Morgunblaðið - 07.05.1976, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.05.1976, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1976 11 Sporhundar Hjálpar- sveitarinnar skiluðu góðu starfi á sl. ári AÐALFUNDUR Hjálparsveitar skáta f Revkjavík var haldinn þann 20. marz s.l. 1 skýrslu stjórn- ar kom fram, að sveitin var kölluð út fimm sinnum til leitar á árinu. Voru sporhundar hjálparsveit- anna í Reykjavfk og Hafnarfirði notaðir við þrjár þessara leita. A árinu sá hjálparsveitin um nokkra sjúkraþjónustu, mest þó í Bláfjöllum á s.i. vetri. Á árinu náðist jákvæður árangur í starfi sporhundanna, að því er segir í fréttatilkynningu frá Hjálpar- sveitinni. Unnið er að smíði nýs húss fyrir hundana á lóð þeirri, sem fékkst á Álftanesi og er ráð- gert að hundarnir geti flutt í sitt nýja húsnæði á þessu ári. Hjálparsveitin á nú þrjár bif- reiðar auk snjóbíls. Ein þeirra er orðin léleg og stendur til að kaupa nýja á þessu ári. 1 árslok voru starfandi félagar 70 talsins, fyrir utan aukafélaga. Talið er að félag- arnir skili u.þ.b. 25.000 vinnu- stundum i þágu sveitarinnar ár- lega. í stjórn Hjálparsveitarinnar eru nú: Thor B. Eggertsson, Bene- dikt Gröndal, Sighvatur M. Blöndahl, Arnfinnur Jónsson, Ágúst Jóhannesson og Guðmund- ur Ingi Haraldsson. Starfið í Vatnaskógi AÆTLUN fyrir starfið í sumar- búðum KFUM I Vatnaskógi á þessu sumri er nú tilbúin en sam- kvæmt henni verða 10 dvalar- flokkar í Vatnaskógi I sumar, seg- ir I fréttatilkvnningu frá Skógar- mönnum KFUM. Fvrsti flokkur- inn fer til dvalar I lok maí en starfið verður út sumarið og lýk- ur með Biblfunámskeiði I lok ágúst. I júni verður Almenna kristi- lega mótið haldið i Vatnaskógi dagana 25.—27. og eru þangað allir velkomnir. Þá verður í júlí haldið mót KFUM-drengja frá öll- um Norðurlöndum, en slík mót hafa verið haldin í áraraðir, en verða nú á tslandi i fyrsta skipti. Unglingar héðan hafa einu sinni sótt slíkt mót sem þá var haldið í Noregi. Um verzlunarmannahelgina verður að venju haldið mót fyrir pilta og stúlkur sem eru 13 ára og eldri en slik mót hafa verið haldin á undanförnum árum og hafa nokkur hundruð unglingar dvalið um þessa helgi i Vatnaskógi. Aðalfundur sam- taka íslenzkra verktaka AÐALFUNDUR Samtaka ís- lenskra verktaka var haldinn á Hótel Esju 3. apríl-1976. Fráfar- andi formaður samtakanna, Páll Hannesson verkfræðingur, setti fundinn og flutti skýrslu stjórnar. Aðalefni fundarins var nýafstaðn- ir kjarasamningar ásamt áfram- haldandi aðild að Vinnuveitenda- sambandi Islands. Páll Gústafsson, Aðalbraut h.f., var kosinn formaður samtakanna en aðrir í stjórn eru: Ármann Örn Armannsson, Ármannsfell h.f. Páll Jóhannsson, Ýtutækni h.f., Páll Sigurjónsson, ístak h.f. og Sigurður Sigurðsson, Loftorka h.f. I Vatnaskógi er nú 1 byggingu íþróttasalur og er stefnt að því að gera hann fokheldan fyrir næsta vetur. Til að afla fjár var í fyrra efnt til happdrættis en í ár voru gefnir út sérstakir peningar úr kopar og silfri. Formanna- skiptí í Félagi pípulagninga- meistara Á AÐALFUNDI Félags pípulagn- ingameistara kom m.a. fram í skýrslu formanns að uggvænlega horfði í byggingariðnaðinum ef ekki rættist úr með úthlutun lóða segir í fréttatilkynningu frá félag- inu. A fundinum lýsti formaður, Benedikt J. Geirsson, því yfir að hann gæfi ekki kost á sér til endurkjörs enda hefði hann verið formaður i fimm ár. Þökkuðu fundarmenn honum frábær störf. Á fundinum voru tveir menn heiðraðir, þeir Tómas Jónsson og Dagbjartur Majasson. I stjórn Félags pípulagninga- meistara eru nú Axel Bender, for- maður, Bjarni Guðbrandsson, varaformaður, Tryggvi Gíslason, ritari, Elvar Bjarnason, gjaldkeri, og meðstjórnandi Einar Guð- mundsson. LÆKJARGOTU 4 Nýkomnir samfestingar úr kakí ogsléttflaueli, pils og vesti úr sléttflaueli Gott kápuúrval ., Ódýrustu buxur í bænumi! 1916 Samtökin voru stofnuð 1968 og er aðalmarkmið þeirra: að efla samstöðu verktaka varðandi út- boð og samninga og samkeppni við erlenda verktaka, að leita samstarfs við erlenda verktaka um framkvæmdir á íslandi, sem teljast óvenjulegar miðað við is- lenskar aðstæður og jafnframt að auðvelda íslenskum verktökum þátttöku í mannvirkjagerð erlendis, að stuðla að aukinni tækniþróun við mannvirkjagerð, að vinna að stöðlum og móta reglur fyrir útboð og samninga- gerð. Othar örn Petersen hdl. hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri samtakanna og verður heimilis- fang þeirra á skrifstofu hans að Borgartúni 29, Reykjavik. ÝSINGASÍMtNN ER: 22480 2R*r0unbI«t>it> Karlakóriim Fóstbræðmi Afmælistónleikar í Háskólabíói laugardaginn 8. maí kl. 1 4.30. 3 ópernsöngvarar Einsöngur og tvísöngur Hátíðakór gamalla og ungra Fóstbræðra 5 söngstjórar Jón Þórarinsson, Ragnar Björnsson, Garðar Cortes, Jón Ásgeirsson, Jónas Ingimundarson Aðgöngumiðar seldir hjá Eymundsson, Lárusi Blöndal og við innganginn á laugardag. Kristinn Hallsson Sigr. E. Magnúsdóttir. Erl. Vigfússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.