Morgunblaðið - 01.06.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNl 1976
5
Kökubasar kven-
félags Dómkirkjunnar
Slysið í Eyjafjarðará:
Bílbeltið var ekki notað
— segir umferðarráð
KIRKJUNEFND kvenna Dóm-
kirkjunnar, kvenfélagið sem
starfar í Dómkirkjusöfnuðinum,
hefur lengi unnið mikið og gott
starf fyrir Dómkirkjuna. Ákaf-
lega margt af fögrum búnaði
hennar er þangað komið fyrir
ötult starf kvennanna.
Nú ætla konurnar að halda
Breiðafjarð-
areyjar um
hví tasunnuna
kökubasar að Hallveigarstöðum
við Túngötu á morgun, miðviku-
daginn 2. júnf, kl. 5 sfðdegis. All-
ur ágóði af basarnum, sem öðru
starfi þeirra, fer til kirkjunnar
eða líknarmála á hennar vegum.
Verkefnin eru ótalmörg
framundan, ekki síst málning og
aðrar lagfæringar á kirkjunni að
innan. Að þessu vill kvenfélagið
styðja, og mig langar til að hvetja
sóknarfólk og aðra velunnara
Dómkirkjunnar tíl að sækja köku-
basarinn. Þar verður vafalaust
hægt að fá margt gott, sem kemur
sér vel fyrir hvítasunnuna, og þá
er hitt ekki síðra að hafa um leið
stutt gott málefni.
Þórir Stephensen.
VEGNA fréttar f fjöimiðlum, þ. á
m. f Mbl. á sunnudaginn um um-
ferðarslys er varð aðfaranótt
laugardagsins 29. maf á Eyja-
fjarðarbraut skammt framan við
Kristsnes er bifreið lenti á hvolfi
út f Eyjafjarðará þykir umferðar-
ráði rétt að taka eftirfarandi
fram.
Við rannsókn á slysi þessu hef-
ur komið fram að fullvíst er að
bílbeltið var EKKI SPENNT er
slysið varð. Ökumaður bifreiðar
mun hins vegar hafa flækt sig i
beltinu er hann reyndi að komast
út úr bifreiðinni. Leiða má að því
sterkar líkur að þegar bifreiðin
lenti á hvolfi i ánni hafi lykkja
beltisins flotið upp vegna þess að
beltið var ekki notað. Það er því
algjörlega rangt sem komið hefur
fram í frétt af atburði þessum að
ökumanni hafi ekki tekist að losa
lásinn á bílbeltinu.
Fréttir þær sem birst hafa hafa
þvi miður gefið alranga mynd af
atburði þessum og varða á engan
hátt mat á varnareiginleikum bil-
belta i umferðarslysum.
Rannsóknir sérfræðinga hafa
sannað að meiri lýkur er á að
bjargast þegar bifreið lendir í
vatni ef ökumaður og farþegi nota
bilbelti.
VAKA félag lýðræðissinnaðra
stúdenta gengst fyrir tveggja
daga ferð um Breiðafjarðareyjar
um hvítasunnuhelgina. Lagt
verður af stað frá aðalbyggingu
háskólans stundvíslega kl. 8
laugardaginn 5. júní og komið
aftur til Reykjavikur á sunnu-
dagskvöldi. Gist verður eina nótt í
eyjunum og farið verðum um eyj-
arnar undir leiðsögn heima-
manna. Ferðarkostnaður er áætl-
aður aðeins kr. 3000 á mann. Allið
lýðræðissinnaðir stúdentar eru
velkomnir.
Þeir sem hyggjast notfæra sér
þetta einstæða tækifæri til þess
að sjá og skoða Breiðafjarðar-
eyjar eru beðnir að tilkynna sig í
sima 16941 fyrir miðv.kvöld
vegna óvenjumikillar þátttöku.
(frá Vöku).
Stjórn Vöku.
Blikabingó
í SÍÐUSTU viku birtust alls 10
tölur í öðru Blikabingói ársins.
Þær koma hér á ný ásamt 6 nýj-
um tölum. Fylla á línur undir I og
N. Vinninginn hlýtur sá, sem fær
bingó á lægstu birtingartölu. Séu
fleiri en einn um vinninginn,
verður dregið um hann. Bingó
skal tilkynna í síma 40354 eða
42339.
1. N-43, 2. 1-33, 3. N-33, 4. N-31,
5. 1-21, 6. 1-20, 7. N-32, 8. 1-22, 9.
1-27, 10. N-35, 11. N-40, 12. 1-26, 13.
N-37, 14. 1-25, 15. N-39, 16. 1-28.
Rauði krossinn
hyggst setja á
stofn sjúkra-
hótel á Akureyri
RAUÐI Krossinn, Akureyrar-
deild, hefur nýlega fest kaup á
húsinu Skólastíg 5 þar í bæ. Er
meiningin að reka þar i framtfð-
inni sjúkrahótel með Ifku sniði og
nú er rekið f Reykjavfk, þ.e.
hótel, sem sjúklingar með fóta-
vist geta Húið ( ef þeir þurfa að
leita sér lækninga á Akureyri.
Guðmundur Blöndal, starfs-
maður Akureyrardeildar Rauða
krossins, tjáði Mbl. í gær, að kaup-
verð hússins hefði verið 12
milljónir króna. Stendur Akur-
eyrardeildin ein að kaupunum en
nýtur stuðnings Rauða kross
Islands. Guðmundur sagði að
húsið yrði afhent í ágústmánuði
n.k. Ti! að byrja með væri reiknað
með að þar gætu gist 6—8 manns,
en 10—12 manns, þegar breyt-
ingar hafa verið gerðar á hús-
næðinu. Sagði Guðmundur að
brýn þörf væri á slíku sjúkra-
hóteli á Akureyri.
JLÝSINGASÍMINN ER:
22480
jn«rðu«t!blAþtþ
Bandaríkin 200 ára
Ætlar þú í veisluna?
í ár verður mikið um dýrðir í Bandaríkjunum, er þjóðin
minnist þess að 200 ár eru liðin síðan frelsisstríðinu
gegn bretum lauk og landið varð sjálfstætt ríki.
Margt verður gert til að minnast þessa atburðar.
Öll ríkin 50 munu leggja sitt af mörkum. Eins og
vænta má verður þar allt stórt í sniðum. í San
Franciscoverður bökuð afmælisterta, sex tonn
að þyngd, sextíu metrar í þvermál og á hæð við tvilyft
hús. í Utah verða gróðursettar milljón trjáplöntur.
Stærstu seglskip heims munu sigla í fylkingu inn
New York höfn. Mest verður um dýrðir í fjórum
sögufrægum borgum, Boston, New York, Phila-
delphia og Washington.
Bandaríkjamenn hafa búið sig undir að taka á
móti 25 milljón gestum á afmælinu. Islensku flug-
félögin greiða götu þeirra, sem fara á þjóðhátíðina,
til þess að skoða ævintýraheima Disneys, hlusta á
jazz i New York eða New Orleans, fara upp í
Frelsisstyttuna eða sækja heim vestur-íslendinga,
svo eitthvað sé nefnt.
flucfélac LOFTLEIÐIR
/SLA/VDS iLLiuin
Félög með daglegar ferðir vestur um haf