Morgunblaðið - 13.03.1976, Side 3
Lélegar sölur
í Þýzkalandi
TVEIR islenzkir togarar seldu
afla í V-Þýzkalandi ( fyrradag og
var verðid, sem þeir fengu fyrir
aflann lágt. Mikið framboð er nú
af fiski á Evrópumarkaði og svo
mun fiskurinn sem islenzku tog-
ararnir voru með, ekki hafa þótt
neitt afburðagóður.
Júní frá Hafnarfirði seldi 188.5
lestir í Cuxhaven fyrir 184.900
mörk eða 12.4 millj. kr. Meðalverð
fyrir aflann var kr. 65.80 pr. kg. I
skeyti frá Þýzkalandi segir, að 38
lestir af aflanum, mest karfi, hafi
verið ónýt og 42.8 lestir hafi verið
seldar á undirboðsverði.
Guðsteinn frá Grindavík seidi
191.2 lestir fyrir203 þúsund mörk
eða 13.4 millj. kr. Meðalverð pr.
kíló var kr. 70.12. Af þessu magni
voru 25 lestir dæmdar ónýtar og
17 lestir af karfa seldust ekki.
Stokkseyri:
Skiptaprósentan
allt að 4,5% hærri
EFTIR tæplega mánaðarverk-
fall sjómanna á Stokksevri tók-
ust samningar með þeim og
vinnuveitendum í gær. Kröfur
sjómanna á Stokkseyri voru
fyrst um hærri skiptaprósentu
en samið var um milli Sjó-
mannasambandsins og L.t.tJ.,
en fram til þessa hafa sjómenn
Framhald á bls. 31.
Frétta-
ritarinn
fann þjófinn
ÞJÖFNAÐUR var framinn á
ritstjórn Morgunblaðsins á
fimmtudaginn. Var kventaska
tekin, en í henni voru 2 banka-
bækur, ávisanahefti og ýmsir
persónulegir munir. Lögregl-
unni var tilkvnnt um þjófnað-
inn og þegar hún hóf rannsókn
málsins kom i Ijós að þjófur-
inn hafði tekið 32 þúsund
krónur út úr annarri bókinni i
Verzlunarbankanum.
Bankafólkið gat gefið góða
lýsingu á manninum og mundu
þá ýmsir starfsmenn ritstjórn-
ar eftir manni sem hafði verið
að sniglast þar og lýsingin átti
við. Meðal þeirra var lögreglu-
fréttaritari blaðsins. Varð það
að ráði að hann fór á fimmtu-
dagskvöld i eftirlitsferð um
borgina með rannsóknarlög-
reglunni. Meðal annars lá leið-
in í Klúbbinn og höfðu menn
ekki verið þar lengi þegar
fréttaritarinn sá þjófnum
bregða fyrir. Rannsóknarlög-
reglumaðurinn tók hann til yf-
irheyrslu á staðnum enda
kannaðist hann við manninn
og lá játning fljótlega fyrir.
Fékk starfsstúlka ritstjórnar
alla sína muni aftur og 10 þús-
und krónur, en afganginum
sagðist maðurinn hafatýnt.
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976
3
30 menn vilja stofna félag
um leiguflug milli landa
Boða stofnun almenningshlutafélags,
ef næg þátttaka fæst meðal fólks
ÞRJATlU menn hafa undirritað yfirlýsingu þess efnis að þeir vilji
stofna hlutafélag um rekstur leiguflugfélags, sem taki við þar sem
rekstri Air Viking sleppir. Einn forvigismanna þessarar hreyfingar,
Ragnar Ingólfsson, framkvæmdastjóri, sagði f viðtali við Mbl. f gær að
gert væri ráð fyrir að félag þetta tæki við rekstri Air Vikings eða héldi
honum áfram, án þess þó að það yfirtæki skuldir fyrirtækisins. Hér
væri um að ræða stofnun nýs félags, sem hugsanlega gæti keypt þotur
Air Vikins eða þá einhverjar aðrar. Fyrst sagði hann að þessir aðilar
vildu fá að vita undirtektir almennings áður en nokkuð yrði gert
Morgunblaðinu barst í gær
fréttatilkynning um þetta mál, en
þar segir svo: „Svo sem alkunna
er hefur flugfélagið Air Viking
h.f. á undanförnum árum flutt
um það bil helming þeirra Islend-
inga, sem notið hafa orlofsdvalar
eriendis. Stór hluti þessa fólks
hefði ekki átt þess nokkurn kost
að njóta utanlandsferðar, ef flug-
félagið Air Viking hefði ekki
verið til sem samkeppnisaðili í
utanlandsflugi.
Þar sem nú er vegið að þessum
eina samkeppnisaðila i islenzku
millilandaflugi, og við biasir ein-
okun á þessu sviði, þá teljum við
undirrituð það brýnt hagsmuna-
mál almennings, að þegar i stað
verði við brugðið og stofnað
hlutafélag með almenningsþátt-
töku til þess að endurreisa Air
Viking h.f. og slá skjaldborg um
frjálsa samkeppni i islenzku milli-
landaflugi. Frjálsar samgöngur
milli landa á viðráðanlegu verði
fyrir allan almenning eru Islend-
ingum meira virði en flestum öðr-
um þjóðum heims, þar sem við
búum á eylandi, fjarri öðrum
þjóðum. Því höfum við ákveðið að
beita okkur fyrir stofnun slíks
hlutafélags ef nóg þátttaka fæst.
Þeir sem hafa áhuga á þátttöku
geta snúið sér til Ragnars Ingótfs-
sonar framkvæmdastjóra, Simi
18499 milli klukkan 5—7 s.d., en
næstu daga verður opnuð skrif-
stofa til undirbúnings félags-
stofnun. Einnig eru gefnar
upplýsingar í síma hjá Sæmundi
Öskarssyni, í síma 81822, milli
klukkan 5—7."
Þeir, sem rita nöfn sin undir
yfirlýsinguna eru: Einar Sigurðs-
son útgerðarmaður, Bárugötu 2,
Björn Pétursson, stórkaupmaður,
Lindarbraut 4, Seltjarnarnesi,
Bragi Níelsson læknir, Akranesi,
Páll Helgason, kaupmaður Vest-
mannaeyjum, Ragnar Ingólfsson,
framkvæmdastjóri Ljósheimum
14, Þorsteinn Matthíasson, rithöf-
undur Grettisgötu 42, Guðlaugur
Bergmann, kaupmaður, Hjarðar-
haga 17, Sigurjón Ragnarsson,
veitingamaður, Hressingarskálan-
um, Agúst G. Hróbjartsson, fast-
eignasali, Skipholti 55, Haukur
Jacobsen, kaupmaður, Sóleyjar-
götu 13, Sæmundur Öskarsson,
framkvæmdastjóri, Skeiðarvogi
65, Steingrímur Helgason, stór-
kaupmaður, Sólheimum 18, Magn-
ús Jónsson, framkvæmdastjóri,
Framhald á bls. 31.
LISTMUNA-
UPPBOÐ NR. 13
mnivERK
Asgrímur Jónsson Mynd nr. 73, Túná i Lundareykjadal Vatnslitur — 66,5 x 48 cm. merkt.
LISTMUNAUPPBOÐ GUÐMUNDAR AXELSSONAR (MÁLVERK) FER FRAM
AÐ HÓTEL SÖGU, SÚLNASAL, SUNNUDAGINN 21. MARZ NK. KL. 3 E.H.
83 þekkt málverk verða boðin upp.
Myndirnar verða til sýnis
í Klausturhólum, Lækjargötu 2,
frá og með n.k. mánudegi
og til uppboðsdags
frá kl. 9—6 daglega.
LISTMUNAUPPBOÐ
Guðmundur Axelsson,
Klausturhólar,
Lækjargötu 2, sími 19250