Morgunblaðið - 13.03.1976, Síða 1
32 SÍÐUR OG LESBÓK
56. tbl. 63. árg.
LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Wilson varar
Sovétmenn við
íhlutun í Afríku
Lundúnum 12. marz— Reuter
HAROLD Wilson, forsætisrád-
herra Breta, kallaði í dag sovézka
sendiherrann i Lundúnum,
Nikolaj Lunkov, á sinn fund, og
varaði hann alvarlega við íhlutun
kommúnista í málefni Ródesíu og
nálægra Afríkuríkja. Wilson
sagði sendiherranum, að afskipti
hvaða erlendra aðila sem væri
yrðu trúlega til þess að spilla
fyrir þvi að i þessum löndum
kæmist á lýðræði og frelsi, og
mundi slfk ihlutun auk þess valda
óþarfa blóðsúthellingum og þján-
ingum, sérstaklega í Ródesíu og
nálægum löndum.
Talið er að þessari aðvörun
Wilsons sé ætlað að koma í veg
fyrir að Rússar og Kúbumenn
stuðii frekar en orðið er að aðstoð
t.d. Mosambique við þeldökka
þjóðernissinna I skæruhernaði
þeirra gegn hvítu minnihluta-
stjórninni í Ródesíu.
Wilson lagði áherzlu á það við
sovézka sendiherrann, að brezka
stjórnin liti enn alvarlegum aug-
um á íhlutun erlendra aðila í
Angóla.
Bruno Kreisky kanslari Austur-
ríkis réðst harkalega á Kúbu-
menn í dag fyrir íhlutun þeirra í
Angóla og taldi þá hafa sett þar á
svið „villimannlega veiðiferð".
Þessi ummæli' viðhafði
kanslarinn í ræðu um utanríkis-
mál á ársþingi jafnaðarmanna.
Hann sagði ennfremur, að erlend-
ar hersveitir í Suður-Afriku væru
jafn óþolandi og suður-afrískar
hersveitir utan Suður-Afríku. Um
leið fullyrti hann að stríðshætta í
Evrópu væri engin, og gagnrýndi
Henry Kissinger utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna harðlega
fyrir þau ummæli nýlega að
hugsanlega yrði Evrópa öll komin
undir stjórn kommúnista innan
tíu ára. Kreisky gagnrýndi harð-
lega „yfirlýsingar manna, sem
hafa mikil áhrif á gang alþjóða-
mála en gera sér ekki alltaf grein
fyrir afleiðingunum af van-
hugsuðum orðum.“
Aziz Al-Ahdab bráðabirgðalandstjóri hersins. Myndin var tekin
skömmu áður en hann lýsti þvf yfir að hann tæki sér alræðisvald í
landinu og krafðist afsagnar forseta og rfkisstjórnar.
Sambúð
Líbýu og
Egypta
versnar
Kairó — 12 marz — Reutpr
FYRRVERANDI foringi I bvlt-
ingarráði Líbýu Omar Meheishi,
sem flúði til Egyptalands f fyrra,
sagði í viðtali við dagbiaðið Al-
Ahram í Kaíró i dag, að Muamm-
ar Gaddafhi þjóðhöfðingi Lfbýu
hefði gert ftrekaðar tilraunir til
að ráða sig af dögum vegna and-
stöðu sinnar við stefnu hans.
Meheishi heldur þvi fram, að
Gaddafhi hafi látið fangelsa yfir
100 herforingja sína af sömu sök-
um.
Sambúð Líbýu og Egyptalands
versnaði að mun við það að
Gaddafhi fyrirskipaði í gær brott-
rekstur 3000 Egypta frá Líbýu
vegna þess að 27 Líbýumenn voru
handteknir í Kairó. Sjö þeirra var
gefið að sök að vera komnir til
Kaíró í því skyni að ráða utanrík-
isráðherra Egyptalands, Adbel
Framhald á bls. 31.
Franjieh og stjórn Karamis
eru enn við völd í Líbanon
öngþveiti ríkir í borginni
Beirut —12. marz
— Reuter — NTB
RÓSTUSAMT hefur verið
í Beirut í dag og öngþveiti
ríkir í borginni, enda þótt
ástandið sé hvergi nærri
eins slæmt og það var fyrir
Spánn:
Háskóla lokað vegna óeirða
Madrid — 12. marz — Reuter
HÁSKÖLANUM í Saragossa á
Norður-Spáni var lokað í dag eftir
átök stúdenta og lögreglu. Stúd-
entarnir hafa að undanförnu efnt
til mótmælaaðgerða til að leggja
áherzlu á kröfur sínar um endur-
bætur í menntamálum. Talið er,
að í kjölfar þessa atburðar verði
um frekari stúdentaóeirðir að
ræða í landinu.
I átökum i Saragossa-
háskólanum beitti lögreglan
gúmmikúlum og táragasi gegn
grjótkasti stúdenta.
vopnahléið, sem gekk í
gildi í janúarmánuði.
Aziz Al-Ahdab, yfirhers-
höfðingi, sem nú hefur tek-
ið sér völd sem „bráða-
birgðalandstjóri hersins“,
krafðist þess í gær að Sulei-
man Franjieh, forseti
Líbanons, og Rashid
Karami, forsætisráðherra
og ríkisstjórn hans, segðu
af sér innan sólarhrings,
en sá frestur er nú útrunn-
inn, án þess að orðið yrði
við þeirri kröfu. Óljóst er,
hversu mikil völd Ahdabs
eru, en stjórnmálaöfl í
Líbanon hafa haft hægt um
sig í allan dag. Áreiðanleg-
ar heimildir herma, að nú
Callaghan beiti sér
fyrir 100 m innan EBE
— eru tilmæli sjómanna sem afla á heimamiðum
A FUNDI fulltrúa brezkra fiski-
manna, sem veiða á heimamiðum
undan ströndum Skotlands, Wal-
es og Cornwalls, og þingmanná
allra flokka sem sæti eiga í sjáv-
arútvegsmálancfnd brezka þings-
ins, var samþvkkt samhljóða
ályktun s.I. miðvikudag, þar sem
þeim tilmælum var beint til
Callaghans utanrikisráðherra, að
hann beitti sér fvrir því, að Bret-
ar fengju 100 milna cinkalög-
sögu innan 200 milna auðlinda-
lögsögunnar, en Efnahagsbanda-
lagið hefur markað þá stefnu að
aðildarriki hafi aðeins 12 mflna
efnahagslögsögu gagnvart öðrum
EBE löndum.
Þetta kom fram í viðtali, sem
Mbl. átti við James Johnson, þing-
mann Verkamannaflokksins, sem
er formaður sjávarútvegsmála-
nefndar þingsins.
James Johnson sagði í samtal-
inu, að sér væri kunnugt um, að
Harold Wilson hefði i samninga-
viðræðum við íslendinga boðizt til
að viðurkenna 230 þúsund tonna
hámarksafla á Islandsmiðum á
ári, og hefði tilboð hans í fram-
haldi af því hljóðað upp á 65 þús-
und tonna aflaheimild Breta, eða
28% af heildaraflanum.
Þess má geta, að í greinargerð
Geirs Hallgrimssonar forsætisráð-
herra á Alþingi að loknum samn-
ingaviðræðum við Breta i febrú-
armánuði s.l. kom fram, að tillaga
Breta hefði verið 85 þúsund tonna
aflamagn á ári, þar af 65—75 þús-
und tonn af þorski.
sé verið að reyna að finna
leið til þess að Franjieh og
Karami geti farið frá, en
haldið þó virðingu sinni.
Hinir stríðandi aðilar í landinu
hafa í dag gert tilraunir til að
trufla sendingar útvarpsstöðva
hvors annars. Herdeildir, sem
gengnar eru í lið með Ahdab, hafa
stærstu útvarpsstöðina á valdi
sínu, og í dag var lesin þar upp
yfirlýsing hershöfðingjans þess
efnis, að þar sem Franjieh forseti
hefði enn ekki orðið við kröfunni
um afsögn, yrði að líta svo á að
hann væri ekki lengur við völd.
Síðar gaf þó fréttastofa, sem einn-
ig er undir stjórn Ahdabs, út til-
kynningu þar sem forsetinn er
eindregið varaður við því að
draga afsögn sína á langinn.
Fátt fólk hefur verið á ferli i
Beirut i dag, en skotbardagar
voru víða í borginni langt fram á
kvöld. I útvarpstilkynningu
Ahdabs í kvöld var sagt, að skot-
hriðin væri í tilefni af fæðingar-
degi Múhameðs spámanns, sem er
á morgun.
Ahdab hefur lýst því yfir, að
með tregðu sinni við að segja af
sér nú þegar, bregðist Franjieh og
Karami skyldu sinni við þjóðina
og standi gegn því að hægt verði
að endurreisa Líbanon.
Franjieh forseti sagði í viðtali
við fréttamann í dag, að hann
hygðist halda í embætti sitt svo
lengi, sem auðið yrði, til að verja
löglega stjórnarhætti i landinu.
Hann dvelst í forsetahöllinni þar
sem öfiugt herlið stendur vörð.
Meðal þingmanna gætir þéss
sjónarmiðs i auknum mæli, að for-
setinn eigi að segja af sér, og
herma heimildir, að undirskrifta-
söfnun fari nú fram meðal þing-
manna, þess efnis. Heimildar
menn þessir segja, að nú þegar
hafi 45 þingmenn ljáð málinu
fylgi sitt og sé þar jafnt um að
ræða þingmenn úr hópi kristinna
manna og múhameðstrúarmanna.
Tvo þriðju hluta þingmanna þarf
til að setja forsetann af, en alls
eru þingmenn 99 að tölu.
Silvia Sommerlath og
Kari Gústav Svfakonungur.
Svíakonungur
opinberar
Stokkhólmi — 12. marz — AP
KARL sjötti Gústav, Sviakon-
ungur, og Silvia Sommerlath
frá Heidelberg opinberuðu trú-
lofun sína í Stokkhólmi í dag.
Þau hittust fyrst á Ölympíu-
leikunum í MUnchen fyrir tæp-
um fjórum árum og hafa siðan
hitzt að staðaldri.
Silvia Sommerlath er' af
borgaralegum ættum. Faðir
hennar er kaupsýslumaður og
bjó fjölskyldan lengi í Brazilíu.
Silvia hefur lokið prófi frá
túlkaskóla í Heidelberg og
hefur siðan starfað á Spáni og
við alþjóðlegar ráðstefnur.
Fréttamenn hafa sýnt sam-
bandi Silviu og Karls Gústavs
mikínn áhuga og hafa stundum
orðið aðgangsharðir. Þau hafa
hins vegar ekkert viljað láta
uppi unt hversu alvarlegt sam-
band þeirra væri fyrr en nú að
Framhald á bls. 31.