Morgunblaðið - 09.07.1976, Side 12

Morgunblaðið - 09.07.1976, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚLI 1976 Svo er að sjá sem áhugi almenn- ings fyrir mannréttindum sínum hafi farið þverrandi hérlends undanfarna áratugi og ber ýmis- legt til. Meðan Danir settu oss lög stóðu menn almennt vel á verði gegn erlendu valdi og voru sammála um að láta löggjafann ekki ganga of langt. Eftir að völd færðust inn í landið töldu menn hættuna liðna hjá og sofnuðu á verðinum. Löggjafarvaldið hefur í vaxandi mæli dregist úr höndum Alþingis til stjórnvalda, þannig að lög og reglur eru ekki ræddar á Alþingi heldur samin af stjórnvöldum, sem sjálf eiga að hlýða eða breyta eftir hinum sömu reglum gagn- vart þegnunum. Árangurinn verð- ur í vaxandi mæli á sömu lund, stjórnvaldið hefur allan rétt, þegnar landsins þverrandi, jafn- vel engan við þessi skilyrði. A þennan hátt verða stjórnvöld einsýnni og einsýnni við samn- ingu laga. Og það er eins og stjórnvöldum nægi ekki löggjaf- arvaldið eitt, heldur reyna þau í vaxandi mæli annaðhvort að draga dómsvaldið til sín einnig, eða a.m.k. bola því út. Eftir því sem stjórnvöld fá meiri völd að sama skapi skerðast oft réttindi almennings. Til þess að skýra mál mitt vil ég taka lítið dæmi, sem mér finnst vel til þess fallið, þar sem það sýnir vel einsýni i lagasmið, óvónduð vinnubrögð og réttinda- leysi, sem við megum eiga von á í vaxandi mæli, ef þessi þróun heldur áfram. Er ekki seinna vænna að menn spyrní vð fótum og taki mál þessi til umræðu. Með „Tilkynningu til inn- flytjenda“ í Lögbirtingarblaðinu 9.12.74 vekur Fjármálaráðuneytið athygli innflytjenda á reglugerð nr. 38 1969 um skyldu inn- flytjenda um að afhenda toll- stjóra fullgild aðflutningsskjöl innan 3ja mánaða frá þvi varan kom til landsins. Þetta er gagnleg regla fyrir tollþjónustu og inn- flytjendur en ekki neinir lífshags- munir, þar sem allra vörusend- inga er getið í farmskrá (manifest). En þegar við litum á seinni hluta „Tilkynningarinnar" sem hefur að geyma viðurlög, sé toll- skjölum ekki skilað tímanlega koma í ljós sönn ólög, sem hljóða svo: „Hafi aðflutningsskjöl eigi ver- ið afhent viðkomandi tollstjóra fyrir þann tíma, sem fyrr greinir, mun ákvæði þessu frá og með næstu áramótum verða framfylgt með stöðvun tollafgreiðslu á öðr- um vörum til sama innflytjanda. án þess að slík stöðvun verði til- kynnt viðkomandi fyrir fram hverju sinni." Allir íslendingar, einstakling- ar, fyrirtæki og stofnanir hafa rétt til innflutnings frílistavarn- ings og eru þetta lögvarin rétt- indi, sem ekki má svipta þá nema með lögum. En með margnefndri „Tilkynn- ingu“ er slikt gert af litlu tilefni. Fyrir þá sem stunda innflutning sem atvinnu þýðir beiting þessa ákvæðis nánast stöðvun atvinnu- rekstrar viðkomandi, sem telja verður til þyngstu viðurlaga og þvingunaraðgerða. Hér er ósam- ræmið algjört. Þyngsta refsing sem atvirinurekstur er beittur, er beitt gegn töf á því að skila inn skjölum. Mann skortir orð yfir þetta fyr- irbæri, dettur helst í hug að kalla það ofurvald. Tel ég slíka reglu brjóta meginstefnu islenzks rétt- ar, og gera mönnum óþolandi áhættu. Byggi ég þessa skoðun mína á efni reglunnar, sem er svo stór- gallað að vart verður talin til rétt- arreglna, óg er reyndar ófram- kvæmanleg. 1. Menn fá ekki tækifæri til að leiðrétta sin mál t.d. ef um mistök hjá tollinum sjálfumer að ræða, eða aðrar löglegar af- sakanir, því tollstjóri þarf ekki að tilkynna viðkomandi lokun- ina fyrirfram. Hér gengur „Tilkynningin'* lengra en reglugerðarákvæðin og er því þegar af þeirri ástæðu einni ólöglegt. Jóhann J. Olafsson: Ólög o g ofurvald 2. Lítil skilyrði er sett tollinum | til þess að beita ákvæðinu. Ef tollskjöl koma ekki fram er einfaldlega lokað fyrir viðkom- andi án hans vitundar. Þegar hann rekur sig á lok- unina er honum fyrst sögð ástæðan. Hvað segir nú „Til- kynningin'' um rétt þolanda i þessu tilviki. Er skylt að veita honum frest til að athuga mál- ið og ráða bót á? Nei. Segir að hann megi áfrýja ákvörðuninni til æðri stjórn- valda? Nei. Segir að fella verði ákvörðun úr gildi meðan viðkomandi leitar verndar dómstóla? Nei. Segir „Tilkynningin" að ef um mistök hjá tollinum sé að ræða þá skuli hann vera ábyrg- ur fyrir því tjóni sem af hlýst? Nei. Hér gilda aðeins almenn- ar reglur um að menn fari í skaðabótamál, en það tómarúm réttindaleysisins, sem verið er að skapa er sist til þess fallið að örfa menn til þess að leita réttar síns. 3. Hugsum okkur sem dæmi að • tollskjöi hafi farist, brunnið eða glatast á einhvern hátt og eigandi, sem lokað hefur verið á segir þetta. Gæti þá tollurinn ekki svarað? Þetta segja þeir nú allir, getur þú sannað þetta? Getur tollurinn þá í slíkum tilfellum heimtað ógild- ingsdóm fyrir hinum glötuðu farmskírteinum áður en hann opnar, en það tekur margar vikur. F'armskirteini er viðskipta- bréf að lögum og því framselj- anlegt. Kaupfélag getur t.d. framselt kaupmanni vörusend- ingu samkvæmt farmskírteini. Ef kaupmaðurinn vanrækir að skila tollskjölum, er lokað fyr- ir kaupfélagið. Menn deila oft i viðskiptum. Seljandi segir pöntun hafa ver- ið gerða. Hinn mótmælir því. Nú er óumbeðin vörusend- ing komin til íslands og send- andi mótmælir, að varan sé endursend. Viðtakandi telur sér vöru- sendingu þessa óviðkomandi. Tollyfirvöld segja við lokun. Hvað skal gera? Er ekki auðvelt undir slikum kringumstæðum fyrir yfirvöld að búa til mistök og loka, Ieið- rétta siðan eftir mikla eftir- gangsmuni eða jafnvel dóm og leyfa viðkomandi að dunda við skaðabótamál gegn „kerfinu" í 2—3 ár? Það sjá allir hversu þrúg- andi er að starfa í slíku rétt- indarleysi. 4. Hæpið er að reglum þessum verði beitt jafnt gegn öllum. Fráleitt virðist að stöðva eða trufla rafvirkjunarfram- kvæmdir vegna þess að Inn- kaupastofnun ríkisins leggur ekki fram skjöl yfir skólakrít- ar. Óhugsandi er að beita þessu gegn Stórum aðilum svo sem álveri, áburðarverksmiðju, S.I.S. o.s.frv. Reglan hefur heldur engin áhrif á þann sem flytur inn aðeins eina vöru- sendingu. Nei, spjótum er beint gegn litla manninum í þjóðfélaginu eins og fyrri daginn. En hvernig stendur á því að slík regla er sköpuð í okkar réttarríki? Hér er komið að stórum bresti í stjórnarkerfi landsins sem ágerist stöðugt. Löggjafarvaldið er í höndum Alþingis, þjóðkjörinna fulltrúa fólksins. Stjórnarfrumvörp eru undirbú- in í stjórnarráðinu. Fjármálaráðuneytið sendir toll- yfirvöldum málið, sem hafa sér. þekkingu á tollamálum. Tollyfirvöld segja fyrir hvernig reglur þurfi að vera og senda þær til ríkisstjórnarinnar, sem leggur frumvarpið fyrir Alþingi. Eftir að tollyfirvöld hafa gefið sín fyrir- mæli rennur frumvarpið orða- laust í gegn um stjórnarráð og Alþingi þar sem allir samþykkja gagnrýnislaust, með bundið fyrir bæði augu, að því er virðist. Af þessum sökum ber lítið á valdþurrð og valdnfðslu hjá yfir- völdum, þvi þau virðast geta látið „prenta" ný lög og reglur eftir þörfum á þennan hátt. Margnefnd reglaér að formi til lög frá Alþingi. I lögum nr. 63 frá 1968 er fjármálaráðuneyti gefin heimild til útgáfu reglugerðar. Oftast eru lagaheimildir til reglu- gerðarákvæða viss rammi sem ráðuneytið á að fylla út í. En hér er það ekki gert heldur er rammi laganna einungis endurprentaður i reglugerðinni og jafnvel farið út fyrir hvorutveggja í „Tilkynning- unni“ eins og áður var bent á. En þvi mótmælir almenningur ekki réttleysinu? Til þess liggja ýmsar orsakir. Réttleysið snertir oftast aðeins afmarkaðan hóp manna, sem standa einir gagnvart yfirvöldum, sem hafa orðið sér úti um allan rétt, og eru þeim orðnir svo háðir, að þeir kjósa frekar að hafa hægt um sig. Aðalástæðan er þó sú að ís- lenzkir starfsmenn yfirvalda hafa mikinn áhuga á að komast hjá árekstrum og forðast að valda óþægindum, og beita þannig ekki þeim reglum sem þeir hafa, bók- staflega, eða nota aðeins brot af því valdi, sem þeim er fengið. Þeir koma yfirleitt mjög vel fram. Síðan er allt hægt að lempa og laga. Með þessu skapast ný hætta. Á þennan hátt er almenningur svæfður, á meðan öll réttindi eru dregin úr höndum hans. Á þennan hátt skapast svokall- aðar „starfsréglur“ yfirvalda. Þar sem yfirvöld nota oft ekki nema brot af valdi sínu, myndast starfs- reglur, oftast óskráðar, um hvern- ig valdinu skuli beitt. Stundum eru reglur þessar skráðar í funda- gerðarbækur, en alls ekki birtar, í mesta lagi stungið niður í skúffu til afnota fyrir stjórnvaldið sjálft. Þannig hefur Jón ekki hug- mynd um hvort hann fær sömu meðferð og Páll. Hvaða aðrar reglur gilda um ríkisverksmiðjur, sveitafélög o.s.frv. í því andrúmslofti sem þetta ástand skapar hverfa allar skyld- ur yfirvalda við þig, en þjónusta yfirvaldsins byggist á því að það er alltaf verið að gera þér greióa, svo þú verðir þakklátur og skuld- bundinn. Þú þarft sífellt að mæta I eigin persónu og bjarga málunum við (redda). Réttlátara væri að yfirvöld hefðu ekki meiri völd en þau komast minnst af með, en réttind- in væru almennt í höndum fólks- ins. Vanda þarf betur til lagasetn- ingar. Ég hef rætt ofanritaðar hug- myndir mínar við ýmsa embættis- menn, lögfræðinga, samstarfs- menn og fleiri en fundist undir- tektir daufar og áhugi lftill. Ég finn mig því knúinn til að birta skoðanir minar til þess að lesendur geti skoðað hug sinn og spurt hvort neisti frjálslyndis leynist enn. Ég vil sérstaklega taka fram að ég er einungis að gagnrýna regl- una og tilurð hennar en ekki þá sem hafa framkvæmt hana, þ.e. tollstjóra og starfsmenn hans, sem hafa með góðri framkomu sinni bætt úr göllum reglunnar eins og þeim er frekast unnt. En góðir menn eru engin afsökun fyrir ólögum og réttleysi. Verri menn geta tekið við. Þessi regla á að hverfa fyrir nýrri, betri og réttlátari. Eitt meginhlutverk laga og ann- arra réttarreglna er að veita þegn- unum vernd fyrir ofríki annarra, ofriki ríkisvaldsins ekki siður. Að lokum hvet ég allan almenn- ing til þess að vakna aftur til meóvitundar um mannréttindi og láta ekki bjóða sér hvað sem er, því ég hefi aðeins sýnt fram á eitt lítið dæmi um öfugþróunina. Dæmið sem ég hefi tekið hefur máske, þegar fljótt er á litið þann galla að snerta innflytjendur, en mjög hefur verið reynt að sverta þá undanfarið. En þegar betur er að gáð er það einmitt prófsteinn á tilfinningu almennings fyrir mannréttindum hvort hann lætur alla þá móður- sýki og moldviðri, sem reynt hef- ur verið að skapa um innflutn- ingsverzlunina villa sér sýn. Jóhann J. Olafsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.