Morgunblaðið - 13.03.1976, Síða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976
Á FUNDUM Búnaðarþings, sem lauk á miðvikudag, var
samþykkt ályktun um markaðsaðstöðu hrossabænda og
segir í ályktuninni að markaður fyrir hross hafi versnað
mjög að undanförnu og vart verði séð hvernig hrossabænd-
ur fái haldið áfram framleiðslu sinni öllu lengur. Þá er (
ályktuninni vakin á því athygli, hvort ekki sé timabært að
fá bændur til að fækka hrossum á meðan jafn þröngt er um
hagstæðan markað fyrir afurðir hrossabúanna og fóður og
hagar sennilega betur nýttir á annan hátt. Sigurður
Haraldsson, formaður Hagsmunafélags hrossabænda,
sagði i samtali við Mbl. að hann væri þvi fyllilega sammála
að þörf væri á að fækka hrossum og þess í stað yrði að
beina spjótunum að þvi að bæta ræktunina.
í ályktun Búnaðarþings er stjórn
Búnaðarfélagsins falið að ræða
þessi vandamál hrossaræktarinnar
við Framleiðsluráð landbúnaðarins
og landbúnaðarráðuneytið og verði
leitast við að finna færar leiðir til
þess að bæta rekstrarafkomu
þessarar búgreinar Bent er á að í
þessum viðræðum verði m a að
ræða um aukna aðstoð við markaðs-
öflun á útflutningshrossum og
sláturafurðum af hrossum og
stuðning við tamningastöðvar fyrir
útflutningshross. auk mögulegrar
fækkunar hrossa Þá er í lok
ályktunarinnar minnt á að út-
flutnmgur á hrossum hefur á síðustu
árum skapað umtalsverðan gjald-
eyri, en hlotið litla aðstoð rikisvalds-
ins
Sigurður Haraldsson, formaður
Hagsmunafélags hrossabænda
sagði í samtali við blaðið að verð á
hrossum til útflutnings hefði verið
langt frá þvi að fylgja hækkunum á
öðrum útflutningsvörum og t d
hefðu gengislækkamr síðustu ára
næsta litil áhrif haft til hækkunar
verðlags á hrossum Á siðasta ári
hefði verð á hrossum staðið í stað
auk þess sem mjög lítið hefði verið
flutt út af hrossum eða rúmlega 400
en útflutnmgsverðmæti þeirra hefði
numið milli 50 og 60 milljónum
króna Við þetta bættist síðan að
lítill markaður væri nú fyrir hrossa-
kjöt og mjög lágt verð á þvi Nú er
unnið að könnun á möguleikum
þess að flytja úr landi hrossakjöt og
hefur einkum verið talað um að
flytja kjötið til Hollands og
Frakklands en þessi mál eru þó enn
á frumstigi
Varðandi þann lið í ályktun Bún-
aðarþings, sem fjallar um tamninga-
stöðvar fyrir útflutningshross sagði
Sigurður að það væri eitt brýnasta
verkefnið, sem við væri að fást ef
Rétt að fœkka hrossum en leggja
verður áherzlu á aukna rœktun
— segir Sigurður Haraldsson, formaður Hagsmunafélags hrossabænda
auka ætti útfluting á hrossum,
einnig ætti það að geia leitt til hærra
verðs á hrossunum og nefndi hann i
þvi sambandi að þeir aðilar, sem
keyptu hrossin hér og seldu þau
erlendis, yrðu að hafa þau i einn til
tvo mánuði í þjálfun áður en þeir
gætu selt þau
Sigurður Haraldsson sagðist vera
sammála þvi að hross í landinu
væru orðin of mörg og sérstaklega
væri of mikið af lélegum hrossum
Nú væru á skýrslum milli 40—50
þúsund hross auk þess sem gera
mætti ráð fyrir að hrossin væru
nokkru fleiri, en að sínum dómi ætti
að vera nægjanlegt að hafa í landinu
um 30 þúsund hross og leggja yrði
á það áherslu að rækta hrossastofn
okkar betur Vandinn væri hins
vegar, sagði Sigurður hvernig fækka
ætti hrossunum, þvi erfitt væri að
skipa mönnum að fella hross sin.
Sjálfvirk
símstöð í
Reykjahlíð
Björk, 11. marz.
I DAG var opnuð sjálfvirk sím-
stöð í Reykjahlíð. Stöðin er gerð
fyrir 100 númer, frá 44—100 til
44—199. Búið er að tengja 76
númer við stöðina. Gert er ráð
fyrir að fleiri númer verði tengd á
næstunói, þannig að hún verði
fljótlega fullnýtt. En að sjálf-
sögðu verður hægt að fjölga
númerum.
Símamálastjórn ber að þakka
þann áfanga, sem núna hefur
náðst, með opnun þessarar sjálf-
virku símstöðvar og verður von-
andi haldið áfram þannig að allir
símnotendur i Mývatnssveit komi
sem fyrst í sjálfvirkt símasam-
band. Símstöðvarstjóri í Reykja-
hlíð er Hrefna Jónsdóttir frá
Húsavík.
Kristján.
Gaf Langholtssöfn-
uði 100 þús. kr.
Fyrir skömmu afhenti Finnbogi
Guðmundsson frá Flatey á
Breiðafirði 100 þús. kr. til Lang-
holtssafnaðar. Er þessi gjöf til
mínningar um konu Finnboga,
Þórunni Gunnlaugsdóttur, sem
lézt í desember 1974.
AUa.YSlNOASIMINN KH:
—
|R*rí)iinbIntiit)
Félagsmálanámskeið
BOLUNGARVÍK — ÍSAFJÖRÐUR
Dagana 1 8. — 2 1. marz n.k. munu Landssamband Sjálfstæðis-
kvenna og Samband ungra Sjálfstæðismanna í samráði við
Sjálfstæðisfélögin á ísafirði og í Bolungarvík efna til félags-
málanámskeiða sem hér segir:
Friðrik Fríða Pétur
BOLUNGARVÍK
í félagsheimilinu (Sjómannastofu)
Fimmtudagur 18. marz
Kl. 20:30—22:30
Almenn félagsstörf I: Pétur Sveinbjarnarson
Föstudagur 1 9. marz
kl 20:30—22:30
ræðumennska I: Friðrik Sophusson
Laugardagur 20. marz
kl. 14:00—16:00
Fundarsköp og fundarstjórn: Friðrik Sophusson
kl. 16:00—17.00
Almenn félagsstörf II: Pétur Sveinbjarnarson
Sunnudagur 21. marz
kl. 14:00. Ræðumennska II: Fríða Proppé.
ÍSAFJÖRÐUR
i félagsheimilinu Hnífsdal
Fimmtudagur 18. marz
kl. 20:30—22:30. Ræðumennska I: Friðrik Sophusson.
Föstudagur 19. marz
kl. 20:30 — 22:30
Almenn félagsstörf I: Pétur Sveinbjarnarson.
Laugardagur 20. marz
kl. 1 4:00 — 1 8:00. Ræðumennska II: Friða Proppé.
Sunnudagur 21. marz
kl. 14:00
Fundarsköp og fundarstjórn: Friðrik Sophusson
kl. 16:00—17:00
Almenn félagsstörf II: Pétur Sveinbjarnarson.
Þátttaka tilkynnist Jóni Friðgeíri Emarssym, Bolungarvík og
skrifstofu Vesturlands, ísafirði, simi 3232.
Reykjaneskjördæmi
Aðalfundur kjördæmisráðs sjálfstæðisflokksins i Reykjanes-
kjördæmi verður haldinn laugardaginn 27. marz kl. 10 f.h.
Fundarstaður og dagskrá auglýst siðar. Skýrslur og árgjöld
þurfa að berast nú þegar. Stjórn kjördæmisráðs
Sjálfstæðiskvennafélagið
Edda, Kópavogi
farið verður í heimsókn til Vorboðakvenna í Hafnarfirði,
mánudaginn 15. marz. Lagt verður af stað frá Sjálfstæðishús-
inu við Borgarholtsbraut kl. 20. stundvíslega.
Látið skrá ykkur í síma 401 59 eða 40421.
Stjórnin.
Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna
heldur fund þriðjudaginn 1 6. mars kl.
20.30 að Langholtsvegi 1 24 (í félags-
heimili sjálfstæðiskvenna í Langholti).
Fundarefni: Ragnhildur Helgadóttir, al
þingismaður talar um stjórnmálavið-
horfið. Kaffi. Allt sjálfstæðisfólk vel-
komið.
Stjórnin.
Ráðstefna sjálfstæðismanna í Reykjavík:
Hvað er framundan í
verzlun landsmanna
Til þess að leita svars við þessari spurningu
hyggst Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík gangast fyrir eins og hálfs dags
ráðstefnu um verzlunar- og neytendamál. Ráð-
stefnan fer fram á Hótel Loftleiðum, Kristalsal,
17. og 18. marz n.k., miðvikudag frá kl. 17:30
og fimmtudag frá kl. 10:00.
Dagskrá:
Kl. 17:30
Kl. 18:00
Kl. 19:00
Kl. 19:45
Kl. 20:30
Kl. 21:00
Miðvikudagur 17. marz:
Setning: Gunnar Helgason form. Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
Ávarp: Júlíus Sæberg Ólafsson, form. undirbún-
ingsnefndar ráðstefnunnar.
Viðskiptaleg tengsl við umheiminn. Jón Magnús-
son.
— ryrirspumir og umræður —
Matarhlé.
Fjármál og afkoma verzlunarinnar. borvarður
Elíasson.
Fræðslumál verzlunarinnar. Valdimar Hergeirs-
son.
Umræðuhópar starfa.
'C : Til að auðvelda undirbún-
ing er æskilegt að þátttaka
B _ Bj sé tilkynnt til skrifstofu
W Fulltrúaráðsins í síma
L y j|| 82963 eða 82900, fyrir
mánudagskvöld 15. marz
n.k. Ráðstefnugjald er kr.
BkaZIHI 2.200 innifalið er matur og
kaffi báða dagana auk ráð-
stefnugagna.
Kl. 10:00
Kl. 1 1:00
Kl. 12:30
Kl. 13:30
Kl. 14:30
Kl. 16:00
Kl. 17 — 19
Kl. 19:00
Kl. 20:30
Kl. 22:30
Fimmtudagur 18. marz:
Umræðuhópar
Skattamá! og þjónusta er verzlunin innir af hendi
fyrir hið opinbera. Hjörtur Hjartarson.
— Fyrirspurnir og umræður —
Hádegisverður.
Verzlunarþjónusta i Reykjavík. Dr. Bjarni Helga-
son.
— Fyrirspurnir og umræður —
Umræðuhópar.
Umræðuhópar skila af sér.
Fjármagnsstreymi verzlunar — Panelumræður
— Stjórnandi: Björn Matthíasson.
Matarhlé
PANELUMRÆÐUR. Geir Hallgrímsson forsætis-
ráðherra, Gunnar Thoroddsen iðnaðar- og félags-
málaráðherra, Matthías Á. Mathiesen fjármála-
ráðherra og Birgir Isl. Gunnarsson borgarstjóri
sitja fyrir svörum. Stjórnandi: Þórir Einarsson.
Slit ráðstefnunnar.