Morgunblaðið - 13.05.1976, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAI 1976
33
VELVAKAIVIDI
Velvakandi svarar i síma 10-100
kl 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags
0 Leidrétt vísa
Velvakanda láðist að lesa i blað-
inu vísu, sem hann birti, en þar
hafði orðið í meðförunum rugl-
ingur, sem raunar mátti sjá, þvi
annars var vísan ekki rétt gerð.
En þetta fór auðvitað ekki fram
hjá Jakobi Péturssyni, sem sendi
skilaboð. Visan er auðvitað svona
og þannig hefur Velvakandi alltaf
kunnað hana:
Eg hélt að það væri
að vora og hlýna,
og vonin hún kemst yfir allt.
En þegar ég háttaði
í holuna mína,
var helvítið isjökulkalt.
Satt að segja er Velvakandi alv-
eg hissa á því að ekki skyldu
fleiri hafa veitt þessu athygli og
gert athugasemd, líklega sannar
það, ásamt því hve erfiðlega geng-
ur að koma stökum réttum í gegn
um prentun, hve þjóðinni eru að
verða ótamar stökur og tilfinning-
in að dofna fyrir því hvort réttir
eru stuðlar og höfuðstafir.
0 Þáttur um
vorið
Jóna S. Pálsdóttir á Háaleitis-
braut (númerið getum við ekki
vel lesið) skrifar:
Ég er ekki dugleg við bréfa-
skriftir, en mig langar til að hrósa
útvarpinu fyrir það, sem ég var að
hlusta á. En það var þáttur um
mai og vorið í umsjá Önnu
Snorradóttur. Þetta hlýtur að
hafa glatt fleiri en mig og ég vildi
að oftar heyrðist svona fallegt í
útvarpinu.
% Krían og
minkurinn
Velvakanda hefur borist nafn-
laust bréf, þar sem bréfritari vis-
ar í Velvakanda 4. maí, en þar var
sagt að 20-25 kríuungar hafi kom-
ist upp i stóra Tjarnarhólmanum
síðastliðið sumar. Segir bréfritari
það rangt, enginn ungi hafi kom-
ist upp vegna þess að minkur
komst i hólmann. Og telur líklegt
að svo hafi líka orðið um hina
hölmana.
Upplýsingar Velvakanda eru
samt sem áður áreiðanlegar, þvi
þær eru fengnar hjá Ólafi Niel-
sen, sem undanfarin ár hefur
fylgst nákvæmlega með fuglalíf-
inu á Tjörninni fyrir Reykjavík-
urborg og taldi og fylgdist að mik-
illi kostgæfni með öllum hólmun-
urn í fyrrasumar, sem sumarið
áður, þegar enginn ungi komst
upp.
Bréfritari undraðist að ekki var
minnst á minkinn í fyrrnefndri
Velvakandagrein. Það sé kannski
feimnismál borgaryfirvalda segir
hann. Ekki er það nú svo. I skýrsl-
unni, sem Velvakandi hafði undir
höndum um Tjörnina var margt
fleira, sem hann ekki fjallaði um,
svo sem mælingar á dýpt Tjarnar-
innar og koma minksins í hólm-
ann, sem unnið var á. Hann gerði
þó ekki meiri usla en það, að
nokkuð af ungunum komst upp.
Velvakandi er sammála bréfrit-
ara um að gera þyrfti útrýmingar-
herferð gegn minkinum, og hélt
satt að segja að nokkuð væri af
því gert. Um það segir bréfritari:
„Allar sveitir eru að fyllast af
þessu skaðræðisdýri. Nýlega var
sagt í útvarpi að mink hefði stór-
fjölgað við Mývatn síðustu ár. All-
ir sjá hverjar afleiðingar það hef-
ir fyrir fuglalífið og silungsveiði
þar. Eg held að allar þær nefndir,
ráð og félög, sem eiga að starfa að
náttúruvernd, ættu að beina geiri
sinum að útrýmingu minks og
stórfækkun svartbaks. En því
miður virðast þessi ráð og nefndir
sofa sætt og rótt meðan minkur-
inn breiðist óðfluga út um allt
land,“
Sjálfsagt eru flestir sammála
bréfritara um að svartbakurinn
sé mikinn skaðvaldur. En ekki er
auðvelt að útrýma honum. Séu
eggin hirt verpir hann bara aftur,
og lítið dugir að skjóta, enda ekki
auðvelt inni i bæjum. T.d. þarf í
Reykjavik að gera það af öryggis-
ástæðum á nóttunni, en það er
bara ekki sá tími sem svartbakur-
inn kemur í hólmann. Hann fer
ekki að koma fyrr en undir morg-
un. Einasta ráðið væri sjálfsagt,
ef hann næði ekki í æti. En í
öllum sjávarplássum er þvi miður
þannig gengið um, að hann hefur
nægt æti i úrgangi. Hann er líka
svo stór og stæltur að hann getur
grafið og rifið upp æti úr ösku-
haugum, þó búið sé að ýta lagi af
mold yfir, og dreifir því svo út um
allt. Það verður ekki fyrr en hægt
er að minnka matarbúrin hans i
landi eða réttara sagt að loka alv-
eg fyrir þau, sem hægt verður að
halda honum i skefjum.
En Velvakandi tekur undir við
bréfritara, þegar hann segir að ef
krían verpir í hólmanum í sumar,
sem hann þó dregur i efa, þá verði
vonandi allt gert sem mögulegt er
til að krían fái að vera í friði með
egg sín og unga framvegis.
David var vaknaður og horfði á
hana gráum augum.
— Góðan daginn, sagði hún —
Hvernig Hður þér I handleggn-
um?
— Ég var búinn að gleyma hon-
um þangað til þú minntist á hann,
sagði hann. — Nú finnst mér eins
og ég geti helzt Ifkt honum við vel
gerða tréskurðareftirlíkingu.
— Þér Ifður greinilega betur,
sagði hún — fyrst þú getur þó
talað f svo léttum tón.
— Hverjum liði ekki betur,
sagði hann — öll mál eru leyst.
Ég veit hver ég cr og ég veit hvað
ég ætla mér að gera. Og ég elska
Þig-
— Ég elska þig, sagði hún. —
Og hvað ætlar þú að gera?
— Borða morgunverð og aka
aftur til Frakklands.
— Og svo hvað?
— Ég ætla að hitta Marcel að
máli. Ekki til að drepa hann,
heldur til að benda honum á
hversu óráðlegt það væri ef hann
reyndi að drepa mig. Ég skal
segja þér dálftið. Ég ætla að
skrifa niður allt sem ég veit og
skilja það eftir hjá Gautier og
fela honum að koma þvf til
Debrays lögreglumanns. Þegar ég
HÖGNI HREKKVÍSI
Haukar
Það er alltaf fjör þar sem Haukar eru.
Athugið:
Nýr umboðssimi
26572
Skipholti 19 við Nóatún,
sínriar 23800 — 23500,
Klapparstíg 26, sími 19800.
Alþingsmenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum
frá klukkan 1 4.00 til 1 6:00. Er þar tekið
á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend-
ingum og er öllum borgarbúum boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa
Laugardaginn 15. maí verða til viðtals:
Ellert B. Schram, alþingismaður
Davíð Oddsson, borgarfulltrúi
Sigríður Ásgeirsdóttir varaborgarfulltrúi.
Ellert
Sigríður
Davið
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins ■
í Reykjavík