Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐÍÐ, FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1976
Garðar Valdimars-
son skipaður skatt-
rannsóknastjóri
FJÁRMALARAÐHERRA hefur
skipað Garðar Valdimarsson í
embætti skattarannsóknastjóra
við embætti rfkisskattstjóra frá
og með 1. október 1976.
Garðar Valdimarsson er fæddur
19. ágúst 1945. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verzlunarskóla
íslands vorið 1966 og embættis-
prófi í lögfræði frá Háskóla ís-
lands árið 1972. Garðar hlaut lög-
gildingu sem endurskoðandi á ár-
inu 1975, en námi löggiltra endur-
skoðenda lauk hann sumarið
1974.
Síðan haustið 1974 hefur Garð-
ar stundað framhaldsnám í
skattarétti við Kaupmannahafn-
arháskóla, og er nú að ljúka rit-
gerð um tekjuhugtak íslenzkra
tekjuskattsiaga og þróun þess frá
1921 —1971. Ritgerð þessi er unn-
in fyrir Nordisk Skatteviden-
skabligt B’orskningsraad, sem
veitt hefur Garðari sérstakan
styrk til þeirra rannsóknarstarfa,
sem ritgerðin byggist á.
Garðar Valdimarsson er kvænt-
ur Brynhildi Brynjólfsdóttur.
Vöruskiptajöfnuð-
urinn hagstæður
um 15,2 m. kr. í júní
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐURINN
við útlönd varð hagstæður um
15.2 milljónir í júnimánuði sl., en
i sama mánuði í fyrra var hann
óhagstæður um tæpa 5.3
milljarða. í júnimánuði fluttu
landsmenn út vörur fyrir 8.097.5
milljónir kr., en inn fyrir 8.082.3
millj. króna.
Vöruskiptajöfnuðurinn tímabil-
ið janúar til júní i ár er óhagstæð-
ur um tæpa fjóra milljarða kr., en
á sama tíma í fyrra var hann
óhagstæður um tæpa 14 milljarða
kr.
Kolmunninn
dreifir sér
— ÞAÐ SEM af er deginum hefur
kolmunninn verið dreifður og
okkur þvi gengið frekar erfiðlega
að ná honum. Við komum hér á
miðin í Seyðisfjarðardýpi fyrri
hluta nætur og núna erum við
komnir með rösklega 20 tonn,
sagði Sveinn Sveinbjörnsson
fískifræðingur, leiðangursstjóri á
Runólfi i samtali við Morgunblað-
ið í gær.
Að sögn Sveins hafa fengizt að
þessu sinni 4—9 tonn í hali og
þegar Mbl. hafði samband við
hann var verið að taka 4. halíð.
Runólfur þurfti aö leggja af stað
til Þorlákshafnar í gærkvöldi, þar
sem skipið á að landa þar á föstu-
dagsmorgun. Akveðið er að aflinn
Verði unninn í marning hjá Meitl-
inum og settur í herzlu hjá Guð-
bergi Ingólfssyni í Garðinum.
Vír slóst í
andlit tog-
arasjómanns
SKUTTOGARINN Guðsteinn GK
kom á laugardagsmorgun til isa-
fjarðar með slasaðan skipverja.
Vír hafði slegizt í andlit manns-
ins, þar sem hann var við vinnu
sína. Maðurinn var þegar fluttur
til Reykjavíkur með sjúkraflug-
vél, þar sem gerð var aðgerð á
honum á Borgarspitalanum.
Að sögn Guðmundar Ingvason-
ar framkvæmdastjóra Bæjarút-
gerðar Hafnarfjarðar, sem sér um
útgcrð Guðsteins, leið manninum
eftir atvikum vel í gær.
BSR bílstjórar
í nýtt húsnæði
FYRIR nokkrum dögum hófst
bygging á nýju húsnæði fyrir bil-
stjóra á Bifreiðastöð Reykjavíkur.
Að sögn Eggerts Thorarensens
framkvæmdsstjóra BSR, verður
nýja húsið á sama stað og hið
gamla, en litið eitt stærra. — Hús-
ið verður tímburhús eins og hið
gamla, en það er frá árínu 1943,
og er orðið alls ófullnægjandi,
sagði Eggert.
— Skák
Framhald af bls. 18
Rf7, 56 Bf5 — Rd6, 57. Be6 +
— Ke5, jafntefli.
(J.Þ.Þ.)
Og þá er að líta á viðureign Guð
mundar og Ungverjans Sax
Hvitt: Guðmundur Sigurjónsson
Svart: Gyula Sax
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4
— cxd4, 4 Rxd4 — Rf6, 5. Rc3
— e6, 6 Be2 — a6, 7. f4 —
Dc7, 8 0 0 — Be7, 9 Del —
0 0, 10 Dg3
(Velþekkt staða úr Scheveningen af-
brigðmu Hér er mun algengast að
svartur leiki 10 — Rc6, en Sax
velur annan og tvleggjaðri leik)
10 — Db6?!, 11 Be3 — Dxb2.
12. Bf2 — Db4,
(Svartur hefur eytt þremur leikjum í
að ná peðinu á b2 Nú gat hvitur
reynt 13 Hb1 — Da5, 14 Rf 5!?
— exf5, 15 Bb6 — Rxe4, 16
Rxe4 — Dd5. 1 7 Rc3 — De6 og
staðan er afar flókin)
13. e5?!
(Þessi leikur litur ..sóknarlega" út, en
er þó hættulitill við nánari athugun)
13. — dxe5, 14. fxe5 — Re8, 1 5.
Re4 — Rd7, 16 Bd3 — Da5, 17.
Rf3 — f5!, 18 exf5 frhjhl. —
Rdxf6, 19. Rxf6 — Rxf6, 20.
Hae 1 — Dxa2. 21 Bd4?
(Eftir þennan leik missir Guðmundur
endanlega af strætisvagninum Með
21 Dh4! gat hann haldið sókninni
gangandi)
21 — Dd5, 22. Dh4 — Bc5!
(Nú vinnur svartur leik, sem skiptir
öllu)
23 Bxc5 — Dxc5 + . 24 Kh1 —
Dh5, 25 Db4 — a5,
(Þetta peð á eftir að reynast hvitum
erfitt)
26 Db6 — a4, 27. Bc4 — Da5,
28 Dd6 — a3, 29 Re5
(Eða 29 Bxe6 — Bxe6, 30 Dxe6
— Kh8, 31 Re5 — Dd5 og svartur
þarf ekkert að óttast)
29 — He8, 30 He3 — a2, 31.
Ha 1 — Rd5, 32. Bxd5 — Dxd5,
33. Dc7 — Hf8, 34. Hg3 — Bd7!
(Upphafið að skemmtilegri fléttu,
sém gerir út um skákina)
35. Rxd7 — Hf 1 +!, 36. Hxf1 —
a 1D, 37. Df4 — Dxd7, 38 Hgf3
— Df6 og hvítur gafst upp.
(J.Þ.Þ.).
Ekki hefur mér enn tekizt að fá
botn i skákirnar úr 11 umferð, en
vonandi getum við birt þær með
næsta þætti
— Séra
Sigurpáll
I rarnhald af bls. 2
formaðuriim heldur því fram
að ræðan hafi ekki ve’rið í
kristilegum anda og hefur
skýrt frá því að safnaðarfund-
ur f Fljótum hefði ákveðið að
senda ræðu séra Sigurpáls
biskupi íslands til umfjöllun-
ar. Segir sóknarnefndarfor-
maðurinn að prestur hafi not-
að ferminguna til að flytja
ræðu um samskipti sfn við
sóknarbörnin og málflutning-
ur hans valdið hnevkslun.
— Fiskveiði-
sjóður
Framhald af bls. 36
I samtali við Morgunblaðið í
gær staðfesti Guðjón Halldórsson
hjá Fiskveiðasjóði islands, að
beiðni Snorra Snorrasonar um
fyrirgreiðslu hefði verið synjað
hjá sjóðinum. Hann var spurður
um forsendur þeirrar ákvörðun-
ar, og svaraði hann því til, að þær
væru fyrst og fremst að fjárhags-
staða sjóðsins hefði ekki leyft það
að verða við þessari beiðni. Benti
hann á, að innflutningur skipa
eða nýsmíðar skipa hefðu ekki
verið samþykkktar nú um skeið
og það væri sömuleiðis undirrót
þess, að fé væri af skornum
skammti.
Þá sagði Guðjón að jafnframt
hafi það haft sitt að segja, að
fjárhagsstaða umsækjanda hafi
ekki verið nægiléga sterk þegar á
heildina var litið. Hann sagði, að
áætlað hafi verið að þetta tiltekna
skip myndi kosta einhvers staðar
á bilinu 360—400 milljónir króna.
Af þessari upphæð hefði sjóður-
inn þurft að fjármagna um 60%
af 2/3 hlutum verksins og að
hluta með 75% framlagi.
Þetta hefði þannig haft i för
með sér töluvert fjárútlát fyrir
sjóðinn, að því er Guðjón sagði.
Ætlunin hafi verið að smíða
skrokk skipsins úti, setja þar í það
vélina og flytja síðan heim hlið-
stætt og væri nú með togara sem
væri í smíðum fyrir Dalvík.
Þá sagði Guðjón að fyrir
ákvörðun forráðamanna sjóðsins
hefðu einnig legið þær röksemdir,
— með tilliti til ástands fiski-
stofna hér við land, — hvort ekki
mætti þá taka eitthvað af þeim
skipum sem fyrir væru í landinu,*
gera á þeim breytingar og kanna
þannig djúprækju öllu frekar. Þá
væri því heldur ekki að leyna að
það hafi verið haft í huga að fyrir-
greiðsla fyrir þessu eina skipi
hefði getað leitt til þess að fleiri
kæmu á eftir, sem erfitt hefði þá
verið að standa á móti vegna for-
dæmisins. Sagði Guðjón, að hon-
um hefði t.d. verið kunnugt að
menn hér hefðu verið að velta
fyrir sér norsku skipi til þessara
veiða sem hefði átt að kosta um
265 millj. króna. Það væri nú til-
búið og unnt að afhenda það i
ágúst. Það væri þess vegna margt
sem kæmi til álita áður en heim-
ild fyrir fyrirgreiðslu sem þessari
væri veitt.
i samtali við Morgunblaðið
sagði Snorri Snorrason útgerðar-
maður, að honum þættu vinnu-
brögð þau sem beitt hefði verið i
sambandi við umsókn hans ekki
sæmandi. Umsókn hans hefði ver-
ið tekin fyrir miðvikudag i sl.
viku, en ákvörðun þá frestað
vegna athugasemda frá tækni-
deild Fiskifélagsins. Einnig hafi
verið leitað umsagnar Hafrann-
sóknastofnunar og Fiskifélagsins
en síðan hefði hann lagt mikla
vinnu í að koma með nánari út-
skýringar á athugasemdum, sem
stundum hefðu verið í meira lagi
hæpnar. -*
Snorri kvað sér þó þykja sárast,
að hann hafi ítrekað áður en hann
réðst í það fyrir alvöru að leita
þessarar heimildar, beðið um
skýr svör hvort nokkuð þýddi að
fara fram á fyrirgreiðslu sem
þessa og þau svör sem hann hefði
þá fengið verið nógu jákvæð til
þess að hann réðst í þetta. Nú
væri honum ljóst að hann hefði
einungis verið dreginn á asnaeyr-
unum og ekki bætti það úr skák
að hann hefði fyrir nokkru siglt
rækjubát þeim er hann átti fyrir
til Englands, þar sem hann hugð-
ist selja hann upp í kaupverð nýja
skipsins. Kvaðst hann nú ekki
vita hvernig því máli myndi reiða
af fyrir sig.
Snorri sagði ennfremur, að
hann hefði ekki getað skilið sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar fyrir
nokkru vegna þessara málaleitun-
ar hans öðru vísi en þannig að
hún væri hvetjandi þess að ráðist
yrði í þessi kaup en það virtist svo
sem embættismenn biðu öllu birg-
inn og hefðu sitt fram.
— Sendiherra
Framhald af bls. 1
sprenginguna, og að fundinum
loknum sagði Liam Cosgrave for-
sætisráðherra að morðárás þessi
fyllti alla heiðvirða Íra viðþjóði
og skömm. i London sagði James
Callaghan forsætisráðherra að
morðingjar sendiherrans væru
fjandmenn bæði Englands og ír-
lands, sem nauðsynlegt væri að
handsama.
Talið er víst að öfgasinnar úr
Írska lýðveldishernum, I.R.A.,
hafi komið sprengjunni fyrir.
Bústaður brezka sendiherrans
er í útjaðri Dýflinar, og þaðan
liggur Murphystown Road inn til
borgarinnar. Hafði sprengjan ver-
ið grafin inn í veginn, að þvi er
virðist frá skurði, sem grafinn var
undir veginn frá auðu svæði við
vegarbrúnina. Telja sérfræðingar
að hundruð kílóa af sprengiefni
hafi verið í sprengjunni, og end-
urómaði sprengingin frá nær-
liggjandi hæðum. Tveir írskir
leynilögreglumenn óku rétt á eft-
ir bifreið sendiherrans. Brotnaði
framrúða bifreiðar þeirra við
sprenginguna, en þeir sluppu
óskaddaðir.
Ewart-Biggs sendiherra var 54
ára, og gekk með svart einglyrni
frá þvi hann særðist í heimsstyrj-
öldinni síðari. Hann hafði aðeins
starfað í Dýflini tæpar tvær vik-
ur, en áður var hann við brezka
sendiráðið í Paris frá árinu 1971.
Hann var höfundur nokkurra
skáldsagna, sem hann gaf út und-
ir skáldanafninu Charles Elliott,
en ein bóka hans — ..Trial by
Fire“ frá árinu 1956 — var bönn-
uð á Írlandi vegna kynlífsfrá-
sagna. Fyrri kona hans lézt árið
1959, og árið eftir kvæntist hann á
ný. Síðari eiginkonan hafði
skroppið í heimsókn til Englands
í gærkvöldi. Auk konunnar lætur
sendiherrann eftir sig tvær dæt-
ur, 15 og 8 ára og 13 ára son.
— Hættuástand
Framhald af bls. 1
innrás á Kýpur fyrir réttum
tveimur árum, en styrjaldaróttinn
hefur magnazt að undanförnu og
virðist allt velta á því nú hvort
tyrkneska rannsóknarskipið
„Hora“ verður sent til oliuleitar á
hafsvæði á Eyjahafi, sem Grikkir
telja sig ráða yfir.
Grikkir hafa lýst þvi yfir að
verði skipið sent, muni þeir
sökkva því, en Tyrkir hafa hótað
hefndum verði það gert. Ekki er
vitað nákvæmlega hvenær Tyrkir
hyggjast senda skipið til rann-
sókna, en það gæti orðið hvenær
sem er næsta mánuðinn eða svo.
— Foli
Framhald af bls. 1
Bandarikjanna. Áður var
hæsta verð, sem greitt hafði
verið fyrir veturgamlan fola,
715 þúsund dollarar.
Eigandi metsölufolans, sem
seldur var í gær, var Nelson
Bunker Hunt, auðjöfur frá
Texas, en folinn er hálfbróðir
hryssunnar Dahlia, sem hefur
skilað 1V4 milljón dollara í
hreinan hagnað i kappreiðum.
— Rigningin
Framhald af bls. 3
var mikill handagangur í öskjunni.
Þarna voru um 30 strákar í hörku-
vinhu í rigningunni, en við vildum
ekki trufla þá, svo við snerum okkur
að nokkrum, sem voru í „smápású' _
„Þeir eru að bíða eftir helginni,
svo þeir geti farið á ball," sagði
verkstjórinn þeirra og var horfinn
um leið
Þeir voru allir sammála um að
þarna væri gott að vinna og ágætt
upp úr þessu að hafa „Það er gott
að vinna svona úti, alveg sama
hvernig veðrið er," sagði einn.
„Rigningin þarf ekkert að vera verri
en sólin, því þá getur orðið svo heitt
og loftlaust niðri í lestunum að mað-
ur verður bara latur "
— Skipstjórinn
Framhald af bls. 36
hefur fregnað að málið hafi
dregizt af ýmsum orsökum fyr-
ir hæstarétti, ekki sízt þar sem
skipstjóri togarans í veiðiferð-
inni, Werner Masteit, er lát-
inn.
Morgunblaðið snerí sér í gær
til Þórðar Björnssonar rtkis-
saksóknara og spurði hann
hvort málinu yrði haldið
áfram. Þórður sagði, að skip-
stjóri togarans hefði fallið frá
áður en málinu hefði Iokið fyr-
ir hæstarétti og að sínu mati
væri ekki hægt í opinberu máli
að halda áfram saksókn á
hendur manni, sem væri lát-
inn.
Þá sneri Morgunblaðið sér
til Jóns N. Sigurðssonar hrl.,
sem var verjandi skipstjórans í
málinu, en hann vildi ekkert
um það segja.
— Þotunni sleppt
Framhald af bls. 1
Nakuru og hafnarborgina Momb-
asa.
Jafnframt hermir Kenya-
útvarpið að 2,000 Ugandaher-
menn hafi gert uppreisn og að
uppreisnin hafi breiðzt út þar
sem herinn hafi verið beðinn að
undirbúa innrás i Kenya.
Blaðið Daily Nation i Nairobi
segir að uppreisnarmenn hafi
heitið þvi að berjast unz yfir ljúki
gegn stjórn Amins. Uppreisnar-
mennirnir hafa búizt rammlega
til varnar í Mubende og Bombo
skammt frá höfuðborginni til að
verjast hugsanlegum tilraunum
Amins til að bæla uppreisnina
niður að sögn blaðsins.
— Mars
Framhald af bls. 1
sóknarstöðinni i Pasadena, sem
fá allar upplýsingar frá Mars-
ferjunni, segja að litmyndin af
yfirborðinu sé með afbrigðum
skýr og góð. Raunar er hér um
þrjár myndir að ræða, sem
teknar eru gegnum mismun-
andi litsíur, en síðan settar
saman í tölvu. Segja vísinda-
mennírnir að yfirborðið sé
ótrúlega líkt eyðimörkum, eins
og þær líta út til dæmis i suð-
vesturhéruðum Bandaríkjánna
og í Ástraliu. Jarðvegurinn er
rauðbrúnn, en steinarnir ljós-
ari, og virðist sumsstaðar vera á
steinunum grænleik slikja, sem
gæti þó verið skuggar.
Dr. Thomas Mutch, yfirmað-
ur ljósmyndadeildarinnar við
Víkingsleiðangurinn til Mars,
sagði um litmyndina að um-
hverfið væri ótrúlega líkt því,
sem sjá mætti hér á jörðunni,
og gjörólíkt umhverfi á tungl-
inu.
Köfnunarefni, sem nauðsyn-
legt er öllu jurta- ög dýralífi á
jörðu, hefur ekki áður fundizt á
Mars, þótt vísindamenn hafi
haft grun um að það væri þar
að finna I mjög litlu magni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Mars-ferjunni er köfnunarefni
um 3% af andrúmsloftinu á
Mars, en hér á jörðu er það um
80%. Bíða menn þess nú með
enn meiri áhuga en áður að fá
fyrstu upplýsingarnar um
samsetningu jarðvegs reiki-
stjörnunnar, en þær upplýsing-
ar eru væntanlegar eftir um
það bil viku.
— Rætt við
Jóhannes
Framhald af bls. 15
mjólkurframleiðslu sé viðhaldið á
stöðum, þar sem slíkt er mjög óhag-
kvæmt "
Má gera ráð fyrir mjólkurskorti i
framtiðinni?
„Það má búast við að árstiða
bundinn skortur verði á áfallasöm-
um árum Eg er hins vegar þeirrar
skoðunar að ef góður vetrarvegur
kæmi yfir Holtavörðuheiði mætti
brúa þetta bil, því það er ekkert
lengra að sækja mjólk ingað á
Blönduós en austur i Vik i Mýrdal "
„ÓKLEIFT AÐ
KOMA UPP BÚSKAP
Á JÖRÐNEMA
TIL KOMI SÉRSTAKAR
AÐSTÆÐUR"
Að siðustu barst talið að mogu-
leikum ungs fólks til að hefTá búskap
og í því sambandi sagði JóhanneS:
„Ef ungur maður vill kaupa nýlega
uppbyggða jörð má ætla að hún
kosti milli 20 og 25 milljónir en lán
til jarðakaupa eru ekki nema um ein
milljón og það sér hver maður að
það tekur enginn 20 milljónir upp
úr vasanum, þegar hann veit fyrir-
fram að afraksturinn af búinu fyrstu
árin stendur ekki undir vöxtum.
Sömu vandamál og engu minni
mæta þeim, sem geta fengið
óbyggðar jarðir Mér hlýtur að of-
bjóða hvað illa er að þessum at-
vinnuvegi búið, að það sé ókleift að
koma upp búskap á jörð nema til
komi sérstakar aðstæður s.s. erfðir
og skyldleiki Þetta getur ekki geng-
ið til lengdar, ef landbúnaður á
áfram að verða við líði í landinu "
~t.g