Morgunblaðið - 28.11.1975, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÖVEMBER 1975
I
„Mátti ekki
tæpara standa”
— sagði skipstjórinn á Hauki SU 50
„ÞETTA mátti ekki tæpara
standa því ég stóð við borðstokk-
inn bakborðsmegin og hélt í
gúmmíbátinn þegar báturinn fór
skyndilega á hliðina og ég gat
með naumindum stokkið út í
gúmmíbátinn,“ sagði Einar
Agústsson skipstjóri á Hauki SU
50 frá Djúpavogi, en bátur hans
sökk út af Stokksnesi s.l. þriðju-
dagskvöld. Mannbjörg varð. Við
sjópróf á Hornafirði kom fram, að
skyndilegur leki kom að bátnum
og sökk hann á skömmum tfma,
en ekkert kom fram við sjóprófin
sem bendir til þess hvað valdið
hafi þessum skyndilega leka. Það
kom fram, að daginn áður hefði
báturinn tckið niðri, en Einar
skipstjóri kvaðst ekki vera tilbú-
inn til þess að segja að þar væri
orsökina að finna.
Einar sagði að þeir hefðu verið
að byrja róður þegar ljós fóru
skyndilega að dofna. Héldu þeir í
fyrstu að reimar hefðu farið á
ljósavél og fóru að aðgæta það, en
þá kom í ljós að töluverður sjór
var kominn í bátinn. Einar sagði
að kokkur bátsins hefði farið
fram í, og hefði honum virzt lek-
inn vera þar en gat þó ekkert sagt
um það með vissu. Þeir sendu
strax út hjálparbeiðni og settu út
gúmmíbáta. Létu þeir gúmmíbát-
inn vera bakborðsmegin við skips-
hliðina en báturinn hallaði meira
og meira á stjórnborða. Þegar
hann fór á hliðina voru allir skip-
verjar komnir í gúmmíbátinn
nema Einar. „Þegar ég sá hvað
verða vikli stökk ég strax yfir í
gúmmíbátinn og svo brátt bar
þetta að, að þegar ég leit við sá ég
í kjölinn á bátnum,“ sagði Einar.
Þeir sendu svo upp neyðarblys og
eftir hálftíma tók Skinney skip-
brotsmennina fjóra um borð og
flutti þá til Hornafjarðar.
Haukur SU 50 var 71 tonn að
stærð, eign hlutafélagsins Hauka-
vers á Djúpavogi. Sagði Einar að
það væri mjög bagalegt fyrir
byggðarlagið að missa bátinn og
sagði hann að Iokum að á næst-
unni yrðu kannaðir möguleikar á
því að fá annan bát i stað Hauks.
Athugasemd
frá Alþýðu-
bankanum
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi:
Vegna fréttar í blaði yðar á
fimmtu síðu í dag 27. nóv., þar
sem fullyrt er að sviknar hafi
verið 500 þúsund krónur út úr
Alþýðubankanum, vill Alþýðu-
bankinn mótmæla slíkum
rakalausum fréttaflutningi og
krefst leiðréttingar á honum.
Þar sem bankanum er kunn-
ugt um, að blaðamaður sá, er
fréttina ritar, fékk nákvæmar
upplýsingar um málið hjá
rannsóknarlögreglunni er
fréttaflutningur blaðsins enn
vítaverðari.
Alþýðubankinn hefur aldrei
nálægt þessu máli komið og
þar af leiðandi enginn pening-
ur svikinn út úr honum.
Það mun víst flestum kunn-
ugt, nema þeim sem skrifar
umrædda frétt, að Alþýðu-
bankinn hefur engin útibú.
Óskað hefur verið yfirlýsing-
ar rannsóknarlögreglunnar
um málið.
Virðingarfyllst
F.h. Alþýðubankansli.f.
Jón Hallsson
Aths. ritstj. Ranghermi í frétt
þessari byggðist á misskilníngi
milli blaðamanns og lögreglu-
manns, sem sprottinn er af því,
að ávísanahefti, sem upphaf-
lega var notað til að opna
reikning í öðrum banka, var
frá Alþýðubankanum. Morg-
unblaðið biðst afsökunar á
þessum mistökum.
Þessi mynd var tekin þegar fundurinn stóð sem hæst.
Ljósm. ól.K.Mag.
Útifundur gagnrýndi
samningsuppkastið
Fólk tók
ekki frí
MJÖG lítið virðist hafa verið um
það að menn tækju sér frf frá
vinnu í gærdag á Reykjavíkur-
svæðinu, eins og samstarfsnefnd
um verndun landhelginnar hafði
skorað á fólk að gera, og Morgun-
hlaðinu er ekki kunnugt um að
nokkurs staðar hafi vinnustaðir
lamazt af þessum sökum. Hins
vegar voru nokkur brögð að þvf á
UPPKASTIÐ að samningi við Vestur-Þjóðverja um veiðar þeirra
innan fslenzku fiskveiðilögsögunnar var harðlega gagnrýnt af fjórum
ræðumönnum á útifundinum, sem Samstarfsnefnd um verndun Iand-
helginnar hélt á Lækjartorgi í gær. Þó að fundurinn hefði verið
boðaður m.a. til að mótmæla hernaðaríhlutun Breta, fjölluðu ræðu-
menn aðallega um samningsdrögin við Þjóðverja, sem þeir álitu
hvergi samrýmast efnahagslegum hagsmunum tslendinga. Fundurinn
var fámennari en margir áttu von á, en lögreglan álftur að um 4
þúsund manns hafi verið á honum. Til samanburðar má geta þess, að á
útifundinum í maí 1973, þar sem flotaíhlutun Breta var mótmælt voru
25 þúsund manns.
Það voru þeir Magni Kristjáns-
son, skipstjóri, Óskar Vigfússon,
formaður Sjómannafélags Hafn-
arfjarðar, Pétur Guðjónsson, for-
maður Félags áhugamanna um
sjávarútvegsmál, og Guðmundur
J. Guðmundsson, formaður
Verkamannasambands Islands,
sem ávörpuðu fundinn, en Björn
Jónsson, formaður ASÍ, var
fundarstjóri. Ræðumenn töldu að
með samningsuppkastinu byðu Is-
lendingar Þjóðverjum meira en
sér almennt
frá vinnu
^ Stefán fslandi og Indriði G. Þorsteinsson.
Afram veginn
— ævisaga Stefáns íslandi komin út
UM HELGINA koma út ævi-
minningar Stefáns Islandi, sem
Indriði G. Þorsteinsson hefur
fært í Ietur. Heitir bókin Afram
veginn, sem eru upphafsorð texta
rússneska þjóðlagsins „Afram
veginn í vagninum ek ég“, en
túlkun Stefáns á þessu lagi vakti
mikla athygli þegar í upphafi
söngferils hans.
Útgefandi bókarinnar er Bóka-
forlag Odds Björnssonar, og var
haldinn fundur með fréttamönn-
um vegna útkomu hennar í gær.
Þar sögðu þeir Indriði og Stefán
Framhald á bls. 22
einstaka vinnustað að menn
tækju sér frí frá störfum meðan
fundurinn stóð yfir eða allan
eftirmiðdaginn, þótt hinir vinnu-
staðirnir virðist hafa verið mun
fleiri þar sem engan mann
vantaði. Þannig var t.a.m. um
flestar stærstu verzlanirnar I
Reykjavík. (Jti á landsbyggðinni
voru fundir haldnir á fáeinum
stöðum en þeir voru yfirleitt vel
sóttir þótt almennt legðu menn
þar ekki niður vinnu.
Hjá Eimskipafélagi Islands
fékk Mbl. þær upplýsingar að þar
hefði helzt borið á þátttöku á úti-
fundinum meðal hafnarverka-
manna félagsins. Um eftirmiðdag-
inn voru þannig 3 gengi af 8 við
störf og eitt gengi lét sig vanta
allan daginn. I hverju gengi eru
um 13 menn.
Hjá Bæjarútgerðinni var okkur
tjáð, að þar hefði borið lítið á því
að fólk legði niður vinnu nema
helzt í fiskiðjusalnum um eftir-
miðdaginn. Hins vegar hafi sára-
lítið eða ekkert borið á því á skrif-
stofunni, meðal bílstjóranna og
uppskipunarmanna og á saltfisk-
stöðinni. Hjá byggingarstjóra
Breiðholts í verkamanna-
bústöðunum fékk Morgunblaðið
þær upplýsingar, að þar hefði all-
ur mannskapurinn verið að vinna
fyrir hádegi, en eftir hádegið
hefðu um 30 af um 100 farið á
fundinn og ekki mætt aftur. Hins
vegar hefði það verið miklu minni
hópur en ætiaði að fara daginn
Framhald á bls. 22
þeir hefðu efni á að missa, miðað
við ástand fiskstofna og að samn-
ingurinn myndi leiða til atvinnu-
Ieysis á Islandi. Þá var það gagn-
rýnt að sjómenn skyldu ekki hafa
átt fulltrúa í samninganefndinní.
I lok fundarins var samþykkt
ályktun þar sem skorað var á AI-
þingi að samþykkja ekki drögin
að samningi við Vestur-Þjóðverja.
Jafnframt var mótmælt hernaðar-
íhlutun Breta og skorað á stjórn-
völd að þrengja eins og kostur
væri möguleika Breta til veiða
innan fiskveiðilögsögunnar og
slíta stjórnmálasambandi við þá
hyrfu þeir ekki á brott með flota
sinn úr íslenzkri fiskveiðilögsögu.
SENDIHERRANN
DRAKKTE
Þó að síðasti ræðumaður, Guð-
mundur J. Guðmundsson, hafi
Framhald á bls. 22
Sjö strákar voru fjarlægðir fyrir ólæti við brezka
sendiráðið. Ljósm. mw. sv. Þorm.
Stefán Jónsson:
Neitar Mbl. um aðgang að ræðu!
STEFÁN Jónsson (K), alþingis-
maður, tók þátt i umræðum í
sameinuðu þingi í fyrrakvöld um
samningsdrög við Vestur-
Þjóðverja, með þeim hætti, að at-
hygli vakti, vegna stórra orða og
sjaldheyrðs tjáningarmáta í þing-
sölum. Þingfréttaritari Morgun-
blaðsins hlýddi ekki á flutning
ræðunnar sökum anna og fór þess
á leit, að fá að hlusta á hana af
segulbandi i þingritun en fékk
ákveðna neitun þingmannsins!
Bar hann því við, að fyrri reynsla
sín af samskiptum við Morgun-
blaðið væri með þeim hætti að
hann hlyti að synja tilmælunum.
Ræðan verður að sjálfsögðu birt
í þingtiðindum og gefst þá kostur
á, að kynna efni hennar fyrir
lesendum Morgunblaðsins.