjaskurði. Fyrir láu á verandan-
um þrír slíkir sjúklingar, og Þór-
hallur var einn þeirra. Skurður
hans vildi ekki gróa, líðanin
versnaði stöðugt, og þrekið og lífs-
gleðin dvínaði. Hann hafði komið
frá Vffilsstöðum, eftir að hafa
dvalið þar 4 eða 5 ár. Yfirlæknir-
inn dró það að senda hann aftur
suður svo lasburða. Við spjölluð-
um margt enda var Þórhallur í
næsta rúmi við mig. Ég tók á allri
minni bjartsýni til að glæða kjark
og lífsgleði Þórhalls. Daginn sem
ég var orðinn það hress f sjöttu
leguvikunni, að ég gat fylgt vini
sem heimsótti mig spölkorn út á
götu, tók ég mig til og hringdi til
Jónasar Rafnar yfirlæknis á
Kristneshæli og bað hann að taka
Þórhall til sín. Eftir fáa daga var
hann kominn þangað inneftir. Ég
mun hafa sagt honum til hug-
hreystingar, að þegar hann væri
aftur orðinn vinnufær skyldi
hann koma til okkar í Ofnasmiðj-
una og sjá hvort ekki væri þar
eítthvað fyrir hann að gera. Ég
mun líka hafa útvegað honum
biblíu og ráðlagt honum að
tileinka sér hennar heilaga orð.
Þórhallur hafði ætlað sér að
verða húsasmiður og byrjaði nám
í Reykjavik 16 ára, en veiktist ári
sfðar af verklum. Ungur hafði
hann orðið hrifinn af þessu starfi,
trúði á göfgi þess og góða afkomu.
Nú var hann 24 ára og kominn
yfir námsaldurinn. Þórhallur
fæddist á Sævarenda f Loðmund-
arfirði, yngstur 6 barna hjónanna
þar, Guðnýjar B. Sigurðardóttur
og Jóns Einarssonar. Elzta bróður
sinn missti Þórhallur s.I. vetur f
snjóflóðinu mikla á Neskaups-
stað, og eru nú aðeins 2 systkini
hans á lffi.
Á Kristneshæli hresstist Þór-
hallur fljótlega. Þar hitti hann
lífsförunaut sinn, ágæta kristna
konu, Gíslínu Láru Kristjánsdótt-
ur, sem einnig hafði veikzt ung af
berklum og orðið að flytjast úr
foreldrahúsum að Vífilsstöðum.
Þegar heilsufarið var orðið gott á
Kristneshæli, fóru þau aftur að
Vífilsstöðum, en fengu svo vist á
Reykjalundi. Þar giftu þau sig
1955, og útskrifuðust þaðan sem
full vinnufær 1959.
Og þá kom Þórhallur til mín og
spurði hvort ég stæði við mitt
gamla tilboð. Ég sá að þarna var
smiðurinn kominn, 31 árs spræk-
ur, vonglaður, bjartsýnn og trúað-
ur á Guð og sjálfan sig. Hann
byrjaði eftir fáa daga að fást við
tilskurð og slípingar á ryðfriu
stáli, og því hélt hann áfram til
dánardægurs.
Þórhallur reyndist ágætur
starfsmaður, glaður og góður fé-
lagi, stundvís og nákvæmur á öll
fyrirskrifuð mál og beygingar
stálsins. Hann varð brátt okkar
traustasti maður við þessa fram-
leiðslu. Auk mikils fjölda sér-
smíðaðra hluta hefur hann smíð-
að og beygt hlífðarplötur á marg-
ar þúsundir hurða í landinu.
Móðurbróðir okkar.
MAGNÚS BJARNASON,
kennari
Sauðárkrókí,
varð bráðakvaddur fimmtudaginn 1 3. nóvember
María Haraldsdóttir,
Bjarni Haraldsson.
t
Faðir okkar
ÁRNI E. ÁRNASON
frá
Bolungarvík
andaðist í Landakotsspítalanum föstudaginn 14 nóvember
Fríða Árnadóttir
Halldóra Árnadóttir
t
Þökkum hjartanlega auðsýnda vináttu og samúð við andlát og jarðarför
eiginkonu minnar, móður og tengdamóður
KRISTÍNAR GUÐNADÓTTUR,
Flateyri, Ónundarfirði.
Magnús Jónsson,
Benedikt Gunnarsson, Marla Árnadóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Magnús S. Magnússon,
Ingunn Gunnarsdóttir '
og barnaborn hinnar látnu.
t Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug
við andlát og útför
KRISTÓFERS INGIMUNDARSONAR,
Grafarbakka.
Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks sjúkrahússins á Selfossi
Kristfn Jónsdóttir,
Jón Kristófersson, Jóhanna Danfelsdóttir,
Emil Kristófersson. Lilja Ölvirsdóttir,
Eirlkur Kristófersson, Áslaug Eiriksdóttir,
Björk Kristófersdóttir, Árni Vigfússon,
Maria Kristófersdóttir, Heiðar Guðbrandsson,
Gyða Kristófersdóttir, Grétar Ólafsson,
Kjartan Kristófersson, Guðrún Kristófersdóttir,
Hreinn Kristófersson, Hlíf Kristófersdóttir
og barnabörn.
Minning:
Kristín Þóra
Sœmundsdóttir
Þau hjónin náðu sér strax í
snotra íbúð á Skarphéðinsgötu,
svo hafði þeim sparazt fé til
kaupa á góðri íbúð við Rauðarár-
stíginn, og fyrir nokkrum árum
tókst þeim að kaupa nýja íbúð,
Hjallabraut 4 í Hafnarfirði. Bjart-
sýnin, læknar og hælin og kristin
trú hjálpuðu þeim frá erfiðum
sjúkdómi til starfandi lffs við góð-
ar aðstæður.
En svo kom nýr sjúkdómur fyr-
ir tæplega lló ári. Við læknisskoð-
un fannst hvítblæði sem lækna-
vísindin ráða enn ekki við. Því
áfalli tóku þau bæði með mestu
hugarró. Þórhallur stytti vinnu-
tíma sinn um helming og lækn-
arnir gerðu allt sem hægt var til
að halda þrekinu við og sjúk-
dómnum niðri. Þar sem Gíslína
hefur lengi starfað hjá Loftleið-
um gátu hjónin fengið ódýra 14
daga ferð til sólarlands í síðasta
sumarfríi. Nokkrir dagar voru þó
geymdir, því Þórhallur vildi sjá
hina stóru borg London, áður en
að hann kveddi jarðlífið. En þar
fann hann að stundin var að nálg-
ast. Þau fengu far með næstu vél
heim aftur og fársjúkur fór hann
í hjólastól til flugsins. En kjark-
urinn bilaði ekki. Studdur var
hann til bílsins, sem hann svo
sjálfur ók til heimilisins. Klukkan
7 næsta morgun hringdi hann til
læknis í Landspftalanum. Sjúkra-
bíllinn sótti hann strax, þrotinn
að þreki, og í höndum læknanna
dó hann eftir stutta stund.
17 ár lifði Þórhallur Jónsson
hraustur piltur, 14 ár urðu mis-
jafnlega erfið sjúkdómsár, en 16
urðu starfsárin við allgóða heilsu
og aðstöðu. Hjónabandsárin, með
traustum og elskulegum lífsföru-
naut, urðu 20.
Við í Ofnasmiðjunni þökkum
Þórhalli ágæt störf öll þessi ár,
lipurð og glaða lund. Konunni
hans og öðrum aðstandendum
sendum við innilega samúðar-
kveðju.
Sveinbjörn Jónsson.
Fædd 14. janúar 1897
Dáin 7. nóvember 1975.
Hún fæddist að Hörgshlíð í
Mjóafirði, Norður-
Isafjarðarsýslu, þar sem foreldrar
hennar bjuggu um árabil. En þau
voru María Jónsdóttir og
Sæmundur Gislason.
13 voru börnin, sem fæddust
þeim hjónum. Af þeim komust 12
til aldurs, en 9 urðu fullorðin. Var
Kristín næst yngst og sú síðasta af
þessum stóra hópi er kveður jarð-
vistar lífið.
Kristín var enn á barnsaldri,
þegar mótgangur lffsins knúði
dyra á heimilinu. Rétt á fjórða ári
æfi sinnar verður hún munaðar-
laus. Þá andaðist Sæmundur faðir
hennar. Reyndi nú á Marfu og
sýndi hún nú sem bæði fyrr og
seinna, hvað í henni bjó. Hélt hún
áfram heimili með sonum sínum
og gat forðað þvf að heimilið
sundraðist.
Kristfn átti ekki langt að sækja
námfýsi og góðar gáfur. 14 ára er
hún sest á framhaldsskólabekk á
ísafirði. Var hún þá hjá Valgerði
systur sinni. Segja má að Kristín
hafi alla æfi bætt við sig, þvf auk
skólagöngu, þá var hún opin fyrir
nýjungum og sjálfmenntaði sig á
mörgum sviðum.
Árið 1920 er hún komin til
Reykjavíkur og Iærir kvenfata- og
barnafatasaum. Rak hún sauma-
stofú um mörg ár og var talin
mjög vel fær í einni grein. Af
þessu hafði Kristín stuðning allt
lífið.
Kristín fékk góðan arf f for-
eldrahúsum. Var það einlæg og
barnsleg trú á endurlausnarann
Jesúm Krist. Skýrleikskona, sem
móðir hennar var og gott skáld,
innrætti börnum sínum trú og
góða siði.
Það var lán Kristínar er hún
kom hingað suður, að hún hélt sér
að þessum arfi og leitaði lags við
þá, sem voru á líkan hátt inn-
rættir. Þegar 1920 gerist hún
meðlimur í KFUK og tók þátt í
kristilegu starfi undir stjórn
Guðrúnar Lárusdóttur alþingis-
manns.
Kristín hafði fastmótaða skap-
gerð, var aldrei hálf, heldur gekk
heilshugar eftir sannfæringu
sinni. Ávaxtaði hún pund sitt vel
og fór samstarfið vel að trúboðs-,
kristniboðs- og líknarmálum, þar
sem hún tók þátt í þvf.
Upp frá þessu lá leið Kristinar
til Noregs. Sigríður systir hennar
var gift Martin Kyllingmark og
bjuggu þau hjón í Svolvær í
Lofot. Hjá þeim hjónum dvaldi
Kristín um árabil, hafði sauma-
stofu og prédikaði Guðs orð og
ferðaðist um. Kristín var barngóð
kona og hændust börn Sigríðar að
henni. Hákon frændi Kristínar
var skýr og ljúfur drengur. Síðar
veittist honum frami, því hann
varð samgöngumálaráðherra f
ríkisstjórn Noregs. Kristín átti
þannig merkt frændfólk bæði
austan hafs og vestan, þvf tvær
systur hennar giftust þangað sín í
hvora áttina, Noregs og Ameríku.
Árið 1936 sest Kristín ennþá á
skólabekk. Tekur hún nú að nema
Guðfræði á Biblíuskóla f Oslo, þar
sem hinn kunni mannvinur, trú-
boði og brautryðjandi Hvíta-
sunnumanna hér í Evrópu var
rektor, Tom B. Barratt, Englend-
ingur sem helgaði Norðurlöndun-
um líf sitt og starf. Eftir skóla-
gönguna, kemur hún til Islands.
Þá er rétt nýbyrjað starf Hvíta-
sunnumanna f Reykjavík. Gekk
hún í Fíladelfíusöfnuðinn á árinu
1937 og var meðlimur nr. 13.
Upp frá því var hún einn mikil-
virkasti starfsmaður þess safn-
aðar og þá einnig um land allt.
Kristfn var forkur dugleg og setti
hvorki fyrir sig vetrarhörkur né
hríðar. Eldur logaði í hjarta Hvar
sem hún fór flutti hún ræður og
prédikanir á þarlendum tungu-
málum. Norskan var henni jafn-
kær sem móðurmálið. Margir
komu að ræðustóli Kristínar, sáu
hana vel klædda, flytja sköru-
legar gagnhugsaðar ræður.
Kristfn var skáldmælt. Þann eig-
inleika erfði hún frá móður sinni.
Margir sálmar í söngbók Ffla-
delfíukirkjunnar eru ortir eða
þýddir af henni. Hún lék bæði á
orgel og strengjahljóðfæri og var
lagviss. \
Nú þegar þessi vestfirska
heiðurskona er öll, þá minnast
hennar margir með þakklæti og
virðingu. Þeim sem hlúðu að
henni undir það síðasta þegar
þörfin var mest, skal þakkað. Get
ég þar auk hjúkrunarfólks og
lækna, Guðbjargar Þorsteinsdótt-
ur frá Hörgshlfð. Astvinum eru
sendar kveðjur virðingar og
samúðar.
Einar J. Gfslason.
útfaraskreytingar
blómouol
Groðurhusið v/Sigtun simi 36770
t
Innilegt þakklæti fyrir sýnda vináttu og virðingu við andlát og jarðarför
eiginmanns míns, föður, afa og langafa.
ARA GUÐMUNDSSONAR
frð Þúfnavöllum.
Dýrleif Pálsdóttir frá Möðrufelli.
Páll Arason,
Guðný Aradóttir, Karl Jónasson.
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför,
SIGURBJARGAR HJÖRLEIFSDÓTTUR,
Karlsð, Dalvík
Sérstaklega viljum við þakka þeim, sem þátt tóku I leitinni
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum sýnda samúð og hlýhug við fráfall og jarðarför móður okkar,
tengdamóður og ömmu
HERDÍSAR GUÐRUNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Úlfsá.
Ólafia Þórarinsdóttir,
Guðbjörg Þórarinsdóttir,
Ingileif Þórarinsdóttir,
Sigrún Þórarinsdóttir, Eyjólfur Guðmundsson,
Pálina Þórarinsdóttir, Valgeir Ólafsson.
Stefán Jónsson, Björk Jónasdóttir
og barnabörn.