Morgunblaðið - 13.05.1976, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. MAt 1976
21
— Fyrrverandi
flugmenn
Framhald af bls. 3
eigendur sjái sér hag í að hætta
rekstrinum og stinga tugum
milljóna króna í vasann."
Segja flugmennirnir að við
skoðun atburðarásar í máli þessu
komi greinilega fram að samn-
ingsvilji af hálfu Vængjastjórnar
hafi verið í algeru lágmarki.
„Fyrrverandi flugmenn Vængja
hf. harma mjög hvernig þessu
máli lyktaði, en vegna þver-
móðsku og óbilgirni fámennrar
„hluthafaklíku" í Vængjum hafa
þeir verið sviptir atvinnu sinni
fyrir það eitt að fela stéttarfélagi
forsjá mála sinna, segir í niður-
lagi greinargerðarinnar.
— Grimond
Framhald af bls. 1
búðar svaraði Grimond: „Menn
vilja ekki gamlan skarf eins og
mig í sjónvarpinu sí og æ. Stjórn-
málaleiðtogar, eins og hnefaleika-
kappar, eiga alltaf erfitt með að
snúa aftur."
— Frakki
grunaður
Framhald af bls. 17
unni sem leiddi til dauða
kúbanska byltingarmannsins
Ernesto „Che" Guevara 1967 eftir
morðið á sendiherranum í París i
gær.
Sendiherrann er fjórði háttsetti
maðurinn er viðriðinn var dauða
Che Guevara sem látizt hefur með
voveiflegum hætti. Hinir eru
Rene Barrentos fyrrum forseti
sem fórst í þyrluslysi 1969, yfir-
maður leyniþjónustunnar sem
beið bana 1971 og yfirmaður her-
deildarinnar sem handtók Che
Guevara og beið bana eftir upp-
reisn gegn Hugo Banzer forseta
og yfirheyrslur í innanríkisráðu-
neytinu.
Innanríkisráðuneytið í La Pas
sagði í dag að Zenteno hershöfð-
ingi hefði varið fullveldi og
þjóðarvirðingu Bólivíu gegn
erlendum skæruliðum sem hefðu
ráðizt inn í landið. Utanríkisráðu-
neytið sagði að morðið væri „Svik-
samleg árás alþjóðlegra öfgahópa
lengst til vinstri." Yfirmaður
landhersins, Raul Alvarez
Penaranda, sagði að „ofbeldis-
postulum" yrði svarað ,,í sömu
mynt".
Penaranda sagði að útlægur
hershöfðingi, Luis Reque Teran,
bæri einn ábyrgð á morði sendi-
herrans. Reque Teran hershöfð-
ingi hefur skrifað mikið um
baráttuna sem leiddi til dauða
Ches og varð yfirmaður hersins í
forsetatfð Juan Jose Torres sem
var vinstrisinni.
Zenteno Anaya sendiherra var
yfirmaður liðssveitanna sem
drápu Che og var einnig um skeið
utanríkisráðherra og yfirmaður
hersins. Samtök sem kalla sig
„Che Guevara herdeildina" hafa
lýst sig ábyrga á morði sendiherr
ans.
Maður úr þessum samtökum
segir að sama byssa og sendiherr-
ann var myrtur með hafi verið
notuð þegar árás var gerð í
desember á hermálafulltrúa
Spánar í París, Bartolome Plata-
Valle höfuðsmann, sem særðist
alvarlega í íbúð sinni. Þá sögðust
Baskar bera ábyrgðina.
I desember 1974 skutu tveir
menn hermálafulltrúa Uruguay i
París tií bana. Tupamaros-
skæruliðar lýstu sig ábyrga.
— Forkosningar
Framhald af bls. 17
öldungadeildarmanni f forkosn-
ingum demókrata í Nebraska,
lýsti vonbrigðum sfnum með
ósigurinn, sem þó var mjög naum-
ur eða 39%:38%. t forkosning-
unum í Connecticut vann Carter
hins vegar Morris Udall. Þetta
voru fvrstu forkosningarnar sem
Frank Church tók þátt f, og telja
ýmsir sigur hans geta bent til
þess að glansinn sé farinn að fara
eitthvað af Carter, sem nú stafar
einnig ógn af framboði Jerry
Brown, rfkisstjóra í Kaliforníu.
Carter hefur nú þegar 615
fulltrúa á landsþingi demókrata á
bak við sig af alls 1.505 sem þarf
til að fá útnefninguna.
— Vinsæll
Framhald af bls. 17
inn leiðtogi Frjálslynda flokks-
ins og gegndi því starfi um
rúmlega tíu ára skeið. Áður en
hann tók við flokknum var
stundum látið að þvi liggja að
flokkurinn væri eins konar
einkastofnun Asquith-fjöl-
skyldunnar og raunar var
kona hans, Laura Bonham-
Carter, sem hann kvæntist
1938, sonardóttir forsætisráð-
herra frjálslyndra i byrjun ald-
arinnar, Herbert Asquith.
Síðan Grimond lét af forystu
flokksins hefur hann haldið sig
utan við deilumál. Þó studdi
hann aðild Bretlands að Efna-
hagsbandalaginu. Hann hefur
sjaldan tekið eindregna afstöðu
í deilumálum á þessum tíma, en
barðist þó eindregið gegn hug-
myndum sem voru uppi um
myndun samsteypustjórnar
Frjálslynda flokksins og íhalds-
flokksins eftir kosningarnar i
febrúar 1974.
— Zetan
Framhald af bls. 16
runalegt ds, ðs, ts, bæði í stofni
og endingum, þar sem tannstaf-
urinn d,ð eða t er fallinn burt i
skýrum framburði. 4) Rita skal
tvöfaldan samhljóða á undan
samhljóða, þar sem stofn vísar
til (byggð, styggð) — en ein-
faldan þar sem uppruni sýnir
(sagði, dugði). Þá fjallar frum-
varpið um fjölmargar aðrar
stafsetningarreglur, sem of
langt mál er að gera grein fyrir
hér í stuttri fréttafrásögn.
# Hitamál á þingi.
Nafnakall f
neðri deild.
Þetta stafsetningarmál er eitt
mesta hitamálið á Alþingi, nú
sem áður. Ingvar Gfslason (F),
Magnús Torfi Olafsson (SFV)
og Svava Jakobsdóttir (Alb)
fluttu frávlsunartillögu I neðri
deild. Fór fram nafnakall um
hana. Þar fóru Z-menn með
frækinn sigur af hólmi. Tillag-
an var felld með 21 atkvæði
gegn 11 en 8 voru fjarstaddir.
Með frávísun greiddu atkvæði:
Svava Jakobsdóttir, Vilhjálmur
Hjálmarsson, Þórarinn Sigur-
jónsson, Eðvarð Sigurðsson,
Garðar Sigurðsson, Ingvar
Gíslason, Jón Skaftason, Skúli
Alexandersson, Karvel Pálma-
son, Lúðvík Jósepsson, og
Magnús Torfi Ólafsson. Nei
sögðu hins vegar: Sverrir Her-
mannsson, Tómas Arnason,
Þórarinn Þórarinsson, Bene-
dikt Gröndal, Ellert Schram,
Eyjólfur K Jónsson, Friðjón
Þórðarson, Guðmundur H.
Garðarsson, Gunnlaugur Finns-
son, Gylfi Þ. Gíslason, Ingólfur
Jónsson, Jóhann Hafstein,
Lárus Jónsson, Matthías
Bjarnason, Matthías A.
Mathiesen, Páll Pétursson,
Pálmi Jónsson, Sigurlaug
Bjarnadóttir og Ragnhildur
Helgadóttir.
Sfðan voru frumvarpsgreinar
þingmanna frumvarpsins (við
2. umræðu) samþykktar með 19
atkvæðum gegn 4 (ein grein
gegn 5), sem og breytingartil-
laga frá meirihluta mennta-
málanefndar deildarinnar, þess
efnis, að i stað tzt megi nota tst,
til dæmis rita stytstur flutst
o.s.frv. Virðist því traust fylgi
fyrir frumvarpinu i neðri deild
Alþingis.
0 Þóf við þriðju um-
ræðu. *
Þetta mál er nú til 3. umræðu
í deildinni, þar sem fyrrv.
menntamálaráðherra, Magnús
Torfi Ólafsson, hefur haldið
uppi löngum ræðuhöldum.
máske til þess að tefja málið.
Þess er þó skylt að geta, að
málflutningur hans allur er
málefnalegur og prúðmannleg-
ur sem jafnan áður. Sama má
segja um málflutning Gylfa Þ.
Gíslasonar og Sverris Her-
mannssonar, sem eru helztu
talsmenn Z-unnar í deildinni.
Umræðurnar hafa verið bæði
stórfróðlegar, líflegar og
skemmtilegar. Hvort þetta hita-
mál hefur fengið afgreiðslu frá
neðri deild til efri deildar á
kvöldfundi í gær verður að biða
frásagnar þingsíðu á föstudag.
— Vegaáætlun
Framhald af bls. 16
kvæmda með tekjuöflunarleið,
sem ekki væri farin. en rétt væri
að fara: vegskatti.
MISTÖK SEM
LEIÐRÉTTA ÞARF:
NORÐUR—AUSTURVEGUR
Evjólfur Konráð Jónsson (S)
gerði itarlega grein fyrir lögum.
sem sett voru á sl. þingi, um happ-
drættislán til Norður- og Austur-
vegar. Þau lög segðu ótvirætt að
gefa ætti út á fjórum árum slík
bréf, til þessarar vegagerðar. að
fjárhæð 2000 m.kr. Skyldu %
þeirrar fjárhæðar renna til
Norðurvegar og H til Austur-
vegar. Þessa sæjust ekki skil í
framlagðri þingsályktun að vega-
áætlun. Hér hefðu átt sér stað
mistök, sem þyrfti að leiðrétta og
treysti hann ráðherra til að
bregða þar skjótt við. Rétt væri að
spara þyrfti í þjóðfélaginu, eins *
vegagerð sem öðru, og vildi hann
sízt draga úr réttmæti aðhalds á
slíkum tímum sem nú væru. En
ekki væri hægt að ganga fram hjá
eða breyta lögum með þingsálykt-
un. Lagafyrirmælum þyrfti að
hlíta.
. . . Aðrir sem til máls tóku
voru Jón Ármann Héðinsson (A),
sem m.a. tók undir orð Eyjólfs
Konráðs og taldi að auki fram-
kvæmdarýrnun i vegagerð of
mikla, og Páll Pétursson (F) sem
gerði samanburð á vegamála-
stjórn fyrrverandi ráðherra úr
SFV og þess núverandi.
. . . Að lokum sagði samgöngu-
ráðherra nokkur orð og sagði
rangt að nota samanburð á fjár-
veitingum milli kjördæma sem al-
gildan mælikvarða. Þar sem
unnið væri að hinum stærri verk-
efnum hlytu fjárveitingar að vera
hærri en annars staðar. Minnti
hann t.d. á framkvæmdir á Skeið-
arár'sandi á sinni tíð. Gildi verk-
efna og verkefnaröðun hlyti að
koma fram á mismunandi fjár-
veitingum og hafa meiri þýðingu
en innantóm hreppapólitík sem
tilheyrði liðinni tíð. — Þá sagði
ráðherra ekki ætlunina að snið-
ganga lagafyrirmæli um Norður-
og Austurveg.
— Deilt um
Framhald af bls. 16
þingsins umfram það sem góðu
hófi gegndi.
ATHUGASEMIIIR SEM
ÞARFNASTIHUGUNAR
Ellert Schram (S) formaður
allsherjarnefndar, sagði um
sagnir um umrætt frumvarp, með
athugasentdum, sem erfitt væri
að ganga fram hjá án frekari
skoðunar, ekki hafa legið fyrir
fyrr en fyrir u.þ.b. viku eða fáum
dögum fyrir þá ráðgerð þingslit
(15. maí). Frumvarpið ætti hvort
eð er ekki að taka gildi fyrr en um
nk. áramót — og þvi hefði nefnd-
in einróma talið það til bóta, að
nýta tímann til haustsins til að
vanda verk sitt betur, þar sem sá
frestur seinkaði ekki gildistöku
eða framkvæmd laganna. I þýð-
ingarmiklum málum væri á
stundum hyggilegra að flýta sér
ekki um of á kostnað vandvirkni,
ekki sízt ef nánari athugun
seinkaði alls ekki framgangi máls-
ins eða gildistöku eins og gilti um
þetta lagafrumvarp.
Um þingsályktunartillögu
Sighv. Björgvinssonar o.fl. væri
það að segja, að hún snerti út-
gjaldahlið ríkiskerfisins, og þar
Atök harðna á
ný í Líbanon
Bi-irúl. 12. mai NTB. AP.
BARDAGARNIR i Libanon
harðna stöðugt þrátt fyrir tilraun-
ir Sarkis nýkjörins forseta að
bera klæði á vopnin.
I dag réðust vinstrisinnar til
atlögu í miðborg Beirút eftir nýja
sókn hægrimanna í fjöllunum
austan við höfuðborgina.
Þó virðist hernaðarstaðan þann-
ig að hvorugur aðili geti nevtt
hinn til að láta undan sfga.
Þrátt fyrir kosningu Sarkis
virðast deilur kristinna manna og
múhameðstrúarmanna hafa
harðnað. Bjartsýnismenn hafa
talið að kosning hans sýndi að
stjórnmálakerfið í Líbanon væri
enn starfhæft enda þótt vinstri-
menn tækju ekki þátt í kosning-
unni.
Vinstrimenn hafa itrekað kröfu
sina um að sýrlenzkir hermenn
verði kallaðir burtu frá Líbanon
og telja það forsendu þess að
borgarastriðinu Ijúki. Leiðtogi
þeirra, Kamal Jumblatt, leggur á
það áherzlu að Líbanir verði að
taka við hlutverki sýrlenzku her-
mannanna.
Hægrimenn leggja aftur á móti
á það áherzlu að nærvera Sýrlend-
inga sé- nauðsynleg til þess að
unnt sé að halda uppi lögum og
reglu í Líbanon þannig að Sarkis
geti tekið við forsetaembættinu.
Um 80 menn féllu í bardög-
unum í dag og 200 særðust.
Bardagar blossuðu einnig upp í
Norðurhluta Líbanons. bæði í
Tripoli og Zagharta.
Flestir féllu i bardögunum í
fjöllunum austur af Beirút.
Falangistar sögðu að þeir ættu
eingöngu í höggi við Palestínu-
menn.
Olíuskip strandar
með 100.000 lestir
La Coruna. 12. mai. NTB.
SPÆNSKT olfuflutningaskip
hlaðið 100.000 lestum af hráolíu
strandaði f innsiglingunni f höfn-
ina í La Coruna á norðvestur-
strönd Spánar í dag. Leki kom að
skipinu og mikil olíubrák brciðist
út meðfram ströndinni.
Skipstjórinn og hafnarstarfs-
maður fórust þegar reynt var að
koma skipinu á flot en öðrum af
45 manna áhöfn skipsins var
bjargað.
væri ekki óeðlilegt, að ráðherra
eða rikisstjórn létu nefndinni í té
visbendingar hve langt mætti
ganga i útgjaldaaukningu.
FRUMVARP UM
RtKISBORGARARETT
Ölafur Jóhannesson dómsmála-
ráðherra nefndi nokkur þingmál
frá sinu ráðuneyti komin s.s. um
skotvopn og sprengiefni o.fl. sem
enn væru óafgreidd. Eitt fyrsta
mál þingsins hefði t.d. verið frum-
varp um rikisborgararétt. Ekki
bólaði á nefndaráliti um það enn.
Þar ætti að visu önnur nefnd hlut
að máli. Umrædd frumvarp um
rannsóknarlögreglu hefði fengið
það góðar móttökur hjá þing-
mönnum, m.a. Ellerti Schram, að
hann hefði vænzt skjótari af-
greiðslu á því.
rAðherrabað
UM UMSAGNIR
Friðjón Þórðarson (S) sagði
óréttmætt að veitast að Ellert B.
Schram i þessu máli, sem nefndin
hefði verið einhuga um, enda
væri Ellert einn starfsamasti
nefndarformaður í þingdeildinni.
Skipið var að koma frá Persa-
flóa og strandaði á skeri. Leki
kom að skipinu og skipstjórinn
skipaði áhöfninni aðyfirgefa það.
Sfðan urðu nokkrar spreng-
ingar og margar rúður í bygg-
ingum við höfnina brotnuðu.
Svartan reykjarmökk lagði vfir
bæinn.
Talsmaður eigenda skipsins
sagði að allt yrði gert sem unnt
væri til að koma í veg fvrir olíu-
mengun.
Vitnaði hann m.a. til ræðu dóms-
málaráðherra, er hann mælti
fyrir frumvarpinu, þar sem þess
hefði verið sérstaklega óskað, að
leitað væri umsagnar þeirra aðila,
sem málið hefði nokkuð tafizt hjá.
VERULEGT
FJARHAGSATRIÐI
Gunnlaugur Finnsson (F) sagði
tima hafa verið nauman til að
afgreiða þetta frumvarp. Hann
hefði sem fjárveitingarnefndar-
maður tekið þátt í að fækka í
starfsliði löggæzlunnar í landinu
og ætti þvi erfitt með að standa að
fjölgun þess í annarri nefnd. Hér
væri á ferð nokkurt fjárhags-
atriði, sem stjórnvöld yrðu sjálf
að gefa nokkra vísbendingu um.
Nánari skoðun málsins, án þess að
seinka gildistöku laganna, hefði
því naumast átt að saka. Hins
vegar hefði hann, sem væri ritari
allsherjarnefndar, alls ekki litið
svo á, að nefndin hefði tekið af-
stöðu til umræddrar þingsálykt-
unartillögu Sighvats Björgvins-
sonar o.fl. enn, enda ekkert um
slika afgreiðslu bókað i fundar-
gerð hennar.