Morgunblaðið - 22.07.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. JUU 1976
29
fclk f
fréttum
Liza feimin viðRedford
+ Hvað gerir maður, sem
hittir óvænt
uppáhaldskvikmyndaleikarann
sinn á förnum vegi? — Stamar,
flissar, roðnar eða fer í flækju
eins og kallað er? — Allt þetta
henti Lizu Minnelli þegar hún
stóð I fyrsta skipti augliti til
auglitis við uppáhaldið sitt.
kvikmyndaleikarann Robert
Redford. Það gerðist I
samkvæmi sem Redford hélt
nýlega I New York I tilefni
nýjustu myndar sinnar „All
The President’s Men“. Þótt
sjálf sé Liza heimsfræg
kvikmyndaleikkona hegðaði
hún sér nákvæmlega eins og
venjuleg gagnfræðaskólastelpa
og stamandi bað hún Redford
um eiginhandaráritun. Liza
jafnaði sig þó fljótt og er líða
tók á samkvæmið höfðu góð
kynni tekizt með henni og
uppáhaldinu...
Burton flytur í
hús Gretu Garbo
+ Richard Burton, sem
nú stendur á fimmtugu,
er nú fluttur inn í nýtt
einbýlishús ásamt hinni
nýju vinkonu sinni,
Susan Hunt, sem er 29
ára. Húsið, sem er í-
Kaliforníu, átti áður
Greta Garbó, en ekki
fylgir sögunni hvert
söluverðið var.
Ljósin
tendruð
+ Þessi mynd af Jacquelinc
Onassis var tekin í New York
fyrir skömmu. Hún er hér að
kveikja á Ijósabúnaði, sem lýsa
á upp styttuna af Mercury, sem
stendur fyrir framan Grand
Gentral Terminal-bygginguna í
New York.
Knattspymu
maðurinn
Elton John
+ Rokksöngvarinn Elton
John hefur hér brugðið sér f
gervi knattspyrnumannsins og
ekki að tilefnislausu, því hann
hefur nú nýlega keypt hlut í
knattspyrnufélaginu „Los
Angeles Aztecs“. Elton vildi
semsagt vekja athygli á Ifði
sínu og knattspyrnu almennt,
en eins og kunnugt er, á sú
fþróttagrein fremur örðugt
uppdráttar í Bandarfkjunum.
Sagt er að tiltæki Eltons hafi
vakið athygli vestra og mælzt
vel fyrir...
— Gos
Framhald af bls. 3
andi auga með Kröflusvæðinu
vegna hennar. Kröflusvæðið er
engan veginn enn komið i jafn-
vægi og meðan svo er verður að
telja allmiklar likur á þvf, að eld-
ur kunni að brjótast út á ný.“
í sambandi við mælingar á bor-
holum við Kröflu og Námafjall
segir i áætluninni, að þær breyt-
ingar sem þar hafa mælzt, séu
afleiðingar gossins i Leirhnjúk.
Þess vegna sé erfitt að nota niður-
stöður þeirra mælinga til að segja
fyrir urh likur á nýju gosi.
Rannsóknirnar, sem hér um
ræðir, voru ekki ráðgerðar i fjár-
lögum 1976 og fóru aðilar þeirra,
þ.e. Norræna eldfjallastöðin,
Landmælingafélag íslands, Orku-
stofnun, Raunvisindastofnun Há-
skólans og Veðurstofa íslands,
fram á viðaukafjárveitingu til
rannsókna á grundvelli áætlunar-
innar. Ríkisstjórnin hefur nú fall-
izt á aó verja sérstakri fjárveit-
ingu til verkefnanna, sem gert er
ráð fyrir í áætlun ofangreindra
stofnanna. Heildar- fjárveiting ár-
ið 1976 mun nema kr. 5.954 þús.
og árið 1977 3.656. þús. kr.
Samstarfshópur myndaður af
fulltrúum þeirra stofnana, sem
taka þátt i rannsóknunum, mun
gera ráð fyrir að senda frá sér
skýrslu um gang mála eigi sjaldn-
ar en á þriggja mánaða fresti.
— Lygamælir
Framhald af bls. 5
þrýsting, æðaslátt, öndun og
skinnmótstöðu við rafmagni.
Einn galli Dektor P.S.E. tækja er
sá að það hefur ekki enn verið
nægilega rannsakað hvort breyt-
ingar á microsveiflum í röddinni
eigi sér stað hjá öllum einstakl-
ingum þegar um streitu er aó
ræða. Þetta á sennilega allt eftir
aó koma i ljós við frekari rann-
sóknir.
Gisli lætur Vel af starfinu hjá
rannsóknarlögreglunni. „Ég tel,
áð reynslan sem ég hef öðlazt hér
við lögreglustörf, bæði i götulög-
reglunni og rannsóknarlögregl-
unni hafi verið mér ómetanleet í
sambandi við nám mitt og veitt
mér ótrúlega mikla innsýn i sálar-
fræðina," segir hann. „Maður um-
gengst svo marga í þessu starfi og
kynnist högum svo margs fólks
við mismunandi aðstæður — í
stuttu máli þá sér maður i þessu
starfi meira um mannlegar að-
stæður en nokkru sinni i vinnu
sem sálfræðingur.”
Gisli hefur einnig leitað viðar
fyrir sér, þvi að um tíma starfaði
hann einnig á vegum félagsmála-
stofnunar Reykjavikur og hafði
þar aðallega afskipti af barna- og
unglingamálum og starfaði þá í
nánum tengslum við Helga Dani-
elsson sem fer með þessi mál hjá
rannsóknarlögreglunni. Reyndar
kvaðst Gísli hafa verið að hugsa
um það aó loknu B.S.-prófi í sálar-
fræði að snúa sér að afbrotafræði
og hafa verið búinn að fá vist í
Cambridge háskóla i þeirri sér-
grein, en síðan tekið klínsku sál-
arfræðina fram yfir þegar hann
sá að hún bauð upp á mun meiri
verklega þjálfun en gafst i af-
brotafræðinni.
— BHM
Framhald af bls. 3
að taka á sig til jafns við aðra þá
kjaraskerðingu sem nauðsynleg
kann að reynast vegna tímabund-
inna efnahagsörðugleika. En nú
ríkir mikil óánægja í röðum ríkis-
starfsmanna.”
Töldu fulltrúarnir þrautreynt,
að leiðrétting mundi ekki ná fram
að ganga án verkfalls eða annarra
aðgerða. Fyrir þvi séu engin hald-
bær rök, að ríkisstarfsmenn eigi
áð líða meiri kjararýrnun en sam-
bærilegir starfshópar á almenn-
um vinnumarkaði.
Fulltrúar BHM á fundinum
lögðu á það áherzlu að BHM mun
halda áfram baráttunni fyrir af-
námi tekjuskatts og þá ekki sizt
með tilliti til þess, að opinberir
starfsmenn bera mun þyngri
skattabyrðar en almennt gerist og
enn fremur fyrir verkfallsrétti,
ekki sízt núna, „þegar ljóst er að
aðrar aðgerðir hafa verið
árangurslaúst þrautreyndar."
ASTMA- OG
LUNGNASJÚKIR
Samband islenskra berklasjúklinga og Samtök astma- og ofnæmissjúkl-
inga halda fræðslunámskeið fyrir astma- og lungnasjúk börn og
aðstandendur þeirra i Reykholtsskóla í Borgarfirði dagana 7.—14.
ástúst n.k.
Læknir, sjúkraþjálfari og íþróttakennari verða með hópnum til leiðbein-
ingar og fræðslu.
Þeir, sem áhuga kynnu að hafa fyrir þátttöku, hafi samband við
skrifstofu S.Í.B.S., Suðurgötu 10 sími 22153.
Ný sending