Morgunblaðið - 13.03.1976, Síða 32
Samkomulag tókst ekki
en viðræðum haldið áfram
VIÐRÆÐUR fóru fram í Reykja-
vík i gær milli sendinefndar frá
Færevjum og íslenzkra ráða-
manna um undanþágur til handa
færeyskum fiskiskipum til veiða
innan (slenzku fiskveiðilögsög-
unnar. Færeyska sendinefndin,
undir forsæti Atla Dam. lög-
manns, kom hingað til lands f gær
en heldur aftur utan í dag án þess
að samkomulag hafi tekizt. Hins
vegar er gert ráð fyrir að taka upp
viðræður að nýju eftir svo sem
vikutíma.
Morgunblaðið náði í gærkvöldi
tali af Atla Dam, lögmanni, og
spurði hann um gang viðræðn-
Framhald á bls. 31.
Sjónvarpið gerir heim-
ildarþætti um Laxness
ÚTVARPSRAÐ samþykkti á
fundi nýlega að láta sjónvarpið
gera allt að 6 viðtals- og um-
ræðuþætti um Halldór Laxness
og verk hans. Er ráðgert að fá
ýmsa menn til að ræða við
skáldið um tilorðningu ein-
stakra verka hans og fjalla um
þau, en að því er Emil Björns-
son, forstöðumaður frétta- og
fræðsludeildar sjónvarpsins,
tjáði Morgunblaðinu er ekki al-
veg afráðið hvaða verk Hall-
dórs verða tekin til umfjöllun-
ar.
Hins vegar kvað hann þegar
vera farið að vinna við þessa
þætti, og væri áformað að gera
tvo þætti áður en skáldið færi
til útlanda í aprílmánuði.
Ásgeir til
Barcelona?
EINS OG fram hefur komið í
fréttum, hefur Asgeir Sigur-
vinsson knattspvrnumaður hjá
Góð veiði í gærkvöldi:
Viðræðufundir við Færeyinga í gær:
Q ÞESSAR mvndir eru af miðunum frá því í fvrradag. Þar sést HMS Galatea F-18 en varðskipinu Ægi
tókst að snúa á hana og klippa á togvira Ross Kashmir. Virðist það hafa orðið til þess að
skipstjörnarmenn freigátnanna umhverfðust í gær. Bretar segja, að Ægi hafi tekizt að klippa vegna
þess að Galatea hafi bilað þegar mest á reyndi, en hvort sem það er rétt eða ekki er eins víst að hún
sendir frá sér einkennilega reykjarstróka. Hin myndin sýnir þegar HMS Scylla reynir að slá i
st jórnborðshlið og stefni Ægis með skut sínum, en sú tiiraun mistókst.
Standard Liege fengið tilboð
frá nokkrum þekktum knatt-
spyrnufélögum i Evrópu.
Iþróttasiðan fregnaði, eftir
nokkuð ábvggilegum heimild-
um i gær, að eitt þeirra væri
hið heimsþekkta spænska
knattspv rnufélag FC Barce-
lona. Asgeir Sigurvinsson vildi
ekki staðfesta þetta þegar
Morgunblaðið ræddi við hann í
gærkvöldi, en sagði að væntan-
iega myndu málin skýrast áð-
ur en langt liði.
FC Barcelona hefur fyrst og
fremst verið þekkt hin síðari
ár fyrir þær knattspyrnu-
stjörnur sem þar leika, Hol-
lendingana Johan Gruyff og
Johan Neeskens. Er það
margra álit að Gruyff sé bezti
Framhald á bls. 31.
Verða loðnu-
göngurnar 2?
GOÐ loðnuveiði var vestur af Snæfellsnesi i gærkvöldi.Cm klukkan 23
voru þrir bátar búnir að tilkynna afla til loðnunefndar og að sögn
starfsmanna nefndarinnar voru mjög margir bátar með næturnar úti
og margir komnir langt með að fá fullfermi. Loðnan, sem fæst úti af
Snæfellsnesi, er með um 20 prósent hrogn og er þvi auðséð að hún er
nýgengin á miðin. Fituinnihald loðnunnar er um 6 prósent og er hún
þvf mjög gott hráefni til bræðslu.
2 brezkar freigátur sigldu
7 sinnum á Tý og Þór í gaer
Seint í gærkvöldi hafði ekki
komið í ljós hvort nýrrrar loðnu-
göngu var að vænta undan SA-
landi. Hjálmar Vilhjálmsson,
fiskifræðingur sem nú er
leiðangursstjóri á rannsóknaskip-
inu Árna Friðrikssyni, sagði að
þeir hefðu farið með grunnslóð-
um austur með landinu og allt
austur undir Stokksnes. A þessari
leið hefðu þeir ekkert fundið
nema hrafl undan Hornafirði og
allt vestur að Hálsum. Það er
erfitt að segja um hvort ný ganga
er á leiðinni austan að. Það hefur
komið fyrir að loðna, sem gengur
síðla vetrar suður með Aust-
fjörðum, gengur ekki saman fyrr
en hún er komin að Hrollaugs-
eyjum, en stundum hefur það
komið fyrir að hún hefur aldrei
hlaupið saman.
Aðspurður um göngu, sem
loðnuskipin fiska nú úr vestur af
Snæfellsnesi, sagði Hjálmar að
auðsætt væri að hún hefði komið
suður með Vestfjörðum og eftir
þeim upplýsingum sem hann
hefði fengið, þá ætti hún nokkuð
langt í hrygningu. Þettaværi hlið-
stætt því sem gerzt hefði í fyrra
og ef um verulegt magn væri að
ræða, gæti orðið góð veiði næstu
daga, og jafnvel vikur.
Hann sagði að þessi loðna hefði
staðið djúpt í dag, en grynnkaði á
sér á kvöldin og það benti til þess,
að hún ætti eftir að ganga upp á
grynningarnar til hrygningar.
Þegar Morgunblaðið fór í prent-
un um miðnætti voru fjórir bátar
búnir að tilkynna afla til loðnu-
nefndar: Sveinn Sveinbjörnsson,
Pétur Jónsson, Þorsteinn og Von-
in. Ekki munu þeir hafa verið
með fullfermi, en áttu allir að
landa í frystingu í morgun.
Þór töluvert skemmdur og
varð að leita hafnar
TOGVlRAKLIPPING Ægis í fyrradag virðist hafa orðið til þess að
skipstjórnarmenn brezku freigátnanna á miðunum úti af Austfjörðum
umhverfðust í gær, og sigldu Juno og Mermaid alls sjö sinnum á
varðskipin Tý og Þór. Það miklar skemmdir urðu á Þór að skipið varð
að fara inn til Seyðisf jarðar í nótt sem leið enda skipið ílla leikið fyrir.
Einnig munu töluverðar skemmdir hafa orðið á freigátunni Mermaid
að minnsta kosti.
Fyrsta ásiglingin varð klukkan
rúmlega 12 þegar Týr var á
siglingu um 45 sjómílur úti af
Norðfjarðarhorni og stefndi í átt
að fjórum brezkum togurum, sem
þar voru að ólöglegum veiðum.
Kom þá freigátan Juno F-52 á
25—30 sjómílna ferð í átt að varð-
skipinu og stefndi Juno á varð-
skipið framarlega Setti varðskip-
ið þá á fulla ferð aftur á bak en
hjá árekstri varð ekki komizt.
Skullu bógar skipanna saman, og
straukzt varðskipið aftur með
freigátunni, sem hélt hraða sinum
óbreyttum og sló skut sinum i
stefni varðskipsins.
Nokkrum mínútum síðar kom
Juno aftur meðfram varðskipinu
á stjórnborða, snöggbeygði á
stjórnborða og sló skutnum aftur
i bóg varðskipsins, sem á ný tók
aftur á bak og reyndi að sveigja
frá með hjálp bógskrúfu sinnar.
Þessi árekstur varð þó mun minni
en hinn fyrri, en þá urðu nokkrar
skemmdir á varðskipinu — frá
bóg og aftur undir íbúðir. Eru
þær efst urdir bakkanum. Nokkr-
ar skemmdir vírtust einnig hafa
orðið á herskipinu, t.d. brotnaðí
skotpallur og krani smávegis
aftan til á skipinu ásamt
rekkverki.
Júno sigldi síðan á Tý í þriðja
sinn um kl. 18.50 en þá sigldi
freigátan á stjórnborðsskorstein
varðskipsins, sem stendur sem
kunnugt er úti við hlið skipsins,
og dældaði hann verulega. Skip-
herra á Tý er Guðmundur
Kjærnested.
1 millitiðinni áttust Þór og
freigátan Mermaid F 76 við um 23
sjómílur úti af Hvalbak, þar sem
13 brezkir togarar voru að ólög-
Framhald á bls. 31.