Morgunblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JUNI 1976
Flóðin við Sigöldu:
„Minnkunin meiri
en aukningin”
„ÆTLI sé ekki bezt að segja eins
og stjórnmálamennirnir að
minnkunin sé meiri en aukning-
in,“ sagði Magnús Bjarnason
verkfræðingur Energoprojekt við
Sigöldu, þegar Mbl. spurði hann í
gær um það hvort vatnið I uppi-
stöðulðni Sigölduvirkjunar væri
farið að lækka.
Eins og kom fram í fréttum í
síðustu viku, voru svo miklar leys-
ingar í fjöllunum í nágrenni
virkjunarinnar, að vatn i uppi-
stöðulóni hennar jókst til stórra
muna, þvi botnlokur höfðu ekki
undan. Varð að gera ráðstafanir
til þess að vatn kæmist ekki í
aðrennslisskurð að stöðvarhús-
inu. Þá fór vinnuskúr nánast í
kaf, og er hann að sögn Magnúsar
talinn ónýtur.
Magnús sagði að vatnið í uppi-
stöðulóninu sjatnaði nú smám
saman, en það gerist afar hægt og
er nú vatnsyfirborðið aðeins ein-
um metra lægra en þegar það var
hæst. Ekki er vitað um annað tjón
en það sem varð á vinnuskúrnum,
en töluverður kostnaður varð því
samfara að halda vatninu i skefj-
um.
íslenzkir tómatar
í allar búðir í dag
SÖLUFÉLAG garðyrkjumanna
fékk í gærmorgun fyrstu stðru
sendinguna af fslenzkum tðmöt-
um á þessu sumri. Var unnið við
það af flokka tðmatana í gær og
síóan var þeim ekið í búðir. Sagði
Þorvaldur Þorsteinsson hjá Sölu-
félaginu, að í dag ættu tömatar að
vera komnir í allar verzlanir.
Þorvaldur sagði að tíðin að
undanförnu hefði verið mjög hag-
stæð fyrir tómatarækt og mætti
búast við töluverðu magni á
markaðinn á næstunni að öllu
óbreyttu. Heildsöluverð er nú 540
krónur og smásöluverð 720
krónur kg, en að sögn Þorvalds
hefur verið venjulega lækkað
fljótlega og verður svo einnig nú.
Agúrkutíminn stendur nú sem
hæst, og sagði Þorvaldur að góð
sala hefði verið í agúrkum að
undanförnu.
Skútan
væntanleg
um miðja
þessa viku
tSLENZKA seglskútan, sem lagði
fyrir skömmu af stað frá Skot-
landi til Islands, var um helgina I
Færeyjum. Lagði hún af stað
þaðan um hádegi á sunnudag, og
að sögn Ivars Þórarinssonar, sem
fylgzt hefur með ferðum
skútunnar og talað við
tslendingana um borð, en þeir
eru þrfr talsins, er skútan
væntanleg til Vestmannaeyja
seint á miðvikudag eða snemma á
fimmtudagsmorgun. Sagði Ivar
að skútan hefði fengið hagstæðan
byr alla leiðina og allt gengið
mjög vel. Sögðust þremenning-
arnir alls staðar hafa fengið mjög
góða fyrirgreiðslu.
IJrskurðaður
30 daga
í
gæzluvarðhald
KÓPAVOGSBUlNN, sem sagt var
frá í sunnudagsblaði Mbl. að ráð-
izt hefði á iögregluþjón og höfuð-
kúpubrotið hann, var úrskurðað-
ur í 30 daga gæzuvarðhald. Hon-
um var ennfremur gert að sæta
geðrannsókn á tímabilinu.
„Þarna var bók-
staflega allt í rúst
Rætt við Gunnar Ólafsson, viðskiptafræðing,
sem ók um jarðskjálftasvæðið á N-Italíu
2 dögum eftir jarðskjálftann mikla
„ÞAÐ var öskaplegt að sjá
þetta — þarna voru tjaldbúðir
við tjaldbúðir þar sem fölkið
sat á stólum fyrir utan með
teppi yfir sér í úrhellis
rigningu, og Ifkbílarnir voru f
stöðugum ferðum á þessum
slóðurn," sagði Gunnar Ólafs-
son viðskiptafræðingur, en
hann ók um jarðskjálftasvæðið
á norðaustanverðri Italfu ásamt
konu sinni og öðrum hjónum á
leið frá Vín til Ligniano aðeins
tveimur dögum eftir jarð-
skjálftann.
„Við vorum þarna á leiðinni
frá Vfnarborg," sagði Gunnar
þegar Morgunblaðið ræddi við
hann, „fórum gegnum Salzburg
á bíl, yfir Gross Glockner
skarðið hjá hæstu tindunum í
Austurríki og hugðumst síðan
fara niður til Ligniano. Við
ætluðum að fara þarna ákveðna
leið yfir itölsku alpana en
þegar til kom var lokað þar
vegna þess að sprunga hafði
komið í veginn. Við urðum þá
að snúa við, fara töluvert austar
og urðum þess vegna aó fara í
gegnum þorpið Genoma sem
hafði einmitt orðið verst úti f
jarðskjálftanum."
Gunnar sagði, að það hefði
tekið þau um klukkustund að
aka f gegnum þetta svæðið sem
harðast hafði orðið úti í skjálft-
anum. „Ég gæti trúað því að
jarðskjálftans hafi gætt mest á
um 5 kílómetra kafla,“ sagði
hann ennfremur, „en við fórum
þetta ósköp hægt, því að þarna
var svo mikil umferð, sérstak-
lega af sjúkrabílum og herbíl-
um. Þarna var bókstaflega allt i
rúst, húsin gjörsamlega jöfnuð
við jörðu mörg hver og stærri
byggingar stórskemmdar. Sið-
an voru þarna tjaldbúðir við
tjaldbúðir, og fólk sat þarna á
stólum með teppi yfir sér í úr-
hellisrigningu. Búið var að
Framhald á bls. 39
í.—
tJr Nauthólsvfkinni
Alfreð Gíslason fyrrv.
alþingismaður og
bæjarfógeti látinn
A SUNNUDAGINN lézt Alfreð
Gfslason, fyrrverandi bæjarfó-
geti, sýslumaður og alþingis-
maður, 70 ára að aldri.
Alfreð Gíslason var fæddur i
Reykjavfk 7. júlí 1905, sonur Gísla
Þorbjarnarsonar búfræðings og
konu hans Jóhönnu Sigríðar Þor-
steinsdóttnr. Alfreð lauk stúd-
entsprófi frá MR 1927 og lög-
fræðiprófi frá Háskóla íslands
1932. Hann stundaði lögfræði-
störf í Reykjavík 1932 — ’37 en
árið 1938 varð hann lögreglustjóri
í Keflavík og bæjarfógeti 1949 til
1961. Þá varð hann eitt ár bæjar-
stjóri í Keflavík en tók að nýju
Framhald á bls. 39
Ljósm. Mbl. RAX.
Guðni Ólafsson
apótekari látinn
GUÐNI Ólafsson apótekari f Ing-
ólfsapóteki lézt á sunnudaginn,
70 ára gamall.
Guðni var fæddur á Eyrarbakka
26. nóvember 1905. Foreldrar
hans voru Ólafur Árnason bóndi
og sjósóknari og kona hans
Guðrún Gísladóttir. Guðni var
næst yngstur 6 systkina, yngstur
er Sigurjón myndhöggvari. Guðni
byrjaði starfsþjálfun f Eyrar-
bakkaapóteki 1922—’26, en
síðasta árið tók hann aðstoðar-
lyfjafræðipróf hjá landlækninum
í Reykjavík. Hann vann i Lauga-
vegsapóteki í tvö ár en árið 1931
hvarf hann til lyfjafræðináms í
Danmörku og lauk fullgildu prófi
lyfjafræðings þaðan árið 1933.
Guðni Ólafsson kom heim það
sama ár og starfaði í Laugavegs-
apóteki til 1939 er hann fór tii
Danmerkur, en þar vann hann i
lyfjaverksmiðju til ársins 1946.
Það ár kom hann heim og fékk
árið 1948 veitingu fyrir Ingólfs-
apóteki i Reykjavík sem hann rak
til dauðadags. Árið 1952 stofnaði
hann heildverzlunina G. Ólafsson
hf. Frá árinu 1960 rak hann enn-
fremur búskap á Árbæjar-
hjáleigu i Rangárvallasýslu.
Guðni kvæntist Ingibjörgu Þor-
steinsdóttur frá Akureyri en þau
slitu samvistum eftir skamma
sambúð.
Nafn piltsins
PILTURINN, sem lét lifið i
umferðarslysi á mótum Elliða-
vogs og Skeiðarvogs s.l. föstudags-
kvöld, hét Ragnar Franklín Guð-
mundsson, Laugalæk 19. Hann
var fæddur 13. janúar 1959 og því
17 ára gamall er hann lézt.
Sovézkir vísindaleiðangursmenn:
Rannsóknaleyfi gegn
vissum skilyrðum
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
hefur veitt sovézkum jarðvfsinda-
flokki leyfi til rannsókna hér á
landi á komandi sumri. t flokkn-
um eru alls 18 menn og eins og
fram hefur komið í fréttum, mun
flokkurinn hafa með sér hingað
til lands 15 tonn af sprengiefni,
nánar til tekið dynamiti.
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra sagði í sam-
tali við Mbl. í gærkvöldi, að
sovézka jarðeðlisfræðiflokknum
hefði verið veitt rannsóknaleyfið
gegn vissum skilyrðum. I fyrsta
iagi myndi íslenzkur vísindamað-
ur fylgjast með störfum flokksins,
en slíkt skilyrði væri ætíð sett
þegar stórir flokkar erlendra vfs-
indamanna eru hér við rannsókn-
ir. Þá er það skilyrði einnig sett,
að íslenzkur sérfræðingur um
meðferð sprengiefnis verði með í
förinni, og bjóst menntamálaráð-
herra við því að einhver starfs-
manna Orkustofnunar myndi
taka það hlutverk að sér. Verður
flokkurinn að fara með sprengi-
efnið eins og tiltekið er í íslenzk-
um lögum og geyma það mjög
tryggilega.
Þá sagði menntamálaráðherra
að sovézku vísindamennirnir yrðu
eins og aðrir vísindaflokkar að
gefa upp fjölda vísindamanna og
yfirlit um tækjaútbúnað. Enn-
fremur yrðu þeir að gefa skýrslu
um leiðangurinn að honum lokn-
um. Sagði ráðherrann að það gæti
tekið nokkurn tíma, því vfsinda-
mennirnir sovézku gerðu allar
sínar skýrslur á rússnesku.