Morgunblaðið - 09.07.1976, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.07.1976, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JULI 1976 5 ÞANN 4. þ.m. birtist i Morgun- blaðinu grein eftir Helga Hálfdanarson undir heitinu Borgin mikla. Ekki mun ég fjalla hér um aðalefni þeirrar greinar, né neitt af því sem þar er eftir mér haft, heldur aðeins drepa á örnefnið Kermóafoss. I nefndri grein segir H.H. að margræð og skemmtileg óvissa hjúpi þetta nafn og auki á gildi þess. Þó virðist hann telja einna líklegast, að orðliðurinn „ker“ merki laxakista og vitnar þar í Grágás. Ekki skal ég vef- engja þá skýringu, en vil þó benda á aðra, sem mér þykir öllu sennilegri. Norska orðið ,,kjerr“ merkir kjarr, og „kerr“ gæti verið fyrirrennari íslenzka orðsins „kjarr". Að vísu munu heimildir fáorðar um „ker“ sem íslenzkt orð i þeirri merk- ingu. Þó verður ekki annað séð en „kerr“ komi fyrir á einum stað i texta Fagurskinnu, ef trúa má orðabók Heggstads. Hafi „kerr“ verið til I islenzku máli fornu og merkt kjarr, gæti það sem bezt verið fyrri liður- inn i Kermóar. Og hvað ætti „ker“ að merkja i nöfnunum Víðiker og Kerhólar annað en kjarr? Því mun víst vera ósvar- að. En allt um það dettur mér í hug, að Kermóafoss kunni að draga nafn af kjarri vöxnum móum, sem eflaust hafa verið þar i grennd öldum saman. Örnefni þetta bar á góma i spjalli okkar H.H. skömmu áður en hann birti fyrr nefnda grein. Þá hafði ég orð á því við hann, að það myndi ef til vill dregið af kjarri. Virtist mér hann þá fallast á röksemdir mínar. Þó lætur hann þær sem vind um eyru þjóta I grein sinni. Hver skyldi vera skýring hans sjálfs á því? Reykjavík, 7. júli 1976, Magnús Björnsson. Hljóða- kort af landi oglýð í ÁGÚST n.k. kemur hingað til lands Breti að nafni Tony Att- wood, sem starfar við svokallaða Listasmiðju f ræðslumálaráðs Lundúnaborgar. Hann ætlar að ferðast um sveitir landsins með segulbandstæki og taka upp hljóðin, sem náttúra þess og íbú- ar gefa frá sér. Tilgangurinn er að búa til allra fyrsta ..hljóðakortið" af landinu Hvinir hveranna, fuglasöngur, skriðjöklaskruðningur og syngjandi mannsraddir verður fest á band, sem síðar verður notað í verkefni listasmiðjunnar fyrir unglinga Þeim verður gert að túlka sitt eigið hljóðumhverfi eftir að hafa heyrt upptökuna. Auk þess vonast Att- wood til að geta selt hljómplötufyr- irtæki hljóðin. Væntanlegir íslands- farar myndu þá geta keypt n.k hljóðvísi um landið á plötu. ,,Við notum heyrnarskynið afar mikið," segir Attwood ,,Það er kominn tími til að tilraunir verði gerðar með svona hljóðakort " URVAL... ■ ... af sportfatnaði!! □ DENIMBUXUR □ DENIMVESTI □ DENIMSKYRTUR ] DENIMBLÚSSUR □ DENIMHETTUBLÚSSUR □ SKYRTUR □ ÁPRENTAÐIR BOLIR □ DENIMMUSSUR □ DENIMKJÓLAR □ DENIMJAKKAR □ STUTTERMA JERSEY SKYRTUR □ FROTTESKYRTUR □ FLAUELISSKYRTUR DBOLIR GEYSI MARGAR GERÐIR □ NYLON STUTTJAKKAR □ KICKERS-DÖMU- OG HERRASKÓR MEÐ STÓRRIFFLUÐUM BOTNUM ] NÝ STÓRKOSTLEG HLJÓMPLÖTUSENDING

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.