Morgunblaðið - 09.07.1976, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JULI 1976
35
VIKINGAR OG VALS-
MENN SÝNDU SÍNAR
BEZTU HUBAR IGÆR
- Valur sigraði 3-2 og hefur góða forystu
VALSMENN stigu mjög mikilvægt skrcf ( áttina að tslandsmeistara-
titlinum f knattspyrnu er þeir lögðu Vfkinga að velli f mjög skemmti-
legum og vel leiknum leik sem fram fór á Laugardalsvellinum f
gærkvöldi að viðstöddum 3289 áhorfendum — fleiri en verið hafa á
nokkrum öðrum leik það sem af er Islandsmötinu. Urslitin urðu 3—2
fyrir Valsmenn og máttu þeir raunar þakka fyrir að Vfkingar kræktu
ekki f annað stigið. Ekki þar fyrir að Valsmenn voru lengst af betra
liðið, en vegna þess að Vfkingum mistókst herfilega að skora úr
upplögðu tækifæri sem þeir fengu sex mfnútum fyrir leikslok. Þá
urðu Valsvörninni á hrikaleg mistök sem leiddu tif þess að Óskar
Tómasson fékk knöttinn við markteiginn fyrir opnu marki. Virtist
meiri vandi fyrir hann að skjóta framhjá en hitta markið, en Óskari
brást illa bogalistin, og þar með fór von Vfkinga um annað stigið f
leiknum.
Fyrri hálfleikur leiksins í gær
var einn sá bezti sem sézt hefur til
íslenzkra knattspyrnuliða í a.m.k.
mjög langan tíma. Bæði liðin
reyndu til hins ítrasta að leika
knattspyrnu — knötturinn var
látinn ganga frá manni til manns,
og leikmennirnir reyndu að hugsa
fyrst og framkvæma síðan. Hvað
eftir annað sáust stórkostlega
skemmtilegir samleikskaflar,
einkum þó hjá Valsmönnum sem
voru í essinu sínu og liðið náði að
sýna sínar beztu hliðar sem vissu-
lega eru góðar um þessar mundir.
Knattspyrna Víkinganna var dá-
lítið öðru vísi, en eigi að síður
ágæt og það var mikill kraftur og
baráttuvilji í hverjum einasta
leikmanni.
GLÆSILEGT MARK I LEIK-
BYRJUN
Fyrsta mark leiksins kom þegar
á 7. mínútu, en þá höfðu bæði
liðin komist nokkrum sinnum í
góð færi. Ingi Björn Albertsson
fékk knöttinn við vallarmiðju, lék
fram í átt að vítateignum, og
skaut þaðan hörkuskoti i mark-
hornið uppi. Átti Diðrik Ólafsson
ekki möguleika á að ná til
knattarins.
VlKINGAR JAFNA
Það hefur verið sagt um Vals-
liðið I sumar, að það nái ekki vel
saman nema það sé yfir í mörk-
um, og þess vegna áttu margir
von á því að liðið myndi láta kné
fylgja kviði eftir þessa góðu byrj-
un. En Víkingarnir voru ekki á
þeim buxunum að láta mótlætið á
sig fá og á 12. mínútu jöfnuðu
þeir. Jóhannes Bárðarson lék upp
kantinn og sendi knöttinn fyrir
markið, þar sem Óskar Tómasson
náði að skalla hann fyrir fætur
Stefáns Halldórssonar sem var í
dauðafæri og skoraði af öryggi.
VALSMENN I GANG
Það sem eftir lifði hálfleiksins
léku bæði liðin á fullu og sáust
oftsinnis svo lagleg tilþrif að
áhorfendur klöppuðu leikmönn-
unum lof í lófa. Valsmenn náðu
smátt og smátt góðum tökum á
miðjunni, og eftir það fór að
verða meiri þungi í sókn þeirra.
Þegar kom upp að vítateignum
freistuðu Valsmenn þess að draga
vörn Víkinganna sundur með
skemmtilegu samspili og tókst
það nokkrum sinnum vel. Upp úr
því komu góð færi og góð skot, en
Diðrik Ólafsson markvörður Vik
inganna varði tvívegis stórkost
ingi björn Albertsson skallar að marki Vfkinga og Ragnar Gfslason á ekki annars úrkosta en að verja
með höndum. Ur vftaspyrnunni skoraði Ingi Björn sfðan örugglega.
Unglingameistaramót Norður-
landa í Laugardalslaug í kvöld
UNGLINGAMEISTARAMÓT
Norðurlanda f sundi hefst f Laug-
ardalssundlauginni f kvöld og
verður sfðan fram haldið á sama
stað á morgun og á sunnudaginn.
Verður alls keppt f 24 sundgrein-
um og koma allir beztu sund-
menn Norðurlanda f unglinga-
flokki til keppninnar.
Sex íslenzkir unglingar taka
þátt í mótinu, og verður það að
teljast fremur lítil þátttaka þegar
tekið er tillit til þess að keppnin
fer fram hérlendis. Mun ástæðan
fyrir því að ekki voru valdir fleiri
keppendur héðan til mótsins vera
sú, að ekki var talið rétt að senda
aðra til keppni en þá sem talið var
lfklegt að ættu möguleika á að
blanda sér í baráttuna um efstu
sætin. tslenzku ungljngarnir sem
keppa á mótinu eru'’ Hrefna Rún-
arsdóttir, Olga Agústsdóttir, Pét-
ur Sigurðsson, Kristbjörn Guð-
mundsson, Sonja Hreiðarsdóttir
og Þórunn Magnúsdóttir.
Keppnisgreinar í kvöld verða
sjö og eru þær eftirtaldar:
100 metra flugsund stúlkna, 100
metra flugsund drengja, 200
metra fjórsund stúlkna, 200
metra fjórsund drengja, 800
metra skriðsund stúlkna, 1500
metra skriðsund drengja, 4x100
metra fjórsund stúlkna og 4x100
metra fjórsund drengja.
Guðmundur Þorbjörnsson hefur rutt sfðustu hindruninni úr vegi,
Diðrik Ólafssyni Vfkingsmarkverði, og andartaki sfðar lá knötturinn f
markinu.
lega vel, er hann fékk hörkuskot
af stuttu færi á markið. Það fyrra
kom á 17. mínútu er Albert
Guðmundsson skaut þrumuskoti
og hið seinna á 30. minútu er
Hermann Gunnarsson átti góðan
skalla. I bæði skiptin náði Diðrik
að slá knöttinn yfir.
MARKAKÓNGURINN A FERÐ
Á 40. minútu fékk Guðmundur
Þorbjörnsson, markakóngur Vals-
manna, loks tækifæri til þess að
sýna hæfni sína. Hann brauzt í
gegnum Vikingsvörnina með tvo
menn á baki og náði síðan að
skjóta á markið. Diðrik hafði
hendur á knettinum, en missti
hann frá sér og Guðmundur sem
fylgt hafði vel eftir skoraði.
Þarna þurfti harðfylgi til, og það
hefur þessi ungi og lagni piltur til
að bera.
Minútu fyrir lok fyrri hálfleiks-
ins bættu Valsmenn svo þriðja
markinu við. Gífurlegur þungi
var þá í sókn þeirra að Víkings-
markinu og fór svo að Ragnar
Gíslason bakvörður tók það fanga-
ráð er knötturinn var að sigla í
markið að verja með höndunum.
Ur vítaspyrnunni skoraði Ingi
Björn svo af miklu öryggi.
DAUFARI SEINNI
HALFLEIKUR
I seinni hálfleik var leikurinn
heldur daufari, en bauð þó oft
upp á skemmtilega spretti og
færi. Valsmenn voru meira með
knöttinn og munaði þar mestu að
þeir höfðu æ betri tök á miðjunni,
þar sem þeir drottnuðu sem kóng-
ar í ríki sínu.
A 20. mínútu hálfleiksins var
dæmd hornspyrna á Valsmenn.
Stefán Ilalldórsson tók spyrnuna
og sendi fyrir markið. Varnar-
menn Vals voru til staðar en mis-
tókst að hreinsa frá og Helgi
Helgason náði til knattarins og
potaði honum fram hjá allri þvög-
unni sem var á markteignum og í
markið framhjá Sigurði.
Eftir mark þetta tvíefldust Vik-
ingarnir en að sama skapi virtust
taugarnar bila nokkuð hjá Vals-
mönnum. Voru Vikingar meira í
sókn undir lokin og áttu sæmileg
færi — aldrei þó eins og er Óskar
„brenndi af“ svo sem lýst er í
upphafi greinarinnar.
LIÐ 1 FRAMFÖR
Það er mjög ánægjulegt að sjá
hversu miklar breytingar hafa
orðið á Víkings- og Valsliðinu nú
milli ára. Bæði liðin leika mun
betri knattspyrnu en þau gerðu i
fyrra, og er allur annar bragur
yfir þeim en þá. Þyngslin eru
horfin, en í staðinn er leikin létt
og hröð knattspyrnu, þar sem það
er haft að leiðarljósi að það þarf
að skora mörk til þess að vinna
leik, og það er ekki nóg að hindra
að andstæðingurinn skori. Vel má
vera að þetta sé ekki eins
árangursrikt þegar til lengdar
lætur og varnarknattspyrnan, en
vist er að það er annað fyrir alla
aðila að horfa á slfk tilþrif.
Framlína Valsliðsins er geysi-
lega skemmtileg og vinnur vel
saman. Þar er enginn veikur
hlekkur, en i þessum leik voru þó
Ingi Björn og Hermann beztir.
Hefur Ingi Björn örugglega ekki
verið betri en hann er nú, og flest
það sem Hermann gerði í leiknum
var vel gert — sendingarnar
góðar og nákvæmar. í vörn Vals-
liðsins var svo Dýri aðalmaður-
inn, en hann gætti hins hættulega
og fljóta sóknarleikmanns Vík-
inga, Stefáns Halldórssonar, sem
sjáaldurs auga síns.
Víkingarnir leika enn svolitið
um of af kröftum, og einstaka
leikmenn liðsins eins og t.d. Ragn-
ar Gíslason bakvörður eru of gróf-
ir i aðgerðum sinum. Víkingsliðið
er lið sem er að springa út og
Framhald á bls. 20
LIÐ VlKINGS: Diðrik Ólafsson 4, Ragnar Gfslason 2, Magnús
Þorvaldsson 3, Eirfkur Þorsteinsson 3, Helgi Helgason 3, Róbert
Agnarsson 3, Adolf Guðmundsson 2, Gunnlaugur Kristfinnsson
2, Stefán Halldórsson 2, Jóhannes Bárðarson 2, Óskar Tómasson
2, Lárus Jónsson (varamaður) 1.
LIÐ VALS: Sigurður Dagsson 2, Vilhjálmur Kjartansson 2,
Magnús Bergs 3, Dýri Guðmundsson 4, Bergsveinn Alfonsson 3,
Atli Eðvaldsson 2, Ingi Björn Albertsson 3, Hermann Gunnars-
son 3, Guðmundur Þorbjörnsson 2. Kristinn Björnsson 1, Albert
Guðmundsson 2.
DÓMARI: Magnús V. Pétursson 4.
íþróttamiðstöð Í.S.Í.
Laugavatni
Vegna forfalla er hægt að fá íþróttamiðstöðina
leigða frá 23. — 26. júlí.
Upplýsingar á skrifstofunni, sími 83377.
íþróttasamband íslands.