Morgunblaðið - 28.11.1975, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 28.11.1975, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975 13 Marteinn M. Skaftfells: Læknir á villigötum Björn L. Jónsson, læknir og ristj. Heilsuverndar, flutti erindi „Um lyfjanotkun" á fundi NLFR, 22. apr. Erindið birti hann síóan í „Heilsuvernd". Er ég af hendingu las erindið yfir, varð mér ljóst, að á fundinum hafa nokkur atriði farið fram hjá eyrum mínum. Tel líklegra, að af dyn götunnar hafi mér orðið fótaskortur á heyrn- inni, fremur en hann hafi bætt við erindið, er hann bjó það til prentunar. En það skiptir raunar engu. Erindið er nú svört stað- reynd á hvítum pappír og eðlilegt, að athugasemdir séu gerðar á sama vettvangi. Hér skal drepið á nokkur atriði: I kaflanum „lyf og matur“ segir læknirinn, að vitamín í lyfjaformi séu lyf. Og um það muni enginn ágreiningur. Já, samkvæmt orð- anna hljóðan og anda eru vítamín í lyfjaformi meðal þess, sem eng- inn ágreiningur er um, að séu lyf. LÍM og námslánin Eftirfarandi samþykkt var gerð á stjórnarfundi Landssambands fslenzkra menntaskólanema, sem haidinn var fyrir skemmstu: „Stjórn LÍM mótmælir fram- kvæmdinni á námslánum og lýsir yfir stuðningi við baráttu fyrir jafnrétti til náms. Stjórnin leggur áherzlu á að dreifbýlisstyrkurinn til menntaskólanema af lands- byggðinni haldi verðgildi sínu. LlM mun beita sér fyrir að- gerðum komi til skerðingar á styrkjum þessum." Á fundinum voru ennfremur samþykktar vítur á Innkaupa- stofnun ríkisins fyrir „seinagang og léleg vinnubrögð á innkaupum tækjabúnaðar til menntaskól- anna“. Þá lýsti stjórn LÍM furðu sinni „á bráðlæti forustumanna Reykjavíkurmenntaskólanna, sem kemur fram í úrsögn þeirra úr Landssambandi íslenzkra menntaskólanema". Rétt er að athuga hvort staðhæf- ing læknisins er staðreynd, þar eð hún snertir allan almenning. Önnur efni en lyf eru í sama formi og lyfjum hefur verið valið. Formið sker því ekki úr um hvað sé lyf og ekki lyf. Staðhæfing læknisins er því ekki staðreynd, heldur staðleysa. Vítamín fást bæði i töflum og mixtúrum sem uppbótarefni, og eru þá, eins og nafnið bendir á, tii að bæta upp vöntun þessara efna í fæðunni, en ekki lyf. Og um ÞAÐ mun enginn ágreiningur, að þau efni, sem líkaminn þarfnast, séu hverju mannsbarni nauðsynleg — frá upphafi til grafar. Og þeirra meðal eru VlTAMÍN. Meðal allra þeirra þjóða, sem ísl. læknar sækja framhaldsmenntun til, eru vítamín i lyfjaformi á frjálsum markaði sem uppbótarefni. Og það mun öllum kunnugum nokkur ráðgáta, hvernig læknir- inn hefur komizt hjá að veita þessu athygli. Þessar staðhæf- ingar læknisins eru EKKI stað- reyndir, en staðreynd ÞAÐ, að vanti þessi efni að meira eða minna leyti, hlýtur það að leiða til röskunar á heilsu okkar. Um ÞAÐ mun enginn ágreiningur. ... í lyfjaformi er hægt að taka hættulega mikið af sumum fjörefnum, og þess eru ekki fá dæmi,“ segir læknirinn. Einnig: „... inntaka einangraðra fjörefna getur valdið varhugaverðri rösk- un á efnahlutföllum i „Þegar Trölli stal jólunum” Bókin „Þegar Trölli stal jólun- um“ eftir dr. Seuss er komin út f fslenzkri þýðingu. Texti bókar- innar er allur f bundnu máli og er það Þorsteinn Vaidimarsson, sem yrkir og fslenzkar. Kvikmynd, sem byggð er á bók dr. Seuss, hefur verið gerð, og hefur hún m.a. verið jólamynd í fslenzka sjónvarpinu. Útgefandi bókarinnar er Bóka- útgáfan örn og Örlygur, sem gefið hefur út fleiri bækur eftir dr. Seuss. FRA LEIÐBEININGASTOÐ HUSMÆRRA Jólaþvottur á gluggatjöldum Á mörgum heimilum er til siðs að taka vel til fyrir jólahá- tíðina og nota margir tækifærið og þvo gluggatjöldin, enda nauðsynlégt að þvo þau við og við ekki sist ef reykingar eru mikið stundaðar á heimilinu. Áður en gluggatjöldin eru þvegin eru þau hrist vel til þess að fjarlægja laust ryk. Glugga- tjöld úr baðmull, líni og reion er óhætt að þvó í þvottavél, ef þau eru ekki svo fyrirferðar- mikil að þau rúmist ekki í þvottatunnunni. Mikið munstruð gluggatjöld úr reion eða gluggatjöld sem eru fóðruð, verður þó að láta efnalaug hreinsa. Ef gluggatjöldin eru úr polyacryl (t.d. dralon), poly- ester (t.d. terylene) eða úr glertrefjaefnum er best að handþvo þau, þar sm nauðsyn- legt er að þvo slík efni í mjög miklu vatni. Ef þau eru þvegin í litlu vatni er hætt við að hrukkur og fellingar komi í efnin, sem ekki er unnt að slétta með strokjárni. Best er að þvo gluggatjöldin í baðker- inu eða í stórum bala, svo að efnið „syndi“ í vatninu, þá er engin hætta á að það krypplist. Brjótið gluggatjöldin saman nokkrum sinnum, svo að þau geti legið slétt í vatninu. Þvott- urinn fer þannig fram, að gluggatjöldin eru dregin fram og aftur í þvottavatninu og i skolvötnunum, svo að þau krypplist sem minnst. Hitastig vatnsins á að vera um 30°C og skolvatnið á einnig að vera volgt. Gott er að láta mýkiefni í siðasta skolvatnið, þá rafmagn- ast gluggatjöldin síður. Ekki má vinda gluggatjöldin i vindu eða setja þau í þurrkara, heldur hengja þau til þerris rennblaut, slétta vel úr þeim á þvottasnúr- unni, hengja þau langsum á snúruna, svo að brot, sem kann að myndast af snúrunni sjáist siður, þegar gluggatjöldin eru hengd fyrir gluggann. „Storesa" má hengja rénn- blauta fyrir gluggana. Það má láta handklæði á gólfið til þess áð hllfa því við vatnsdropum. Látið ekki „storesa" með blý- kúlukanti liggja lengi i bleyti I þvottaefni með efnakljúfum. Sumar húsmæður hafa þá reynslu, að efnakljúfarnir hafa leyst upp zinkið í blýkúlunum og „storesarnir“ hafa orðið alsetnir gráum litlum flekkjum. Polyacrylefni á ekki að strjúka með járni, þar sem efnið er mjög viðkvæmt fyrir hita og hætt er við að glugga- tjöldin skekkist séu þau strok- in. Polyestergluggatjöld má strjúka ef nauðsyn krefur með 15° heitu strokjárni. Glertrefja- efni þarf aldrei að strjúka. Ullargluggatjöld á helst að hreinsa í efnalaug, þar sem mjög erfitt er áð komast hjá því að þau þófni í þvotti. Sigrfður Haraldsdóttir. líkamanum...“ Vissulega er hægt að taka hættuskammt „af sumum fjörefnum". En skyldi það ekki heyra til undantekninga? Eru þau dæmin ekki harla almenn, að fólk fái of lítinn skammt vita- mina? Og getur ekki einnig það „valdið varhugaverðri röskun á efnahlutföllum í líkamanum"? Veldur ekki bæði OF og VAN, eftir atvikum, meiri eða minni röskum? Veldur ekki langvarandi of — eða van — neyzla ALLRA nauðsynlegra næringarefna rösk- un i búskap líkamans? Og eru ekki mjög sterkar líkur til, að meðvirk orsök furðulega almenns slappleika og kvilla sé vöntun vitamína fremur en ofneyzla? Mjög verður að draga í efa, að nokkur hafi leitað NFL-hælsins sjúkur af ofnotkun vitamína. Staðhæfing læknisins í sam- bandi við 10—15 tegunda blönduna er röng, því að bæði getur verið um lyf og ekki lyf að ræða. Staðhæfingu sína studdi læknirínn með svari bóndans við átölum hálærða kandidatsins, sem fannst bóndi ekki sýna hon- um eðlilega virðingu. En bóndi svaraði: „Já, ég átti líka einu sinni kálf, sem gekk undir tveim kúm, en varð samt ekki annað en naut.“ Með þessu svari bónda vill lænirinn rökstyðja, að blanda 10—15 tegunda vítamina og stein- efna verði „aldrei annað en lyfja- blanda“. Hvílík rök! Heyrt hef ég áþekkt dæmi af manni, sem tók próf af tveimur háskólum, en varð samt annálaður einsýnis- maður, í stað þess að verða vísindalega sinnaður og leitandi. Eðlið lét hjá hvorugum, kálfinum eða houm, að sér hæða. — Rökin hæfa staðhæfingunni. Og þegar læknirinn staðhæfir, að vítamín „í pillum og mixtúrum“ jafngildi aldrei „fjörefnunum i matvælun- um sjálfum" gefur hann sér for- sendu, sem einungis er rétt að því marki, sem við neytum „matvæl- anna“, áður en geymsla eða suða hefur rænt þau „viðkvæmum næringarverðmætum“. Það er því órökrétt að miða við efnainnihald hráefnis, nema við neytum þess með óskertu efnainnihaldi. Læknirinn gerir ráð fyrir, eins og varlegast er, að við upphitun fari forgörðum eitthvað af „viðkvæmum næringarverð- mætum“. Líkur eru þá til, og raunar vissa, að við suðu fari for- görðum enn meiri næringarverð- mæti. Og þar sem geymsla veldur einnig, tíðast minnsta kosti, efna- rýrnun, þá er dæmið, sem læknir- inn tekur, rangt hugsað og óraun- hæft. Hins ber einnig að gæta, að yfirleitt mun vinnsla vitamína fara fram þegar hráefnið er sem bezt. Má því jafnvel gera ráð fyrir, að vitamininnihald í töflum og mixtúrum kunni að vera meira en í „matvælunum" er þau koma í munn okkar og maga, nema sá hluti sem við neytum með óskertu efnainnihaldí. Að loknu erindi sinu, á fundin- um, sagði læknirinn í svari við fyrirspurn að við gætum fullnægt vitamínþörf okkar seinni hluta vetrar með neyzlu grænmetis og ávaxta. Undirritaður benti á, að græn- meti og ávextir hefðu tapað miklu af vítaminum, er liði á vetur, auk þess sem vart eða ekki fengist græmeti ræktað við lifrænan áburð. Vafalaust viðurkenna allir, að æskilegast væri, að dagleg fæða almennings innihéldi öll nauðsyn- leg næringarefni, þar sem auð- skilið er, að rétt næring hlýtur að vera einn af hornsteinum heil- brigðinnar. Jafnvist er, að fæði almennings er ekki fullnægjandi. Og hvað kostar það þjóðina mikið i töpuðum dagsverkum og sjúk- dómum? Því getur enginn svarað. Stefna ber að því að gera fæði almennings fullnægjandi. Meðan svo er ekki, er ljóst, að uppbótar- efni á fæðu þjóna mikilvægu hlut- verki til heilsuverndar. En á því virðist læknirinn nákvæmlega engan skilning hafa. Það er því ekki líklegt, að hann leggi þung lóð á vogarskálarnar til að gera uppbótarefni óþörf. En að þvi ber að stefna. — En er ekki hætt við, að við fjarlægjumst það markmið með stækkandi hlut iðnaðar í mat- vælaframleiðslu? Og ekki er mér grunlaust, að kenningar læknisins um vítamín- gildi siðvetrargrænmetis og ávaxta reynist „bjarnargreiði" þeim, er treysta. Og alvörulaust er það ekki, að læknir NLF-samtakanna skuli boða slíkar kenningar, eigandi að vita betur. Harma ber þröngsýnisafstöðu hans alla. Og augljóst er, að vinna þarf og vinna ber að þessum mál- um i þágu almennings af meira raunsæi, meira viðsýni — og minni blindu á staðreyndir. Marteinn M. Skaftfells

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.