Morgunblaðið - 09.07.1976, Blaðsíða 1
36 SIÐUR
147. tbl. 63. árg.
FÖSTUDAGUR 9. JULÍ 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Níu þúsund
biðu bana í
landskjálfta
Djakarta. 8. júlí. AP. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 9.000 manns
hafa farizt f jarðskjálftum og
skriðuföllum á vesturhluta Nýju
Guineu að sögn félagsmálaráð-
herra Indónesfu í dag.
17 þorp að minnsta kosti
hrundu og hætta er á nýjum
skriðuföllum. Ráðherrann kvað
nauðsynlegt að flytja burtu
15.000 manns sem komust lffs af.
Svæðið er hins vegar hrjóstr-
ugt, flugvélar geta ekki lent þar
og bifreiðar komast þangað ekki.
Ráðherrann sagði að erfitt yrði að
flytja þénnan mikla fjölda með
þyrlum. Ef fólkið fer fótgangandi
til að fá hjálp tekur ferðin tíu
daga.
Jarðskjálftinn mældist 7.2 stig
á Richters-kvarða og var því öfl-
ugri en jarðskjálftinn sem varð á
Norður-ítalíu í maí.
Sovézku geimfararnir Boris Volynov og Vitaly Zholobov.
Stefnt að
metdvöl í
Salyut-5
Moskvu, 8. júlí. Reuter.
SOVÉZKU geimfararnir Boris
Volynov og Vitaly Zholobov virð-
ast búa sig undir langa dvöl f
geimstöðinni Salyut-5 eftir teng-
ingu Soyuz-21 við það.
Þeir notuðu fyrsta daginn f
geimstöðinni til þess að athuga
hvort allt væri í lagi með tækin
sem þeir eiga að nota til rann-
sókna á veðurfari og kennileitum
á jörðu niðri.
Seinna tilkynntu þeir að öll
tækin um borð f Salvut störfuðu
eðlilega, að lfðan þeirra væri góð
og vel færi um þá í stöðinni.
Hægt er að tengja tvö geimför
við Salyut-5 og þvi er talið
hugsanlegt að annað Soyuz-far
verði sent til geimstöðvarinnar
með súrefni og vistir handa á-
höfninni.
Kristnir hermenn hefja
harða sókn 1 Líbanon
Tveir sovézkir geimfarar voru
63 daga um borð í geimstöðinni
Salyut-4 i fyrra en Bandaríkja-
menn eiga dvalarmetið i geimn-
um sem er 84 dagar og var sett
1974.
Talið er að Rússar vilji hnekkja
þessu meti og að Volynov og Zhol-
obov verði sem lengst i Salyut til
að afla aukinnar vitneskju um
áhrif þyngdarleysis.
Beirút, 8. júlí. AP. Reuter.
KRISTNIR falangistar hófu
harða gagnsókn gegn Palestinu-
mönnum og vinstrisinnum á norð-
urvfgstöðvunum í Lfbanon í dag
og þar með virðist sóknin sem
Palestfnumenn gerðu til að draga
úr þunga árásanna á flóttamann-
búðir þeirra nálægt Beirút hafa
farið út um þúfur.
Falangistar segja að þeir hafi
tekið bæinn Amiouh, höfuðstað
Koura-héraðs, mörg sveitaþorp og
hafnarbæinn Chekka þar sem
harðir bardagar hafa geisað und-
anfarna daga.
Vestrænir fréttamenn segja að
kristnir menn hafi sótt inn i einn
mikilvægasta bæ vinstrisinna,
Enfe, sem er við veginn meðfram
ströndinni og 16 km suður af Tri-
Flóttinn þurfti
ekki að takast
Vestur-Berlín,
8. júlf. Reuter.
DÓMSYFIRVÖLD í Vestur-
Eerlfn fengu viðvörun með 10
tíma fyrirvara um flótta kvenn-
anna fjögurra úr kvennafangels-
inu f borginni að þvf er frá var
skýrt f dag. Upplýsingunum var
strax komið á framfæri við örygg-
isyfirvöld, en á það er bent að
slíkar viðvaranir séu algengar.
Maður nokkur hringdi f dóms-
málaráðuneyti borgarinnar og
sagði: „Þetta er 2. júnf hreyfing-
in. Við munum bjarga föngunum.
Oxfort (dómsmálaráðherra borg-
arinnar) verður drepinn."
Lögreglan telur að konurnar
hafa fengið hjálp innan og utan
fangelsismúranna. Tvær þeirra,
Inge Viett og Juliane Plambeck,
eru ákærðar fyrir þátttöku í ráni
stjórnmálamannsins Peter Lorenz
í fyrra. Ungfrú Viett flýði úr
sama fangelsi 1973, lék lausum
hala í tvö ár og var ein gíslanna
sem flugvélarræningjarnir á Ent-
ebbe-flugvelli vildu fá leysta úr
haldi.
Hinar konurnar eru Gabriele
Rollnick sem var handtekin fyrir
stuðning við hreyfinguna og Mon-
ika Berberich sem afplánaði 12
ára dóm fyrir bankarán á vegum
Baader-Meinhof-samtakanna.
Lögreglan er enn ekki viss um
hvaða leið þær flúðu en telja að
þær séu enn í felum f borginni.
Hermann Oxfort dómsmálaráð-
herra telur að þær hafi ekki haft
tíma til að komast til Austur-
Þýzkalands áður en landamæra-
stöðvum var lokað.
poli, aðalvigi múhameðstrúar-
manna í norðri.
Kristnir menn segjast staðráðn-
ir að taka Enfe til að treysta varn-
ir Chekka sem er nokkrum kiló-
metrum sunnar og við djúpan flóa
sem þeir segja að yrði bezta skipa-
lægið ef Líbanon yrði skipt og
kristið riki sett áfót.
Fréttamennirnir segja að
kristnu hermennirnir sæki
fram og afvopni vinstrisinna í
þorpum á 10 km breiðri viglínu
frá Enfe til Amiouh en mæti
harðri andspyrnu palestínskra
skæruliða og vinstrisinna sem
styðja þá.
Sóknin miðar einnig aö því að
treysta yfirráð kristinna manna
yfir veginum frá Amiouh til Zag-
harta, nyrzta bæjarins á yfirráða-
svæði kristinna manna og heima-
bæjar Sulieman Franjieh forseta.
Falangistar beita stórskotaliði
og spánnýjum brynvörðum bílum.
Chekka féll í skyndiárás Palest-
inumanna á mánudag en kristnir
menn náðu bænum aftur þegar
þeir hófu gagnsóknina.
I flóttamannabúðum Palestinu-
manna í Austur-Beirút, Tal Zatar,
halda skæruliðar og vinstrisinnar
áfram að veita mótspyrnu þótt
hún sé talin vonlaus. Rauði kross-
inn sendi hjúkrunargögn með
flugvélum til Beirút i dag og þær
lentu á flugvellinum þótt hann
hafi verið lokaður.
Tenging Soyuzar og Salyuts
tókst svo vel að sagt er að engar
tengingar i geimnum hafi gengið
eins fljótt og snurðulaust. Það
þykir renna stoðum undir þá
skoðun að Rússar reyni eitthvað
nýtt afrek.
Óvissuástandi
spáð á Spáni
Madrid, 8. júlí.
Reuter. AP.
NÝ STJÓRN lltt þekktra manna
tók við á Spáni i dag og framtiö
hennar er talin óviss. Adolfo Su-
arez forsætisráðherra segir að til-
gangur stjórnarinnar sé að undir-
búa þingkosningar og Andres
Reguera Guajardo upplýsingaráð-
herra sagði blaðamönnum: „Við
erum bráðabirgðastjórn og höf-
um Iftinn tfmatil stefnu."
Þar sem Jose Maria de Areilza
fyrrverandi utanrikisráðherra og
Manuel Fraga fyrrverandi innan-
ríkisráðherra neituðu að taka
sæti i stjórnjnni segja stjórnar-
andstæðingar að hæfustu menn-
ina vanti i hana, en aðrir segja að
nýja stjórnin geti reynzt samhent-
ari en sú fyrri. Meðalaldur ráð-
herranna er 50 ár eða lægri en
ráðherra nokkurrar fyrri stjórnar
og frjálslyndasti ráðherrann er
talinn Marcelino Creja utanríkis-
Framhald á bls. 20
Amin veit ekkert um
sjúka ísraelska konu
London. 8. júlí. AP. Reuter.
BREZKI sendiherrann í Uganda,
James Hennessy, sneri aftur til
Uganda í dag úr leyfi i Bretlandi
til að reyna að hafa upp á 73 ára
gamalli brezk-fsraelskri ekkju,
frú Doru Bloch — eina gfslinum
sem fsraelsku vfking'asveitunum
tókst ekki að bjarga í árásinni á
Entebbe-flugvöll.
Hennessy sagði í kvöld að hann
hefði enn ekkert svar fengið frá
Ugandamönnum við fyrirspurn
sinni um hvar frú Dora Bloch
væri niðurkomin. Hann kvaðst
hafa farið í utanríkisráðuneytið
og sagði að hann mundi halda
áfram að kref jast svars.
Fú Bloch ferðaðist á brezku
vegabréfi og var flutt í sjúkrahús
i Kampala tveimur dögum fyrir
árásina. Þar heimsótti hana
brezkur fulltrúi 12 klukkustund-
um eftir árásina en var meinað
inngöngu þegar hann kom aftur
einum tíma síðar með mat handa
henni. Hennessy staðfesti þetta
Og sagði að hún hefði ekki sézt
síðan.
Framhald á bls. 20
Frú Dora Bloch