Morgunblaðið - 13.05.1976, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976
Einhugur um
stjórnar-
samstarf
Þórarinn Þórarinsson
ritar forystugrein f
Tímann í fyrradag, þar
sem hann fjallar um
stjórnarsamstarfið og við-
horf í þjóðmálum og segir:
„Hinn nýlokni aðal-
fundur miðstjórnar Fram-
sóknarf lokksins var á
vissan hátt frábrugðinn
fyrri fundum. Venjan
hefur verið sú, að ræða
fyrst og fremst um stjórn-
málaástandið og gera
ályktun í samræmi við
það. Að þessu sinni var
þetta gert að vanda, en
jafnframt ræddir sérstakir
málaflokkar, sem höfðu
verið athugaðir og ræddir
í starfshópum fyrir fund-
inn. Á þennan hátt var
fjallað um orkumálin,
kjördæmamálið og verk-
legt nám. Ályktanir voru
gerðar um öll þessi mál og
koma þar fram ýms ný
viðhorf. Þessar ályktanir
verða síðar birtar og
verður þá nánar rætt um
þær.
Umræðurnar um ástand
og viðhorf í þjóðmálum
settu þó eðlilega mikinn
svip á fundinn. Það ein-
kenndi mjög þessar um-
ræður, að fullur einhugur
var um, að núverandi
stjórnarsamstarf bæri að
treysta og halda því út allt
kjörtímabilið. Flokkarnir,
sem standa að því hafa
löngum deilt hart og eru
ósammála um margt. Þeir
tóku hins vegar höndum
saman á erfiðum tfmum,
þegar aðrir flokkar vildu
ekki taka á sig ábyrgð, og
hafa orðið undanfarin
misseri að glíma við vax-
andi erfiðleika. Þegar
stjórnin tók við, var verð-
bólgan í algleymingi, m.a.
sökum brotthlaups Björns
Jónssonar úr vinstri
stjórninni, og var fyrir-
sjáanlegt, að því hjóli yrði
ekki snúið við á skömm-
um tíma. Við þetta bætt-
ust svo síversnandi við-
skiptakjör næstu misseri.
Það hefur því gengið
erfiðlega að veita verð-
bólgunni viðnám. Hins
vegar hefur það tekizt að
tryggja næga atvinnu,
sem óvíða hefur heppnazt
annars staðar á þessum
tíma. Þá hefur verið
haldið áfram þróttmikilli
byggðastefnu og gert
meira stórátak I orkumál-
um landsins en áður eru
dæmi um. Þær fram-
kvæmdir eiga eftir að
verða metnar í framtíð-
inni, þvf að allt bendir til
að orkuverð haldi áfram
að stórhækka "
Önnur stjórn
ekki vænlegri
Síðan segir Þórarinn
Þórarinsson:
„Eftir örðugt starf í tæp
tvö ár, bendir margt til
þess, að starf rfkis-
stjórnarinnar sé að bera
árangur. Þrátt fyrir verð-
hækkanirnar að undan
fömu, má gera sér vonir
um, að verðbólgan verði
verulega minni á þessu ári
en í fyrra og þannig takist
að draga úr henni í áföng-
um. Bersýnilega hafa
náðst traustari tök á rfkis-
rekstrinum og að afkoma
rfkisins verði þvi mun
betri á þessu ári en í fyrra.
Sömu vonir er hægt að
gera sér um viðskiptin út
á við. Þá bendir margt til
þess, að viðskiptakjörin
muni fara batnandi, enda
vilja þeir, sem höfnuðu að
taka á sig ábyrgð sumarið
1974, nú ómir komast f
stjóm. Önnur stjórn en
sú, sem nú er, er þó ekki
vænlegri til að halda
endurreisnarstarfinu
áfram. Þvi ber flokkum
hennar að treysta sam-
starfið og skila sem
beztum árangri á kjör-
tímabilinu.
Þar sem vonir standa
til, að efnahagsaðstæður
fari batnandi, munu rfkis-
stjórnin og flokkar hennar
fá betra tækifæri á síðari
hluta kjörtfmabilsins en
fyrri hluta þess til aðfjalla
um fleiri mál en efnahags-
málin. Dómsmálaráðherra
hefur lagt fram frumvörp
um endurbætur á dóms-
málakerfinu, og hann
hefur sem viðskiptamála-
ráðherra boðað frjálsari
skipan verðlagsmála.
Aðrir ráðherrar hafa einn-
ig merkar lagabreytingar f
undirbúningi/ því má
vænta merkilegs lög-
gjafarstarfs á sfðari hluta
kjörtfmabilsins.
Þ.Þ."
BLOMAKER
GARÐÞREP
MOSAIK HF. siTaileo”4
Luxaflex
strimlagluggatjöld
eru ódýrustu og vönduðustu Strimla glugga-
tjöldin.
Þér getið valið um tvær gerðir af brautum.
Luxaflex Universal brautir
Luxaflex Standardbrautir, mjög fyrirferðalitlar
Strimlar í öllum tískulitum.
Kynniö ykkur verð, gæöi og greiðsluskilmála
tryggir gæöin
Ólafur Kr. Sigurðsson og CO
Suðurlandsbraut 6,
sími 83215
Brautryðjendur lækkaðs
vöruverðs tilkynna:
ÓDÝRT
nýreykt
trippakjöt
Dilkakjöt
ÁGAMLA
VERÐINU
IMw
1 SKEIFUNNI 151 IsiMI 86566