Morgunblaðið - 04.08.1976, Síða 34

Morgunblaðið - 04.08.1976, Síða 34
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. AGUST 1976 SOVRTMENN endurtóku afrek sitt frð Ólympfuleikunum f Montreal á laugardaginn, er þeir hlutu hvorki fleiri né færri en fimm gullverðlaun f frjálsri- glfmu á Ólympfuleikunum. Séndu sovézku glfmumennirnir mikil tilþrif f keppninni, og oft- ast unnu þeir andstæðinga sfna með miklum yfirburðum. Kom á daginn að þjálfari sovézku glfmu- mannanna, Yuri Shakhmuradov, hafði rétt fyrir sér, er hann sagði fyrir leikana, að glfmumennirnir sfnir væru nú betri en nokkru sinni fyrr, og myndu f það / n ■ / sigruðu í hokkí NYJA SJALAND sigraði Astaliu með einu marki gegn engu i úr- sitaleik hokkikeppninnar á Ólympiuleikunum í Montreal. Unnu Ný-Sjálendingar þar með sinn fyrsta Ólympiumeistaratitil i hokki — en enginn átti von á þvi fyrirfram að þeir myndu blanda sér i baráttuna um verðlaunasæti á leikunum nú. hvað þá Astaliu búar sem hlutu silfurverðlaunin. Miklar sviptingar urðu i hokki- keppninni i Montreal, og sann- kallað stjörnuhrap. Þannig urðu Indverjar, sem eru heimsbikar- hafar i þessari grein að gera sér sjöunda sætið að góðu. Vestur- Þjóðverjar sem unnu sigur i keppninni 1972 urðu i fimmta sæti og Pakistanar sem alltaf hafa komizt i úrslit á Ólympiu- leikum urðu aðeins i þriðja sæti. Ný-Sjálendingar hafa hins vegar aldrei fyrr verið ofar en I fimmta sæti i þessari grein á Ólympiuleikum, og var það i Róm 1960 minnsta hljóta jafnmörg gull- verðlaun og á leikunum 1972. — En Bandaríkjamennirnir komu mér algjörlega á óvart í þessari keppni sagði Shakhuradov, eftir keppnina á laugardaginn. — Við vissum að þeir höfðu góðu liði á að skipa, en ekki jafn frábæru og raun bar vitni. En Bandaríkjamenn hlutu samt sem áður aðeins ein gullverðlaun í glímukeppninni. Silfrin voru hins vegar þrenn og bronsverð- launin tvenn. Eini Bandaríkja- maðurinn sem hreppti gull var John Peterson og lauk sovézki þjálfarinn sérstöku lofsorði á hæfni hans og reyndar bróður hans, Bens, sem tapaði í úrslita- leik fyrir Levan Tediashvili. Japanar voru mjög atkvæða- miklir í léttri þyngdarflokkunum í glímunni og hlutu þar tvenn gullverðlaun: Yuji Takada í fluguvigtarflokknum og Jiichiro Date í veltivigtarflokknum, auk þess sem Japanarnir hlutu einnig þrenn bronsverðlaun. Aðrir gull- verðlaunahafar í glímukeppninni voru Búlgari og Suður- Kóreumaður, en Suður-Kórea hlaut einnig ein bronsverðlaun í keppninni. Davíð lagði Golíat JAPANINN Haruki Uemura bar sigur úr býtum í opna flokknum I júdó á Ólympfuleikunum ( Montreal á laugardagskvöldið. Til úrslita keppti hann við Keith Remfry frá Bretlandi og vann Japaninn leikinn á ippon, þ.e. hlaut fullan sigur. Áhorfendur að útslitaleiknum gátu ekki varizt hlátri er kapparnir gengu fram til úrslita- glímunnar. Virtist Japaninn vera næstum dvergur við hlið hins tröllaukna Breta, sem vegur hvorki meira né minna en 140 kíló. En viðureignin fór á annan veg en ætla mátti. Japaninn náði fljótlega taki á tröllinu og sveifl- aði því í gólfið sem fis væri. Þar með var þriðja gull Japana í þessari þjóðaríþrótt þeirra f höfn. Eftir keppnina sagði Bretinn, sem tvfvegis hefur unnið til bronsverðlauna f heimsmeistara- keppni, að þetta hefði verið hans sfðasta glíma — nú ætlaði hann að leggja búninginn á hilluna. Bronsverðlaunahafar f opna flokknum urðu þeir Shota Chochishvili frá Sovétríkjunum og Jeaki Cho Won frá Suður- Kóreu. Kúbumaðurinn Teofilo Stevenson greiðir andstæðing sfnum, Mircea Simons, vel útilátið hægri handar högg f úrslitaleiknum. Stevenson tókst að veija titil sinn, en Bandaríkjamenn vom sigursælastir BANDARIKJAMENN áttu mikilli vel gengni að fagna þegar keppt var til úrslita í hnefaleikum á Ólympíuleik unum í Montreal á laugardaginn. Þeir unnu eigi færri en fimm Ólym píumeistaratitla, og svo marga sigra hafa Bandaríkjamenn ekki unnið á Ólympíuleikum síðan 1952. Þessir hnefaleikasigrar voru mikil uppreisn Hartmut Schade skorar fyrsta mark Þjóð- verjanna í úrslitaleik knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna á laugardaginn. Knattspyrnukeppni OL: A-ÞJÓÐVERJAR HÖFÐU HEPPNINA MEÐ SÉR OG SIGRUÐU PÓLVERJA LIÐ Austur-Þýzkalands, að mestu skipað sömu leikmönnum og töp- uðu fyrir íslandi á Laugardals- vellinum í fyrrasumar, vann Ólympfumeistaratitilinn f knatt- spyrnu f Montreal á laugardaginn með því að sigra Pólland 3—1 í úrslitaleik, sem fram fðr við hin verstu skilyrði á glerhálum velli og f ausandi rigningu. Þrátt fyrir óblftt veður voru 71.619 áhorf- endur að leiknum, og þótti það með ólfkindum f landi þar sem knattspyrnan er ekki ýkja hátt skrifuð. Hafa aldrei verið jafn- margir áhorfendur að knatt- spyrnukappleik í Norður- Amerfku og ólfklegt þykir einnig að þetta aðsóknarmet verði slegið þar f bráð. Austur Þjóðverjarnir fengu „fljúgandi start“ í leiknum á laugardaginn, þar sem þeir áttu stangarskot þegar á fyrstu mfnút- unni, og skoruðu síðan fyrsta mark leiksins þegar á sjöttu mfnútu. Það mark skoraði Hart- mut Schade eftir mjög góða send- ingu frá Martin Hoffmann. Aðeins sjö mínútum síðar — á 13. mínútu — bættu Þjóð- verjarnir öðru marki við og var Framhald á bls. 23 fyrir Bandaríkjamenn, þar sem.vitað var að Kúbumenn og Austur- Evrópumenn höfðu hug á því að „hreinsa til f bandaríska hnefaleika- viginu" eins og það var orðað. — En við vorum ákveðnir í að láta ekki Kúbumenn og Austur-Evrópubúana fara með okkur, sagði Rollie Schwarts, fyrirliði bandarfsku hnefa- leikasveitarinnar f Montreal — við skoðuðum kvikmyndir af öllum helztu keppinautum okkar fyrir leik ana, og reyndum að læra af þeim. Kúba, sem var með sex menn i úrslitum í Montreal, hlaut þrjá Ólym- píumeistara, eða jafnmarga og á leik unum í Múnchen 1972. Einu Austur- Evrópubúarnir sem sigruðu á leikunum nú voru Jochen Bachfeld sem sigraði í veltivigt og Jerzy Rybicki frá Póllandi sem sigraði í létt-millivigt Sovétmenn hlutu því engin gullverðlaun að þessu sinni, og er það í fyrsta sinn sem slikt kemur fyrir frá því að þeir byrjuðu að keppa á leikunum. Eini maðurinn sem þeir áttu i úrslitum, Rufat Riskiev, átti aldrei möguleika i úrslitaleik sínum við Bandarikjamanninn Michael Spinks Að venju vakti keppnin í þungavigt mesta athygli Meðal keppenda í þess- um þyngdarflokki var Teofilo Stevens- on frá Kúbu, sem sigraði í Múnchen 1972 með miklum yfirburðum. Eftir þá leika hætti Stevenson keppni um skeið, og sinnti ekki ýmsum gylliboð- um að gerast atvinnumaður í greininni. Hann var gerður að ritara kúbönsku Ólympiunefndarinnar, en þegar leið að leikunum í Montreal, sagði hann þeirn stöðu af sér og byrjaði að æfa aftur Og á leikunum brást Stevenson ekki boga- listin. Hann rotaði andstæðinga sina i fyrstu eða annarri lotu hvern á eftir öðrum Álitið var að hörð barátta yrði um gullverðlaunin millr Stevensons og Bandaríkjamannsins John Tate, en svo vildi til að þeir lentu saman i undanúr- slitum Þar var nánast ekki um keppni að ræða Það tók Stevenson aðeins 83 sekúndur að afgreiða Tate, þannig að hann varð að hætta keppninni Til úrslita keppti Stevenson við Rúm enann Mircea Simon og var auðséð þegar keppni þeirra hófst að Rúmeninn var dauðhræddur við andstæðing sinn Hann reyndi ekki að sækja, en bar ætið fyrir sig hendurnar og reyndi að ná Stevenson í fangbrögð Leið þannig fyrsta lota öll án þess að nokkuð mark- vert skeði og alveg fram á síðustu stundu í annarri lotu, en þá greiddi Stevenson andstæðing sínum slíkt hægri handar högg, að hann flaug i gólfið Þótt Simon næði að standa upp var leikurinn úti, og var það þjálfari Rúmenans, sem óskaði eftir því við dómarann að hann léti leikinn ekki halda áfram og dæmdi Stevenson sig- urinn í fyrsta sinn í sögu Ólympiuleikanna unnu tveir bræður Ólympiumeistara- titla í hnefaleikum Voru það þeir Leon Spinks og Michael Spinks frá Banda- ríkjunum Leon keppti til úrslita við Kúbumann og var þar algjörlega um leik kattarins að músinni að ræða Leon barði Kúbanann niður þegar i fyrstu lotu, og í annarri lotu lá Kúbu- maðurinn einnig á gólfinu Þá varð bjallan honum til bjargar Á fyrstu mínútu þriðju lotu sendi Leon and- stæðing sinn í þriðja sinn í gólfið Og þótt Kúbumanninum tækist að staulast á fætur, ákvað dómarinn að leiknum yrði ekki haldið áfram og dæmdi Bandarikjamanninum sigur á „tekn- ísku” rothöggi Hinn Spinks-bróðirinn, Michael, keppti við Rufat Riskiev frá Sovétrikj- unum, en sá er heimsmeistari i sínum þymgdarflokki, millivigt. Til að byrja með var slagur þeirra nokkuð jafn, en síðan kom fram að Bandaríkjamaður inn hafði yfir mun betri tækni að ráða, og tókst honum að afgreiða Sovét- manninn eftir 1,54 mínútur í þriðju lotu. Meðal áhorfenda að hnefaleika- keppninni var frú Kay Spinks, móðir þeirra bræðra, og sat hún alveg við hringinn þar sem synirnir voru að keppa. Kom frúin til Montreal á síðustu stundu til þess að sjá syni sína keppa, en hún hafði fengið upphringingu þar sem henni var skýrt frá því að farseðill til Montreal biði hennar á ferðaskrif- stofu í St Louis, en þar býr Spinks- fjölskyldan. — Ég hef ekki hugmynd um hver var svo vinsamlegur að bjóða mér sagði frúin og Ijómaði af gleði er hún sat milli sona sinna eftir keppnina — Ég er auðvitað gífurlega ham- ingjusöm sagði hún — Ég veit að Guð er með drengjunum mínum. Þeir Michael og Leon sem eru 20 og 23 ára, eiga alls fimm systkini og hefur oft verið þröngt í búi hjá fjölskyldunni, ekki sízt eftir að faðir þeirra yfirgaf heimilið Móðirm lagðist mjög gegn því að þeir færu að æfa hnefaleika, en bæði var að þjálfari þeirra lagði áherzlu á að þeir héldu áfram, og að þeir höfðu mjög gaman af íþróttinni, þannig að þeir höfðu óskir móður sinnar að engu — Nú vilja hinir bræðurnir fjórir allir verða hnefaleikarar, sagði Kay Spinks — Guði sé lof að ég á eina dóttur! FRJÁLSA GLÍMAN FÆRÐI SOVETMÖNNUM 5 GULL

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.