Morgunblaðið - 09.07.1976, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JULI 1976
29
fclk í
fréttum
Sínum augum lítur
hverásilfrið...
+ Oft er undan því kvartað ad
blöð og aðrir fjölmiðlar geri
gjarna skuggahliðum tiiver-
unnar góð skil en minna fari
fyrir því sem til heilla horfi og
víst má það til sanns vegar færa
á margan hátt. Ekki eiga þó
allir fjölmiðlar hér óskiptan
hlut að máli og til marks um
það má nefna ritið Fréttir frá
Sovétríkjunum, sem fréttastofa
APN á íslandi gefur út. í þessu
blaði er greint frá mönnum og
málefnum um gjörvallt Garða-
ríki og þar er allt svo undur
jákvætt. Þar örlar hvergi á
óánægju eða úrtölum nokkurs
konar og allir virðast leggjast á
eitt í framleiðslu og fórnarlund
undir rauðum einingarfána
flokks og þjóðar.
I síðasta hefti þessa rits er
eins og oft áður sagt frá
sósíalisma og sannleikanum um
hitt og þetta, söngvum og döns-
um og sól í Júrmala, vinnusveit-
um stúdenta og, síðast en ekki
sízt, vináttufélaginu SSSR-
ísland, sem nýlega hélt aðal-
fund sinn í Moskvu. Frá þvi er
greint í blaðinu að fundir hafi
verið haldnir í félagsdeildum í
mörgum borgum Rússlands,
sem síðan hafi sent fulltrúa
sína til aðalfundarins og vorú
þeir 75 talsins. Auk þeirra voru
mættir vísindamenn, blaða-
menn og námsmenn og Hannes
Jónsson, sendiherra, starfsfólk
íslenzka sendiráðsins og aðrir
íslenzkir gestir.
Formaður félagsins, Sergei
Stúdentskí, flutti skýrslu
stjórnar og gat um helztu við-
burði, sem voru hátíðahöld i
Sovézk skólabörn heilsa fundargestum
tilefni af 50 ára afmæli Sovét-
ríkjanna, mánuður sovézk-
íslenzkrar vináttu i tilefni af 25
ára afmæli Menningarfélags
íslands og Ráðstjórnarrikjanna
(MÍR) og einnig var getið um
hátiðahöld í báðum löndunum
vegna þrjátiu ára afmælis
stjórnmálasambands ríkjanna.
Þegar skýrslu formanns lauk
gengu ungherjar í salinn í hvít-
um skyrtum með rauða háls-
klúta og þökkuðu félaginu gott
starf í nafni sovézkra barna við
mikla hrifningu viðstaddra og
ekki minnkuðu fagnaðarlætin
þegar lesið var upp hedlaskeyti
sem ráðstefnunni barst frá
MÍR. Að lokum tók Hannes
Jónsson, sendiherra, til máls og
þakkaði fyrir sig og sína og
sagði að samskipti landanna
hefðu ávallt verið góð eða eins
og Gromyko hefði sagt við
Einar Ágústsson, utanrikisráð-
herra: „Lengi geta góð sam-
skipti batnað.“
Eftir frásögninni í Fréttum
frá Sovétríkjunum að dæma
hljótum við að eiga frændum að
fagna í Austurvegi en ekki virð-
ast þó allir vera á einu máli i
þeim efnum og til þess að alls
hlutleysis sé gætt birtum við
hér auk fyrirsagnar fréttarinn-
ar um aðalfundinn, mynd af
fyrirsögn annarrar greinar þar
sem kveður við dáiítið annan
tón.
Barðir af landamæravörð-
um og settir í einangrun sam-
kvæmt fyrirmælum ráðherra
Rætt við Eystein
Þorvaldsson for-
mann Júdósam-
bands íslands um
ferð júdómanna
til Sovétríkjanna
Lengi geta góð
samskipti batnað
Dóttir Churchills snýr
aftur — sem sígauni
+ Sarah Audley, dóttir Winstons
heitins Churchills, sem lítið hef-
ur verið í sviðsljósinu slðustu
tuttugu árin, er nú komin fram á
sjónarsviðið á ný — sem sígauni.
Sarah, sem er ekkja Audleys
ISvsrósr tiefur f?.!!!?t 5 aA
taka að sér aðalhlutverkið I
amrfskum söngleik en fyrir 20
árum var hún mikilsvirt leikkona
Dóttir Churchills
— ávallt verið
hrifin af sfgaunum
f London en dró sig þá skyndilega
f hlé og helgaði sig húsi og heim-
ili. Þessi amrfski söngleikur fjall-
ar á gamansaman hátt um
sfgauna og segir Sarah að hún
hafi tekið að sér hlutverkið vegna
Knce 'iA Knn haff vprið hrif-
in af lífsmáta þeirra.
Faðir Söruh, Winston Church-
iII, hefur líklega verið sama sinn-
is og dóttirin þvf að árið 1949 sá
hann til þess að sfgaunar, sem
fram til þess tfma höfðu staðið
utan við lög og rétt nytu sömu
réttinda og aðrir enskir þegnar.
LANCÖME
sérfræðingur
verður til leiðbeininga
viðskiptavinum okkar
í dag frá kl. 1 —6.
Lktstá-
Laugavegi17 Sími 13155.
Nýir þægilegir skór
í ferðalagið
Leðurskórm/ hrágúmmísóla.
Litir: blátt, rautt og brúnt, brúnt,
grænt og orange.
Sérlega mjúkir og þægilegir
Litir: brúnt og rauðbrúnt