Morgunblaðið - 07.05.1976, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAl 1976
25
fclk f
fréttum
Liza Minelli og Jack Haley: Við eigum vel saman.
Liza Minelli hefur
ekki áhuga á ungum mönnum
Forspár
gúrú
+ Andavar, gúrú frá Madras á
Indlandi, lét eftir sig skart-
gripi, gull og demanta sem met-
in eru á tæplega 600 milljónir
króna. Fjársjóðurinn fannst
þegar grafið var I garði gúrús-
ins. Skömmu fyrir andiát sitt
hafði hann spáð þvl að „auðæfi
kæmu frá jörðu, þegar greftrun
mín fer fram“. Indversk stjórn-
völd hafa nú hrundið af stað
rannsókn á því hvaðan auðæfin
eru komin.
Ók á bíl
foreldra
sinna
+ Söngkonan Marie Osmond,
sem er næstum þvf eins fræg og
bræður hennar, skarst illa I
andliti f bifreiðarslysi þar sem
öll f jölskvldan kom reyndar við
sögu. Marie, sem ásamt bróður
sfnum Donny hafði verið að
vinna að gerð sjónvarpsþáttar,
var á heimleið ásamt þremur
öðrum bræðrum sinum á bíl
móður þeirra af Mercedes-gerð.
Á undan þeim óku foreldrar
þeirra og tveir synir til á fiutn-
ingavagni með hljóðfæri
hijómsveitarinnar. Þegar
bugða kom á veginn hægði
faðir þeirra á bílnum en Marie
gætti ekki að sér og ók á fullri
ferð aftan á bfl foreldra sinna.
Marie skarst illa f andliti en
móðir hennar kastaðist á mæla-
borð fiutningabflsins og braut
tvö rif.
Sagt er að meiðsli þeirra
mæðganna séu ekki alvarleg en
hljómsveitin hefur aflýst öllum
hljómleikum fyrst um sinn.
+ „Þegar ég sá Lizu í myndinni
„Cabaret" hugsaði ég með
sjáifum mér: Skyldi nokkur
maður geta tjónkað við þessa
stúlku? Hún minnti mig helzt á
eldgos. Seinna, þegar ég hafði
kynnzt henni, komst ég að raun
um að það er aðeins þegar hún
er að starfi sem neistaflugið
stendur af henni. Heima fyrir
getur hún dormað daginn út og
daginn inn. Þá er hún að safna
kröftum og þegar á sviðið
kemur gefur hún sér iausan
tauminn.**
Þannig lýsir kvikmyndafram-
leiðandinn Jack Haley konu
sinni, söngkonunni og leikkon-
unni Lizu Minelli, sem nú
stendur á þrftugu.
„Jaek hefur alveg rétt fyrir
sér,“ segir Liza. „Ég er ákaf-
lega værukær og róleg þegar ég
er ekki við vinnu mfna. Það
bezta sem ég veit er að vera
samvistum við Jack og að bjóða
til sfn góðum vinum öðru
hverju. Ég elska Jack því að
hann skilur mig. Ég er mjög
hamingjusöm með að vera gift
manni sem er svo miklu eldri
en ég. Ungur maður á mfnum
aldri sættir sig aldrei við að
sitja heima flest kvöld og hafa
það huggulegt. Sem sagt, ég hef
engan áhuga á ungum mönnum
á mfnum aldri,“ segir Liza Min-
elli.
Liza var áður gift ástralska
söngvaranum Peter Allen og
stóð það hjónaband f tvö ár. 1
fimm ár bjó hún með Desi
Arnaz, syni Lucille Ball, sem
var þremur árum yngri. Sam-
búð þeirra iauk með þvf að Liza
kynntist Peter Sellers f há-
degisverðarboði í London og
daginn eftir tilkvnntu þau, að
þau ætluðu að giftast. Fimm
dögum sfðar tók Liza saman
pjönkur sfnar og hélt heim til
Bandarfkjanna. Sfðan hefur
hún ekki haft neitt saman við
Peter Sellers að sæida.
+ Leikarinn Mickey Roonev er
nú að vinna að plötu sem ber
heitir „Mickev Rooney leiðir
þig f allan sannleikann um
hamingjusamt hjónaband".
Mickev er þó manna ólík-
legastur til þess, því að hann er
nú á biðilshuxunum í sjöunda
sinn.
Vorið
kallar
+ Þeir reka sig hvor á annars
horn, nashyrningarnir f dýra-
garðinum í Kaupmannahöfn,
en hér býr þó ekkert illt undir,
því aö þelta eru elskendur sem
hlýða kalli náttúrunnar á sinn
sérstaka hátt. Sagt er að ekki sé
mjög bjart yfir framtfð þessar-
ar dýrategundar og hrökklast
hún úr einu vfginu I annað und-
an auknum umsvifum manna
og óprúttnum veiðiþjófum.
Kristján Jóhannsson,
Þingvöllum í Helga-
fellssveit, 85 ára
I dag, 7. maí 1976, er 85 ára
Kristján Jóhannsson bóndi á
Þingvöllum í Helgafellssveit.
Hann hefur að visu látið af störf-
um sem bóndi fyrir 6 árum og selt
syni sínum, Hallvarði, jörð og
áhöfn.
Kristján og María M. Kristjáns-
dóttir kona hans, sem verður 87
ára í ágúst n.k., hafa búið á Þing-
völlum síðan 1921 og nú i ellinni
njóta þau þeirrar óvenjulegu lífs-
hamingju að dvelja heima hjá af-
komendum sínum, á sinni vel
uppbyggðu jörð, njóta ávaxtar
erfiðis sfns og sjá son sinn, konu
hans og börn þeirra bæta og auka
víð þeirra stóra starf, í uppbygg-
ingu og framkvæmdum.
Kristján og María eignuðust 4
börn, sem öll komust til fullorð-
insára, og eiga þau 12 barnabörn.
Systkini Kristjáns eru 8 á lífi og
mun meðalaldur þeirra vera 80
ár, en systkini Maríu eru fjögur,
öll á lífi og meðalaldur þeirra er
83 ár. Hér má því sjá að stofninn
er sterkur.
Bændur sem fleiri muna tím-
ana tvenna, og ekki sfst þeir, sem
staðið hafa af sér öll vorhret, sem
gengið hafa yfir land og þjóð
siðan fyrir aldamót. Kristján
hefur fylgst mjög náið með þjóð-
málum og gerir enn í dag, svo
undrum sætir. Það má næstum
ganga að því vfsu, að það fyrsta,
sem Kristján segir þegar maður
kemur f heimsókn til hans, er:
„Hvernig lýst þér á útlitið núna,
nú held ég að þeir séu að fara með
allt til fjandans."
Nú, þá dylst engum hvað átt er
við, það er auðvitað hið alltof oft
ónormala ástand í þjóðmálum, frá
sjónarhóli raunsæismannsins,
sem veit að öll óstjórn eða van-
stjörn hefnir sín fyrr eða síðar.
Ekki ætla ég mér að fara að tala
mikið um stjórnmálaskoðanir
Kristjáns, þær hafa alltaf verið og
eru enn skýrt mótaðar og ákveðn-
ar, og þar kemur enginn að tóm-
um kofanum. Hans eina og rétta
stefna er samvinnustefnan þótt
hann hafi alla tíð verið afburða
einstaklingur. Við, sem höfum
aðrar stjórnmálaskoðanir, skulum
heiðra og virða þá sem hafa þor
og vilja til að halda sinu striki án
þess að láta svansa til og frá á
stefnunni, og ekki skipta- um
skoðun á málefnum ef þeir skipta
um stól, eins og við horfum
stundum upp á i sjónvarpi, þegar
stjórnmálamennirnir teljast fara
á kostum.
Það sem ég helst ætlaði að
minnast á í afmælisspjalli þessu
er hvernig Kristjáni og Maríu hef-
ur vegnað á sinni löngu og á
stundum ströngu leið, þvi oft var
gatan grýtt og mörgum steinum
hefur þurft að velta úr vegi og
flagi. það að sneiða ekki hjá
hindrunum heldur ráðast að
bjarginu og velta þvi úr vegi. Það
var einmitt aðferð þeirra hjóna í
lífsbaráttunni.
Árið 1921 fluttu þau af Skógar-
strönd að Þingvöllum eins og áður
sagði. Þrátt fyrir forna frægð
Þingvalla þar sem Þórsnesþing
var háð áður fyrr, séra Eirikur
kúla og frú Þuríður bjuggu og
fleiri, var þar engin reisn né
höfuðbólstaðareinkenni, allt i lág-
marki svo ekki sé mikið sagt,
enginn blettur sléttur og hús öll
léleg. Nú er þar 40 ha tún, öll hús
uppbyggð bæði fyrir menn og
skepnur, svo myndarlega að til
fyrirmyndar telst. Þá er öll um-
gengni úti og inni svo til fyrir-
myndar að Þingvellir voru eitt
með fyrstu sveitaheimilum sem
fengið hafa sérstaka viðurkenn-
ingu Búnaðarsambands Snæfells-
ness fyrir þrifnað og umgengni,
þannig mætti nokkuð fleira telja.
„Það skiptir hver á heldur" og
það að breyta koti í höfuðból í
orðsins fyllstu merkingu er ekki
lítið til að gleðjast yfir á 85 ára
afmælinu. Ég vona þvi, að af þvi,
sem hér hefur verið reynt að
segja frá, megi ráða, að hér hefir
sannast það, svo ekki verður um
villst „að Guð hjálpar þeim sem
hjálpar sér sjálfur“.
Það mættu því margir bændur
og aðrir taka mið af slíkum bú-
stólpum, sem ekki kikna undir
smáerfiðleikum, sem oft eru
stundarfyrirbæri, heldur snúa
vörn í sókn. Þá munu bætast
harma-sár þess horfna, hugsjónir
rætast, þá mun aftur morgna."
Með þessum orðum Hannesar
Hafstein enda ég mínar fátæk-
legu línur, og óska að hann, sem
veitti frægð til forna, blessi þau
hjón og alla afkomendur þeirra á
Þingvöllum til hinstu stundar.
Guðmundur Runólfsson.
Fimm utanlandsferðir
meðal 900 vinninga
I fréttatilkynningu frá Rauða
krossi Isiands segir að i fyrstu
viku maí hefjist Smámiðahappa-
drættið á þessu ári. I ár verða
vinningarnir 900 sem mun vera
minna en á liðnu ári en útgefinn
fjöldi miða verður 300 þúsund
sem einnig er minna en i fyrra.
Þannig munu því vinningsmögu-
leikarnir ekki minnka. Miðinn
mun eins og i fyrra kosta 25 kr.
hvéi.
Meðal vinninga eru fimm utan-
landsferðir til sólarlanda sem
hver kostar 50.000 kr. Þá eru
djúpsteikingarpottar, vasatölvur.
pennasett o.fl. á vinningaskránni.
Miðarnir verða seldir út um allt
land á vegum deilda Rauða kross-
ins og er hagnaði eingöngu varið
til innanlandsstarfsemi.