Morgunblaðið - 09.07.1976, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JÚLl 1976
isianasmðllfl 3. dellð 1
KS með fullt hús stiga
ÞRIÐJU deildar keppnin í knatt-
spyrnu er nú í fullum gangi og eru
línurnar teknar að skýrast nokkuð f
flestum riðlunum. Það sem einna
mest hefur komið á óvart er góð
frammistaða KS, Knattspyrnufélags
Siglufjarðar, sem virðist vera yfir
burðalið í smum riðli, og vann 2.
deildar lið Þórs frá Akureyri orugg
lega í bikarkeppninni. Vann KS mik-
inn yfirburðasigur í leik sínum við
Tindastól um síðustu helgi, 11 — 3,
og hefur liðið enn sem komið er ekki
tapað leik i keppninni. Er markatala
liðsins einnig hin glæsilegasta, eða
23—5
Um síðustu helgi léku Víðir og
Stjarnan i 3. deildinni, og urðu úrslit
þau að Viðir sigraði i leiknum með 4
mörkum gegn 1, en fram að þessum
leik hafði Stjarnan haft forystu f
sfnum riðli. í leik þessum skoruðu
Einar Björnsson, Valbjörn Þorsteins-
son, Guðmundur Knútsson og Jónat-
an Ingimarsson fyrir Viði, en Birkir
Sverrisson skoraði fyrir Stjörnuna.
í Grindavfk léku heimamenn við
Fylki, en Fylkir hefur örugga forystu
í þeim riðli. Kom það á óvart að
leikurinn var mjög jafn og var það
ekki fyrr en alveg undir leikslok að
Fylkismönnum tókst að skora sigur
mark. Lauk leiknum 2—1 fyrir Fylki.
Mörk Árbæjarliðsins skoruðu þeir
Grettir Gfslason og Guðmundur
Bjarnason en Björn Birgisson skoraði
fyrir Grindavfk.
Á Varmárvelli léku sfðan Aftureld
ing og Bolungarvík og lauk þeim leik
með 3:0 sigri Aftureldingar. Mörkin
skoruðu þeir Steinar Tómasson og
Hafþór Kristjánsson sem gerði tvö
mörk.
„ÞEIR HALDA AÐ
VÖLLURINN HLAUPI"
EINS OG skýrt var frá í Morgun-
blaðinu nýlega vann 3. deildar lið
KS á Siglufirði óvæntan sigur yfir
2. deildar liði Þórs frá Akureyri í
bikarkeppni KSÍ á dögunum. Nú
hafa Þórsarar kært leik þennan, á
þeim forsendum að völlurinn á
Siglufirði sé ólöglegur.
— Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem lið frá Akureyri kærir vegna
vallarins eftir tapleik, sagði Sigl-
firðingur er skýrði Mbl. frá kæru-
málinu. — Þeir kærðu einnig í
fyrra og þá var völlurinn mældur
upp og reyndist vera löglegur.
Reyndar í lágmarki þess sem regl-
ur KSI kveða á um. Virðist nú
sem Akureyringar hafi gleymt
þessu kærumáli ,og niðurstöðu
þess, nema þá að þeir haldi að
völlurinn hlaupi í rigningu, en
nokkur rigning var meðan um-
ræddur leikur fór fram.
SKEMMTILEGT MÚT
ÞAÐ ER mál manna að Kalott-keppnin sem fram fór á Laugardals-
vellinum s.l. þriðjudag og miðvikudag hafi verið ein skemmtileg-
asta frjálslþróttakeppni sem fram hefur farið hérlendis um árabil,
og stemmningin á áhorfendapöllunum minnti stundum á hin marg-
rómuðu „gullaldarár“ I frjálsum (þróttum. 1 öllum keppnisgreinum
var um harða og jafna baráttu að ræða, og árangur var yfirleitt
ágætur. Það eina sem skyggði á gleði áhorfenda var að íslenzkur
sigur skvldi ekki verða f keppninni, en Finnar hlutu flest stig
samtals úr karla- og kvennakeppninni.
Meðfylgjandi myndir tóku Ijósmyndarar Morgunblaðsins Friðþjóf-
ur Helgason og Ragnar Axelsson I keppninni. Á efri myndinni má
sjá að menn brugðu stundum á leik. Úrslitin virðast vera bræðra-
bylta, en Svfinn og Finninn sem á horfa virðast hafa gaman af
átökunum. Myndin til hliðar er af Ingunni Einarsdóttur sem stóð
sig allra keppenda bezt á mótinu og vann sigur f eigi færri en
f jórum einstaklingsgreinum.
MIKIL AUKNING ÁHORFENDA
AÐ LEIKJUM1. DEILDARINNAR
r
VALSMENN HAFA HAFT1554 AHORFENDUR AÐ MEÐALTALI
AÐSÓKN að leikjum 1. deildar
keppni íslandsmótsins f knatt-
spyrnu hefur til þessa verið
mun meiri en hún var á sama
tíma f fyrra og er aukníng
áhorfenda á leiki sumra lið-
anna með ólfkindum. Útkoma
liðanna er gffurlega mismun-
andi og hefur Valur t.d. fengið
tæplega fjórum sinnum meira í
sinn hlut en Þróttur, en þessi
tvö lið eru með mesta og
minnsta aðsókn f 1. deildinni.
Hafa áhorfendur á leikjum
Vals í fyrri umferðinni að með-
altali verið 1534 talsins, en 486
að leikjum Þróttar.
Sjálfsagt er það fleira en eitt
sem kemur til að leikir eru nú
betur sóttir af áhorfendum en
nokkru sinni fyrr, en höfuð-
ástæðan er ugglaust sú, að
knattspyrnan hefur verið betri
hér í sumar en um langt árabil.
Er ekki að sökum að spyrja að
þegar áhorfendur eiga von á
góðum leikjum, þá fjölmenna
þeir á völlinn. Veður hefur
einnig oftast verið nokkuð hag-
stætt, en það hefur þó sýnt sig
að áhorfendur láta slæmt veður
ekki svo mikið á sig fá eigi þeir
von á spennandi og skemmti-
legum leik.
Valsmenn hafa fengið lang-
beztu aðsóknina að leikjum sin-
um það sem af er keppnistíma-
bilinu. Sá leikur sem laðaði til
sín flesta áhorfendur var viður-
eign Vals og Akraness, en á
þann leik komu samtals 2148
áhorfendur og gaf leikurinn
704.400,00 kr. brúttótekjur.
Annar í röðinni er svo leikur
Vals og Fram. Á hann komu
2005 áhorfendur og tekjurnar
voru 669.700,00 kr. Þriðji bezti
leikurinn hvað aðsókn varðar
var svo leikur Vals og Keflavík-
ur. A hann komu 1909 áhorf-
endur og gaf hann af sér
619.900,00 kr. brúttótekjur.
Vert er að taka sérstaklega
fram, að í áhorfendatölunni er
aðeins gefin upp sú tala áhorf-
enda sem greiðir sig inn á völl-
inn, en jafnan er töluvert um
áhorfendur sem hafa boðsmiða,
og því má búast við að tala
Framhald á bls. 20
Tvíbætti
heimsmetið
BÚLGARSKA stúlkan Ivanka
Hristova tvfbætti heimsmetið í
kúluvarpi kvenna um helgina. Á
laugardaginn keppti hún á móti f
Sofia og varpaði þá 21,87 metra og
á sunnudaginn keppti hún á móti
sem fram fór f Belmeken og varp-
aði þá 21,89 metra. Eldra heims-
metið átti Marianne Adam frá
Austur-Þýzkalandi og var það
21,67 metrar.
.^LYMPIULEIKAR
S/GJa. \Meis/ndt*.É'/is
c-e/t-ot /Ȓ> rvsJ
VV/Jl/t, /nO/JU
He/íroc-/* e/i/> ///>•//>!/,
$e/n SreeWot /*V
jr/ttos* s itZ/t/WiJ/ry
//ri///J
’paw/J eeA.«i /rte/AA eW s/eeA /-aa *a/J -
//,f///// -ró//’íT f/Afi seei i/ítr/AWA/nOi/i/ /n/sroAsr
/A* * /iA/jA
/Ai/t^ '
fSÓAiJnd A/í
Í./OJ />fid/l
£A d/JD/UQ
suep/. ue/s -
n\uu.€A. missr/
/ner/9 i ueep-
OA. Uodd, DAW/J
F/lAféA fAÁ
'AsrAAi id.
tiasi AewwAA
vaa er.oiseu
/y lzr£VIU-ION--AVAH\ JWT STUDIOS
ARFTAKI
FIASCONAROS
ÍTALINN Carlo Grippo náði frá-
bærum árangri f 800 metra hlaupi
á móti sem fram fór f Turin á
ítalíu í fyrrakvöld. Hljóp hann á
1:45,3 mín., og er það annar bezti
árangurinn sem náðst hefur í
þessari grein f heiminum f ár.
Bendir þessi árangur Grippos,
sem er 21 árs tögreglumaður, til
þess að hann muni blanda sér
alvarlega f haráttuna um gullið á
leikunum í Montreal, en hann
verður þar eini ftalski keppand-
inn f 800 metra hlaupi. Heims-
metið f 800 metra hlaupi á landi
Grippos, Marcello Fiasconaros og
er það 1:43,7 mfn„ sett árið 1973.