Morgunblaðið - 13.05.1976, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAl 1976
27
Magnús Þorláks-
son — Minning
Fæddur 2. apr. 1903.
Dáinn 30. mars 1976.
Magnús Þorláksson er dáinn.
Mig óraði ekki fyrir, að þetta yrði
síðasti bíltúrinn okkar saman i
þessu lífi, þegar ég og konan hans
fórum með hann á flugvöllinn,
þegar ferðinni var heitið á sjúkra-
hús í Reykjavík. Hann var glaður
og reifur að vanda.
Magnús var lífsglaður maður,
hlýr og kátur i hópi vina sinna og
félaga, umhyggjusamur og fórn-
fús heimilisfaðir og sérstaklega
barngóður. Magnús kvæntist eft-
irlifandi konu sinni Guðnýju
Stefánsdóttur árið 1932. Hjóna-
band þeirra var mjög farsælt og
þau mjög samrýmd alla tíð. Þetta
ætti ég best að vita, sem dvaldi
sem leigjandi í húsi þeirra um
árabil. Magnús og Guðný eignuð-
ust einn son, Viðar, sem nú er
búsettur í Alaska. Það var mikið
áfall fyrir Magnús heitinn, þegar
sonar-sonur hans, Magnús Sævar,
lést af slysförum hinn 7. mars s.l.
Magnús Sævar dvaldi oft hjá afa
sínum og ömmu á yngri árum, og
eftir að hann stækkaði, leitaði
hann ætíð þangað skjóls og að-
hlynningar, enda kærkominn i
heimsókn hvenær sem var.
Þessi sonarmissir var mikið
áfall fyrir Viðar, sem kom um
langan veg, til að fylgja honum til
grafar. Skömmu seinna fylgdi
hann einnig föður sinum hin
sömu spor. Guðný hefur þó misst
allra mest. Eiginmanninn eftir 44
ára farsælt hjónaband. Sonar-
Minning:
Sigurður
Tómasson
rafvirkjameistari
F. 18. 8 1933.
D. 20. 4. 1976
Þann 29. apríl var til hinstu
hvílu lagður Sigurður Tómasson
rafvirkjameistari. Mig setti hljóða
að kvöldi þess 20. apríl þegar mér
var tjáð að Siggi væri dáinn.
Mér fannst það svo fjarri að
dauðinn væri einu sinni enn bú-
inn að höggva stórt skarð i okkar
litla samfélag og kalla góðan
dreng á braut. Sigurður Tómas-
son var fæddur í Reykjavik, sonur
hjónanna Ólinu Eyjólfsdóttur og
Tómasar Magnússonar.
Kynni min af Sigurði hófust
stuttu eftir að hann kvæntist
eftirlifandi konu sinni Jónasinu
Guðnadóttur frá ísafirði.
Þau bjuggu hér í Reykjavik að
frátöldu einu ári á Bíldudal og nú
síðast í Hveragerði.
Á heimili þeirra að Blöndu-
bakka 20 í Breiðholti var ætið gott
að koma, þar ríkti ást og
hamingja.
Siggi var mjög barngóður
maður og hafði mikið yndi af
börnum. Mínum börnum var
hann yndislega góður og mun ég
aldrei geta þakkað það sem hann
gerði fyrir þau.
Með þessum orðum bið ég góð-
an Guð að styrkja eftirlifandi
konu og syni hans.
Blessuð sé minning góðs
Erla llauksdóttir
soninn eftir 22 ára samveru, og
svo að verða að sjá á bak þessu
eina barni sem nú er farið til
annarrar heimsálfu.
Magnús Þorláksson var vél-
stjóri aö mennt og stundaði lengi
sjómennsku framan af ævi. Mörg
hin seinni ár var hann verkstjóri í
,,Dr. Paul“ verksmiðjunni á Siglu-
firði, elstu síldarverksmiðju stað-
arins. Magnús var mjög laghentur
maður, allt lék í höndum hans,
hvort sem um var að ræða lagfær-
ingu á bílum eða öðru sem viðkom
vélum. Oft var hann búinn að
lagfæra bílinn minn og finnst mér
vel viðeigandi að ég flytji honum
kveðju þessa fararskjóta, sem við
þremenningarnir vorum búin að
ferðast svo oft í. Það og annað
mun aldrei verða þakkað sem
skyldi, en ef Guð lofar mun ég
reyna að veita konu hans þann
styrk og þá hjálp, sem ég get i té
látið i hennar sára harmi.
Ég, sem þessar línur rita, leit á
Guðnýju og Magnús sem mína
aðra foreldra. Ég hefi dvalið hjá
þeim i full 17 ár og hafa þau
reynst mér sem einstakar mann-
eskjur. Það var í ágúst í fyrra, að
þau fóru til Danmerkur að heim-
sækja Jens Guðmundsson, sem er
þar giftur og búsettur en hann er
að nokkru leyti alinn upp hjá
Magnúsi og Guðnýju og leit á þau
sem foreldra sína. Þetta var mjög
ánægjulegt ferðalag. Jens keyrði
þau siðan til Bergen, þvi þar býr
systir Magnúsar heit., Kristín að
nafni, og er hún búin að búa þar
lengi. Þau Kristín og Magnús
voru mjög samrýnd, þótt allt of fá
tækifæri fengju þau til samfunda.
Önnur systir hans, Stefanía, er
búsett á Sauðárkrófi og hefir alla
tið átt við einstaka heimiliserfið-
leika að stríða þar sem tvær dæt-
ur hennar hafa verið mikið fatlað-
ar frá unga aldri. Það var hennar
Til
stúdenta-
gjafa
Stúdentastjarna.
14 k. gull. Verð 4.800,-
Stúdinan hálsmen.
stúdentinn bindisprjónn.
Við viljum einnig minna
á hið glæsilega úrval
okkar til stúdentagjafa
Fagur gripur
er æ til yndis.
&MilMUl4»6n
Iðnaðarhúsið
v/lngólfsstræti.
mesti styrkur að fá bróður sinn og
mágkonu i heimsókn, þá var nú
slegið upp í bókinni „glaðværð og
kátína“ og hún lesin allan tímann,
sem staðið var við. Þessar stundir
veittu Magnúsi heitnum ekki
minni gleði en systrum hans og
dætrunum.
Ég vil að lokum flytja þeim
Stellu Guðmundsdóttur frænd-
konu Magnúsar og manni hennar,
Pálma Gíslasyni, innilegar kveðj-
ur og þakkir fyrir allt sem þau
gerðu fyrir hann á meðan hann
dvaldi á Landspítalanum.
Guðný biður fyrir kveðjur og
þakkir til þeirra fyrir aðhlynn-
ingu við sig og son sinn i veikind-
um Magnúsar. Guð blessi þau fyr-
ir það.
Svo sendi ég Guðnýju mínar
innilegustu samúðarkveðjur,
einnig Viðari, systkinum hins
látna og öðrum vandamönnum.
Ég þakka Magnúsi Ianga og
trygga vináttu og alla hans ómet-
anlegu hjálpsemi. Við hittumst
seinna handan móðunnar miklu.
Drottinn gefi dánum ró, en hin-
um líkn sem lifa.
Blessuð sé minning þessa góða
manns.
Aðalheiður Rögnvaldsdóttir.
Siglufirði.
Kveðjuorð:
Baldur Smári
Halldórsson
Fæddur 19. ágúst 1941.
Dáinn 12. april 1976.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast Baldurs Smára og þakka
allar þær ljúfu og björtu minning-
ar, sem ég og fjölskylda min á um
hann. Sambýliskona mín sagði að
sér fyndist alltaf eins og sólar-
geisli kæmi í húsið, þegar hann
kom, enda mátti það með sanni
segja. Hann var alltaf brosandi og
góður við alla. Ég held að tryggð
hans og elska við ættfólk sitt og
vini hafi verið með eindæmum.
Baldur Smári var fæddur í
Bolungavík 19. ágúst 1941. For-
eldrar hans eru hjónin Ösk Ólafs-
dóttir og Halldór Halldórsson og
var hann næst elstur fjögurra
barna þeirra. Hann ólst upp í for-
eldrahúsum, þar sem hann átti
heimili alla tíð. Strax á unga aldri
hneigðist hugur hans að sjónum
og sjómennska varð hans æfi-
starf. Hann var lengst af á fisfei-
skipum frá Bolungavik, því þar
vildi hann vera, enda varla hægt
að finna trygglyndari dreng við
vini sína, félaga og frændur, en
Baldur var. Nú er hann horfinn
yfir móðuna miklu, þar sem við
hittumst öll að lokum.
Foreldrum hans, systkinum,
systkinabörnum og öllum ættingj-
um votta ég mína dýpstu samúð
og bið þeim guðs blessunar.
Móðursvstir.
— Skólaslit
Framhald af bls. 15
upp á rausnarlegar veitingar i
mötuneyti skólans.
Miðvikudaginn 5. maí fóru
búfræðingar ásamt tveim
kennurum i fjögurra daga ferða-
lag til Suðurlands þar sem fyrir-
hugað varað heimsækja eina
fimmtán staði.
Nú þegar litur út fyrir að skóli
verði fullsetinn næsta vetur. Við
skólaslit minntist skólastjóri á
100 ára afmæli skólans, sem
verður árið 1982, og er nú þegar
farið að undirbúa þann merkisat-
burð og hefir, verið lagt fram
frumvarp þess efnis á Búnaðar-
þingi og Alþingi. Einnig er undir-
búningur hafinn meðal gamalla
Hólamanna. Vonir standa til að
skipulagsuppdráttur verði gerður
en er þó að ég held ekki ennþá
kominn.
A þessu ári verður athugað um
möguleika til að ná heitu vatni frá
Reykjum í Hjaltadal. Er þetta
brennandi spursmál fyrir framtíð
Hólastaðar, Hjaltadals og ef til
vilí víðar um ef vel tekst.
Björn í Bæ
9% FERÐASKRIFSTOFA
RlKISIATS
Hringvegurinn
8 daga hópferð um hringveginn kringum landið dagana 21 . — 28. júní.
Ekið í þægilegri langferðabifreið, gist og borðað á hótelum. Fróður
leiðsögumaður verður með í ferðinni. Verð kr. 49.150 á mann, allt
innifalið. Kynnið yður nánar ferðatilhögun á skrifstofu vorri að Reykja-
nesbraut 6, símar 1 1 540 og 25855.
SÉRTILBOÐ
LITAVER — LITAVER
GOLFTEPPI
Veggfóður — Málning
Lítið við í Litaveri því það hefur
ávallt borgað sig.
LITAVER — LITAVER —
SERTILBOÐ