Morgunblaðið - 13.03.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. MARZ 1976
Aðalfundur Verzlunarráðs Islands:
Stjórn efnahagsmála
nægilega tímanlegar ■
áhyggjuefni - aðgerðir ekki
diikkar horfur framundan
HÉR fer á eftir ályktun
aðaifundar Verzlunar-
ráðs íslands um efna-
hagsmál og skattamál.
Skipulag
efnahagsmála
Aöalfundur Verzlunarráðs Is-
lands 1976 telur stjórn efna-
hagsmála undanfarin ár veru-
legt áhyggjuefni. Fundurinn
telur, að ekki hafi veriö gætt
nægilegrar fyrirhyggju á
meðan vel áraði til þess að búa
efnahagslífið undir verri tíma
Auk þess telur fundurinn að
aðgerðir í efnahagsmálum hafi
ekki verið gerðar nægilega
tímanlega og í þeim mæli, sem
þurft hefði. Nú er svo komið, að
staða þjóðarbúsins er mjög veik
bæði innávið og útávið, en
horfur framundan eru dökkar:
0 Kkki eru horfur á batnandi
viðskiptakjörum.
0 Gjaldeyrisstaöa banka-
kerfisins er neikvæð og
batamerki ekki sjáanleg.
0 Verulegs halla má vænta á
utanríkisviðskiptunum á
þessu ári.
0 Fvrirsjáanlegt er, að tak-
markaður árangur næst í
baráttunni við verðbólguna
á árinu.
0 Hætta er á greiðsluhalla hjá
ríkissjóði á árinu.
9 Verulegar erlendar lántök-
ur á árinu auka þenslu inn-
anlands.
0 Afkoma atvinnuveganna er
slæm og engar horfur eru á,
að hún fari batnandi.
Vegna þess, hve alvarlega
horfir í efnahagsmálum og
vegna þess, hversu staða
þjóðarbúsins er veik, vill aðal-
fundurinn áminna stjórnvöld
um, að þvi lengur sem dregst að
leyfa jafnvægi að skapast í
efnahagsmálum, þvi erfiðari
verður vandi efnahagsmálanna
viðfangs.
Aðalfundur Verzlunarráðs Is-
lands 1976 lýsir það skoðun
sína, að verulegt jafnvægi náist
aldrei í efnahagsmálum fyrr en
stjórnvöld tileinka sér þau
sannindi, að frjálst markaðs-
hagkerfi er lýðræðislegasta og
þjóðhagslega hagkvæmasta
skipulagið á starfsemi efna-
hagslífsins og jafnframt það
hagkerfi, sem leysir bezt mis-
vægi i efnahagsstarfseminni
um leið og það er það hagkerfi,
sem líklegast er, að geti skapað
landsmönnum öllum bezt lífs-
kjör til frambúðar.
Opinber fjármál
Aðalfundur Verzlunarráðs Is-
lands 1976 telur, að gera þurfi
umtalsverðar umbætur á fjár-
málum hins opinbera:
1) Fjárlagagerð þarf að breyta
þannig, að greiðslustaða
fjárlaga sé ákveðin fyrst
með hliðsjón af efnahags-
ástandi á hverjum tima. Ut-
gjöld þarf síðan að samræma
tekjum og þeirri greiðslu-
stöðu, sem ákveðin er.
2) Verkefni hins opinbera þarf
að færa sem mest yfir til
atvinnulífsins.
3) Sjálfvirkni í opinberum út-
gjöldum, með notkun
markaðra tekjustofna, þarf
að afnema.
4) Tekjuöflun og útgjöldum
hins opinbera þarf að haga
þannig, að þau hafi jafn-
vægisverkandi áhrif á efna-
hagsstarfsemina.
5) Greiðsluhalla ríkissjóðs á
þenslutimum verður að
jafna með iækkuðum út-
gjöldum, nýjum sköttum eða
almennu lánsútboði.
Fjármagns-
markaður
Aðalfundur Verzlunarráðs Is-
lands 1976 telur, að gera þurfi
umtalsverðar umbætur á inn-
lendum fjármagnsmarkaði:
1) Afnema þarf opinbera
ákvörðun hámarksvaxta,
þannig að verðtryggja megi
fjárskuldbindingar, og
vextir geti ráðizt af fram-
boði og eftirspurn eftir láns-
fé.
2) Koma þarf á vísi að verð-
bréfamarkaði þar sem kaup,
sala og verðskráning við-
skipta fjárskuldbindinga
getur farið fram.
Gjaldeyrismál
Aðalfundur Verzlunarráðs Is-
lands 1976 telur, að gera þurfi
umtalsverðar umbætur á
verzlun með erlendan gjald-
eyri:
1) Markaðsverðmyndun þarf
að ráða verði erlendra gjald-
miðla.
2) Viðskiptabönkunum þarf að
vera heimil verzlun með
erlendan gjaldeyri.
3) Koma þarf á framvirkum
gjaldeyrismarkaði, þar sem
út- og innflytjendur geti
keypt og selt erlendan gjald-
eyri fram í tímann.
4) Notkun stuttra erlendra
vörukaupalána þarf að vera
heimil í öllum vöruflokkum.
5) Skriffinnsku við kaup og
sölu erlends gjaldeyris þarf
að einfalda.
6) Erlenda fjármagnsflutninga
þarf að gera frjálsari en nú
er.
Skattamál
Aðalfundur Verzlunarráðs Is-
lands 1976 telur, að skattlagn-
ing atvinnurekstrar hérlendis
sé verulega gölluð og þarfnist
umtalsverðra umbóta. Fundur-
inn telur, að marka þurfi
heildarstefnu í skattlagningu
atvinnurekstrar, þar sem eftir-
talin sjónarmið verði lögð til
grundvallar.
0 að skattlagning atvinnu-
rekstrar sé hófleg, réttlát og
sanngjörn.
0 að skattar séu einfaldir og
ódýrir í framkvæmd, bæði
hjá hinu opinbera og fyrir-
tækjunum, sem greiða þá og
innheimta.
0 að atvinnuvegunum og mis-
munandi rekstrarformum
fvrirtækja sé ekki mis-
munað í skattlagningu.
0 að skattar séu almennir,
hlutlausir og skekki ekki
nýtingu framleiðsluþátta
þjóðfélagsins frá því fyrir-
komulagi, sem frjálst
markaðshagkerfi ákveður.
0 að verðrýrnun peninga valdi
ekki ofsköttun.
0 að af sama skattstofni sé
greiddur sami skattur og
ekki oftar en einu sinni.
0 að skattgreiðendum sé
ávallt Ijóst, hvenær og
hversu háan skatt heir
greiða hinu opinbera.
0 að skattar séu þannig gerðir,
að þeir hafi jafnvægisverk-
efni áhrif á efnahagslífið.
Búnaðarþing:
Könnun á viðhorfum bænda
til skipulagningar bú-
vöruframleiðslunnar
MEÐAL þeirra mála, sem
Búnaðarþing hefur fjallað um að
þessu sinni er skipulagning
búvöruframleiðslunnar með til-
liti til framleiðslu, markaðsskil-
vrða og nýtingar jarðanna. I sam-
tali við Guðmund Jónasson bún-
aðarþingsfulltrúa frá Ási í Vatns-
dal en hann var einn flutnings-
manna tillögu um þessi mál á
Búnaðarþingi, kom fram að marg-
ir bændur óttast þá tilviljana-
kenndu þróun, sem nú á sér stað
innan landbúnaðarins. Sagði Guð-
mundur að sér virtist næsta lítið
tillit tekið til þess, hvað hag-
kvæmast væri að framleiða á
hverri jörð og æ fleiri bændur
hölluðust nú að sauðfjárbúskap,
bæði vegna betri afkomu ein-
Patty var í háveg-
um höfð hjá SLA
I)R. JOEL Fort sálfræðingur, sem
saksóknarinn í málinu gegn
Patriciu Hearst, hefur leitt fram,
lýsti því yfir i dag að Patricia
Hearst hefði verið öllu nær því aó
vera eins konar drottning en ekki
óbreyttur liðsmaður í SLA. Hann
sagði að SLA hefði náð heims-
frægð vegna þeirrar athygli sem
beíndist að hreyfingunni eftir að
hún náði Patriciu' Hearst á sitt
vald og þvi hafi verið komið vel
fram við hana í hvívetna. Dr. Fort
sagði að Patrica hefði kunnað vel
að meta það dálæti sem hún hefði
átt að mæta hjá Simbónesiska
frelsíshernum og sagðist vera
þeirrar skoðunar að hún hefði alls
ekki verið neydd til þátttöku í
bankaráninu fræga heldur hefði
hún gert það af fúsum og frjáls-
um vilja.
ha'fra sauðfjárbúa og á sauðfjár-
búunum væru bændur frjálsari.
Samhliða þessu hefur mjólkur-
framleiðendum fækkað og þetta
leiddi síðan til mjólkurskorts á
vissum svæðum landsins.
Samþykkt Búnaðarþings um
þessi mál vará þá leið, að þingið
samþykkti að senda út til stjórna
búnaðarsambandanna í landinu
spurningalista, þar sem leitað er
eftir hugmyndum viðkomandi
búnaðarsambands varðandi
skipulagningu landbúnaðarfram-
leiðslunnar á viðkomandi svæði.
Spurt er hvaða búskapargrein
henti best viðkomandi svæði,
hvort mjólkurframleiðsla sé á
óeðlilegu undanhaldi og um
aukningu í sauðfjárbúskap og um
skilyrði frá náttúrunnar hendi-
fyrir sauðfjárbúskap, Þá er leitað
eftir skoðunum stjórna búnaðar-
sambandanna á lánafyrirkomu-
lagi landbúnaðarins og hugmynd-
ir um mismunandi verðlagningu
búvara á einstökum syæðum og
áhrif þess á þróun búvörufram-
leiðslunnar. Tillögum sínum eiga
stjórnir búnaðarsambandanna að
skila fyrir næsta Búnaðarþing.
— Tónlist
Framhald af bls. 11
þó hún samkvæmt tregðulög-
málinu hafi verið tímabundin
hindrun. Nú bregöur svo við að
nútímínn hefur ekki getað skapað
sér stíl, þó einstaka listamenn
hafi gert frábær listaverk. Við
upphaf þessa timabils voru allar
menntastofnanir bundnar list-
mati og vinnutækni eldri kyn-
slóða og nefndust slík viðhorf
,,Akademisk“. Nýskapandi lista-
menn fyrirlitu þessa skólaspeki
og leituðu á ný mið. Á hálfri öld,
tíma sem mannkynið fetaði leið
gegnum vítiselda tveggja heims-
styrjalda, hefur svo umskipast,að
nú eru nýsmiðir aldamótanna
orðnir „Akademiskir" og
skólarnir teknir að staðla þessi
kerfi til kennslu og framleiðslu
tónskálda. Hver verður afstaða
ungra tónskálda í framtíðinni til
stirðnaðs listmats nútímans. Vex
upp af þeim meið eitthvað sem
gerir tónlist Tsjaikovskýs og allra
nú þekktra tónskálda einskis
verða?
Svari nú hver fyrirsig.
— Mikil aðsókn
Framhald af bls. 3
hún um páskana í nýja lista-
safnshúsinu á Selfossi.
A aldarafmæli Asgríms 4.
marz kom rikisstjórnin i heim-
sókn á Kjarvalsstaði og skoðaði
sýninguna. Og síðla dags heiðr-
uðu listamenn í Félagi ísl. lista-
manna Asgrím með því að næta
þar, en hann mun hafa verið
einn af stofnendum félagsins,
og virkur félagi meðan hann
hafði heilsu til.
- Skrúfudagurinn
Framhald af bls. 11
Nemendur munu veita upplýsingar um
tækin og skýra gang þeirra
Skólinn telur mjög mikilvægt að
halda tengslum við fyrrverandi nem-
endur sína og telur það vera báðum til
gagns og ánægju. Þá má búast við að
marga fýsi að kynna sér skólann en á
síðari árum hefur verið ör þróun á
kennsluháttum hans.
Dagskrá skrúfudagsins hefst með há-
tíðarfundi i hátíðarsal skólans kl
1 3 30 en síðan hefst svo kynning á
starfsemi skólans og stendur hún til kl.
1 7.00 Kaffiveitingar verða á vegum
kvenfélagsins Keðjunnar.
í Vélskólanum eru nú um 400 nem-
endur. þar af 350 i Reykjavík
— Fórnarvika
Framhald af bls. 16
og um margt ágætt, en hvjrt
tveggja leiðir þó um of til fálm-
kenndra vinnubragða.
Höfuðatriðin, sem ganga verður
út frá I málefnum vangefinna, eru:
Jafnrétti til þeirra samfélagslegu
gæða, sem aðrir njóta. og aðhæf-
ing þessa fólks að þjóðfélaginu I
eins rikum mæli og mögulegt er
með skipulegum aðgerðum. f
hvoru tveggja varðar það mestu
að starfið sé hafið sem fyrst, þvi
meiri eru möguleikarnir til sem
eðlilegastra lifnaðarhátta, þvi
meiri eru þroskamöguleikarnir al-
mennt.
Um tvennt er að ræða fyrir lög-
gjafann: Endurskoðun núgildandi
laga eða nýja heildarlöggjöf.
Sé litið til Norðurlandanna fer
ekki milli mála hvor leiðin er
réttari Löggjöfin þar getur varðað
okkar veg, en þvi aðeins að um
heildarlöggjöf verði að ræða. Má I
þvi sambandi minna á löggjöf
svia, norðmanna og dana, sem
allar hafa leitt af sér miklar breyt-
ingar til bóta, einkum hvað snertir
menntunarþáttinn og starfsmögu-
leikana. Þar hafa heilbrgðis-,
mennta-, og félagslegu þættirnir
verið samræmdir og skipulega
verið að þvl unnið að t.d. mennta-
kerfið væri sem minnst frábrugðið
hinu almenna menntakerfi: dag-
heimili, forskóli, grunnskóli,
starfsnám. Hér eigum við mikið
verk óunnið. Að vlsu má benda á
Itarlegt uppkast að reglugerð um
sérkennslumál sem liggur nú I
menntamálaráðuneytinu og er
beinllnis við þetta miðuð.
Okkur skortir heildarstjórn —
ábyrgan aðila I stjórnkerfinu, t.d. I
félagsmálaráðuneytinu svo sem er
hjá dönum, sem hefur heildaryfir-
sýn yfir öll þessi mál og sér um
samræmingu þeirra og um leið að
ekkert þeirra verði útundan. Með
samstarfsnefnd þeirra aðila, sem
með þessi mál ættu að fara I
framkvæmd, mætti ráða hér á
nokkra bót, og þó að heildarstjórn
væri I ákveðnu ráðuneyti þyrfti
það engan veginn að hindra þetta
fyrirkomulag. heldur þvert á móti
auðvelda samstarfið.
En ábyrgur aðili I stjórnkerfinu
er nauðsyn. Sér til ráðuneytis
gæti sá aðili haft ráðgjafarnefnd,
svo sem er á hinum Norður-
löndunum.
Ráðgjafarþjónusta — ráðgjafar
— og greiningarstöð fyrir van-
gefna — þarf að komast á sem
fyrst. þvi að hvert glatað ár hins
vangefna er honum dýrt.
Norðmenn hafa t.d. I einstökum
fylkjum skipulagt sllka þjónustu
og um leið kynnt fólki alla mögu-
leika sem fyrir hendi eru. Þá
möguleika er suma ekki að finna I
dag hjá okkur. Reykjavlk er komin
nokkuð á veg, en landsbyggðin á
fárra eða engra kosta völ enn þá.
f nýrri heildarlöggjöf kæmi þvl
vel til greina að skipta landinu I
nokkur svæði með tiltölulega
rúmri hoimastjórn I málefnum
vangefiana, en undir stjórn ráð-
gjafarniðstöðvar og ráðuneytis
hér I Reykjavtk. Allt eru þetta
hugmyndir sem nánar munu
raktar I framsögu ásamt fleiru. en
mikið má af nágrönnum okkar
læra, enda mun löggjöf þeirra
gerð nánari skil.
f heildarlöggjöf sem sllkri þarf
marga að gæta: Heilsugæsla van-
gefinna er t.d. mun þýðingarmeiri
og viðameiri en annarra. svo sem
auðskilið er. Jafnrétti til fyllsta
þroska, til starfsmöguleika úti I
þjóðfélaginu eða á vernduðum
vinnustöðum hlýtur að vera sjálf-
sagt markmið. Menntunarþáttinn
þarf að stórbæta, og eru þegar
uppi tillögur I þeim efnum sem eru
ærið verkefni ef framkvæmd þar
yrðu. Sá þáttur er auðvitað I nán-
um tengslum við atvinnuþáttinn,
þ.e. á hvern hátt megi nýta sem
best starfskrafta vangefinna I
þágu þeirra sjálfra og þjóðar-
heildar. Menntunarþátturinn, sem
að leiðbeinendum og ráðgjöfum
snýr, er skammt á veg kominn
enn, en hlýtur þó að teljast frum-
forsenda þess að þjálfun og
þroska vangefinna verði sem best
sinnt. Ráðgjöf til aðstandenda
þarf og að stóraukast, tryggt þarf
að vera að hinir vangefnu njóti
fyllsta réttar I tryggingakerfi
okkar og þar verði enginn útund-
an.
Sú heildarlöggjöf, sem tillaga
þessi beinist að, á að vera rúm og
af vlðsýni gerð. Hún þarf að
tryggja rétt hins vangefna, jafn-
rétti við aðra þegna, og hún á að
beinast að þvi að koma hverjum
og einum sem lengst á þroska-
braut — með námi og þjálfun —
svo hinn vangefni megi verða
sem hlutgengastur I samfélaginu,
eigi þar slna fyllstu möguleika. Án
samræmds skipulags átaks verður
þessu marki seint eða ekki náð.
Þvl er þessi tillaga flutt.