Morgunblaðið - 07.05.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1976
3
Bæjarstjórn Vestmannaeyja:
Deilur um íbúðakaup
bæ j arlögfræðings
Greiddi íbúð og opinber gjöld til
bæjarins með 10 ára skuldabréfi
A BÆJARSTJÓRNARFUNDI hjá hæjarstjórn Vestmannaevja s.l
sunnudag þar sem ákveðin var ráðning Páls Zúphonlassonar í starf
bæjarstjóra út kjörtfmabilið urðu m.a. miklar umræður um íbúðakaup
Georgs H. Trvggvasonar bæjarlögfræðings og varabæjarstjóra f tilefni
þess að til afgreiðslu á fundinum voru reikningar bæjarsjóðs Vest-
mannaeyja allt frá árinu 1968, en á árinu 1972 kevpti Georg íbúð af
bænum með skuldabréfsgreiðslu og einnig greiddi hann 171 þús. kr. af
gjöldum sfnum til bæjarsjóðs með sama skuldabréfi sem bæjarsjóður
kevpti á nafnverði, en skuldabréfið var upp á 1408 þús. kr. (1,4 millj.
kr.)
Sigurður Sigurjónsson skip-
stjóri i Vestmannaeyjum hafði
haustið 1971 boðið Vestmanna-
eyjabæ skuldabréf til kaups með
afföllum m.a. til greiðslu á skuld-
um við bæjarsjóð.
Bæjarstjóri og bæjarráð vildu
ekki kaupa bréfið, en þann 31.
maí 1972 keypti bæjarsjóður 10
ára skuldabréf af Georg Tryggva-
syni bæjarlögfræðing upp á 1408
þús. og 800 kr. til fullrar greiðslu
á íbúð úr eigu bæjarsjóðs og
greiðslu opinberra gjalda bæjar-
lögfræðings upp á 171 þús. kr.
Skuldabréfið hafði Georg keypt
af Sigurði Sigurjónssyni með
afföilum að því er segir í bókum
Sigurgeirs Kristjánssonar en
bæjarsjóður keypti það síðan á
nafnverði af Georg.
Um þetta mál spunnust miklar
umræður og margar bókanir voru
gerðar eftir að Jóhann Friðfinns-
son og Sigurbjörg Axelsdóttir,
tveir af fulltrúum sjálfstæðis-
manna, höfðu borið fram tillögu
um að Georg yrði sagt upp störf-
um bæjarlögmanns. Verður af-
greiðslan á fundi bæjarstjórnar
rakin hér á eftir með bókunum og
tillögum og kemur fyrst tillagan
um uppsögn bæjarlög-
fræðingsins:
„Bæjarstjórn Vestmannaeyja
samþykkir að segja Georg H.
Tryggvasyni upp með löglegum
fyrirvara. Jafnframt þvi fari fram
opinber rannsókn á íbúða kaupa-
máli bæjarlögfræðings, Georgs H.
Tryggvasonar, vorið 1972 i ljósi
þeirra upplýsinga sem bæjarfull-
trúar hafa nú fengið. Sérstaklega
verði könnuð aðild fyrrverandi
bæjarstjóra, Magnúsar H. Magn-
ússonar, að málinu svo endanlega
fáist úr þvi skorið hvort um trún-
aðarbrot var að ræða er þessir
óvenjulegu viðskiptahættir fóru
fram hjá æðstu embættismönnum
kaupstaðarins og urðu þess vald-
andi að annar þeirra komst yfir
fyrrgreinda ibúð úr eigu bæjar-
sjóðs.“
Magnús H. Magnússon bæjar-
fulltrúi og fyrrverandi bæjar-
stjóri bar fram eftirfarandi frá-
vísunartillögu: „Þar eð engar sak-
ir hafa á bæjarlögfræðing verið
bornar og með hliðsjón af miklum
dugnaði hans í starfi, samþykkir
bæjarstjórn að vísa tillögunni frá
og tekur fyrir næsta mál á dag-
skrá“.
Tillagan var samþykkt með 6
atkvæðum Magnúsar H. Magnús-
sonar A., Reynis Guðsteinssonar,
A, Jóhannesar Kristinssonar, F,
Þórarins Magnússonar, K, Einars
Hauks Eiríkssonar, S, og Sigurðar
Jónssonar, S. Tveir bæjarfulltrú-
ar, Jóhann Friðfinnsson, S, og
Sigurbjörg Axelsdóttir, S,
greiddu atkvæði á móti og Sigur-
geir Kristjánsson fyrrv. forseti
bæjarstjórnar, fulltrúi fram-
sóknarmanna, sat hjá.
64% hækkun
á saltfiski
RÍKISSTJÓRN staðfesti á fundi
sínum í gær þá ákvörðun verð-
lagsnefndar að heimila 64%
hækkun á saltfiski út úr búð.
Kostar nú hvert kg af saltfiski 395
krónur en kostaði áður 240 krón-
urkg.
Sigurgeir Kristjánsson fyrrver-
andi forseti bæjarstjórnar lét
bóka eftirfarandi á fundinum:
„Með hliðsjón af athugasemdum
bæjarsjóðs fyrir árið 1972 varð-
andi sölu bæjarins og kaupum
Georgs H. Tryggvasonar lögfræð-
ings á íbúð við Hásteinsveg 60,
I.h. t.h., geri ég eftirfarandi at-
hugasemdir:
1. Kaupsamningurinn er af-
brigðilegur að því leyti að íbúðin
er að fullu greidd með 10 ára
skuldabréfi.
2. Kaupandi ibúðarinnar sem
sér um innheimtu fyrir bæjarsjóð
greiðir með sama skuldabréfi
gjöld sín til bæjarsjóðs.
3. Umrætt skuldabref var áður
eign þriðja aðila, sem hafði boðið
bæjarsjóði það til kaups með af-
föllum, en þvi var hafnað á sín-
um tíma af bæjarráði og þáver-
andi bæjarstjóra, Magnúsi H.
Magnússyni.
4. Með skírskotun til þriðja liðar
tel ég hæpið að þáverandi bæjar-
stjóra hafi verið heimilt að festa
kaup á umræddu skuldabréfi og
það á nafnverði og mótmæii þeim
vinnubrögðum sem voru gerð á
bak við bæjarráð og bæjarstjórn í
þessu tilfelli. Jafnframt leyfi ég
mér að benda á, að i þessu máli tel
ég að hagsmunir bæjarins hafi
ekki verið í fyrirrúmi og minni
um leið á samþykkt um stjórn
bæjarmála Vestmannaeyjakaup-
staðar þar sem fjallað er um
réttindi og skyldur bæjarfulltrúa
og bæjarstjóra. Með fyrirvara um
ofanritað samþykki ég reikning-
ana.“
Sigurgeir Kristjánsson.
Sigurður Jónsson bæjarfulltrúi
lét bóka eftirfarandi um málið:
„Vegna athugasemdar kjörinna
endurskoðenda fyrir árið 1972
varðandi sölu á Hásteinsvegi 60 I.
hæð t.h., fylgiskjöl nr. 5217, 5218,
9578, greiði ég atkvæði á móti
þessum lið þar sem bæjarstjóra
skorti heimild til sölu á umræddri
íbúð og ekki var um eðlilega sölu-
hætti að ræða.“
Þórarinn Magnússon lét bóka
eftirfarandi: „Mér finnast óeðli-
leg kaup bæjarsjóðs á skuldabréf-
um Georgs H. Tryggvasonar i
sambandi við kaup hans á íbúð á
Hásteinsvegi 60, en ég tel málið of
gamalt til að elta ólar við það nú Þeir .listamenn sem starfslaun hlutu. T.f.v. Hallsteinn Sigurðsson
og samþykki því reikningana." mvndlistarmaður, Sigurður Örlvgsson listmálari, Hringur Jóhannes-
Jóhann Friðfinnsson og Sigur- son listmálari, Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur og Ragnar Björnsson
björg Axelsdóttir létu bóka eftir- tónlistarmaður. A mvndina vantar Guðberg Bergsson og Gunnar Örn
farandi um málið: „Með tilvisun Gunnarsson sem eru erlendis.
til tillögu okkar fyrr á fundinum
og til að tryggja framgang opin-
berrar rannsóknar á misnotkun
aðstöu af hálfu fyrrverandi bæj-
arstjóra Magnúsar H. Magnússon-
ar, og bæjarlögfræðings, Georgs
H. Tryggvasonar, vegna ibúða-
kaupa síðarnefnda, tökum við
þátt í atkvæðagreiðslu um reikn-
inga bæjarsjóðs fyrir 1972
og greiðum atkvæði gégn sam-
þykkt þeirra." Reikningarnir
voru samþykktir með 5 atkvæðum
gegn 2 og 1 sat hjá.
Sjö listamenn
fá starfslaun
Þá var borin fram tillaga á
fundinum um ráðningu bæjar-
stjóra og var eftirfarandi tillaga
borin fram af Einari H. Eiriks-
syni, Sigurgeir Kristjánssyni og
Sigurði Jónssyni: „Bæjarstjórn
samþykkir að ráða Pál Zóphonias-
son bæjarstjóra til loka þessa
kjörtimabils. Bæjarráði verði fal-
ið að semja um laun og starfskjör
bæjarstjóra." Var tillagan sam-
þykkt með 7 atkvæðum gegn
Framhald á bls. 18
1 GÆR var úthlutað starfslaunum
til listamanna samkvæmt reglum
sem menntamálaráðuneytið setti
árið 1969. Launin eru miðuð við
byrjunarlaun menntaskólakenn-
ara og veitt eftir umsóknum til
þriggja mánaða hið skemmsta en
tólf mánaða hið lengsta. Að þessu
sinni hlutu sjö listamenn þessi
starfslaun en umsóknir sem bár-
ust voru 67. Tólf mánaða laun fær
Guðbergur Bergsson rithöfundur
til að vinna að skáldverkum, sex
mánaða laun fá Gunnar Örn
Gunnarsson listmálari til að
vinna að mvndlist, Sigurður Ör-
Ivgsson listmálari til að vinna að
myndlist og Þorgeir Þorgeirsson
Framleiðandi miðanna
hættur og því nauð-
synlegt að nota tölvu
— segir forstjóri eins af stóru happdrættunum
LAGAFRUMVARP hefur verið
lagt fvrir Alþingi, sem heimilar
stóru happdrættunum að hefja
tölvudrátt, en til þessa hefur ver-
ið dregið upp á gamla móðinn,
þ.e.a.s. ung stúlka hefur dregið úr
mikilli miðahrúgu sem verið hef-
ur í snúanlegri tromlu. Morgun-
blaðið hafði f gær samband við
einn happdrættisforstjórann,
Baldvin Jónsson hjá DAS og
spurði hann um ástæður þessa, að
happdrættin fara nú yfir 1 sama
kerfi og rfkissjóður hefur haft á
happdrættisskuldabréfum sfnum.
Baldvin kvað ástæður fyrir því
að happdrættin þyrftu nú að
breyta um kerfi vera það, að fyrir-
tækið, sem útbúið hefði miðana,
sem .dregið er úr, hafi hætt. Það
hafa verið eina fyrirtæki sinnar
tegundar í Evrópu, staðsett í
Þýzkalandi. Er því ekki lengur
unnt að fá nýja miða, en nauðsyn-
legt er að endurnýja þá með vissu
millibili.
Með gamla laginu tekur dráttur
venjulega hjá DAS um þrjár
klukkustimdir og samlestur og
frágangur eftir hann tekur annan
eins tíma. Ef númer eru dregin út
með tölvu tekur þetta 15 minútur
og skilar hún drættinum frá-
gengnum og skipulega upp sett-
um.
Ætlunin er að happdrættin noti
öll sama tölvukerfið. Eru menn á
vegum happdrættana nú erlendis
að kynna sér „prógröm" og velja
hvað bezt henti hér. Sagði Bald-
vin að vonandi gæti orðið af
fyrsta tölvudrætti í lok þessa árs
og væri stefnt að því að öll happ-
drættin byrjuðu samtimis. Er
reiknað með að tölva Háskólans
verði notuð við drátt i happdrætt-
unum.
rithöfundur til að vinna að heim-
ildaskáldverki um Sigurð Guð-
mundsson málara. Ragnar
Björnsson tónlistarmaður hlaut
fjögurra mánaða laun til að vinna
að tónsmfðum og til tónleikahalds
erlendis og þriggja mánaða laun
hlutu Hallsteinn Sigurðsson
mvndlistarmaður til að vinna að
gerð mvndverka úr járni. stein-
stevpu og plastefnum og Hringur
Jóhannesson listmálari til að
vinna að frágangi málverka fvrir
sýningu.
Á blaðamannafundi sem boðað
var til i gær af þessu tilefni kom
fram að á fjárlögum 1976 eru
veittar 3.3 milljónir króna til
starfslaunanna og er það sama
fjárupphæð og i fyrra. Þar sem
launin miðast við byrjunarlaun
menntaskólakennara sem hafa
hækkað á timabilinu veldur þetta
þeirri breytingu að upphæðin
svarar til færri mánaðargreiðslna
en áður. Samtals eru á þessu ári
veitt laun til 40 mánaða en undan-
farin fjögur ár hefur upphæðin
nægt fyrir um 50 mánaðarlaun-
um.
Uthlutunarnefnd skipuðu Olaf-
ur B. Thors formaður úthlutunar-
nefndar listamannalauna. Thor
Vilhjálmsson forseti Bandalags
íslenzkra listamanna og Arni
Gunnarsson deildarstjóri i
menntamálaráðuneytinu og var
hann formaður nefndarinriar.
Uthlutunarnefndin tók það
fram að hér væri um að ræða laun
fyrir störf sem viðkomandi lista-
menn munu vinna en hins vegar
þyrfti fjárupphæðin sem úthlutað
er að vera hærri svo hægt væri að
greiða fleiri listamönnum slik
laun.
Eins og áður segir hafa starfs-
laun til listamanna verið greidd
frá árinu 1969 og er þetta þvi i
áttunda sinn sem launin eru
greidd. Alls hafa nú 44 listamenn
fengið starfslaun umsóknir hafa
sjaldan eða aldrei verið jafnmarg-
ar og nú.
Jóhannes Eðvaldsson í heimsókn:
Hefur leikið knattspyrnu í
8100 mín. á síðustu 15 mán.
— og hefur alltaf jafn gaman af leiknum
„ÞAÐ ER ósköp notalegt að
vita til þess að maður getur
slappað af á næstunni eftir að
hafa leikið knattspyrnu svo til
stanzlaust i 15 mánuði eða 90
leiki samtals," sagði Jóhannes
Eðvaldsson atvinnuknatt-
spvrnumaður hjá Celtie við
Mbl. í gær, en Jóhannes er
staddur hér á landi I nokkurra
daga heimsókn. 90 leikir í 90
minútur hver þýðir að Jóhann-
es hefur á þessum tima leikið
knattspvrnu t 8100 mínútur.
Hann verður því hvildinni feg-
inn, en hann segist alltaf hafa
jafn gaman af knattspvrnunni.
Jóhannes verður hérna fram
til laugardagsins en þá fer
hann til Sviþjóðar og verður
viðstaddur verðlaunaafhend-
ingu til íþróttamanns ársins á
Norðurlöndum í boði Volvo.
Síðan fer hann til Skotlands og
leikur með Celtic gegn Manc-
hester United 17. maí og tveim-
ur dögum síðar verður hann
kominn til Óslóar, þar sem
hann leikur með islenzka lands-
liðinu gegn Norðmönnum.
„Þetta er sífelldur þeytingur
hjá atvinnuknattspyrnumönn-
um og t.d. taldist mér til að i
júli í fyrra hefði ég farið um 36
flugvelli," sagði Jóhannes.
Jóhannes hóf að leika með
danska liðinu Holbæk í febrúar
í fyrra. Með því liði lék hann
tæplega 30 leiki. Síðan lá leiðin
i atvinnumennskuna hjá skozka
Iiðinu Celtic og með því liði lék
hann 56 leiki í vetur, þar af alla
deildarleiki nema einn. Lands-
leikirnir fyrir ísland í fyrra
voru 6 að tölu.
Jóhannes lætur vel af dvöl
sinni hjá Celtic. Aðspurður
sagðist hann vissulega vera
leiður yfir því að Celtic skvldi
missa svona af meistaratitlin-
um á siðustu stundu. „En svona
er knattápyrnan og maður verð-
ur bara að bita á jaxlinn og
vona að þetta gangi betur
næst," sagði Jóhannes.
Jóhannes kvaðst ekki verða
mikið heima á íslandi í sumar.
hann ætlar sér að dvelja á
Spáni í 3 vikur sér til hvíldar og
hressingar og 19. júlí á hann að
vera mættur til æfinga hjá Celt-
ic, en hann er þar samnings-
bundinn 2 næstu ár.
iwarrw-.» vstfszm