Morgunblaðið - 28.11.1975, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975
Sjálfstœðisflokkurinn efnir
til húsnœðismálaráðstefnu
Sjálfstæðisflokkurinn efnir
til húsnæðismálaráðstefnu
helgina 6. til 7. desember n.k. Á
ráðstefnunni verður fjallað um
flesta þætti húsnæðis- og bygg-
ingamála og lögð verður
áherzla á að skilgreina þau
vandamál, sem við er að fást f
þessum greinum. Gert er ráð
fyrir að ráðstefnan geri tillögur
um stefnu Sjálfstæðisflokksins
f þessum málaflokkum og verði
tillögur ráðstefnunnar lagðar
fyrir miðstjórn flokksins að
henni lokinni.
Húsnæðis- og byggingamál
hafa mjög verið til umræðu á
siðustu misserum og var á s.l.
vori ákveðið að efna til hús-
næðismálaráðstefnu á vegum
Sjálfstæðisflokksins og kaus
miðstjórn flokksins nefnd til að
vinna að undirbúningi hennar.
Nefnd þessa skipa þeir Ólafur
Jensson, Gunnar S. Björnsson
og Gestur Ólafsson.
I samtali við þá þremenninga
kom fram, að á undanförnum
árum hafa verið byggðar hér á
landi verulega færri íbúðir á
hverja 1000 íbúa en á Norður-
löndunum, þá er einnig að hér á
landi eru reistar færri íbúðir
fyrir sama fjármagn og í ná-
grannalöndunum. Við mörg
vandamál væri að fást innan
þessara greina og því væri
verulega brýnt að taka afstöðu
til þeirra.
Minntu þeir þremenningarn-
ir á að hlutfall lána i byggingar-
kostnaði hefði verið komið upp
fyrir 40% árið 1971 en þetta
hlutfall hefði lækkað mjög
flytur Geir Hallgrimsson, for-
sætisráðherra, ávarp, en í
hádeginu á laugardag flytur Jó-
hann Bergþórsson, verk-
fræðingur erindi um þróun
Hafnarfjarðar.
Ráðstefnan verður haldin í
Skiphólií Hafnarfirði og þarf að
tilkynna um þátttöku i henni til
Sjálfstæðisflokksins í síma
82900 fyrir 3. desember n.k.
Þátttökugjald í ráðstefnunni er
3.500 krónur. Þeir þremenn-
ingarnir sögðust sérstaklega
vilja hvetja alla þá sjálfstæðis-
menn, sem vinna við húsnæðis-
og byggingarmál utan Reykja-
víkur, til að taka þátt í störfum
ráðstefnunnar en henni er eins
og áður sagði ætlað að gera
tillögur um stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í húsnæðismálum.
Kemur í stað
sandpappírs
og rasps
Hinir hundrað
dagar Gunnars M.
— og allir hinir
verulega síðan. Fyrirsjáanlegt
er að fbúðaþörfin á eftir að
aukast, ef tekið er tillit til
fjölda ibúa í aldursflokkunum
frá 20—34 ára.
Ráðstefnan hefst klukkan 9
árdegis laugardaginn 6. desem-
ber og að lokinni setningu flyt-
ur Gunnar Thoroddsen,
iðnaðar- og félagsmálaráðherra,
ávarp. Þátttakendum í ráð-
stefnunni verður skipt niður i
starfshópa, sem hver tekur
fyrir ákveðið svið. Starfs-
hóparnir bera heitin Bygg-
ingariðnaðurinn, Rannsóknir,
Skipulag og hönnun mann-
virkja, íbúðarbyggingar og
Fasteignir. Fengnir hafa verið
færustu menn á hverju sviði til
að leiða starf þessara hópa á
ráðstefnunni.
I hádegisverði á sunnudag
Sandvlk-slfpistálið er fram-
leitt I þremur mismunandi
gerðum, með handföngum,
sem auðvelda notkun þeirra.
les sig eftir honum I „sæti númer
sex" á Alþingi, þar sem hann sagt
f hundrað daga sem varamaður
Sigurðar Guðnasonar, sjötta þing-
manns Reykjavfkur. Sú seta
verður honum tilefni palladóma
um samþingmenn sfna, „og fær
þar hver kappinn sinn ómælda
skammt", eins og segir á hlffðar-
kápu.
1 bókinni úir og grúir sem
vænta má af mönnum og meining-
um, og eru um 500 manns taldir
til í bókarlok í sérstakri nafna-
skrá, sem upphefst á franska rit-
höfundinum André Gide og
lyktar á íslenzka verzlunarmann-
inum Örnólfi Valdimarssyni.
Gunnar M. Magnúss er að vanda
bæði ómyrkur í máli og ófeiminn
að lýsa skoðunum sínum — sem
kunna enda sumar hverjar að
verða öllu umdeildari hérlendis
en bæði Gide og Örnólfur
samanlagt. „Sæti númer sex“ er
hálft fjórða hundrað blaðsíðna.
Skuggsjá gaf út og segir m.a. i
ávarpi sínu til lesenda:
„Þetta er bók, sem á erindi við
alla þá, sem áhuga hafa á pólitík,
hvar í flokki sem þeir kunna að
standa.“
Ungmennafélagið
Framför 70 ára
NÝLEGA er komið á markað-
inn hér á landi nýtt verkfæri
frá norska fyrirtækinu Sand-
vik, svonefnt slípistál. Er
þessu verkfæri ætlað að sam-
eina eiginleika sandpappirs og
rasps og er það framleitt úr
hertu ryðfriu krómstáli. Nota
má verkfæri þetta bæði á tré
og plast. Slípistálið er fram-
leitt í þremur mismunandi
gerðum þó má einnig fá það
með mismunandi grófleika
Menn og pólitfk er hráefnið í
bók Gunnars M. Magnúss, „Sæti
númer sex“, sem nú er komin f
bókabúðir. Hún spannar langt og
viðburðarfkt tfmabil, hefst þar
sem Asgeir Asgeirsson kemur 29
Gunnai1 M. Magnúss
ára gamall f framboð f Vestur-
Isafjarðarsýslu og fylgir honum
sfðan allar götu upp f forsetastól,
en rekur ennfremur hinn póli-
tíska æviþráð Gunnars sjálfs, sem
Minnisvarði um SigrítS í Bratt-
holli rdstur við Gullfoss
Cornelis
Wreesvijk
undir lás og slá
fyrir barsmíð
Stokkhólmi — 26. nóv.
— Frá fréttaritara Mbl.
CORNELIS Wreesvijk fékk
tveggja mánaða fangelsisdóm í
dag fyrir að berja sænskan rithöf-
und. Tildrögin voru þau, að í vor
hittust þeir Arvid Rundberg rit-
höfundur og Cornelis Wreesvijk,
en þeir hafa löngum verið á önd-
verðum meiði. Að þessu sinni
enduðu samræður þeirra með því,
að Rundberg kallaði Wreesvijk
„feitan djöful, sem færi úr og i
Kommúnistaflokkinn til að aug-
lýsa sjálfan sig“. Þessari útnefn-
ingu reiddist Wreesvijk svo illi-
lega að hann réðst á Rundberg og
barði hann illyrmislega.
Áður hafði Wreesvijk verið
kærður fyrir að misþyrma kyn-
ferðislega brengluðum fórnar-
lömbum, en dómur í því máli
hefur ekki verið kveðinn upp.
Hákarlasól
Leikrit Erlings Halldórssonar,
Hákarlasól, sem hefur verið sýnt
á Litla sviði Þjóðleikhússins að
undanförnu, verður sýnt f sfðasta
sinn á sunnudag, og hefst sýning
kl. 3 e.h. — Leikarar eru þrír:
Gunnar Eyjólfsson, Sigurður
Arnar Arngrímsson og Sigurður
Skúlason. — Höfundur er sjálfur
leikstjóri, en leikmynd gerði
Magnús Tómasson.
Mælifelli 25. nóvember
SlÐASTLIÐINN laugardag var
þess minnzt með hófi f Argarði að
liðin eru rétt 70 ár frá því er átta
Lýtingar stofnuðu ungmenna-
félagið Framför í gamla fundar-
húsinu við Steinsstaðalaug.
Guðrún Ágústsdóttir stýrði
skemmtuninni, sem var á alla
grein hin ánægjulegasta og
félaginu og undirbúningsnefnd-
inni til hins mcsta sóma.
Núverandi formaður, Jóhann
Guðmundsson f Stapa, flutti
hátfðarræðu og rakti sögu félags-
ins ásamt Valdemar Jóhannes-
syni frá Gilkoti, sem gerður var
að heiðursfélaga og bar fram
snjalla ræðu.
1 fyrstu stjórn félagsins voru
Jón Arnason á Reykjum, Eggert
Jónsson Nautabúi og Kristján
Árnason á Krithóli. Einn stofn-
enda er enn á lífi, Ellert Jóhanns-
son bóndi á Holtsmúla í Reyni-
staðarsókn, og barst kveðja frá
honum og fjölmörgum Öðrum
félögum, sem boðið var til
fagnaðarins en gátu eigi komið.
Þá töluðu séra Gísli H. Kolbeins
á Melstað, sem minntist góðra
stunda með ungmennafélögum,
er hann var heima í foreldra-
húsum á Mælifelli fyrr á árum og
Björn Sigurbjörnsson skólastjóri
sem flutti kveðjur og árnaðar-
óskir frá UMFS en hann er for-
maður sambandsins.
Framför á nokkurt land með
hitaréttindum við Steinsstaðalaug
og gaf nokkurn hluta þess fyrir
tæpum 30 árum undir skólabygg-
ingu. Fjárhagsbyrði félagsins nú
er mikil vegna aðildar þess að
félagsheimilinu Árgarði, en
margir vilja rétta hjálparhönd og
voru dilkar lagðir inn á reikning
Framhald á bls. 27
AÐALFUNDUR Arnesinga-
félagsins var haldinn í Domus
Medica 11. nóvember s.l. 1 skýrslu
stjórnar var sagt frá margþættu
félagsstarfi á liðnu ári, þar sem
stuðlað var að kynningu og
samskiptum Árnesinga austan
og vestan heiðar m.a. með þjóð-
hátfðarvöku, árshátfð og Jóns-
messuhátfð f héraði. Þá er Ar-
nesingakórinn mikill þáttur f
starfi félagsins en hann gaf út 14
Iaga hljómplötu á starfsárinu.
Ennfremur hefur félagið unnið
að verndun merkra sögustaða f
Arnesþingi og stundað náttúru-
vernd og skógrækt eftir föngum.
A Jónsmessuhátíð félagsins,
sem haldin var síðastliðið sumar í
Aratungu, var sett fram af hálfu
félagsins sú hugmynd að verðugt
væri að sýna starfi, framsýni og
þjóðhoilustu Sigríðar í Brattholti
þann sóma að reisa henni minnis-
varða við Gullfoss, en hún barðist
mjög fyrir verndun fossins á
sfnum tíma. Á aðalfundinum var
félagsstjórn falið að vinna að
þessu máli í samvinnu við félög í
Biskupstungum og fólk vítt um
Iand til að hrinda þessari hug-
mynd í framkvæmd. Er fjársöfn-
un hafin.
Hákon Sigurgrímsson sem verið
hfur formaður félagsins í 8 ár gaf
ekki kost á sér til endurkjörs.
Stjórn félagsins skipa nú: For-
maður Arinbjörn Kolbeinsson
læknir, ritari Bjarni K. Bjarnason
borgardómari, gjaldkeri Sig-
mundur Stefánsson viðskipta-
fræðingur, og meðstjórnendur
Unnur Stefánsdóttir fóstra og
Herdís Pálsdóttir húsmóðir.