Morgunblaðið - 07.05.1976, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1976
Opin keppni
í Leirunni
UM næstkomandi helgi, laugar-
dag og sunnudag, fer fram opin
golfkeppni á Hólmsvelli í Leiru.
Þetta er svonefnd Dunlop-keppni,
sem Golfklúbbur Suöurnesja
heldur árlega, en Austurbakki,
sem umboðið hefur fyrir Dunlop,
gefur verðlaunin.
Dunlop-keppnin er 36 holu
keppni með og án forgjafar.
Leiknar verða 18 holur á laugar-
dag og byrjað að ræsa út kl. 9 og
ræst út eftir hádegi allt til kl. 3. Á
sunnudag verða svo aftur leiknar
18 holur og ræst út eftir árangri
fyrri daginn, þannig að þeir byrja
síðast, sem beztum árangri hafa
náð.
Miklar breytingar standa nú
yfir á Hólmsvelli í Leiru og
verður völlurinn í þetta sinn ekki
leikinn á sama hátt og til dæmis
var gert í fyrra. Fært hefur verið
inn á sumarflatir og þær slegnar á
sjö stöðum af níu.
MAGNÚS V. Pétursson verður
einn af níu dómurum sem dæma
mun úrslitakeppni Evrópumóta
unglinga í Ungverjalandi í lok
þessa mánaðar Magnúsá 25 ára
dómaraafmæli um þessar mundir,
en Magnús dæmdi sinn fyrsta
opinbera knattspyrnuleik aðeins
1 8 ára qmalll
— Jú, það er vissulega
gaman að fá svona verkefni,
sagði Magnús er við röbbuðum
við hann í gær. — íslenzkir
dómarar fá alltof fá verkefni á
alþjóðavettvangi og það tók mig
til dæmis 10 ár að fá FIFA
merkið, en það fær dómari ekki
fyrr en hann hefur dæmt tvo
a landsleiki í stórmótum, sagði
Magnús, sem mun vera eini
islenzki dómarinn sem fengið
hefur slíkt merki auk Hannesar Þ.
Sigurðssonar.
Magnús æfir af fullum krafti
þessa dagana fyrir keppnistima-
bilið, sem senn hefst hér á landi,
og Evrópukeppnina. Æfir Magnús
þrisvar sinnum i viku, en sagðist
þvi miður álita að íslenzkir
dómarar gerðu ekki nægilega
mikið til að halda sér i æfingu.
„ Trúlegt að 12 Islendinggr
verði meðal keppenda á OL ”
Svava, María og Bryndis Ýr Viggósdætur.
Aðrir sigurvegarar á mótinu
urðu Ásmundur ÞórSarson, Hauk-
ur Bjarnason, Helgi Magnússon,
Ragnar Einarsson og Jóhann Vil
bergsson.
— Þegar hafa þrír frjálsíþrótta-
menn og tveir lyftingamenn náð
lágmörkunum og ferð þeirra á
leikana ætti því að vera trygg.
Tveir sundmenn standa nálægt
lágmörkunum og ég reikna með
að til Montreal verði að minnsta
kosti sendur einn júdómaður og
hef ég þá í huga Norðurlanda-
meistarann Gisla Þorsteinsson
sem líklegastan Ölympiuþátttak-
anda. ísland hefur ekki áður sent
keppendaijúdóá ÖL.
— Þau sæti sem laus eru þá ef
við miðurn við 12 keppendur yrði
þá væntanlega fyllt af öðrum
keppendum í þessum greinum nái
þeir lágmörkunum eða sýni góða
frammistöðu. — Júdómenn t.d. á
Evrópumótinu í Rússlandi.
Gísli sagði að sennilega yrðu
þátttakendur ekki sendir i
unglingabúðir eins og gert var í
Múnchen 1972. Ástæðan væri
mikill kostnaður og sömuleiðis að
í Múnchen hefðu menn ekki verið
fyllilega ánægðir með unglinga-
búðirnar. Þá kvað Gisli sömu-
leiðis að íslenzka glíman yrði nær
örugglega ekki sýningaríþrótt á
Ólympíuleikunum eins og glimu-
menn hefðu vonazt til. Hefði ver-
ið rætt um þetta við Kanada-
menn, en þeir sýnt litinn áhuga
og væri mjög erfitt að koma sýn-
ingariþróttum inn á „Ólympíu-
prógrammið".
Akveðið er að Sveinn Björns-
son, varaforseti ÍSI verði aðal-
fararstjóri íslenzka hópsins á
Ölympíuleikunum í Montreal.
Frjálsíþróttamenn reikna
með 9 keppendum
Örn Eiðsson, formaður FRI,
sagði í vitali við Morgunblaðið i
gær að frjálsíþróttamenn hefðu
alltaf reiknað með að fá 7 kepp-
endur að minnsta kosti á
Ólympíuleikana, en í mesta lagi 9.
— Erlendur Valdimarsson,
Stefán Hallgrímsson og Hreinn
Halldórsson hafa náð Olympíu-
lágmörkunum i sínum greinum og
fleiri standa mjög nálægt lág-
mörkunum, sagði Örn Eiðsson.
— t því sambandi vil ég nefna
Lilju Guðmundsdóttur, Öskar
Jakobsson og Ágúst Ásgeirsson.
Þá eru Sigfús Jónsson, Vilmund-
ur Vilhjálmsson, Friðrik Þór
Óskarsson og Sigurður Sigurðs-
son til alls líklegir. Nú Þórdis
Gisladóttir var ekki á skrá hjá
okkur yfir líklega Ólympíukandi-
data, en hún hefur náð mjög góð-
um árangri í vor, þannig að hún
gæti allt eins náð Ólympiuiág-
markinu.
GIsli Halldórsson formaður Ólvm-
píunefndar og forseti ISl
Örn sagðist ekki vera fylgjandi
því að senda keppendur á Ólym-
píuleika, sem ekki hefðu náð
Ólympíulágmörkunum. Hins veg-
ar fyndist honum þó rétt að senda
keppendur sem sýndu stöðug-
leika í sínum greinum rétt fyrir
neðan lágmarkið. T.d. hlaupara
sem væri aðeins broti frá lág-
markinu í nokkrum mótum og
stökkvara eða kastara sem væru
10 sm frá lágmarkinu skipti eftir
skipti.
Sundmenn reikna með
3 keppendum
— Við vonumst til að fá þrjá
keppendur á Ólympíuleikana
sagði Torfi Tómasson er við rædd-
um við hann i gær. — Það er
ekkert leyndarmál að þau sem við
höfum fyrst og fremst í huga eru
Sigurður Ólafsson, Þórunn Al-
freðsdóttir og Guðmundur Ólafs-
son. Fleiri koma til greina, en þau
eiga lengra í land með að ná lág-
mörkunum en hin þrjú.
— 17. maí þarf að tilkynna i
hvaða greinar við ætlum að senda
keppendur, en hálfum mánuði
fyrir Ó1 þarf svo að staðfesta þá
tilkynningu og senda endanlegan
nafnalista, þannig að enn er næg-
ur tími til stefnu, sagði Torfi. —
Jú, það er slæmt að geta ekki sagt
það hreint út strax hverjir fara
til Montreal. Það leiðir til þess að
fólk hamast við að ná lágmörkun-
um og er komið of fljótt í topp-
þjálfun, en þetta er ekki bara
vandamál hjá okkur heldur alls
staðar, sagði Torfi að lokum.
Þess má geta að 1972 tóku 26
íslendingar þátt í sjálfum Ólym-
píuleikunum í Múnchen, en ís-
lenzka handknattleikslandsliðið
var þá í úrslitum og með því
kepptu 16 leikmenn. Þá voru fjór-
ir unglingar í unglingabúðum og
Guðmundur Hermannsson tók
þátt í keppni fyrir eldri iþrótta-
menn, sem var í tengslum við
Ólympíuleikana.
Lyftingamennirnir, sem náð
hafa Ólympíulágmörkunum, eru
þeir Gústaf Agnarsson og Guð-
mundur Sigurðsson. Þá fara tveir
handknattleiksdómarar á ÓL,
þeir Hannes Þ. Sigurðsson og
Karl Jóhannsson.
SKÍÐADEILD KR lauk vetrarstarfi
sinu um siðustu helgi er innanfé-
lagsmót fór fram á svæði félagsins
við Skálafell. Sérstök ástæða er til
að nefna árangur Viggós Bene-
diktssonar sem sigraði i „old
boys" flokki og dætra hans
þriggja, Bryndisar, sem sigraði i
yngsta flokki stúlkna. og Mariu og
Svölu Víggósdætra. sem urðu í 1.
og 2. sæti i flokki 13—15 ára
stúlkna. Þvi má svo bæta við að
fjórða dóttir hans er Jórunn Vigg-
ósdóttir, sem var meðal íslenzku
þátttakendanna á Ólympiuleikun
um i Innsbruck.
Heldur upp á 25
ára ámaraafrmeli
á EM unglinga
í Ungverjalandi
RÚMIR tveir mánuðir eru nú þar til Ólvmpíuleikarnir í Montreal
hefjast og hafa 5 fslenzkir fþróttamenn trvggt sér þátttökurétt á
leikunum með því að ná Ólvmpíulágmarkinu í sínum greinum. Fjöldi
íþróttamanna í öðrum greinum keppist við það þessa dagana að ná
þessum eftirsóttu lágmörkum og hafði Morgunhlaðið því samhand við
Gísla Ilalldórsson, formann Ólvmpíunefndar, í gær og spurði hann hve
marga keppendur ísland sendi á ÓL í Montreal.
— Mér finnst trúlegt að íslenzku keppendurnir á Ólympíuleikunum
í Montreal verði 12 talsins, en gætu þó orðið fleiri eða færri. Það
verður þó ekki Ijóst fvrr en þátttökufresturinn rennur út í byrjun júlí
að endanlega verður séð hverjir ná tilsettum lágmörkum, sagði Gísli.
Þessir fimm hafa náð Ólympfulágmarkinu, Guðmundur Sigurðsson,
Gústaf Agnarsson, Hreinn Halldórsson, Erlendur Valdimarsson og
Sfefán Hallgrímsson.
Gísli og Viðar keppa á EM í Kænugarði
ata, áður en lagt var í ferð-
ina, að hann byggist ekki
við miklum árangri að
minnsta kosti ekki líkt því
eins góóum og á Norður-
landameistaramótinu, því
á Evrópumeistaramótinu
væru andstæðingarnir
miklu erfiðari viðfangs.
r \
— segir Gísli Halldórsson, formaður Olgmpíunefndar
Ekki verður tekið bátt í unglingabúðum og glíman
verður ekki sgningaríþrótt eins og búizt var við
TVEIR íslenzkir keppend-
ur eru á Evrópumeistara-
mótinu í júdó, sem stendur
yfir þessa dagana í Kiev í
Rússlandi. Eru það þeir
Vióar Guójohnsen og Gísli
Fomvatnsganga
hjá ísfirðingum
tSFIRÐINGAR gangast fvrir
sinni árlegu Fossavatnsgöngu á
morgun og hefst gangan klukkan
15 fvrir neðan Fossavatn. Gengn-
ir verða um 22 km og endað við
Skfðaheima á Seljalandsdal. Mkil
þátttaka hefur verið í þessari
keppni undanfarin ár og verði
Þorsteinsson, báðir úr
Júdódeild Ármanns. Róð-
urinn verður sjálfsagt erf-
iður hjá íslendingunum í
þessu móti og sagóist lands-
liðsþjálfarinn Nauki Mur-
veður sæmilegt á ísafirði á
morgun er búizt við 60—70 þátt-
takendum.
Keppt verður f tveimur flokk-
um. í old-bovs flokki er keppt um
verðlaun sem Marselfus Bern-
harðsson gaf, en f flokki þeirra
vngri er keppt um bikar sem Vél-
smiðjan Þór gaf. 1 vngri flokkn-
um bar Davíð Höskuldsson sigur
úr býtum í fvrra, en f flokki
þeirra eldri kom Arnór Stígsson
fvrstur í mark, en hann er 54 ára
gamall.