Morgunblaðið - 03.01.1976, Blaðsíða 15
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1976
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. JANUAR 1976
15
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavik.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. simi 10 100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80.
Áskriftargjald 800,00 kr. á mánuði innanlands.
í lausasölu 40,00 kr. eintakið.
Landhelgisdeila
á nýju ári
Við því var að búast, að
hugleiðingar um land-
helgisdeiluna við Breta mundu
mjög móta áramótagreinar og
ræður forystumanna þjóðar-
innar að þessu sinni, Segja má.
að niðurstaða þeirra hugleið-
inga hafi í öllum tilvikum verið
sú, að eins og nú er ástatt, væri,
lítil sem engin von um sam
komulag við Breta og að ís-
lendingar verði að búa sig und-
ir langt og hart stríð við Breta
um yfirráð yfir fiskimiðunum
við landið,
í nýársávarpi sínu sagði dr.
Kristján Eldjárn um land-
helgismálið: ..Vérhöfum neyðzt
út í ófrið við grannþjóð vora og
gamla viðskiptaþjóð, sem vér
viljum í raun og veru aðeins
eiga góð og friðsamleg skipti
við, Hér er komið I óvænt efni,
en um það tjáir þó ekki að fást,
því að líf liggur við. Þessi
nýársdagur er að því leyti meiri
tímamót en aðrir nýársdagar,
að aldrei áður hefur þetta
íslenzka einkunnarorð verið
viðlíka skýru letri skráð svart á
hvítu: fiska eða farast. Þetta er
ágreiningslaust sammæli allra
og I þvi felst ekkert vanmat á
öðrum atvinnuvegum þjóðar-
innar og ekki heldur það, að
(slendingar hafi þorskinn fyrir
einskonar guð, eins og einhver
útlendur maður komst að orði
fyrir skömmu. Hitt er annað
mál, að þorskurinn er íslenzk
guðsgjöf. Við getum tekið oss i
munn orð Petters Dass í
Noregi, sem sagði endur fyrir
löngu: „Ef þorskurinn bregzt
oss hvað bjargar oss þá?" Þetta
er hin mikla spurning dagsins
og ekki síður, ef höfð eru á
henni endaskipti: Ef vér
bregðumst þorskinum hver
bjargar honum þá? Fyrir þann
tvíeina málsstað, sem þessar
spurningar víkja að, eigum vér
nú í striði einu sinni enn. Fyrir
þann málsstað hætta vaskir
íslenzkir sjómenn lífi og limum,
fyrir þann málsstað kostum vér
til fé og kröftum, sem næg
önnur verkefni kalla á. Sá
málsstaður verður að sigra.
Enn má vona að sigurinn megi
vinnast með friði en vinnnast
verður hann hvað sem í skerst,
það blasir nú við oss i skæru
Ijósí."
í áramótagrein sinni í
Morgunblaðinu fjallaðí Geir
Hallgrimsson, forsætisráð-
herra, einnig um landhelgis-
deiluna við Breta og lét í Ijós þá
skoðun, að langt mundi í land
þar til sú deila yrði leyst og
sagði: ,,Án algjörra sinnaskipta
hjá Bretum tel ég, að enn sé
langt í land að grundvöllur
myndist fyrir samningum við
þá. Það er ihugunarefni að
kanna hvað vakir fyrir Bretum,
sem margir hafa talið þá þjóð,
sem kunni bezt til verka i
samningum þjóða á milli. Við
hljótum að velta því fyrir okkur,
hvort þeir séu virkilega þeirri
blindu slegnir að halda að með
valdbeitíngu geti þeir knúið
okkur til að láta af vilja sínum.
Fyrri reynsla ætti ekki að leiða
þá í þessa villu og vist er, að
reynslan af núverandi deilu
mun hvorki leiða til þess að
þeir nái vilja sínum fram né efla
málsstað þeirra Breta, sem
reyna að réttlæta valdbeiting-
una "
Forsætisráðherra vék í ára-
mótaávarpi sínu i hljóðvarpi og
sjónvarpi að afstöðu okkar til
fiskveiðideilunnar og þeirra
aðgerða sem við grípum til og
sagði: „Sagt hefur verið, að
fiskveiðideilan sé taugastríð
Við skulum umfram allt halda
jafnvægi og beita kaldri skyn-
semi og gæta þess, að allt sem
gert er komi okkur og málsstað
okkar að gagni í bráð og lengd,
en snúist ekki svo i höndum
okkar, að andstæðingnum
verði að vopni. Aðgerðir okkar
mega ekki miðast við það að fá
okkar eigin tilfinningum útrás
hversu skiljanlegar og rétt-
mætar, sem þær kunna að
vera."
Eins og sjá má af þessum
tilvitnunum i forseta íslands og
forsætisráðherra er landhelgis-
stríðið ofarlega i hugum for-
ystumanna þjóðarinnar og Ijóst
er, að landhelgisdeilan mun á
því nýja ári, sem nú fer í hönd,
yfirgnæfa öll önnur vandamál,
sem þjóðin á við að glíma.
Ekkert bendir til þess, að
grundvöllur muni skapast á
næstunni fyrir viðræðum eða
samningum við Breta* Líklegra
er, að landhelgisdeilan eigi enn
eftir að harðna frá því sem nú
er og þá skiptir öllu máli
ffammi fyrir ofbeldinu og ofur-
eflinu, að þjóðin standi saman
og láti ekki önnur minnihátfar
ágreiningsmál leiða til
sundrungar og innbyrðis rifrild-
is á örlagatímum. Enginn okkar
veit, hvað hið nýja ár ber í
skauti sér í þessum efnum eða
öðrum en höfum það hugfast,
að á fiskimiðunum er mikil ai-
vara á ferðum. Þar rlkir hættu-
ástand. Þar er lífi íslenzkra sjó-
manna teflt í tvísýnu. Með það
í huga skulum við horfa af
alvöru og festu fram til þeirra
átaka í landhelgisstríðinu sem
þetta nýja ár áreiðanlega flytur
með sér.
Góðir áheyrendur,
„1 ævinnar leik sjást atvik og þættir í
eilífri skipting. Allt byrjar og hættir“.
Þannig kemst Einar Benediktsson að orði
í aldamótaljóði sínu. Hvaðeina hefur sinn
tíma og á þessari stundu leiðum við hugann
að því sem var, er og verður.
Hver og einn hugsar í hljóði, gleðst,
hryggist eða lætur sér fátt um finnast.
Hugur þinn hvarflar til ástvina, vina og
þjóðlífsins alls umhverfis þig. Hvernig sem
högum og háttum okkar er farið, eigum við
sögu þjóðarinnar sameiginlega. Þá sögu,
sem ber sterkt svipmót af landinu og haf-
inu, kostum þeirra og kenjum.
Á aðventunni og jólum höfum við enn
verið minnt á það reginafl, sem býr í eld-
legri náttúru landsins. Eldgosið í Leirhnjúk
og landskjálftarnir, sem því eru samfara,
gerðu vart við sig réttu ári eftir að snjó-
flóðin féllu í Norðfirði og tæpum tveimur
árum eftir eldgosið á Heimaey.
Um þessa jólahátíð heimsótti einnig
„landsins forni fjandi“, „leikbróðir elds-
ins“, hafisinn, strendur landsins, stórviðri,
flóð og vatnavextir urðu víða um land.
Landið agar okkur enn í dag, þrátt fyrir
margvíslegar framfarir, sem hafa vissulega
bætt vígstöðuna í baráttunni við náttúru-
öflin. Okkur verður hugsað til forfeðra
okkar, sem biðu og báðu, börðust og
þraukuðu. Sú harða lífsbarátta hefur skilað
landinu í okkar hendur.
Þótt eldur úr iðrum jarðar og jarð-
skjálftar veki mönnum ugg í brjósti, skul-
um við minnast þess, að tvær megin-
orkulindir landsins, jarðhitinn og vatnsork-
an, eru sprottnar úr jarðfræðilegri gerð
þess. Eldvirknin, sem okkur stendur
stöðugt ógn af, er einnig undirstaða fram-
fara og farsældar í landinu. Við hljótum að
leitast við að þekkja þessi náttúruöfl sem
best, og þótt við getum seint tamið þau,
verðum við að lifa í sátt við þeirra lögmál.
En atburðir siðustu vikna sýnaog skýrt
nauðsyn þess að byggja landið allt og nýta
kosti þess sem vfstast.
XXX
Fiskimiðin okkar eru þau náttúrugæði,
sem fyrst og fremst kveða á um lífskjörin í
landinu.
Útfærsla fiskveiðilögsögunnar í 200 sjó-
mílur 15. október 1975 er því ótvírætt mikil-
vægasti atburður liðins árs, lokaskrefið í
markvissri sókn, eftir að við öðluðumst fullt
sjálfstæði.
Útfærslan er einhliða gerð af okkar
hálfu, eins og fyrri áfangar f landhelgisbar-
áttunni. En öll skref okkar í útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar hafa engu að síður verið í
samræmi við þróun á alþjóðavettvangi. Og
sem smáþjóð getum við glaðst yfir að hafa
átt þátt í að hraða þeirri þróun okkur í hag.
Þótt við séum að vísu þess fullviss, að 200
mílna efnahagslögsaga strandríkis verði
viðurkennd alþjóðleg regla að aflokinni
hafréttarráðstefnu Sameinuðu þjóðanna,
þoldi útfærslan enga bið, því að lífsbjörg
okkar var í veði. Næstu 2—3 árin skipta
sköpum, fiskstofnarnir geta þá hrunið, ef
ekki er dregið úr veiðisókn.
Þess vegna hlutum við að taka í okkar
hendur stjórn á öllum íslandsmiðum, þótt
það leiddi til deilna við aðrar þjóðir.
Við höfum með þátttöku í Sameinuðu
þjóðunum og öðrum alþjóðlegum skuld-
bindingum heitið því, að leitast við að leysa
deilur við aðrar þjóðir með friðsamlegum
hætti og samningum.
f samræmi við þessa meginreglu, höfum
við gert samninga, sem takmarka verulega
veiðar útlendinga og fela í sér viðurkenn-
ingu í reynd á óskoruðum rétti okkar til 200
milna lögsögu.
Enn er þó óleyst deila við Breta, sem sýnt
hafa óbilgirni og fara með herskipavaldi
um íslenskt yfirráðasvæði.
Orðsendingar hafa gengið milli mín og
Harold Wilson, forsætisráðherra Breta. Ég
hef í bréfi mínu sagt, að framhald ólöglegra
veiða breskra togara undir herskipavernd
og ásiglingar á íslensk varðskip geti leitt til
manntjóns og spilli sambandi fslands og
Bretlands alvarlega og varanlega. Jafn-
framt lagði ég áherslu á, að breska ríkis-
stjórnin yrði að taka til greina verndunar-
sjónarmið og lífshagsmuni íslendinga af
Áramótaávarp Geirs Hallgrímssonar forsætisráðherra
fiskveiðum. Ekki er ástæða til að rekja efni
þessara orðsendinga frekar.
Við skulum ekki vænta skjótrar lausnar á
deilunni við Breta. Þegar þeir láta af her-
siglingu sinni um íslenska lögsögusvæðið og
togarar þeirra hætta ólöglegum veiðum,
kann lausn að finnast. Til þess verður
breska ríkisstjórnin þó að viðurkenna villu
síns vegar. Vegna þrýstings fámenns hóps
sendi hún flota sinn á vettvang, en nú
bendir margt til þess, að herskipaíhlutun á
íslandsmiðum sé alls ekki í samræmi við
réttlætiskennd bresku þjóðarinnar.
íslendingar vita, að í þessu deilumáli
höfum við bæði réttinn og rökin okkar
megin, og tíminn vinnur með okkur. Engu
að síður hljótum við aó leita allra ráða til að
stöðva ólögmætar veiðar og herskipaíhlut-
un Breta.
Sagt hefur verið, að fiskveiðideilan sé
taugastríð. Við skulum umfram allt halda
jafnvægi og beita kaldri skynsemi. Og gæta
þess, að allt, sem gert er, komi okkur og
málstað okkar að gagni í bráð og lengd, en
snúist ekki svo í höndum okkar, að and-
stæðingnum verði að vopni. Aðgeróir okkar
mega ekki miðast við það að fá okkar eigin
tilfinningum útrás, hversu skiljanlegar og
réttmætar sem þær kunna að vera.
Yfirráðasvæði íslands stækkar nú um
rúma 500 þúsund ferkílómetra, eða þrefald-
ast. Lýsir það vel, hvílíkt verkefni er að
halda þar uppi lögsögu. Þar mæðir mest á
landhelgisgæslunni og starfsmönnum
hennar. Við biðjum þeim og öllum á sjó eða
við önnur hættustörf verndar og hand-
loiðslu.
Öll vonum við og vinnum að því, að næsta
ár færi okkur fullnaðarsigur í landhelgis-
málinu.
Frumskilyrði þjóðarfrelsis
er fjárhagslegt sjálfstæði
XXX
Þótt fullur sigur vinnist í landhelgis-
málinu er enn verk að vinna, svo að tryggja
megi nauðsynlega friðun fiskimiða og fisk-
stofna með hagkvæmasta nýtingu þeirra
fyrir augum. Við eigum þá vonandi aðeins
við sjálfa okkur að eiga, en engu að síður
getur orðið erfitt að ná samkomulagi meðal
fulltrúa mismunandi hagsmuna á þessu
sviði sem öðrum. Það verður þó að takast.
Ef óvægilega er að auðlind fiskimiðanna
farið, gengur hún úr sér svo að ekki verður
um bætt.
Á sama hátt og rannsóknir fiskifræðinga
leiða okkur fyrir sjónir, að hafið er ekki
ótæmandi auðsuppspretta hafa vísinda-
menn í landbúnaði varað við ofbeit og
ofnýtingu lands.
í 2. bindi Sögu íslands, sem rituð er í
tilefni af 1100 ára byggð í landinu, er
komist svo að orði: „Á síðar öldum, eftir að
íbúatala verður þekkt upp úr 1700, og þar
til áhrifa tæknibyltingarinnar úti í Evrópu
tók að gæta á 19. öld, virðist landið ekki
hafa framfleytt meira en um 50 þúsundum
manns. Þegar fólksfjöldinn fór fram úr því,
var mannfall af harðæri venjulega á næstu
grösum“.
Fólksflutningar íslendinga vestur um haf
áttu rætur sínar að rekja til þessa.
Á liðnu ári héldu Vestur-íslendingar
hátíðlegt 100 ára afmæli landnáms í
Kanada. Allir þeir mörgu, sem sóttu þá
heim, urðu fyrir miklum áhrifum, dáðust að
dugnaði landa fyrir vestan og komu aftur
með aukna trú á íslenska arfleifð.
Eftir fólksflutninga vestur um haf, hafa
tækniframfarir gerbreytt myndinni frá
fyrri tíð og gert landið byggilegra, en við
höfum einnig verið minnt á það, að tæknin
getur ekki aðeins aukið verðmætasköpun,
heldur einnig eytt auðlindum. Nauðsynlegt
er að við gerum okkur grein fyrir, að gæðin
eru takmörkuð og áframhaldandi ítarlegar
vísindalegar rannsóknir verða að fara fram
á afrakstrargetu lands og hafs. Þær upplýs-
ingar, sem fyrir liggja, benda eindregið til
þess að við verðum að hagnýta orkulindir
okkar í vaxandi mæli til þess að byggja upp
alhliða iðnað í landinu og efla nýjar at-
vinnugreinar til þess að sjá fjölgandi lands-
mönnum og niðjum þeirra fyrir sífellt betri
lífskjörum eftir því sem fram líða stundir.
Við gefum okkur sannast sagna of lítið
tóm til að huga að æskilegri stefnumörkun
til lengri framtíðar. Við erum gjarnan
bundin um of við lausn vandamála líðandi
stundar frá degi til dags. Að sumu leyti eiga
síbreytileg ytri áhrif, sem snúast verður við
án tafar, sök á þessu. Að öðru leyti er við
sjálfa okkur að sakast. Okkur hefur ekki
tekist að skapa okkur starfsreglur eða
starfsgrundvöll til lengri tíma í senn, en
það hlýtur að vera markmið okkar.
XX X
Þótt margt hafi verið okkur andstætt á
liðnu ári, á þróun þjóðarbúskaparins á ár-
inu 1975 þrátt fyrir allt einnig sínar ljósu
hliðar.
Það er mikill og gleðilegur árangur að
takast skyldi að komast þannig gegnum
misvindi liðins árs, að ekki kæmi til at-
vinnuleysis. Þessi árangur virðist enn
markverðari, þegar litið er til atvinnuleysis
í nálægum löndum og þess er gætt, að svo
hastarleg var breytingin til hins verra í
skilyrðum þjóðarbúsins á árinu, að jafn-
mikill afturkippur þjóðartekna hefur ekki
orðið á einu ári síðan lýðveldið var endur-
reist.
Þótt mikil verðbólga geisaði, tók mjög að
draga úr hraða hennar þegar á árið leið,
þannig að í árslok var verðbólguhraðinn
helmingi minni en verið hefur hér næst
liðin tvö ár.
Þessa jákvæðu þætti í þróun efnahags-
mála, þrátt fyrir andbyr, ber að verulegu
leyti að þakka, hve hófsamlega og hyggi-
lega var staðið að kjarasamningum á árinu,
sem senn er liðið. Kjarasamningarnir
sýndu, að aðilar vinnumarkaðarins skilja
nauðsyn þess að þjóðin sníði sér stakk. eftir
vexti.
Þjóðin öll stendur nú andspænis því
vandasama verkefni að ráða kjaramálum
sínum fyrir næsta ár farsællega til lykta.
Nú ríður á að tapa því ekki, sem áunnist
hefur. En vissulega eru aðstæður erfiðar.
Horfur um hag þjóðarbúsins á árinu, sem í
hönd fer, eru þannig, að kjaraákvarðanir
geta aðeins miðast við það að tryggja núver-
andi rauntekjur heimilanna og fulla at-
vinnu. Þetta verður best gert með þvf að
ákveða nú hóflegar kjarabreytingar, sem
virða þau takmörk, sem þjóðarbúinu eru
sett, og stefna að því að draga úr verðbólg-
unni.
Mér virðist sem atburðir ársins 1975 gefi
tilefni til bjartsýni um að þetta megi takast
á næsta ári. Skiptir hér miklu, að samtök
almennings og atvinnuvega, sem fara með
rnikið vald í þessum efnum, þar sem er
ákvörðun launa, þekki skyldur sínar við
almannaheill. Þjóðin treystir því.
Menn tala stundum með lítilli virðingu
um hagsmunasamtök og kalla þau þrýsti-
hópa. En hagsmunasamtök eiga rétt á sér,
hafa sitt verksvið, og eru þáttur í valddreif-
ingu og lýðræðisskipulagi.
Því ber samráð við þau að hafa og tillit til
þeirra að taka í stjórnarathöfnum að því
marki, er samrýmist þjóðarhag. En ríkis-
stjórn og kjörnir fulltrúar allrar þjóðar-
innar á Alþingi hljóta að marka stjórnar-
stefnu og bera á henni ábyrgð eftir gagn-
kvæm áhrif meiri og minnihluta.
Ríkisstjórn og alþingismenn hljóta sinn
dóm í almennum kosningum. Hvort sem
menn eru fylgjandi eða andvígir stjórnar-
stefnu, verða menn að bíða eftir slíkum
dómi kjósenda og hlíta honum, ef þeir eru
sannir lýðræðissinnar og unna mannrétt-
ipdum.
XXX
Kvennaár er á enda og hefur vakið
mikla athygli, ekki síst hér á landi, og
vonandi orðið til þess að skammt sé undan,
að kvenréttindi verði ekki greind frá mann-
réttindum.
XXX
Við Islendingar njótum þeirrar sér-
stöðu að vera ein fámennasta menning-
arþjóð veraldar, sem er algjörlega sjálf-
stæð. Þjóðin hefur færst mikið í fang að
varðveita menningarlegt, stjórnarfarslegt
og fjárhagslegt sjálfstæði sitt. Lega lands-
ins, sagan og tungan hafa lagt okkur þessa
skyldu á herðar. Þetta er vissulega vanda-
samt hlutskipti. Þó kjósum við ekkert frek-
ar. Þessi örlög eru það dýrmætasta sem við
eigum. Það er skylda okkar allra að ávaxta í
lífi og starfi, þann veglega menningararf,
sem okkur hefur hlotnast. Þessi menn-
ingararfleifð er sterkasti þáttur þjóðar-
bandsins, jafnt við blíð lífskjör sem stríð.
Vegna mannfæðar og ótryggra en þó
gjöfulla auðlinda, sé rétt á þeim haldið, er
tvennt okkur nauðsynlegra öðrum þjóðum;
að leggja rækt við, að þjóðinni verði sem
mest úr hverjum einstaklingi — að rækta
manninn. Og í annan stað þurfum við
öðrum þjóðum fremur að gæta fjárhags
okkar af varúð, því frumskilyrði þjóðar-
frelsis er fjárhagslegt sjálfstæði.
Við verðum, þótt fáir séum, að geta gegnt
þeim heildarskyldum, sem hver sjálfstæð
þjóð hlýtur að gegna. Þessi vandi er ævar-
andi. Fjárhagsörðugleikarnir ættu að
brýna okkur til forsjálni og atorku og um-
fram allt samheldni á erfiðum tímum. Við
verðum að skilja í senn örðugleika okkar og
skyldur og bregðast við þeim sem einhuga
þjóð.
Oft höfum við tslendingar glatað gullnum
tækifærum vegna sundurlyndis og stund-
um er eins og við stríðum valdanna vegna,
jafnvel aðeins hávaðans vegna, en ekki
raunverulegs málefnaágreinings.
I Sturlungu segir svo um Þórð kakala:
„Þat er at segja frá þeim Þórói, at þeir lágu
úti um nóttina, er þeir váru á Silfrastöðum,
niðri á vellinum. Vindr kom á þá, er fólkit
flest hafði sofit um hríð, ok þaut mjök í
spjótunum. Ok vakna sumir menn við þyt-
inn ok hugðu, at ófriðr væri at kominn,
hljópu upp ok brugðu vápnum. Börðust
þeir þá sjálfir, ok hljópu sumir á hús upp ok
vörðust þaðan, en sumir sóttu at í ákafa. Ok
var löng hríð ok snörp, áðr þeir
kenndust...“
Við skulum ekki láta spjótaglamur glepja
okkur sýn, svo að við berjumst innbyrðis í
stað þess að snúast sameiginlega gegn því,
sem okkur er andstætt.
Að okkur steðjar nú ýmis vandi, örðugri
viðskiptakjör en við áður nutum ogvalvar-
legur viðskiptahalli, deila við voldugt ríki
um yfirráðaréttinn yfir fiskimiðum okkar á
sama tíma og fiskstofnar eru í alvarlegri
hættu, og landskjálftar og eldgos minna
okkur á, að þrátt fyrir allt megum við okkar
lítils gegn náttúruöflunum.
Á öllum öldum íslandssögunnar höfum
við glímt við þennan vanda, en á endanum
til sigurs. Við byrjum nýtt ár með þvf
hugarfari að sanna að svo mun enn, og
minnumst orða Jóns Magnússonar, skálds, í
kvæðinu Frelsi, sem hefur að geyma vel-
þekkta áminningu:
„Litla þjóð, sem átt í vök að verjast
vertu ei við sjálfa þig að berjast", —
og heldur áfram með kröftugri hvatn-
ingu:
„Stattu saman heil um heilög mál.
Þá mun gegn um hættur elds og ísa
íslands græni frelsismeiður rísa.
Vaxi þjóðin öll i eina stétt:
allir frjálsir menn með sama rétt.
Helgum drottni íslands frelsis fána,
fram svo langt, sem tímans öldur blána.
Horskri þjöð skal háleitt takmark sett.“
Ég óska landsmönnum öllum, að farsæld
fylgi nýju ári.