Morgunblaðið - 04.07.1976, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 04.07.1976, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. JÚ'LI 1976 37 Guðrún Sigurðar- dóttir—Minning Fædd 19. nóv. 1918. Dáin 27. júní 1976. Á morgun, mánudaginn 5. júlí verður gerð frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði útför Guðrúnar Sig- urðardóttur, húsmóður, Hverfis- götu 19b, Hafnarfirði. Guðrún eða Rúna eins og hún var ávallt kölluð í vina og skyld- menna hópi var fædd að Brekkum í Holtum 19. nóvember 1918, dótt- ir hjónanna Sigurðar Gíslasonar, bónda þar, og konu hans, Elínar Sigurðardóttur. Þriggja ára missti hún föður sinn og fluttist þá að Meiritungu í Holtum til hjónanna Þorsteins Jónssonar og Þórunnar Þórðardóttur og ólst hún þar upp að miklu leyti undir handarjaðri ömmu sinnar, Jóhönnu Árnadótt- ur, sem þar dvaldist og var Rúnu bæði mamma og amma. Síðar, er Rúna hafði stofnað eigið heimili í Hafnarfirði, dvaldi Jóhanna lang- dvölum á heimili hennar. Rúna vandist öllum venjulegum sveita- störfum í æsku og var í Meiri- tungu til 16 ára aldurs og jafnan á sumrum næstu árin, en á vetrum vann hún ýmis störf í Reykjavík. 11. janúar 1941 gekk hún að eiga eftirlifandi eiginmann sinn, Kristján Símonarson, flugumferð- arstjóra, og festu þau kaup á litlu húsi við Hverfisgötu 19b í Hafnar- firði, þar sem þau bjuggu allan sinn búskap. Þau hjónin eignuðust þrjár dætur: Jóhönnu Kolbrúnu, sem gift er Reyni Jónassyni, hljómlist- armanni, Hrafnhildi, hennar mað- ur er Jón Marinósson, fulltrú hjá IBM-umboðinu, og Steinþórunni, sem gift er Kristjáni Haukssyni, vélvirkjatækninema. Þá ólu þau upp eina fósturdóttur Rúnu Lísu, sem nú er 17 ára. Auk hennar eiga þau 5 barnabörn. Eins og áður sagði bjuggu þau Rúna og Kristján allan sinn búskap í Hafnarfirði og fyrir um það bil 15 árum breyttu þau og endurbyggðu hús sitt og áttu þar yndislegt heimili, þar sem mynd- arskapur húsmóðurinnar kom glöggt í ljós. Rúna var mikilhæf húsmóðir og var sístarfandi að heill og hamingju fjölskyldu sinn- ar. Þau Rúna og Kristján voru mjög samrýnd og hjónaband þeirra mjög ástsælt. Þau höfðu mikið yndi af ferðalögum og ferð- uðust mikið bæði innanlands og utan. Gestrisni þeirra var við- brugðið og gaman að sækja þau heim og aldrei leið Rúnu betur en þegar hún var með fullt hús af gestum, eða þegar hún gat veitt þurfandi hjálparhönd. Meginþátt- urinn í lundarfari hennar var þó félagslyndi og alls staðar var hún hrókur alls fagnaðar, hvort sem var á spilakvöldum, dansleikjum eða L þröngum hópi innan eða utan fjölskyldu. Rúna var heilsu- hraust alla ævi og þvi kemur hið A lexía Pálsdótt- ir—Kveðjuorð Fædd 29. mí 1900 Dáin 20. júní 1976. Tengdamóðir mín, Alexía Páls- dóttir, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mánudaginn 5. júlí. Hún lézt eftir skyndilegt hjartaáfall i Landakotsspítala 20. júní síðast liðinn. Þannig endar leið okkar allra fyrr eða síðar. Enda þótt hún væri nýlega orðin 76 ára gömul bjóst enginn við dauða hennar svo skyndilega og þó líklega allra sízt hún sjálf. Alexía fæddist 29. mai 1900 í Reykjavík og átti heima þar alla tíð. Foreldrar hennar voru hjónin Guðlaug Ágústa Lúðvígsdóttir, ættuð úr Reykjavik og Páll Haf- liðason, skipstjóri frá Gufunesi. Hún giftist Lúðvik Sigmunds- syni járnsmið 19. september 1925 og eignuðust þau 6 börn, sem öll eru á lífi. Hjónaband þeirra var sérlega gott og hjónin samhent, en hún varð fyrir þeirri miklu sorg að missa mann sinn árið 1947, aðeins 43 ára gamlan. Börn- in tiovm Kó n nM vinn m 1 O Of\ óro og öll i námi og urðu næstu árin henni og börnum hennar ákaflega erfið, en með mikilli eljusemi og dugnaði og ýtrustu sparsemi tókst henni að halda heimili fyrir börn sín og styðja þau til náms. Á þess- um erfiðu árum reyndi mjög á þolinmæði hennar og stjórnsemi til að endar næðu saman, en með góðu samstarfi við börnin tókst að komast yfir þennan erfiða hjalla. Á þessum tíma hóf hún einnig vinnu utan heimilis til að drýja tekjur þess og vann hún síðan við ýmis störf, bæði verzlunarstörf og matreiðslustörf fram á síðustu ár. Alexía átti því láni að fagna að halda góðri heilsu mestan hluta ævinnar. Hún fékk hjartaáfall fyrir nokkrum árum, en virtist ná sér vel eftir það. Það eina sem hrjáði hana var augnsjúkdómur, sem gerði vart við sig fyrir um það bil 10 árum og ágerðist með aldrinum. Hún var dul að eðlis- fari og leyndi því lengi hvað augn- sjúkdómur hennar var kominn á hátt stig og var hún því sem næst blind, er hún gekkst undir augn- aðgerð í London fyrir tæpum 2 árum. Aðgerðin tókst betur en nokkur þorði að vona og náði hún með timanum svo góðri sjón að hún gat lesið og unnið fíngérð- ustu handavinnu, sem hún hafði ekki getað í mörg ár. Þessi síðustu ár reyndust henni þvi dýrmætari og ánægjulegri en hún hafði átt lengi og hefði þessi tími svo sannarlega mátt vera lengri. Þó má það teljast mikil gæfa að geta haldið sínu starfsþreki svo að segja allt til hinztu stundar. Þrátt fyrir háan aldur er hún lézt, bar útlit hennar þess ekki merki, þar sem hún var ávallt mjög ungleg. Hún var mikil að mannkostum og drengskap og alltaf boðin og búin að rætta hjálparhönd ef til hennar var leit- að, um það ætti undirrituð að geta borið vitni, þvi að við bjuggum ýmist saman eða i nábýli í rúm- lega tvo áratugi. Alexia var mikil verkmann- eskja að hverju sem hún gekk og þar sem börnip voru mörg og barnabörnin fjölmörg var alla tíð mjög fjölmennt á heimili hennar, en hún hafði mikið yndi af öllu heimili hennar alla tíð vott um reglúsemi og snyrtimennsku. Við sem þekktum hana bezt og vorum mest með henni þökkum henni löng og góð kynni og send- um henni alúðarþakkir fyrir allar samverustundirnar. , Megi friður GuAs vera með henni. hún þá í fóstur að Meiritungu, hjá hjónunum Þorsteini Jónssyni og Þórunni Þórðardóttur. Þar til heimilis var og amman, Jóhanna, móðir hins látna föður, og telp- unni alltaf svo kær. Til 16 ára aldurs elst svo Rúna þar upp, og eitthvað lengur er hún á þessu heimili, þótt ekki væri það óslitin dvöl. Hinn 11. jan. 1941 1941 giftist Guðrún eftirlifandi manni sínum Kristjáni Simonarsyni flug- umferðarstjóra, sem er innfædd- ur Hafnfirðingur. Hin ungu hjón festu sér til eignar húsið Hverfis- götu 19 B þar í bæ, og hafa átt þar heimili síðan. Hafa því þessi hjón verið næstu nágrannar okkar i 35 ár. Við erum búin að eiga margar góðar og glaðar stundir á heimili þeirra, svo sem í afmælum dætranna þeirra þriggja, meðan ungar voru, Kolbrúnar, Hrafn- hildar og Steinþórunnar, sem all- ar eru nú giftar og koma nú orðið sjaldnar á Hverfisgötu 21 B en áður var. Öllum þeim blessuðum systrum og þeirra börnum vottum við inni- legustu samúð, og ekki síður föður þeirra, eftirlifandi eigin- manninum. Við kveðjum góða grannkonu, með þökk fyrir 35 ára indæl kynni. Alfaðir veiti henni allt. sem bezt má verða í eilífðar heimkynnum. Halla og Jón. óvænta andlát mjög á óvart öllum, sem hana þekktu, en ekki er mér grunlaust um, að hún hefði helst kosið að fara á þennan hátt, hefði hún mátt einhverjú um ráða. Við andlát hennar er skarð fyr- ir skildi og vil ég fyrir mína hönd, fjölskyldu minnar, starfsfélaga Kristjáns, ættingja og vina votta honum og fjölskyldu hans innileg- ustu samúð okkar allra og biðja þann, sem öllu ræður, að styrkja þau á sorgarstundu. Guð blessi minningu hennar. A.Þ.Þ. Övænt og fyrirvaralaust bar það til, að okkar góða, glaðværa og hraustlega vinkona var hrifin burt úr jarðlífinu. Utför hennar fer fram frá Fríkirkjunni i Hafnarfirði á morgun, mánudag- inn 5. júlí. Guðrún var fædd að Brekkum í Holtum, 19. nóv. 1918. Voru foreldrar hennar hjónin Sigurður Gíslason og Elín Sigurðardóttir, þá búandi þar. Hún var aðeins þriggja ára er faðirinn lézt. Fór MUdð tap á tryggmgum bifreiða og fiskiskipa AÐALFUNDUR 57. starfsárs Sjóvátryggingafélags Islands hf., var haldinn 24. júní s.l. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri, flutti skýrslu um starfsemi félags- ins og skýrði reikninga þess og kom þar fram að heildar iðgjalda- tekjur félagsins námu 1305 millj- ónum króna á árinu 1975 og höfðu aukizt um 59% frá árinu 1974. Heildartjón ársins nam 1332 milljónum króna og tjónabætur og önnur útgjöld fóru hraðvax- andi á árinu vegna hinnar öru verðbólguþróunar. Mikið tap varð á bifreiðatryggingum og trygging- um fiskiskipa og tap á heildar- rekstri nam 13.8 milljónum króna. Tryggingasjóður félagsins, þ.e. iðgjalda-, bóta- og áhættusjóð- ur, nam i árslok 832 milljónum og hafði hækkað um 236 milljónir frá árinu áður. Hlutverk þessa sjóðs er fyrst og fremst að mæta óuppgerðum tjónum frá árinu '75 og fyrri árum. Stjórn félagsins skipa nú Sveinn Benediktsson formaður, Agúst Fjeldsted varaformaður, Björn Hallgrímsson ritari, Ingvar Vilhjálmsson og Teitur Finnboga- son. Framkvæmdastjórar félags- ins eru Sigurður Jónsson og Axel Kaaber. kbrndum rl IÍf Kerndum, Kotlendiy ffr-i iuiu.i LANDVERIMD CROWN Verð 9.733 Verö 12.892 •s*..y°L , < ♦ tW „6* 6 8 10 1416 km* * Mtt 88 96 102 108 MHz * TUN5NI3 O Pí Verö 125.315 8 rása stereol Asa Þorgeirsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.