Morgunblaðið - 01.06.1976, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 01.06.1976, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JUNI 1976 3 Sigur og tap hjá Guðmundi á móti Rússunum á Kúbu SOVÉZKI stórmeistarinn Boris Gulko hefur nú forystu I minn- ingarmótinu um Capablanca, sem fer fram um þessar mundir f bæn- um Cienfuegos á Kúbu. Gulko hefur 7H vinning eftir 11 umferð- ir en í öðru sæti er Guðmundur Sigurjónsson með 6'A vinning og biðskák. Guðmundur hefur sem Kór Söngskólans og Sinfóníuhljómsveit Reykjavíkur með tón- leika í Skjólbrekku Björk 31. maí Á föstudagskvöld hélt kór Söng- skólans í Reykjavik og Sinfóníu- hljómsveit Reykjavíkur tónleika I Skjólbrekku. Einsöngvarar voru Ólöf K. Harðardóttir, Hrönn Haf- liðadóttir, Unnur Jensdóttir Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson, Halldór Vilhelmsson, Garðar Cortes og Sigurður Þórðarson. Stjórnendur voru Carlefe og Garðar Cortes. Aðsókn var ágæt og undirtektir áhorf- enda mjög góðar. Telja verður heimsókn þessa ágæta listafólks merkan tónlistarviðburð hér í sveitinni og munu þeír sem við- staddir voru þessa kvöldstund, minnast hennar lengi. Að lokum söng kórinn Blessuð sértu sveitin mín, lag Bjarna Þorsteinssonar við Ijóð Sigurðar Jónssonar frá Arnarvatni og tóku áhorfendur undir að beiðni stjórnanda. Hér er búið að vera glampandi sólskin um vikutfma og varla sést skýhnoðri á lofti. Hefur hitinn á daginn komizt upp undir 20 stig. Allur gróður hefur mjög tekið við sér sfðustu daga og má heita að skógur sé að verða allaufgaður og er af þeim sökum að verða mjög sumarlegt. Sauðburði er víðast að verða lokið og margir bændur hafa þegar sleppt fé sínu. Umferð ferðafólks er byrjuð og daglegar áætlunarferðir hafnar frá Akur- eyri til Mývatns. kunnugt er setið hjá eina umferð, en ekki er ljóst af fréttaskeytum, hvort Gulko hefur setið hjá eða á það eftir. í 9. umferðinni leiddu þeir sam- an hesta sína Gulko og Guðmund- ur. Hafði Gulko betur i þeirri viðureign og komst þar með í efsta sætið, en því hafði Guð- mundur haldið lengi vel. I 10 um- ferðinni sigraði Gulko siðan Ung- verjann Honfi og Guðmundur gerði sér lítið fyrir og vann Sovét- manninn Alexander Beliasvski, stigahæsta mann mótsins, eftir að skák þeirra hafði farið f bið. I 11. umferðinni gerði Gulko jafntefli við Tékkann Honfi en skák Guð- mundar fór í bið. Gulko er efstur með 7'á vinn- ing, Guðmundur hefur 6V4 vinn- ing og biðskák, Peev (Búlgaríu) hefur 6'á vinning, Razuvaev (Sovétríkjunum og Vogt (A- Þýzkalandi) hafa 5'A vinning og Beliasvski og Andersson (Svíþjóð) hafa 5 vinninga hvor. Guðmundur Sigurjónsson. Eidur laus í Bernhöftstorfu Á SJÖUNDA tfmanum f gær- kvöldi kom upp eldur í skúr bak við Amtmannsstfg 1, gamla Landlæknishúsið. Skúr þessi stendur á horni Amtmannsstfgs og Skólastfgs, og mun hann f fyrndinni hafa verið notaður sem móskúr. Jón Guðjónsson varðstjóri í Slökkviliði Reykjavíkur sagði að eldur hefði verið allmagnað- 4 ur þegar slökkviliðið kom á vettvang. Stóð mikill eldur upp úr þakinu og lagði að Land- læknishúsinu. Lagði slökkvilið- ið kapp á að verja húsið, en Jón sagði að málningin á þvf hefði verið tekin að bólgna af hitan- um. Sagði Jón að það hefði hjálpað mikið til, að logn var þegar eldurinn kom upp. Önn- ur hús á Bernhöftstorfunni voru ekki í hættu að sögn Jóns. Slökkvistarf tók einn og hálfan tíma og er skúrinn ónýtur tal- inn. Jón Guðjónsson sagði að lík- lega hefði verið um íkveikju að ræða. Eldurinn hefði verið það magnaður strax, og einnig væri þess að gæta, að í skúrnum væri ekkert rafmagn. Ljósm. H.G. og RAX. Nú verða kjötvörur merktar ítarlega fyrir neytandann FRÁ og með deginum f dag er öllum framleiðendum unninna kjötvara skylt að merkja allar unnar kjötvörur, sem seldar eru f smásölu f neytendaumbúðum með ftarlegum upplýsingum um vöruna. Gerist þetta samkvæmt gildistöku auglýsingar um merkingu unninna kjötvara, en auglýsing þessi tekur ekki til niðursoðinna kjötvara. í þessu tilefni sneri morgun- blaðið sér til Agnars Tryggva- sonar, framkvæmdastjóra búvörudeildar Sambandsins, og leitaði álits hans á þessari nýbreytni. Agnar kvaðst ánægður með að þessi háttur skyldi nú tekinn upp hér og kvað þetta góða þróun. Að vfsu kostaði þetta, að fyrirtækið yrði að festa kaup á nýrri merkingarvél sem kostaði nokkrar milljónir króna en að öðru lagi hefði þetta engin áhrif á reksturinn. í tilkynningu viðskiptaráðu- neytisins segir svo: Um frágang vörumerkinga sam- kvæmt auglýsingunni er svo mælt fyrir, að á eða í umbúðum vörunnar skuli vera greinilegar upplýsingar á íslensku, sem lesa má án þess að rjúfa umbúðir (vörumerkingarseðill). Þau atriði, sem með þessum hætti verður skylt að veita upplýsingar um eru: Heiti vörunnar, fram- leiðsluháttur, samsetning, aukefni, gyemsluaðferð og með- ferð fyrir neyslu, nettóþyngd innihalds og eftir atvikum Framhald á bls. 39 FERÐIR TIL GAGNS OG GLEÐI MEÐ FERÐAMIÐSTÖÐINNI........ Bretlandsferð — brottför 11. júní — 11 dagar Ekið um marga fallegustu staði Englandí og Skotlands og sögufrægar slóðir skoð aðar Meðal viðkomustaða eru: York, Bawtry Cambridge, Windsor, Oxford, Shottery Stratford-on-Avon, Warwick, Chester, Bowness-on-Windermere, Carlisle, Gretna Green, Edinborg. (Gististaðir eru með feitu letri.). Einnig dvalið 5 nætur í London þar sem kostur gefst á skoðunarferðum um borg- ina og nágrenni hennar. Flogið er til og frá Glasgow. íslenskur fararstjóri Spyrjist fyrir um þessa sérstæðu ferð. 2ja og 3ja vikna photokino World Fairof Photography Brottför 9. sept. Ódýru Spánarferðirnar Costa Blanca, Benidorm. 2ja og 3ja vikna ferðir í allt sumar. Fjölskylduafsláttur, íslensk hjúkrunarkona og barn- fóstra. Brottfarardagar: 14. júní, laus sæti. 28. júní, nokkur sæti laus. 19. júli nokkur sæti laus. 2. ágúst, aukaferð. 9. ágúst, laus sæti. 16. ágúst, aukaferð. 23. ágúst, biðlisti. 30. ágúst, aukaferð. 6. sept. aukaferð. 13. sept. uppselt. 20. sept, laus sæti. A--/- **i Ódýrar Norðurlandaferðir í allt sumar. Seljum einnig farseðla með öllum flugfélögum um allan heim á sérstaklega hagkvæmum fargjöldum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.