Morgunblaðið - 04.08.1976, Side 12

Morgunblaðið - 04.08.1976, Side 12
12 -2______________________________________________________ MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 1976 Frá Rauðhettu. Þangað komu um 6000 manns víni var vísað frá staðnum. Við leit fundust aðeins 5 flöskur af áfengi og tók Sveinn það fram að sárafáir virtust reyna að brjóta þær reglur sem þeir settu á þessum mótum. Þau hafa verið haldin allt frá árinu 1967 og kvað Sveinn það fólk- inu sjálfu að þakka hvað alit fór vel fram, mótin væru fyrst og fremst sómi þeirra sem sæktu þau, en ekki þeirra sem sæju um þau. Lögreglan á Hvolsvelli sÉi, um gæslu og greiddi fyrir umferð og var hún mjög ánægð með samstarfið við stjórnendur bindindismótsins. Rauðhetta ’76 hét mót, sem fram fór við Ulfljótsvatn og var Tryggvi Jónsson framkvæmda- stjóri þess. Skátasamband Reykjavikur sá um mótið og sagði hann að þangað hefðu komið 6.000 manns. Þar fór allt vel fram, enda margt starfsfólk, voru skátarnir með 250 til 260 manna lið. „Lögreglan tók þá ákvörðun að ekki skyldi leita að víni, em í auglýsingum mótsins var tekið fram að notkun áfeng- is væri bönnuð,” sagði Tryggvi. „Krakkarnir brugðust líka vel við því, urðu allt öðru vísi í viðmóti og miklu jákvæðari út í lögregluna og hennar starf, en lögreglan tók mjög vel á málun- um og við komumst ,að raun um það að þetta er rétta aðferðin." Þá sagði Tryggvi að ungling- ar á aldrinum 13—17 ára hefðu verið meirihluti mótsgesta, en einnig voru þarna fjölskyldu- búðir dálítið frá. Á dagskrá var ýmislegt til að stytta sér stundir við og má nefna hæfileika- keppni, tívolí, bátaleiga var starfrækt ' og flugeldasýning eitt kvöldið. Hann vildi þakka öllum þeim sem komu við sögu að allt fór vel fram, starfsfólk- inu á staðnum, starfsfólki Um- ferðarmiðstöðvarinnar og lög- reglunni í Árnessýslu, en hún sagði að ekki hefði hún áður „Mótið er sómi þeirra sem sóttu það” Fjölmenn mót fóru vel fram um verzhmarmannahelgina ÞÚSUNDIR manna söfnuðust saman á ýmsum stöðum um verzlunarmannahelgina þar sem haldin voru mót og útisamkomur. Á flestum stöðum fór allt vel fram þrátt fyrir erfið veðurskilyrði á köflum en nokkuð rættist þó úr því og var víðast á landinu gott veður þegar Ifða tók á helgina. Sigurður Agústsson hjá Um- ferðarráði veitti blaðinu þær upplýsingar að alls staðar hefði umferðin gengið greiðlega og mjög lítið verið um slys og óhöpp þrátt fyrir gífurlega um- ferð. Mest var umferðin sunn- anlands þar sem nokkur þús- und manns söfnuðust saman í Galtalækjarskógi og við Úlf- ljótsvatn en einnig var mikil umferð við Mývatn, á hesta- mannamótinu á Vindheimamel- um og á Eiðum en þar voru um eitt þúsund manns um helgina. Sigurður sagði að í Skaftafelli hefðu verið talin um 214 tjöld, u.þ.b. 700 manns og á Þingvöll- um 120 tjöld. Þá var og margt manna á Laugarvatni en færra í Þórsmörk og Landmannalaug- um. Umferð var mest í kringum þessa staði og var hún að mestu slysalaus eins og fyrr sagði. í Galtalækjarskógi voru um 2500—3000 manns að sögn Sveins H. Skúlasonar. Þar fór fram bindindismót og var þar mikið um fjölskyldufólk, enda mótið og dagskrá þess gerð með það fyrir augum að sem flestir aldursflokkar fái eitthvað við sitt hæfi. Sagði Sveinn að allt hefði farið vel fram hjá þeim, aðeins einum manni hefði þurft að vísa frá mótsstað, en reglan er sú að þeim sem voru með Slysahjálp skátanna á Rauðhettu ... ... kom að góðum notum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.