Morgunblaðið - 07.05.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1976
29
VELWVKAIMDI
Fjórir Arabar særðir
Velvakandi svarar i sima 10-100
kl. 14—1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
Ritstjórar Morgunblaðsins
harma, að nafnlaus grein um
Sölku Völku með þeim munn-
söfnuði, sem í henni var, skvldi
hafa farið athugasemdalaust inn I
Velvakanda I gær.
% Upprunalegt
fuglalíf
Tjarnarinnar
Fuglavinur kom að máli við
Velvakanda vegna skrifa um
kríuna og Tjörnina, þar sem m.a.
var komið inn á það hvaða endur
væru þar nú. Hafði hann verið að
ræða við fleiri fuglavini og þeim
ekki komið saman um hvaðan
endurnar á Tjörninni væru komn-
ar og hvernig. Og hann spurði
hvort ekki hefði veriö gert eitt-
hvert átak af mannavöldum til að
koma upp andalífi á Tjörninni.
Það er alveg hárrétt. Atak var
gert á sínum tíma til að auka
fjölbreytni fuglalífsins á Tjörn-
inni og eru endurnar, sem nú eru
þar, afkomendur aðfluttu fugl-
anna. Velvakandi vitnar um þetta
í skýrslu, sem dr. Finnur Guð-
mundsson, fuglafræðingur,
skrifaði um fuglalifið á Reykja-
víkurtjörn. Þar segir m.a. í upp-
hafi:
„Sem vænta má eru litlar
heimildir fyrir hendi um fugla-
lífið á Reykjavíkurtjörn fyrr á
tímum. Þó má telja víst, að þar
hafi alla tíð verið allauðugt fugla-
líf, og upphaflega hefur það
sennilega verið svipað því sem nú
er á öðrum tjörnum í grennd við
sjó á Suðvesturlandi.
Eftir að byggð tók að aukast í
Reykjavík hefur hið upprunalega
fuglalif tjarnarinnar eflaust tekið
allmiklum breytingum og fjöl-
breytni þess jafnframt farið
minnkandi. Að minnsta kosti eru
það aðeins tvær tegundir, sem á
siðari tímum einkum hafa sett
svip sinn á fuglalif tjarnarinnar,
en þær eru krían og stokköndin.
Báðum þessum tegundum hefur
vegnað vel á tjörninni, þrátt fyrir
vöxt Reykjavíkur úr þorpi í bæ og
úr bæ í borg, og enn eru þær
báðar ríkjandi tegundir á tjörn-
inni.“
0 Lítill hólmi
„Að öllum líkindum hefur
alltaf verið lítill hólmi eða sker i
tjörninni, þar sem nú er Tjarnar-
hólminn, því að á uppdráttum af
Reykjavík frá öndverðri 19. öld er
sýndur hólmi í tjörninni á þessum
stað. Nokkru eftir aldamótin
síðustu mun hólminn hins vegar
hafa verið hlaðinn upp og senni-
lega einnig stækkaður. Ég tel þó
líklegt, að kríuvarp hafi verið í
Hurst, en þau höfðu verið
elskendur fyrir strfðið. Hann var
á laun f húsinu og beið átekta unz
talið væri öruggt að hann héidi
áfram flóttamannaleiðina til
Spánar. Og sfðan var þar einnig
Ian Richardson. Og það get ég
sagt yður í fullri hreinskilni, M.
Hurst, að hann var óvenjulega
heillandi maður, greindur og við-
felldinn f alla staði. Eg dáði hann
mjög og ég vissi að læknirinn mat
hann mikils og Madeleine varð
yfir sig ástfanginn af honum.
Marcel Carrier var viti sfnu fjær
af afbrýðisemi út f hann. Hættu-
leg staða f húsi þar sem svo mörg
önnur leyndarmá! voru geymd,
eins og þér getið sjálfsagt gert
yður f hugarlund.
— Þeim tókst að koma Maurice
Hurst giftusamlega undan og
sfðan rann upp sá dagur þegar
Englendingarnir ætluðu að varpa
niður peníngasendingu til and-
spyrnuhreyfingarinnar. Þér hafið
sennilega heyrt um það?
Peningarnir féllu f hendur Þjóð-
verjanna. Þeir biðu eftir sending-
unni. Þeirra var sigurinn. Og á
fáeinum klukkustundum höfðu
þeir handtckið flesta félagana f
andspyrnuhreyfingunni f
héraðinu. Ég hafði farið á mark-
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum
frá klukkan 14:00 til 16:00. Er þar tekið
á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend-
ingum og er öllum borgarbúum boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 8. maí verða til viðtals:
Elín Pálmadóttir, borgarfulltrúi
Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi
Sveinn Björnsson, varaborgarfulltrúi
* 1976
^0 McNaughl
Syndicate. Inc.
<+/
hólmanum fyrir þá breytingu og
vel má vera að kriuvarpið þar sé
mjög gamalt. Annars staðar við
tjörnina hefur krían ekki orpið
svo vitað sé fyrr en nú allra
siðustu árin,“ segir Finnur i
skýrslunni, sem er frá 1962. Svo
var komið 1973 og 74 að krían
kom ekki upp ungum, en hefur
nú aftur náð fótfestu og á vonandi
eftir að koma upp ungum í ár,
eins og fram kom í dálkum Vel-
vakanda um daginn.
# Endur
fluttar á
Tjörnina
Við höldum áfram að vitna í
skýrslu dr. Finns: „Arið 1956 var
hafizt handa um skipulegar að-
gerðir til að auka fjölbreytni
fuglalífsins á tjörninni með þvi að
fá þangað fleiri andategundir. 1
því skyni var Kristján Geir-
mundsson á Akureyri fenginn til
að klekja út andareggjum frá Mý-
vatni og ala upp ungana. Þegar
ungarnir voru orðnir stálpaðir
voru þeir fluttir flugleiðis til
Reykjavíkur og sleppt á tjörnina
og hafa verið aldir þar síðan.
Vann Kristján að þessu uppeldi i
2 sumur (1956 og 1957) og voru
alls fluttar á tjörnina 412 endur,
sem hann hafði alið upp. Fer hér
á eftir skrá yfir tegundirnar og
fjölda einstaklinga hverrar teg-
undar: 51 rauðhöfðahönd, 59 graf-
endur, 39 gargendur, 30 urt-
endur, 27 skeiðendur, 66 dugg-
endur, 62 skúfendur, 13 hús-
endur, 65 æðarfuglar."
„Vegna ólikra lífshátta voru
norðanendurnar, sem sleppt var á
tjörnina 1956 og 1957, væng-
stífðar á þann hátt, að þeim uxu
nýjar flugfjaðrir að loknum
næsta fjaðrafelli, og urðu þær þá
fullfleygar og hafa verið það
síðan. Allar kafendurnar voru
hins vegar vængstífðar fyrir fullt
og allt.“
Þá segir dr. Finnur frá því að
afdrif norðlenzku andanna hafi
orðið með ýmsu móti og farið eftir
tegundum. Af buslöndunum hafi
rauðhöfðaöndinni vegnað bezt á
Tjörninni. Hún hafi náð fótfestu,
enda vanhöld lítil og fjölgun með
eðlilegum hætti. Nær allar rauð-
höfðaendurnar, sem á Tjörninni
voru 1962, voru fullfleygar og
verpa viðs vegar i grennd við
bæinn, líkt og stokköndin, en
koma með unga sína á Tjörnina.
Gargöndinni hefur líka vegnað
vel á Tjörninni og henni hefur
einnig fjölgað með eðlilegum
hætti. Að þvi er lífshætti snertir
svipar henni til rauðhöfðaandar-
innar, en hún er lausari við á
Tjörninni og sifellt að koma og
fara.
Ekki er ástæða til að rekja ná-
kvæmlega allar tegundirnar og
veru þeirra á Tjörninni, enda
nokkuð síðan þessi skýrsla var
gerð. En i henni segir m.a: „Eftir
að norðanendurnar höfðu verið
fluttar á Reykjavíkurtjörn tók
brátt að bera á því, að villtar
endur sömu tegundar tækju að
venja komur sínar á tjörnina og
hafa sumar þeirra ilengzt þar.
Þessar villtu endur stuðla að
sjálfsögðu ásamt norðanöndunum
að landnámi hinna ýmsu andateg-
unda.“ Velvakandi vonar að
Fuglavinur sé nokkru fróðari.
HÖGNI HREKKVÍSI
Tel Aviv 5. maí NTB. Reuter.
tSRAELSKIR hermenn særðu
fjóra Araba á hernumdu svæðun-
um á vesturbakka Jórdan f dag,
en þeir tóku þátt í andófi gegn
Israelsstjórn. I gær héldu Israel-
ar hátfðlegt að 28 ár eru liðin frá
því þeir hlutu sjálfstæði, en áður
en hátfðahöld hófust var mikill
viðbúnaður af hálfu hers og lög-
reglu þar sem óttazt var að Arab-
ar á hernumdu svæðunum
nvndu láta til skarar skrfða. Ut-
göngubann var sett á 1 nokkrum
bæjum á vesturbakkanum vegna
ókvrrðar upp á sfðkastið en hópur
Araba virti það að vettugi og lét
sfðan viðvaranir hermanna sem
vind um eyru þjóta.
í tilefni dagsins hélt Simon Per-
es varnamálaráðherra ísraels
ræðu þar sem hann sagði að erfið-
ir tímar væru framundan og ísra-
elar mættu ekki gleyma því að
herstyrkur væri það sem sköpum
gæti skipt fyrir israela.
„Hann er ekki hreinræktaður.“
LÆRIÐ VELRITUN
Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eirtgöngu á
rafmagnsritvélar. Engin heimavinna. Innritun og
upplvsingar í síma 21719.
41311.
Vélritutjarskólinn,
Suðurlandsbraut 20,
Þórunn H Felixdóttir
VS!t
\
VIÐTALSTIMI
34. leikvika — leikir 24. apríl 1976.
Vinningsröð: 1 2 1 — 2 1 1 — 1 02-
1. VINNINGUR: 9 réttir — kr. 230.500.00
37085
2. VINNINGUR: 8 réttir — kr. 2.100.00
1326 5421 35116 + 36010 36807 + 36907 37344
1375 6398 35230 + 36110 36823 + 36908 37466 +
1849 6607 35867+ 36210 36857 36908 37466 +
2879 6826 35867 + 36649 36861 37090 37466 +
2958 7060 35884 + 36777 36890 + 37249 37477
3625 35067 35992 36777 36891+ 37341 53921F
5022 35116 + 36010 + 36794 36892 +
+ nafnlausF. 10 vikna seðill
Kærufrestur er til 17. maí kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar
Kærueyðublöð fár.t hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinningsupp-
hæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 34
leikviku verða póstlagðir eftir 18. mai.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og
fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrrauna fyrir greiðsludag
vinninga'
GETRAUNIR — (þröttamiðstöðin — REYKJAVÍK
SIGGA V/óGA £ \nvt9AU