Morgunblaðið - 07.05.1976, Blaðsíða 32
AUGI/ÝSINGASÍMrNN ER:
22480
Jfloreunblaöiö
tfvpistfrliiifrfö1
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
JB*reunbl«bib
FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1976
Sex sinnum siglt á varðskip í gærkvöldi:
Týr og Mermaid
skemmdust mikið
Brezku togararnir
byrjaðir veiðar á ný
STRAX og brezka ríkisstjórnin hafði ákveðið að fjölga
freigátum á fslandsmiðum um tvær og bæta einum
dráttarbáti við, hófu freigáturnar fjórar, sem eru á
miðunum, aðgerðir gegn fslenzku varðskipunum.
Skömmu eftir kl. 23 f gærkvöldi hafði þeim tekizt að
sigla alls sex sinnum á varðskipin Baldur, Óðin og Tý.
Skemmdir á varðskipunum eru misjafnlega miklar, en
samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæzlunnar mun Týr
vera mikið skemmdur. Freigátan Mermaid skemmdist
einnig mikið er hún sigldi á stjórnhorðsafturhorn
Baldurs. Eins og hálfs metra rifa, fimmtíu sm á breidd
kom á bakborðsmiðsíðu freigátunnar og hafði hún hægt
um sig eftir það. Þá mun freigátan Gurhka hafa
skemmzt nokkuð er hún sigldi þrisvar sinnum á varð-
skipið Óðin.
Eins og fyrr segir var siglt
þrisvar sinnum á Óðin, tvisvar var
siglt á Tý og einu sinni á Baldur.
Freigáturnar gerðu tilraunir til
að sigla á varðskipið Ver, en það
slapp undan þeim inn fyrir 12
mílna mörkin. Um miðnætti voru
öll varðskipin komin inn fyrir 12
mílna mörkin undan Austfjörðum
og var strax farið að athuga
nánari skemmdir á þeim.
Að sögn Gunnars Ólafssonar,
talsmanns Landhelgisgæzlunnar,
kom tilkynning til brezku
togaranna um aukna vernd um kl.
17.30 í gær og var þá sagt að
verndin ýrði algjör. Skömmu
síðar kallaði skipherra Galatheu
til togaranna og sagði þeim að
hefja veiðar. Freigáturnar myndu
sjá um, að varðskipin kæmust
ekki að þeim. Um leið var
togurunum skipað að halda sig í
einum hóp. Flestir togararnir
hófu veiðar, á sama svæði og áður
austur af Hvalbak, en einn og
einn skipstjóri þráaðist við og
sagðist ekki hefja fyrr en búið
væri að skýra frá skaðabótaupp-
hæðum vegna veiðarfæra og
veiðitaps.
Um kl. 19.30 kallaði freigátan
Mermaid í Baldur, sem var
skammt frá togarahópnum og
sagðist ekki ábyrgjast af-
leiðingarnar ef varðskipið reyndi
að nálgast togarahópinn. Skip-
verjar Baldurs svöruðu frei-
gátunni og litlu síðar lagði Baldur
af stað í átt að togarahópnum. Á
svipuðum tíma sigldi freigátan
Falmouth F-113 á mikilli ferð
fram með bakborðssíðu Týs og sló
kutnum harkalega í varðskipið.
.emmdir á Tý urðu frekar litlar
.ema hvað smágat kom ofan-
dekks. Þegar þetta gerðist var
Týr í töluverðri fjarlægð frá
togarahópnum.
Þá sagði Gunnar, að Galatea F-
18 og dráttarbáturinn Statesman
hefðu gert margar ásiglingartil-
raunir á Baldur, en varðskipið
slapp undan. Síðan gerðizt ekkert
fyrr en rúmlega níu, þá tókst
Mermaid F-76 að sigla á Baldur.
Ekki tókst betur til hjá frei-
gátunni en svo að hún sigldi á
stjórnborðsafturhorn varðskips-
ins og við það kom eins og hálfs
metra rifa á miðsíðu skipsins og
er rifan yfir hálfur metri á
breidd. Þegar hér var komið
Framhald á bls. 2.
Myndin er tekin f Kaupmannahöfn f gærkveldi og sýnir tvo námsmenn
f glugga sendiráðsins.
Kaupmannahöfn:
Geirfinnsmálið:
Breytti stúlk-
an framburði
sínum?
Var úrskurðuð í 60
daga gæzluvarðhald
MORGUNBLAÐIÐ aflaði sér
upplýsinga um það f gær, að
stúlkan, sem á þriðjudaginn
var hneppt f varðhald vegna
Geirfinnsmálsins, hafi verið
úrskurðuð f allt að 60 daga
gæzluvarðhald. Er þetta all-
miklu lengra gæzluvarðhald
en hjá mönnunum fjórum,
sem sitja inni vegna sama
máls. Þrfr þeirra voru sfðast
úrskurðaðir f 30 daga gæzlu-
varðhald.
Fulltrúi sá við sakadóm
Reykjavíkur, sem stjórnar
rannsókn málsins, vildi í gær
ekkert láta eftir sér hafa um
ástæðuna fyrir fangelsun
stúlkunnar eða neitt um önnur
atriði málsins. Þá fæst heldur
ekkert uppgefið um ástæðuna
fyrir hinu langa gæzluvarð-
haldi stúlkunnar. Eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst,
munu nýjar upplýsingar hafa
komið fram eftir helgina og
stúlkan breytt að einhverju
leyti fyrri framburði, þó ekki i
þá veru að það leiði til þess að
öðrum gæzluvarðhaldsmönn-
um verði sleppt, þvert á móti.
Eins og kom fram í Mbl. í
gær, rennur á mánudaginn út
gæzluvarðhald þeirra þriggja
manna, sem fyrstir voru settir
inn vegna rannsóknar málsins,
og hafa þeir þá setið i gæzlu-
varðhaldi í Siðumúlafangels-
inu í samtals 105 daga eða 3'A
mánuð.
25 íslenzkir námsmenn
setjast að í sendiráðinu
TUTTUGU og fimm manna hópur
fslenzkra námsmanna f Dan-
mörku og Suður-Svfþjóð settist í
gær að f sendiráði fslands f Kaup-
mannahöfn og hyggst dvelja f
sendiráðinu f sólarhring eða til
klukkan 14 f dag, er þeir hafa
boðað til mótmælafundar fyrir
utan sendiráðið. Með þessu vill
hópurinn vekja athygli á „hags-
munamáium sfnum og fslenzkrar
alþýðu“, eins og það er orðað f
sérstakri orðsendingu tif starfs-
fólks sendiráðsins.
Agnar Kl. Jónsson, sendiherra í
Kaupmannahöfn, sagði í viðtali
við Mbl. í gær, að hópurinn hefði
komið í sendiráðið um tvöleytið
Dr. Jóhannes Nordal:
Meiri stöðugleiki fram-
undan í efnahagsþróun
Þjóðarútgjöld verða að lækka á þessu ári um 4%
Sjá ræðu
dr. Jóhannesar Nordals
f heild á miðopnu
□----------------------------□
„ÞEGAR litið er til þróunar
efnahagsmála f umheiminum f
dag, eru sem betur fer merki
þess, að efnahagsstarfsemin sé
á leið upp úr öldudalnum og
þjóðarbúskapur okkar er þegar
farinn að njóta fyrsta vls þessa
nýja vors f hægt batnandi við-
skiptakjörum og greiðari söl-
um á helztu útflutningsafurð-
um. Það er þvf ástæða til að
vona, að við séum hér við tfma-
mót og að framundan sé nokk-
urt skeið meiri stöðugleika f
efnahagsþróun er veiti stjórn-
völdum og fyrirtækjum tæki-
færi til þess að veita kröftum
sínum f vaxandi mæli að hinum
mörgu skipulags- og uppbygg-
ingarverkefnum, sem ýta hefur
orðið til hliðar f umróti sfðustu
tveggja ára.“ Þannig komst dr.
Jóhannes Nordal, formaður
bankastjórnar Seðlahankans,
að orði f ræðu sinni á ársfundi
Seðlabankans, sem haldinn var
f gær.
Ragnar Ólafsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans, setti
ársfundinn og gat þess, að þá
um morguninn hefði verið
haldinn 300. fundur bankaráðs
Seðlabankans. Viðstaddir voru
allir ráðherrar í ríkisstjórninni
og fleiri forystumenn í stjórn-
málum, bankastjórar, banka-
ráðsmenn og fleiri forsvars-
menn innlánsstofnana o.fl. I
ræðu sinni rakti dr. Jóhannes
Nordal í ítarlegu máli þróun
efnahagsmála Islendinga á ár-
inu 1975 en í lok ræðunnar vék
hann að horfunum framundan
og helztu verkefnum, sem tak-
ast yrði á við. Helztu atriði, sem
fram komu í þeim hluta ræðu
Seðlabankastjórans voru:
0 Allar horfur eru á, að hag-
vexti verði þröngur stakkur
skorinn allra næstu ár, ekki
sfzt vegna þess, að gengið
hefur verið á tvennan hátt á
sjóði framtfðarinnar, annars
Framhald á bls. 18
og vildi ekki fara. Vildu náms-
mennirnir dvelja í biðstofu sendi-
ráðsins í 24 klukkustundir. Agnar
sagðist hafa borið málið undir
utanríkisráðuneytið, sem sam-
þykkt hefði að lofa þeim að vera. í
sendiráðinu er aðstaða til þess að
hita kaffi eða te og gaf sendiherr-
ann leyfi sitt til þess að náms-
mennirnir fengju að nota hana,
en sjálfir eru þeir með te og
kaffi með sér.
Námsmennirnir hafa boðað til
útifundar fyrir framan sendiráðið
i dag. Þar ætla námsmennirnir að
samþykkja ályktun, sem þegar
hefur verið gengið frá og sendi-
ráðið hefur þegar sent heim. Hafa
námsmennirnir fengið leyfi
lögreglunnar til fundarins. Agnar
sagði að lögreglan hefði tilkynnt
sér í morgun, að lögregluþjónar
yrðu viðstaddir fundinn, en
hann sagðist hafa óskað eftir við
lögregluna að hún yrði ekki við-
stödd, þar sem ekki þyrfti að
búast við öðru en að allt færi
friðsamlega fram.
Starfsfólk sendiráðsins hefur
tekið að sér að vera á vöktum í
sendiráðinu á meðan þetta ástand
varir, en til aðstoðar þeim eru 2
verðir frá Det Danske Vagtsel-
skap. Munu þeir verða þar til
klukkan 10 I dag, er sendiráðið
opnar.
I orðsendingu til starfsfólksins
segja námsmennirnir: „Nú liggur
fyrir Alþingi Islendinga frum-
varp til laga um námslán og náms-
Framhald á bls. 15