Morgunblaðið - 28.11.1975, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1975
27
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Rauðamöl
Til sölu rauðamöl heimkeyrð
eða ámokuð. Sjáum einnig
um útjöfnun, þjöppun og
jarðvegsskipti.
Kambur, Hafnarbraut 10,
simi 43922.
Milliveggjahellur
Léttar, sterkar, sjáum um
flutning að húsdyrum, hring-
ið i sima 99-1 399.
Steypuiðjan Selfossi.
Verðlistinn
Munið sérverzlunina með
ódýran fatnað, Laugarnes-
vegi 82, sími 31 330.
Takiðveftir
vinsælu pilsin frá Gor Ray
eru komin, síð og hálfsíð.
Opið laugard. 10—12
Dragtin Klapparstíg 37.
Ódýrt — Ódýrt
Telpnanáttkjólar Verð frá kr.
500. Kvennáttkjólar verð frá
kr. 1000.
Elízubúðin, Skipholti 5.
Trésmiðir —
Trésmiðjur
Inngreyptir PVC þéttilistar
fyrirleggjandi. Bognir og
beinir.
Gluggasmiðjan Siðurmúla
20 sími 38220.
Til sölu ný
flauelskápa nr. 16. Verð 9.
þús. Upplýsingar í síma
40345.
Spariskírteini
Verðtryggð spariskírteini
ríkissjóðs 1. fl. 1970 20 stk.
til sölu. Tilboð sendist
blaðinu fyrir 30. nóv. merkt:
Gulltryggð: 2256.
: húsnæöi
óskast
Skrifstofuhúsnæði
Óska eftir að taka á leigu ca
30 fm húsnæði fyrir skrif-
stofu. Tilboð sendist Mbl
merkt: K-2314"
Kona utan af landi
með barn, óskar eftir ibúð.
Uppl. í síma 74726, næstu
daga.
Snjóplógur
til sölu, má nota á vörubíl,
veghefil eða gröfuskóflu.
Upplýsingar í síma 97-1 288.
Til sölu
er Clark vörulyftari Selst
ódýrt. Upplýsingar I sima 96-
23141.
Citroen
Citroen D super '74 til sölu.
Skipti á ódýrari bil möguleg.
Uppl. i sima 99-3635.
Til sölu
Citroen Dyana '71, mjög vel
með farinn. Uppl. eftir kl. 12
í si ma 8 51 18.
Samvinnuskólamaður
Með 5 ára starfsreynslu við
bókhald, gjaldkerastörf, inn-
flutnings og almenn skrif-
stofustörf óskar eftir fram-
tiðaratvinnu. Uppl. í sima
53123. næstu daga.
Vél — Girkassi
Vil kaupa Buick vél eða 8
strokka og girkassa við Buick
V-6 vél úr Willys eða
Jeepster. Tilboð sendist Mbl.
fyrir 8. des. merkt: (-2381.
I.O.O. F. 12 = 1571 1 2 8 8 ’/r
= E.T. 11 Þ.K.
□ Gimli 59751 1292 — 4
IOOF 1. = 15711288 Vó
E.T. II — 9-00
Laugardagur 29. nóv.
kl. 13.00
Fuglaskoðunarferð i nágrenni
Reykjavikur. Leiðbeinandi
Grétar Eiríksson. Hafið kiki
meðferðis. Verð kr. 500.—
Farmiðar við bílinn. Brott-
fararstaður Umferðarmið-
stöðin (að austanverðu)
Ferðafélag Islands
Frá Guðspekifélaginu
Hvað erum við?
nefnist erindi sem Birgir
Bjarnason flytur í Guðspeki-
félagshúsinu, Ingólfsstræti
22 i kvöld föstudag 28. nóv.
kl. 9. Öllum heimill
aðgangur.
Stúkan Frón nr. 227
Fundur verður haldinn i
Templarahöllinni föstudaginn
28. nóv. á venjulegum tima.
Kaffi eftir fund. ÆT.
ÚTIVISTARFERÐIR
Laugard. 29. 11. kl.
13
Hvaleyri Hafnarfjörður
Byggðasafnið skoðað eftir
göngu. Fararstj. Gísli Sig-
urðsson. Verð 500 kr.
Sunnud. 30. 11. kl.
13.
Setbergshlið. Fararstj. Gisli
Sigurðsson. Verð 500 kr.,
fritt fyrir börn i fylgd með
fullorðnum. Brottför frá
B.S.Í. (vestanverðu)!
Útivist.
Samtök sykursjúkra,
Reykjavík
Félagsfundur i Domus
Medica í kvöld kl. 20.30
föstudag 28. nóv.
Ársæll Jónsson læknir flytur
erindi. Rædd félagsmál.
Skemmtiatriði, Bingóspil o.fl.
Jólakort- og jólapappír sam-
takanna til afgreiðslu á fund-
inum. Félagar fjölmennið.
Samtök sykursjúkra Reykja-
vik.
K.F.U.K. i Reykjavík
minnir á bazarinn laugardag-
inn 6. desember. Tekið
verður á móti gjöfum, hand-
unnum munum og kökum til
föstudagsins 5. des. i félags-
húsinu að Amtmannsstíg 2
B.
Stjórnin
Fataúthlutun
verður hjá Systrafélaginu
Alfa, Ingólfsstræti 19,
þriðjudaginn 2. des. kl. 2
e.h.
Basar
Kvenfélag Hallgrímskirkju
verður laugardaginn 29. nóv-
ember kl. 2 e.h. i Félags-
heimili kirkjunnar. Gjöfum
veitt viðtaka fimmtudag og
föstudag kl. 3 — 6 í Félags-
heimilinu.
V"'"........y y y-‘..y1"....y.....-v"..........
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáauglýsingu
í Morgunblaðinu þann: ..................
>
NAFN.
HEIMILI: ........
A A ^ *
SfMI:
7V
A/I
a
'f 'y . y- y " . . VT1" .y***.»"" v ".—■"”T***,"V V*
‘Athugið SkrifiS með prentstöfum og < t r.ix í£/£.u r :o,iJr.utt AA TfUTA A ÍA/6.U ZJjt-'
j> J,SA MÆAA ,/AÚA ./. .t/M/Jt At/A- '
( Áríðandi er að nafn, heimili og sfmi fylgi. < ^ . JEAun ./ MÆ/M/jL/ K
l J, ,6,/AA ,1,á,o,ai, . <
Auglýsingunni or voitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
REYKJAVÍK: HAFNARFJÖRÐUR:
KJÖTMIÐSTÖÐIN, Laugalæk 2,
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Háaleitisbraut 68,
KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahlfð45
HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2—6
SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS
Álfheimum 74,
ÁRBÆJARKJÖR,
LJOSMYNDA-
OG GJAFAVÖRUR
Reykjavfkurvegi 64, *
47 VERZLUN -<
ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR, €
Suðurgötu 36,
KÓPAVOGUR «
ÁSGEIRSBÚÐ, Hjallabrekku 2'
BORGARBÚÐIN, Hófgerði 30
Rofabæ 9,
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
Blómin okkar
— 70 ára
Framhald af bls. 14
félagsins i haust frá nokkrum
bæjum, en peningagjafir bárust
frá Helgu Steindórsdóttur á
Fitjum og Jóhanni Magnússyni og
Lovfsu Sveinsdóttur frá Mæli-
fellsá. Heiðmar Jónsson og Pétur
Viglundsson stýrðu söng og
skemmtiatriðum og léku síðan
fyrir dansi og miðað við greiðslur
til hljómsveita var það eigi lítil'
afmælisgjöf að þeir gáfu alla
vinnu sfna. Nú eru f Framför lið-
lega 100 félagar og er það næst
stærsta ungmennafélagið í Skaga-
firði.
Sfra Ágúst.
— Leikfélag
Framhald af bls.7
haust. Fyrsta hlutverk hennar
með Leikfélagi Vestmannaeyja
var Ulrikka í Kinnarhvolssystr-
um árið 1950 og síðan hefur
hún farið á kostum í hverju
hlutverkinu á eftir öðru. Hún
hefur m.a. leikið Höllu f Fjalla-
Eyvindi, Núrý í þremur skálk-
um, kerlinguna í Gullna hliðinu
og þámunamargireftir túlkun
hennar á Edie í Margt býr f
þokunni. Unnur hefur verið
einn af aðal utanborðsmótorum
Leikfélagsins um Ieið og
hún hefur þá gjarnan verið
stjórnborðshlið skipsskrokks-
ins einnig.
Næsta verkefni Leikfélags
Vestmannaeyja verður kvöld-
vaka sem ber nafnið Stiklað á
stóru og verða þar tekin fyrir
atriði úr hinum f jölmörgu verk-
efnum Leikfélags Vestmanna-
eyja í gegn um árin.
— Kirkjudagur
Framhald af bls. 17.
ræðu. Þá verður danssýning nem-
enda úr dansskóla Heiðars Ást-
valdssonar, Haukur Guðlaugsson,
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar,
leikur einleik á orgel safnaðarins
og loks verður helgistund í umsjá
sóknarprests.
Sagnaðarfólk í Árbæjarpresta-
kalli og aðrir Reykvíkingar! Verið
öll velkomin i Árbæjarskóla á
kirkjudaginn. Sýnum samstöðu
okkar og hug til kirkju og kristni i
verki með glæsilegri þátttöku i
dagskrárliðum kirkjudagsins á
sunnudaginn kemur.
Guðmundur Þorsteinsson.
ENN er mér f minni atvik, sem
gerðist fyrir meira en fjörutíu
árum, þegar ég rakst á gamlan
kunningja frá barnaskólanum.
Það var náttúrufræðibókin, og
opnaðist f kaflanum um einstakar
jurtir. Ég var þá nýkominn heim
úr fyrstu heimsókn minni til
Englands þar sem ég hafði hand-
leikið margs konar aðlaðandi
bækur fyrir ungu kynslóðina.
Mér brá f brún, að sjá þessa þurr-
fræðilegu upptalningu. Lesmáls-
rúmið var mjög þröngt, eins og
húsakosturinn og annað fyrr á
dögum.
Nú er öldin önnur, datt mér í
hug þegar ég opnaði nýtt rit frá
ríkisútgáfu námsbóka, sem
Ingólfur Davíðsson, hinn kunni
grasafræðingur, hefur samið. Má
segja, að þar „kennir margra
grasa“. Fræðslan fléttast inn í
samveru og samtal barna og full-
orðinna, svo og barna innbyrðis.
Spurt er af forvitni og þekkingar-
þrá, svör veitt og numin af jafn-
mikilli ánægju beggja aðila. Þess
vegna er það, að innán um allan
sumarilminn og litaskartið gleðj-
ast allir við að skyggnast inn f
útlit og eðli fagurra lífvera og
fyrirbrigða á lffssviðum þeirra. I
meðferð Ingólfs á þessu efni
tengjast ólík aldursstig, svo sem
vera ber, en báðum er sameigin-
leg tilfinningin fyrir því, að hin
ýmsu lífsform búa yfir ýmsu
óræðu og dásamlegu. Á þessu
örlar greinilega í bókinni að vissu
marki.
Spurningar og svör er alltaf góð
og gild aðferð til öflunar og
miðlunar fræðslu. Oft hef ég
hugsað um, að líklega væri heppi-
legt að sveigja verulega inn á þá
braut í kennslubókum okkar fyrir
hin ýmsu aldursstig. Séu
spurningar einkenndar á ein-
hvern hátt, svo að vel blasi við,
verður allt aðgengilegra aflestrar.
Spurningar hafa þann kost að
standa uppréttar á verði um
ákveðin atriði. Þær auðvelda
einnig upprifjun. Aðferð útvarps
og sjónvarps gefa nytsamar
bendingar í þessu efni.
„Blómin okkar“ rifja upp fyrir
mér, hvernig' ég naut sem barn
nokkurrar tilsagnar úti í náttúr-
unni um líf jurta og heiti, — og
enn finn ég til þakklætiskenndar
til þeirra, sem sýndu mér þetta og
þuldu mér fróðleik. Fullorðið fólk
ætti að lesa þessa bók, til þess að
njóta hennar með börnunum
þann tiltölulega stutta tíma
ársins, sem gróður er i blóma.
Hér er rétt að láta hið fjöl-
breytilega efnisyfirlit bókarinnar
fylgja:
1. Hafa blómin gagn af fegurð
sinni og ilmi? 2. Fræin, vindurinn
og dýrin. 3. Hvað sprettur upp af
þér, fræ? 4. Vor og sumar í rfki
blómanna. 5. Siggi ræktar blóm.
6. I blómagarðinum. 7. I gróður-
húsi. 8. Ævintýri kálsins og
rófnanna. 9. Ævintýri kartöflunn-
ar. 10. Fjöruferð. 11. „Flóatetur,
fífusund". 12. I skóginum. 13.
Risar og öldungar í ríki skógarins.
14. Græna undrið. 15. Talað um
fæðukeðjuna. 16. Hvað á ég að
gera? 17. Landnám gróðurs og
dýra. 18. Hraun og „lifandi
steinar.“ 19. Haustlitir. 20. Mel-
grasið er merkileg jurt. 21.
Sveppir vaxa bæði úti og inni. 22.
Hvað gera jurtir til að verjast
þurrki? 23. Jurtir, sem verja sig
gegn dýrum.
Einfaldar myndlinur Halldórs
Pétursonar standa alltaf fyrir
sínu, hér eins og annars staðar.
En sérstaklega gleðilegt er að sjá
milli 30 og 40 litmyndir í bókinni,
sem bera sannleiksvitni um
jurtirnar i allri þeirra aðlaðandi
fegurð.
Helgi Tryggvason
(kennari)