Morgunblaðið - 09.07.1976, Side 7

Morgunblaðið - 09.07.1976, Side 7
J MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 1976 Hér á eftir verður tek- inn stakur steinn af víða vangi dagblaðsins Timans í gær. Orðrétt segir í blað- inu (kaflafyrirsagnir eru og Tímans): Matthías dansar Matthías Johannessen er gott skád, bæði i óbundnu og bundnu máli. Hin mikla og frjóa skáld- skapargáfa hans veldur hins vegar þvi, að hann á oft erfitt með að komast að efninu. Hann hagar sér þó stundum ekki ólíkt og Ali hnefaleikakappi, sem dansar i kringum and- stæðing sinn, þeaar hann er ýmist hræddur við hann eða getur ekki hitt hann. Á sama hátt dansar Matthías oft með miklum léttleika i kringum aðal- atriði málsins, og skrifar stundum margar Morgun- blaðsíður, án þess að koma nærri því. Þennan dans iðkar Matthias með engu minni léttleika en Ali í Stak- steinum Mbl. í gær, þegar hann er að svara fyrir- spurn Timans um hver það sé, sem Mbl. hefur verið að dylgja um, en kunni að „kippa í spott- ann" og hindra rannsókn þeirra sakamála, sem nú eru til meðferðar. Dylgjur Mbl. Tilefni þessarar fyrir- spurnar Timans, voru einkum ummæli, sem birt- ust í siðasta Reykjavíkur bréfi Mbl. Þar var komizt svo að orði, að upplýstist ekki um þau sakamál, sem nú eru til rannsóknar, þá muni „fólkið í landinu fyllast tortryggni og efa- semdum i garð þeirra, sem um stjórnvölinn halda, og þá verður erfitt að telja mönnum trú um, að einhver hafi ekki „kippt i spottann", eins og svo oft heyrist, þegar talað er um þessi mál manna á milli." í tilefni af þessum um- mælum Mbl , var bent á það hér i blaðinu, að erfitt væri að skilja þessi um- mæli öðru vísi en að þeim væri beint að dómsmála- ráðherra, en ef svo væri ekki, væri óskað eftir skýringum á þvi, hvað Mbl. ætti við. Þjóðin ætti heimtingu á að vita, hver þessi „einhver" væri, sem Mbl. væri að dylgja um. Hver er „einhver”? í tilefni af þessari fyrir-l ® AVlOfl' ; T! 1 I itpM S|fi spurn Timans, dansar Matthías ótal hringi f Staksteinum Mbl., en þrátt fyrir allan dansinn er þvf alveg ósvarað, hver þessi „einhver" er, sem á að hafa „tekið í spott- ann" og hindrað rannsókn sakamálanna, ef þau upp- lýsast ekki. Með loðnu orðalagi er að vísu reynt að gefa i skyn, að hér sé ekki átt við Ólaf Jóhann- esson, en þó er það hvergi nærri afdráttarlaust. Þjóðin á heimtingu á því, að Mbl. geri fulla grein fyrir því, hver þessi einhver er, sem geti verið líklegur til að kippa i spottann og hindra rann sókn sakamála. Það er ekki nóg að dansa og fela sig bak við „fólkið í land- inu", og segja að það segi þetta. Það minnir aðeins á gömlu konuna, sem var fræg fyrir dylgjur og róg sögur, og bætti oftast við: Ólyginn sagði mér. Enn einu sinni er spurn- ingin til Mbl. endurnýjuð: Hver er þessi „einhver"? Kippt í spottann Matthías telur það óvið- eigandi ummæli um rit- stjóra Mbl. að Geir Hall- grfmsson eða aðrir eig- endur Mbl. geti „kippt í spottann" og ráðið ein- hverju um skrif hans eða Styrmis Gunnarssonar. En hvað finnst Matthiasi þá um aðdróttun Mbl. i garð þeirra rannsóknarmanna, sem fást við að upplýsa hin örðugu sakamál, sem þeir hafa til meðferðar? Er ekki með ummælum Mbl. verið að gefa i skyn, að þeir láti stjórnast af þvi, að kippt sé i spottann og svlkist um að upplýsa málin af þeirri ástæðu. Hér er vissulega vegið að þessum mönnum á hinn ósæmilegasta hátt. Það eru einmitt svona dylgjur útbreiddra fjölmiðla, sem oft hafa átt mikinn þátt i þvi að veikja tiltrú til stjórnvalda og loggæzlu manna og orðið vatn á myllu niðurrifsafla og ein- ræðisflokka. Þetta mætti Matthías íhuga vel áður en hann byrjar næsta dans." Ekki ástæða Morgunblaðið telur ekki ástæðu til sérstakra viðbragða í tilefni framan- birts Timapistils. Hins vegar er rétt að gefa fleiri en lesendum Timans ein- um tækifæri til að lesa og draga ályktanir af því, sem þarna er um fjallað. 24. og 25. Efnt verður til hestamannamóts í Skógarhólum helgina 24. og 25. júlí n k. Auk gæðinga- keppni fara fram kappreiðar, en keppt verður í: 250 m skeiði 250 m unghrossahlaupi 300 m stökki 800 m stökki 1 500 m brokki Skráning kappreiðahrossa fer fram á skrifstofu Fáks milli kl. 14—17, sími 30178 og hjá formönnum hestamannafélaganna til 16. júlí n.k. Veittir verðlaunapeningar í fyrstu 3 sætin í öllum greinum. Veitingasala Tilboð óskast í veitingasölu á Skógarhólamót- inu 1976 og skulu tilboð sendast skrifstofu Fáks fyrir 16. júlí n.k Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fáks v/Elliðaár. Hestamannafélögin Andvari, Fákur, Gustur, Hörður, Ljúfur, Logi, Máni, Sörli ogTrausti. I á T7 L] M J Vörumarkaðurinn Leyft verð Okkar verð OPIÐ TIL KL. 10 Vandaöir og þægilegir fótlaga leóurskór Litur brúnt og svart, hrágúmmísóli. Stæröir 41—45 Verö kr. 6.580 Litur svart og Ijósbrúnt. Stæröir 41—45 Verö 6.080. — Póstsendum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.