Morgunblaðið - 04.07.1976, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚLl 1976
I
*
3
I HLÝJU og góðu sun.ar-
veðri á föstudaginn
héldu starfsmenn Land-
helgisgæzlunnar upp á 50
ára afmæli hennar. Um
borð f varðskipið Ægi
þar sem það lá við
Ingólfsgarð streymdu yf-
irmenn Gæzlunnar
ásamt eiginkonum sín-
um og boðsgestum og tók
á móti þeim Sigurður
Árnason skipherra. í til-
efni dagsins var glösum
lyft og menn og konur
spjölluðu saman um
reynslu liðins vetrar, og
síðasta eða síðustu
þorskastríð.
Morgunblaðsmenn litu
við í Ægi og hittum við
fyrst að máli í matsal
skipsins Hjalta
Sæmundsson loftskeyta-
mann og konu hans,
Jenný Einarsdóttur.
Hjalti var loftskeytamað-
ur á Óðni en síðan á flug-
vélinni.
ÓNOTALEGAR AÐFERÐIR
Hvers minnist þú helzt úr
þorskastríðinu?
„Manni er helzt minnisstætt
þegar verið var að sökkva skip-
unum, maður varð vitni að þvi
úr flugvélinni að sjá aðferðir
herskipanna gagnvart varðskip-
unum. Þau eru svo miklu stærri
en varðskipin að það var ónota-
legt að sjá þau eigast við.
Núna eftir samningana er
þetta að færast í allt annað
horf, meiri skriffinnska og
störfin nú eru fólgin í stífu
eftirliti með skipunum. Það er
eiginlega ótrúlegt að engum
mannskap skuli hafa verið bætt
við. Við þurfum að fylgjast með
veiðum hátt í 200 erlendra
skipa auk hinna íslenzku og at-
huga veiðarfærin."
Við spurðum eiginkonu hans
hvernig henni hefði liðið með-
an landhelgisdeilan stóð yfir.
„Ég er fegin því að hafa haft
hann i landi mest allan timann,
maður er hálfhræddur, jafnvel
þótt ekkert stríð sé. Það er
meira lagt á sjómannskonu,
hún þarf að annast ýmsar út-
réttingar fyrir heimilið og sjá
um það sem maðurinn mundi
annars gera. Uthaldið hjá þeim
er yfirleitt 2—3 vikur og getum
við ekki rætt við þá nema þeir
komi einhvers staðar í land og
hringi.“
Dóra Magnúsdóttir er gift
loftskeytamanninum á Baldri
og er maður hennar nýbyrjaður
störf hjá Landhelgisgæzlunni:
„Mér finnst þetta bara allt í
lagi, hann hefur verið áður á
sjó, maðurinn minn, en síðustu
10 árin unnið I landi. Við erum
eiginlega að átta okkur á
þessu,“ sagði Dóra er við spurð-
um hana hvernig það legðist í
hana að maður hennar starfaði
á varðskipi. Þá var hún spurð
hvort hún væri í félagi aðstand-
enda og eiginkvenna landhelg-
isgæzlumanna:
„Eg er nú ekki félagi þar enn
og ég hef ekki kynnzt starfsemi
þess neitt. Maður þekkir svo
fáa hér, en ég gerist sennilega
meðlimur innan tiðar."
Þótt Ægis sé ekki stórt skip
voru þrengsli um borð ekki svo
mikil, því að fólkið dreifðist um
allt skipið. í þyrluskýlinu hitt-
Rætt við varðskipsmenn og eigin-
konur þeirra í tilefni 50 ára af-
mælis Landhelgisgæzlunnar
um við fyrir þrjá bátsmenn og
lögðum fyrir þá spurninguna
hvort þeir fyndu einhverja
breytingu eftir að þorskastríði
lauk.
VANTAR SKIP
Ólafur Þór Ragnarsson báts-
maður á Tý: ,Æg hef nú ekki
fundið neina breytingu, mér
hefur alltaf liðið vel og geri það
enn. Annars get ég ekki dæmt
um það því ég fór i frí um það
leyti, sem samningarnir voru
gerðir og okkur finnst þetta
eiginlega hálfgerðir svikasamn-
ingar.“
Steinar Clausen bátsmaður á
Baldri: „Það leggst vel í mig að
Starfsmenn Landhelgisgæzlunnar og boðsgestir stlga um borð í Ægi.
Við spurðum Þórunni um Ýr,
félag eiginkvenna og aðstand-
enda varðskipsmanna.
„Tilgangur félagsins er að
tala um störf þeirra á varðskip-
unum og hlaupa undir bagga
fjárhagslega ef einhverjir
erfiðleikar koma upp hjá fjöl-
skyldu varðskipsmanna. Ég
hygg að eiginkonur skipshafnar
Þórs eigi mestan þátt í stofnun
þessa félags, en Þór lenti senni-
lega í flestum árekstrunum á
tímabili a.m.k."
ENGIN HRÆÐSLA
Til að aðstoða fólk við að
komast um borð í Ægi og fleira
þess háttar var m.a. hásetinn
Ólafur Hjartarson. Hann sagði
að hann hefði verið á Ægi frá
því um áramót og hann kynni
mjög vel við sig. Hans staður á
skipinu þegar átök áttu sér stað
var aftur á dekki og var hann
þar þegar siglt var sem harka-
legast á Ægi. Ekki sagði hann
að hræðsla hefði gripið sig við
árekstrana, þeir gerðust svo
fljótt að menn hefðu ekki í
raun og veru tíma til að verða
hræddir.
MARGFALT AFMÆLI
Þegar leið að lokum göngu
Morgunblaðsmanna um varð-
skipið Ægi hittum við fyrir
Bjarna Magnússon, yfirvél-
stjóra. Bjarni sagðist hafa
byrjað á varðskipinu Þór fyrir
25 árum og væri mikil breyting
að vinna í vélarrúmi Ægis.
Hægt væri að stjórna vélum
skipsins úr brúnni ef þess væri
óskað og allir mælar og annað,
sem fylgjast þyrfti með, væri í
sérstökum stjórnklefa í vélar-
rúminu. Hann kvaðst kunna vel
við sig á sjónum og sagði að
kona sín væri vön að um-
gangast sjómann þar sem faðir
hennar hefði verið skipherra á
varðskipi. Þess má geta að um
leið og Bjarni heldur upp á 50
ára afmæli Landhelgis-
gaézlunnar á hann 25 ára starfs-
afmæli og verður sjálfur
fimmtugur á morgun.
Fleiri starfsmenn Land-
helgisgæzlunnar voru ekki
teknir tali að sinni þennan af-
mælisdag og þess má geta að
lokum að sumir höfðu orð á því
að þeim þætti undarlegt að
hásetum og öðrum undirmönn-
um skyldi ekki vera boðið til
þessa hófs og gætu hlotið sinn
skerf af því þakklæti sem boðs-
gestir hefðu fært starfs-
mönnum Landhelgisgæzlunnar.
Bjarni Magnússon yfirvél-
stjóri.
Ólafur Hjartarson, háseti á
Ægi.
stríðið skuli vera búið þótt
samningarnir séu ekki til fyrir-
myndar. Við þekkjum það vel,
sem stöndum i þessu og það
væri eiginlega réttara í sam-
bandi við veiðiheimildirnar, að
togarar biðu við 200 mílna
mörkin og skiptu þar, í stað
þess að vera komnir á veiði-
svæðið og byrja veiðar strax og
hinir hífa. Gæzlan hefur ekki
skip til að anna þessu öllu.“
Við lögðum þá spurningu fyr-
ir Ómar Karlsson bátsmann á
Ver, hvaða störfum bátsmaður
gegnir.
„Hann er eins konar tengilið-
ur á milli stýrimanna og háseta,
og er daglegur verkstjóri á
dekki. Þessa túra sem ég fór
með Ver var ég t.d. á spili þegar
klipping fór fram.“
Ómar kvaðst vera fjölskyldu-
maður og ekki hafa fundið svo
fyrir spennu í áfökunum, það
kæmi eins fram eftir á. Hann
sagði að núna væri hann á Ár-
vakri og væri það rólegt, þeir
væru aðallega í vitamálningu
og fleiru þess háttar.
EKKERTSAMBAND
I 2 — 3 VIKUR
Þarna í þyrluskýlinu rædd-
um við einnig við tvær eigin-
konur varðskipsmanna, þær
Höllu Agústsdóttur eiginkonu
Ingvars Kristjánssonar vél-
stjóra á Þór og Þórunni Hall-
dórsdóttur en hennar maður er
bátsmaður á Óðni.
Halla sagði að liðanin hefði
ekki verið góð meðan á átökun-
um stóð, túrarnir væru 2 vikur
minnst og þá heyrðu þær ekk-
ert frá mönnum sínum, nema
það sem kæmi I blöðum. Eina
sambandið sem þær gætu haft
við þá væri með skeyti, og þeir
aðeins hringt væru þeir i landi.
Hún sagðist vera öruggari nú,
túrarnir væru e.t.v. styttri en
þó að þeir stoppuðu kannski 4
daga I landi þyrftu þeir að
standa vaktir í skipinu í 2 daga.
Halla Ágústsdóttir og Þórunn Halldórsdóttir.
Bátsmennirnir þrfr: Steinar Clausen, Ólafur Þ. Ragnarsson og
Ótnar Karlsson.
Hjalti Sæmundsson, Jenný Einarsdóttir t.v. en til hægri sitja Dóra
Magnúsdóttir og maður hennar.
„Ósköp gott að hafa þá í landi”