Morgunblaðið - 07.05.1976, Side 2

Morgunblaðið - 07.05.1976, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1976 Kristján Pétursson og Haukur Guðmundsson: Krefjast rann- sóknar strax — vegna „áburðar” í Tímanum um meint brot í starfi RlKISSAKSÖKNARA hefur nú horizt kæra frá Jóni E. Ragnars- syni, hæstaréttarlögmanni, þar sem hann kærir fyrir hönd um- bjóðenda sinna, Kristjáns Péturs- sonar deildarstjóra og Hauks Guðmundssonar, rannsóknarlög- reglumanns, og krefst tafarlausr- ar rannsóknar vegna alvarlegs áburðar um meint brot þeirra f starfi f grein f Tfmanum hinn 14. aprfl sfðastliðinn og meints brots ábyrgðarmanna og starfsmanna þessa dagblaðs, svo og greinarhöf- undar á ákvæðum 108. greinar almennra hegningarlaga. I bréf- inu segir Jón E. Ragnarsson, að treysti rfkissaksóknari sér ekki til að taka ákvörðun f málinu, sé þess krafizt að hann vfki sæti f málinu. Morgunblaðið reyndi f gærkveldi að ná tali af Þórði Björnssyni rfkissaksóknara til þess að fá álit hans á þessari kæru, en það tókst ekki. Þeir Kristján Pétursson og Haukur Guðmundsson sendu rík- issaksóknara, Þórði Björnssyni, bréf, sem dagsett er hinn 27. apríl, þar sem þeir fóru þess á leit við hann að hann léti fara fram opinbera rannsókn á réttmæti þeirra sakargifta, sem birtust í grein í Timanum 14. apríl undir fyrirsögninni „Dýrlingur og James Bond íslands". I greininni eru Kristján og Haukur bornir ýmsum sakargiftum, sem þeir telja svo alvarlegar, að þeir krefj- ast rannsóknar. Hér fer á eftir meginmál bréfs Jóns E. Ragnarssonar til ríkissak- sóknara, en það er dagsett í fyrra- dag: „Hinn 27. apríl s.l. fóru um- bjóðendur mínir þess á leit við yður, hr. ríkissaksóknari, að þér létuð fram fara „opinberlega rannsókn á réttmæti umræddra sakargifta i okkar garð“, en þar var átt við mjög alvarlegan áburð Steypa hækkar um 10,8% og flutn- ingsgjöld með bílum um 18% UTSÖLUVERÐ á steinsteypu frá steypustöðvum hefur verið hækk- að um 10,8%. Þá hefur ennfrem- ur verið heimiluð 18% hækkun á farmgjöldum vörubfla á flutn- ingaleiðum, þ.e. út á landsbyggð- ina. Rfkisstjórnin staðfesti þessar hækkanir f gær, en þær höfðu áður hlotið samþykki f verðlags- nefnd. Að sögn verðlagsstjóra stafa báðar þessar hækkanir af hækkun rekstrarkostnaðar. á hendur þeim fyrir ýmis tiltekin ámælisverð og refsiverð verk við rannsókn sakamála í því skyni að knýja fram játningar i svonefndu „spíramáli". Er þeim m.a. borið á brýn að hafa falsað undirskriftir undir játningar, beitt gæzluvarð- haldsföngum þvingun með ósönn- um frásögnum, fyrirheitum um þyngri eða vægari refsingar og framkvæmt ólögmætar eða ámælisverðar húsleitir. Yður var sent eintak af blaðinu með greininni með rannsóknar- beiðninni hinn 27. apríl s.l., en meðfylgjandi er hér ljósrit um- ræddrar greinar. Grein þessi er merkt „S.P. skrifar“ og ber yfirskriftina „Dýrlingur og James Bond lslands“. Þá segir í greininni m.a.: „Um framkomu Kristjáns Péturssonar við gæzlufanga og fleira má segja, að hún hefur ein- kennzt af alvarlegum lögbrotum, það er misferli sem krefjast verður að rannsakað verði til hlft- ar og að viðeigandi refsing komi fyrir. Sá makalausi rógburður og áróður, sem sami Kristján hefur haft i frammi gegn dómsmálaráð- herra og ráðuneyti hans, er alveg í samræmi við þau vísvitandi rangindi, sem Kristján hefur beitt sakborninga sína og sem hér hefur að nokkru verið Iýst.“ Þess er nú ákveðið krafizt f.h. þeirra Kristjáns og Hauks, að embætti yðar ákveði, að þegar 1 stað hefjist og fari fram opinber rannsókn á því, hvort áburður og sakargiftír f nefndri grein séu brot á ákvæðum 108. gr. almennra hegningarlaga af hálfu ábyrgðar- manns eða starfsmanna dagblaðs- ins Tímans og / eða greinarhöf- undar „S.P.“, ef hann er til eða upplýsist hver sé. Það er ljóst, að mjög alvarlegar ærumeiðandi aðdróttanir og móðganir og skammaryrði eru í nefndri grein á hendur opinber- um starfsmönnum vegna skyldu- starfa þeirra og varðandi opinber skyldustörf þeirra, en slíkt er refsivert skv. 108. gr. alm. hegningarlaga, sem hér er vísað til. Ef þér treystist ekki til þess að taka skjóta ákvörðun í máli þessu, t.d. vegna tengsla við dagblaðið Tímann og eiganda dagblaðsins, Framsóknarflokkinn, þá er þess krafizt, að þér víkið sæti í máli þessu sem saksóknari og að dóms- málaráðuneytið skipi þá án tafar setusaksóknara til þess að fara með kæru þessa og rannsóknar- ákvörðun. Að lokum er bent á það, að kæra þessi beinist að einföldum tilteknum atriðum- og meintu Framhald á bls. 15 Það er vfðar, sem snjór fellur en f Revkjavfk, og eftfr þessari mvnd að dæma hefur orðið talsverð fönn I Vestmannaeyjum. Þessa mynd tók Sigurgeir Ijósmyndari okkar þar f fyrradag og sýnir hún káta og glaða Eyjapeyja leika sér f mjöllinni. En ýmsir hafa verið að hafa áhyggjur af þvf að þetta sumarhret kvnni að hafa slæm áhrif á garðagróður. Hafliði Jónsson, garðvrkjustjóri f Revkjavfk, sagði að Revkvfkingar þyrftu að minnsta kosti ekki að hafa áhyggjur. Kuldakastið myndi aðeins hægja á vexti brumhnappanna. Eftir 10 til 15 daga kvað hann verða óhætt að setja niður kartöflur. Við skulum vona að Hafliði reynist sannspár. Bretinn er samur yið sig breytist ekkert” 99 hann — segir Matthías Bjarnason sjávarútvegsráðherra MORGUNBLAÐIÐ hafði samband við Matthfas Bjarnason sjávarútvegs- ráðherra f gærkvöldi og spurði hvað hann vildi segja um þá ákvörðun Breta að fjölga freigátum „Þessi ákvörðun sýnir þvf enga breytingu til batn- aðar hjá Bretum, og getur vart litið vel út hjá þeim nú, á sama tíma og þeir hafa mikinn áhuga á 200 sjómilna efnahagslögsögu og 100 mílna fiskveiðilög- sögu til einkanota." Þá sagði Matthías Bjarnason, að ákvörðunin gæti ekki litið vel út á al- þjóðavettvangi og hún myndi ekki í sjálfu sér breyta aðgerðum Islend- inga í landhelgismálinu. „Bretinn er samur við sig — hann breytist ekkert.“ S t j órn arfrum var p: Tveir nýir dómstól- — Lögréttur ar Matthfas Bjarnason og dráttarbátum á tslands- miðum. Sjávarútvegsráðherra sagði, að sýnilegt væri að brezka stjórnin hefði látið undan þrýstingi togaraút- gerðarmanna og togara- skipstjóra. I GÆRKVÖLDI var l'agt fram á Alþingi stjórnarfrv. um stofnun Iveggja nýrra dómstóla, sem lagt er til að kallist lögréttur. Skulu dómstólar þessir aðallega starfa f Reykjavfk og á Akureyri en um- dæmi þeirra vera landið allt. Þeir skulu fjalla um hin stærri mál sem fyrsta dómsstig en um önnur mál sem annað dómsstig, áfrýjun- ardómstóll. Er lögrétta hefur fjallað um mál sem áfrýjunar- dómstóll ætti yfirleitt ekki að mega skjóta þvf til Hæstaréttar nema f undantekningartilvikum. Þetta þýðir að dómsstig yrðu 3 hér á landi en hvert mál gæti þó að jafnaði aðeins farið fyrir tvö þeirra. Nánar verður skýrt frá efni þessa frv. f Morgunblaðinu sfðar. — Ásiglingar — Ford Breytingar á lögum um Framkvæmdastofnun: Framkvæmdaráð lagt nið- — Byggðadeild stofnuð ur RÍKISSTJÓRNIN lagði fram á Alþingi f gær frumvarp til breyt- inga á lögum um Framkvæmda- stofnun rfkisins. Er frumvarp þetta samið í samræmi við stefnu- yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 29. ágúst 1974. Helztu breytingar sem frv. gerir ráð fyrir eru þess- ar: • Framkvæmdaráðið, sem skip- að hefur verið með sérstökum hætti af rfkisstjórn, verður lagt niður. 1 þess stað gerir stjórn Framkvæmdastofnunar tillögur til rfkisstjórnar um ráðingu forstjóra og fram- kvæmdastjóra deilda. Stofnuð verður sérstök byggðadeild í Framkvæmda- stofnun, sem taki að sér hluta þeirra verkefna, sem áætlana- deild hefur haft með höndum. Á byggðadeild að halda áfram gerð landshlutaáætlana f sam- hengi og samræmi við heildar- áætlanir áætlanadeildar. % Gert er ráð fyrir að auka veru- lega tekjur Byggðasjóðs. 1 stað lögbundins framlags úr rfkis- sjóði að upphæð 100 milljónir króna árlega næstu árin er lagt til að ríkissjóður leggi Byggðasjóði til fjármagn þannig að árlegt ráðstöfunarfé sjóðsins verði ekki lægra en sem svarar 2% af útgjöldum fjárlaga. Nokkrar fleiri breytingar eru ráðgerðar skv. frv. Framhald af bls. 32 hættu allir togararnir veiðum, þar sem varðskip áttu möguleika á að sleppa inn á milli freigátnanna og inn í togarahópinn. Skömmu eftir kl. 22 tilkynnti svo varðskipið Óðinn, að freigátan Gurhka F-122 hefði gert margar ásiglingartilraunir og í einni tókst freigátunni að nugga sér utan f bakborðshlið varðskipsins, en skemmdir á varðskipinu urðu þó sáralitlar. Gunnar Ólafsson sagði að nokkru síðar hefði borizt nýtt skeyti frá Tý og rétt á eftir annað frá Óðni. Falmouth hafði þá tekizt að sigla aftur á Tý og í skeyti frá skipherra varðskipsins sagði að það væri töluvert mikið laskað. 1 skeytinu frá Óðni kom fram, að Gurkha hefði siglt tvisvar enn á varðskipið. Skemmdir á því urðu ekki miklar, en freigátan lenti alltaf á sama stað á því bakborðsmegin aftan til. Hins vegar virtust varðskips- mönnum margar stórar dældir vera komnar í sfðu freigátunnar. Gunnar Ólafsson sagði að- spurður að hann ætti engin orð til að lýsa aðför brezku freigátnanna í gærkvöldi. Framhald af bls. 1 Jafnframt heldur Jimmy Carter fyrrum ríkisstjóri í Georgia áfram harðri kosningabaráttu sinni eins og ekkert hafi í skorizt þótt hann virðist nú vera viss um að verða tilnefndur forsetaefni demókrata. Hálfgerð örvænting ríkir í herbúðum Fords eins og sést á því að Ron Nessen blaðafulltrúi sagði blaðamönnum að forsetinn væri ekki viss um sigur í heimaríki sínu Michigan. Þar hafa stuðningsmenn Reagans ákveðið að hefja mikla kosningaherferð í kjölfar unninna sigra enda yrði Ford fyrir ægilegu sálrænu áfalli ef hann tapaði í Michigan. Margir sérfræðingar leiða getum að því að Ford sigri ekki í fyrstu atkvæðagreiðslu á flokksþinginu i Kansas City í ágúst og hljóti þar með ekki útnefninguna. Ef barátta Fords fer út um þúfur verður hann fyrsti forseti repúblikana sem hlýtur ekki útnefningu síðan 1884 þegar Chester Arthur var forseti. Kosningabarátta forsetans varð fyrir enn einu áfalli í dag þegar stjórnin tilkynnti mikla hækkun heildsöluverðs.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.