Morgunblaðið - 01.06.1976, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. JUNI 1976
Slakur árangur
á meistaramót-
inu í tugþraut
Bjöm Blöndal og Elías Sveinsson koma hnff jafnir I mark I 100 metra hlaupinu, en Karl West er nokkuð á
eftir þeim.
• •
Oruggur sigur Ingunnar
í fimmtarþraut kvenna
INGUNN Einarsdóttir serdi sér lítið fyrir og sigraði með nokkrum yfirburðum f
fimmtarþraut kvenna á meistaramóti tslands á sunnudaginn. Fékk Ingunn 3751 stig
og það þó svo að hún hafi ekki keppt í tugþraut í meira en ár. Árangur Ingunnar er
ekki langt frá íslandsmeti Láru Sveinsdóttur í greininni. Var árangur stúlknanna í
heild í fimmtarþrautinni mun betri en piltanna í tugþrautinni. Erna Guð-
mundsdóttir og Kristín Björnsdóttir komu síðan í sætunum á eftir Ingunni, en alls
voru 7 keppendur f fimmtarþrautinni.
Ingunn hefur lítið fengizt við að
stökkva hástökk, en fór þó eigi að
siður yfir 1.60 m, sem er mjög
góður árangur hjá henni. I há-
stökkinu beindist athyglin þó
ekki síður að Þórdísi Gísladóttur,
en hún stökk léttilega yfir 1.63
metra. Var síðan hækkað i 1.70 m
en það er 1 cm hærra en íslands-
met Láru Sveinsdóttur. Munaði
Miklar fram-
farir Guðna
Þingeyingurinn Guðni Halldórsson, sem keppir nú fyrir KR, bætti
sinn fyrri árangur í kúluvarpi um hálfan metra á laugardaginn.
Varpaði Guðni kúlunni 17.69 metra og öll köst hans voru yfir 17 metra,
en Guðni keppti sem gestur ásamt Hreini Halldórssyni í kúluvarpi
meistaramótsins í tugþraut. (iekk Hreini illa í keppninni á laugardag-
inn og gerði öll köst sín ógild.
Guðni Halldórsson dvaldi ásamt Hreini I Þýzkalandi mestan hluta
aprílmánaðar, en síðan hélt hann til Knglands. Þar æfði hann með
Evrópumeistaranum Geoff Capes, sem hann kynntist á Evrópumeist-
aramótinu. Hefur (íuðni greinilega la-rt mikið af kappanum og hefur
aldrei verið betri.
Sekúndubrot á milli
10 km hlauparanna
Keppnin I 10 kflómetra hlaupi á meistaramóti tslands í frjálsum
Iþróttum fór fram á laugardaginn og varð æsispennandi undir lokin.
Þeir Gunnar Snorrason UBK og Ágúst Þorsteinsson UMSB voru
hnffjafnir sfðustu metrana og aðeins munaði átta sekúndubrotum á
þeim að loknum 10.000 metrum. Gunnar fór með sigur af hólmi, hljóp
vegalengdina á 34:34.6 mín, en Agúst á 34.35.4. Þriðji varð svo
FH-ingurinn Magnús Haraldsson á 40:16.0.
I 3000 metra hlaupi kvenna var einnig keppt á laugardaginn en
aðeins einn keppandi mætti þó margir væru skráðir. Var það Anna
Haraldsdóttir úr FII og hljóp hún vegalengdina á 12:35.8.
í 4x800 metra boðhlaupi sigraði sveit IR og voru í sveitinni þrír
bræður, þeir Sumarliði, Hafsteinn og Þorgeir Öskarssynir ásamt
Guðmundi Ólafssyni. Sveit IR fékk tímann 8:32,2, sveit UBK hljóp á
8:34.2 og sveit HSK á 9:15.4.
engu að Þórdís færi yfir rána, en
þess má geta að Óiympíulágmark
í hástökki kvenna er 1.72 m.
í langstökki kvenna stökk Erna
Guðmundsdóttir 5.35 metra og
átti ógilt stökk sem var nokkru
lengra. islandsmetið í þessari
grein er 5.67 m. Þá er athyglis-
verður árangur Ingunnar í 100 m
grindahlaupi en hún fékk tímann
14.3 sek.
ÁRANGURINN á meist-
aramótinu í tugþraut, sem
fram fór um helgina var
svo sannarlega ekki til að
hrópa húrra fyrir. Elías
Sveinsson varð tugþrautar-
meistari, en hann var
nokkuð frá sínu bezta í
flestum greinum og fékk
„aðeins“ 6274 stig. Meidd-
ist Elías fljótlega í þraut-
inni og gat því ekki beitt
sér að fullu það sem eftir
var.
Jón Sævar Þórðarson varð i
öðru sæti i keppninni og fékk
5909 stig, sem mun vera svipað og
hann hefur bezt náð áður í tug-
þraut. Jón Sævar stökk til að
mynda 1.90 m í hástökki og mun
það vera hans bezti árangur í
þeirri grein.
Björn Blöndal kláraði nú i
fyrsta skipti allar tíu greinar
þrautarinnar og varð í þriðja sæti
í keppninni. Fékk Björn 5550 stig
og verður að teljast góður árang-
ur hjá þrítugum í fþróttamanni,
sem hóf að æfa frjálsar iþróttir
fyrir tveimur arum og hefur
aldrei fyrr kastað spjóti eða
stokkið stangarstökk.
Alls voru 16 keppendur skráðir
til tugþrautarkeppninnar, en
þrír mættu ekki og fimm hættu
keppninni.
Guðni Halldórsson hefur sýnt miklar framfarir f kúluvarpinu að
undanförnu.
Úrslit í tugþrautinni
10(1 m langst. Kúlin. hást. 400 m grinri. kringluk stangarst. spjótk. 1500 m stk;
Elías Sveinsson KR 11.2 6.17 13.75 1.85 54.3 15.5 38.86 3.50 49.50 6:23.6 6274
Jón Sævar Þórðarson tR 11.5 6.24 11.17 1.90 53.0 16.0 29.48 3.10 36.74 5:08.1 5909
Björn Blöndal KR 11.4 6.07 11.32 1.75 54.1 16.6 30.38 2.80 37.65 5:22.9 5550
Einar Oskarsson UBK 12.1 5.69 10.19 1.75 54.6 21.0 31.76 3.40 47.29 4:35.7 5518
Bjarki Bjarnason Aftureld. 12.1 5.88 9.54 1.65 55.3 20.3 31.04 2.60 30.85 4:27.4 4978
Úrslit í fimmtarþrautinni
100 m grinri 1 Kúluvarp llástökk 1 Langstökk 200 m hlaup í'rslit
Ingunn Einarsdóttir IR 14.3 8.78 1.60 5.26 25.0 3751
Erna Guðmundsdóttir Ármanni 14.6 8.63 1.50 5.35 26.6 3486
Kristfn Björnsdóttir UBK 17.2 9.21 1.50 4.80 29.0 2970
Þórdfs Gfsladóttir ÍR 16.1 5.99 1.63 4.43 27.7 2913
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir A 19.0 6.61 1.55 4.35 28.0 2647
Meiðsli hrjá Ólympínfaraua
Stefán kominn úr tveggja mánaða æfingaferð
STEFÁN Hallgrímsson tugþrautarkappi kom til landsins á föstudaginn eftir að hafa
dvalið við æfingar og keppni á Spáni og í Þýzkalandi í tvo mánuði. Stefán lét vel af
dvölinni ytra og er að sögn í mjög góðri æfingu. Meiðsli í olnboga há honum þó
talsvert og hefur hann sakir þeirra ekki enn getað æft spjótkast sem skyldi, en
vonast til að geta hafið æfingar í þeirri grein og síðan keppni innan skamms.
Víðavangshlaup Kópavogs
Vfðavangshlaup Kópavogs fór fram á sunnudaginn og sigraði Agúst
Gunnarsson á 19:18 mín, en vegalengdin sem hlaupin var var rúmlega
5 km löng. t iiðru sæti í keppninni varð skíðagöngukappinn Halldór
Matthiasson, en hann mun ætla að æfa frjálsar fþróttir með Breiða-
blik. Þriðji varð sfðan Guðmundur Geirdal, en fleiri luku ekki keppni.
Stefán er einn þeirra þriggja
frjálsíþróttamanna, sem náð
hefur ólympíulágmarkinu. Hinir
tveir eru þeir Hreinn Halldórsson
og Erlendur Valdimarsson.
Hreinn er fyrir nokkru kominn
heim frá Þýzkalandi þar sem
hann æfði í mánuð, en Erlendur
dvelur enn i Þýzkalandi og mun á
næstunni taka þátt í þremur mót-
um á vegum félags þess sem hann
keppir fyrir í Köln.
Kastaði Erlendur rúmlega 56
metra í kringlukasti i síðustu
viku, en meiðsli hafa einnig hrjáð
hann, þannig að árangurinn er
enn ekki eins góður og vænzt
hafði verið miðað við æfingarnar.
Fær Hreinn greitt fyrir þau mót
sem hann keppir í i Þýzkalandi
eins og aðrir sterkir keppendur.
Fyrir mótið í síðustu viku fékk
Hreinn til að mynda 200 mörk,
eða sem nemur tæpum 15 þúsund