Morgunblaðið - 07.05.1976, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1976
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Setjarar
Morgunblaðið óskar að ráða setjara tíl
starfa í Tæknideild Mbl. Allar nánari upp-
lýsingar veiía verkstjórar tæknideildar
föstudaginn 7. maí og mánudaginn 10.
maí. Upplýsingar ekki veittar í síma.
Skrifstofustúlka
Óskum eftir að ráða skrifstofustúlku til
srarfa sem fyrst. Vélritunar- og ensku-
kunnátta nauðsynleg.
Nánari upplýsingar á skrifstofutíma eða í
síma 2541 7 eftir kl. 5
PállJóh. Þorleifsson
Umboðs- og heildverzlum h. f.
Skólavörðust/g 38, sími 245 16.
Lögfræðiskrifstofa óskar að ráða vana
skrifstofustúlku
til starfa allan daginn. Þarf að hafa góða
íslensku og vélritunarkunnáttu. Æskilegt
er að einhver kunnátta sé í ensku og einu
norðurlandamáli. Góð laun í boði fyrir
reglusaman og góðan starfskraft. Um-
sókn er greini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist Morgunblaðinu fyrir föstu-
dag 14. maí, merkt Lögfræðiskrifstofa —
2089".
Trésmiðir
Smíðaflokkur óskast strax í uppslátt á
einbýlishúsi í Mosfellssveit. Botnplata
komin. Upplýsingar í síma 10069.
Vantar yður
starfsfólk?
Höfum vinnufúst fólk vant margvísleg-
ustu störfum. Atvinnumiðlun stúdenta,
simi 1 5959.
Tónlistarskólinn
á Siglufirði
óskar eftir að ráða skólastjóra frá og með
hausti komanda.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 10. júní
n.k.
Skólanefnd Sig/ufjarðar,
Skúli Jónasson, sími 96-71485.
Bifvélavirkjar
Óskum að ráða bifvélavirkja, ákvæðis-
vinna, góð vinnuskilyrði. Vinsamlegast
hafið samband við verkstjóra á vinnustað.
[©[ Austin Jaguar [ Morris Rover Triumph
P. STEFÁNSSON HF.
Hvcrftsgata 103. Raykjavik. laland. aiml 20011. taiax 2151, n ^ílRART
Vantar trésmiði
helst 4ra til 5 manna flokk.
Uppl. í síma 43091 eftir kl. 7 á kvöldin.
Maður um
fimmtugt
sem hefur stundað skipsstjórn og útgerð
óskar eftir starfi, þó ekki skipsstjórn.
Tilboð sendist augl. deild Mbl. fyrir 13
þ.m. merkt: Starf — 3829.
Einkaritari
óskast
Skýrsluvélar ríkisins og Reykjavikurborg-
ar óskar eftir að ráða einkaritara forstjóra.
Tilboð sendist augl. deild Mbl. merkt:
„Einkaritari — 2090" fyrir þriðjudaginn
1 1 . maí.
Flugstjórar
Arnarflug h/f óskar að ráða flugstjóra til
starfa á Boeing þotum félagsins.
Umsækjandi skal hafa a.m.k. 6000 sam-
anlagðar flugstundir, þar af a.m.k. 1000
flugstundir sem flugstjóri á flugvélum þar
sem tveggja flugmanna er krafist.
Umsóknir sendist félaginu í pósthólf
1406, Reykjavík, fyrir 10. maí, n.k.
Arnarflug h/ f.
radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
til söiu
Góð mold
Hin árlega moldarsala Lionsklúbbsins
Muninn verður helgina 8. og 9. maí.
Tekið verður á móti pöntunum í símum
42478 — 41938 — 44534 Moldinni
verður ekið heim
Humartroll til sölu
Notuð humartroll, 3 stk. eru til sölu og
verða til sýnis í porti Landhelgisgæsl-
unnar við Seljaveg í Reykjavík, mánudag
10. og þriðjudag 11. maí kl. 13:00 til
16:00 báða dagana. Tilboðum skal skila
á skrifstofu vora eigi síðar en kl. 1 1 00
miðvikudaginn 12. mai og verða þau þá
opnuð, að viðstöddum bjóðendum
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGAF.TUNI 7 SÍMI 26844
nauöungaruppboö
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs verður ..hitapressa frá
Stálvirkjanum" eign Kjarna h.f. Innri-Njarðvík, seld á nauð-
ungaruppboði, sem haldið verður að Tjarnargötu 14, Innri-
Njarðvík, föstudaginn 14. maí n.k. kl. 16.
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs verður „Trésmíðavél Elna
verksmiðjunúmer 20-160-64", eign Hús og innréttinga h.f.
Sandgerði, seld á nauðungaruppboði, sem haldið verður að
Strandgötu 23, í Sandgerði, föstudaginn 14. maí n.k. kl. 14
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs verða „3 steinsteypt síló í
Rauðamel við Grindavík", eign Sandnáms Suðurnesja h.f.
Grindavík, seld á nauðungaruppboði sem haldið verður á
staðnum, föstudaginn 14. maí n.k. kl. 1 1 f.h.
Að kröfu Hauks Jónssonar hrl., verður vörubifreiðin Ö-2686,
Mercedes Benz árgerð '65 eign Sverris h.f., Grindavík, seld á
nauðungaruppboði, sem haldið verður að Víkurbraut 42,
Grindavík, föstudaginn 14. maí n.k. kl 10 f.h.
Bæjarfógetinn í Keflavtk,
Grindavík og Njarðvík.
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.
| húsnæöi í boöi j
Iðnaðar- og verzlunarhús-
næði
Til sölu eru byrjunarframkvæmdir að
1 200 fm iðnaðar og verzlunarhúsnæði í
einu bezt staðsettu iðnaðarhverfi á höfuð-
borgarsvæðinu. Listhafendur leggi nöfn
sín inn á augl. deild Mbl. fyrir miðviku-
daginn 12. maí n.k. merkt: „Iðnaðarlóð
— 3878".
Glæsileg einbýlishús
í Kópavogi
Hef til sölu 2 einbýlishús, annað við
Kastalagerði og hitt við Hrauntungu. Sér-
staklega glæsilegar eignir.
Sigurður Helgason hrl.,
Þinghólsbraut 53, sími 42390:
Ódýrar íbúðir
Reykjavík, Kópavogi
+ 2ja herb. jarðhæð við Grettisgötu
•ýt 3ja herb. jarðhæð við Birkihvamm,
tvíbýlishús. Sigurður Helgason hrl.
Þinghó/sbraut 53,
sími 42390.
uppboö
Samkvæmt beiðm Sakadóms Reykjavíkur fer fram opinbert
uppboð við húsakynni dómsins að Borgartúni 7 laugardag 8.
maí n.k. kl. 13.30. Seldir verða ýmsir óskilamunir, svo sem
re'ðhjól, barnavagnar fatnaður, töskur, úr o.fl. Greiðsla við
hamarshögg. Tékkávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
nema með samþykki uppboðshaldara.
Uppboðshaldarinn i Reykjavík.
þjónusta
Húseigendur —
Húsverðir
Tökum að okkur allt viðhald fasteigna.
Erum umboðsmenn fyrir margs konar
þéttiefni í stein og járn. 5 ára ábyrgðar-
skírteini. Getum boðið greiðslukjör á efni
og vinnu. Verkpantanir í síma 41070
milli kl. 1 og 10.
húsnæöi óskast
íbúð óskast
2ja — 3ja herbergja íbúð óskast til leigu í
stuttan tíma með eða án húsgagna. Góð
leiga i boði og fyrirframgreiðsla.
Upplýsingar í síma 20730 kl. 9 — 1 7.
tilboö — útboö
Útboð
Óskað er eftir tilboðum í byggingu
fjögurra einbýlishúsa við Austurgötu á
Hofsósi. Útboðsgögn liggja frammi á
skrifstofu Hofsóshrepps.
Oddviti Hofsósshrepps.
Veiðileyfi
Til sölu eru veiðileyfi í Laxá í Aðaldal og
fleiri góðum ám. Bæði lax og silungur.
Nánari upplýsingar: Landssamband veiði-
félaga, sími 1 5528.