Morgunblaðið - 04.08.1976, Side 38
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1976
r
Atti fimm af sex lengstu köstunum
BÚLGARSKA kraftakerl-
ingin Ivanka Khristova,
heimsmethafi í kúluvarpi
kvenna, átti ekki í erfið-
leikum með að krækja í
Ólympíumeistaratitilinn í
sinni grein, þegar keppt
var til úrslita í henni á
leikunum f Montreal á
laugardaginn, jafnvel þótt
meðal keppinauta hennar
væru tveir fyrrverandi
heimsmethafar:
Nadyezhda Chizhova frá
Sovétríkunum og Helena
Fibingerova frá Tékkó-
slóvakíu, en sú fyrrnefnda
vann gullverðlaun í þess-
ari grein á Ólympíuleikun-
um í Múnchen fyrir fjór-
um árum.
Khristova, sem nú er 34 ára að
aldri og starfar sem skrifstofu-
stúlka í heimaborg sinni, Sofíu,
varpaði 21,16 metra í keppninni í
Montreal og náði betri árangri i
fimm köstum sinum af sex en
helzti keppinautur hennar, Chizh-
ova. Þykir afrek Khristovu enn
athyglisverðara fyrir það, að hún
varð að hætta æfingum og keppni
árið 1974, er hún eignaðist barn.
Þá ætlaði hún sér ákveðið að
hætta þátttöku í íþróttum, en þeg-
ar hún náði mjög góðum árangri i
smámóti sem hún tók þátt i s.l. ár,
ákvað hún að æfa fyrir Ólympiu-
leikana í Montreal. Og árangur-
inn lét heldur ekki á sér standa.
Hún setti tvö heimsmet í kúlu-
varpi á sama sólarhringnum í
sumar, og bætti síðan Ölympíu-
meistaratitlinum við á laugardag-
Geysilegur fögnuður er Pól-
verjar h utu gullverðlaun í blaki
PÓLVERJAR sigruðu Sovétmenn i
úrslitaleik blakkeppninnar á Ólym
píuleikunum i Montreal með þremur
hrinum gegn tveimur í leik sem lengi
verður í minnum hafður fyrir hversu
spennandi og vel leikinn hann var.
Ætlaði allt vitlaust að verða í blak-
hollinni i Montreal þegar sigur Pól-
verjanna var i höfn, en þeir fjöl
mörgu áhorfendur sem voru við-
staddir leikinn voru nær allir á bandi
Pólverjanna, og var auðséð að að-
stoð áhorfenda kom sér mjög vel
fyrir þá, samfara þvi að lætin virtust
fara i taugarnar á Sovétmönnum,
sem náðu tæpast að sýna sitt bezta i
leiknum
Sovétmenn höfðu töglin og
hagldirnar í leiknum til að byrja með
Voru yfir í fyrstu hrinunni frá upphafi
til enda, en ekki var þó um neina
yfirburði að ræða, þar sem úrslitin
urðu 1 5—11 í annarri hrinunni
höfðu Sovétmenn yfir til að byrja með
en Pólverjar snéru síðan leiknum sér í
hag og sigruðu 1 5— 1 3 Þriðja hrinan
fór 15—13 fyrir Sovétmenn, þannig
að staðan var orðin 2—1 þeim í vil
Geysileg barátta var í þriðju hrinunni
og þurfti upphækkun til þess að fá
fram úrslit Pólverjar sigruðu 19—17,
þannig að staðan var aftur jöfn 2 — 2
Þá var komið að úrslitahrinunni
Sovétmenn byrjuðu mjög vel og
komust í 4 — 0 þegar eftir 5 mínútna
leik En þá náðu Pólverjar sér heldur
betur á strik og skoruðu næstu fimm
stig Virtist þetta gefa þeim byr undir
báða vængi svo um monaði, og eftir-
leiðis var nánast ekki um keppni að
ræða Pólverjarnir sigruðu 15—7, og
að leik loknum dönsuðu þeir sann-
kallaðan sigurdans inni á vellinum með
öskur áhorfenda sem undirspil
Kúbumenn urðu í þriðja sæti í
blakinu, sigruðu Japana i úrslitaleik
um það sæti 3—0 (1 5—8, 1 5—9 og
15—8)
I blaki kvenna sigruðu japönsku
stúlkurnar nokkuð örugglega í úrslita-
leik sínum við Sovétríkin: 15—7,
15— 8og 15—2
Ný-Sjálendingurinn John Walker hlaut Ólympfugull f 1500 metra
hlaupinu á laugardaginn, og kom það engum á óvart. Það vakti hins
vegar furðu margra að hann skyldi ekki komast f úrslit f 800 metra
hlaupinu, en þessi mynd er úr undankeppninni f þvf og sýnir Englend-
inginn Clement (nr. 357) skjótast fram úr Walker á sfðustu metrun-
um. Varð Walker f fjórða sæti f hlaupinu og komst þvf ekki áfram. _
FJARVERA BAYIS ER SKUGGI A
ÓL-MEISTARATITLI WALKERS
Vopnaðir öryggisverðir voru hvarvetna á Ólympfusvæðinu. Kanada-
menn önduðu léttar á sunnudagskvöldið þegar leikunum var lokið, án
þess að nokkurt meiri háttar óhapp yrði.
NÝ-SJÁLENZKI heims-
methafinn { míluhlaupi.
Betra að hafa pappírana í lagi
Frá Agústi I. Jónssyni
í Montreal; laugardag.
ÖRYGGISEFTIRLITIÐ virðist
vera mjög mismunandi hér í
Montreal og bitna á ólfkan hátt á
fólki. Þannig höfðu tslendingarn-
ir Bjarni Stefánsson og
Guðmundur Sigurðsson gengið
um allt innan Olympfuþorpsins
og utan þess allt frá þvf að þeir
komu hingað þar til á fimmtudag-
inn, án þess að hafa nokkurn
stimpil f passanum sfnum. Kom
þetta fyrst í ljós á fimmtudaginn
og var málunum þá snarlega
kippt f liðinn, þannig að þeir
Bjarni og Guðmundur hafa nú
eins og aðrir stimpil f passanum
sfnum. Eftir að fréttist um að
pössum hefði verið stolið og aðrir
höfðu verið seldir, er allt eftirlit
miklu nákvæmara og þess vegna
hefur örugglega komið f Ijós að
tslendingarnir tveir voru með
stimplalausa passa.
Frá því hefur verið sagt, að
Kanadamaður einn bauð vini sín-
um gistingu í Ólympíuþorþinu og
hafði vinurinn verið með skilrfki
Kanadamannsins í tæpa viku,
þegar glæpurinn uppgötvaðist og
voru báðir sendir heim með það
sama, en þeir aðrir sem meðsekir
voru í þessu máli sluppu með
áminningu.
Þá voru sex kanadískir kepp-
endur sendir heim til sín í vik-
unni, en þeir höfðu fengið sér i
staupinu og voru með einhvern
gauragang i þorpinu. Bannað er
að hafa vín um hönd í Ólympíu-
þorpinu og voru þessar aðgerðir
nokkurs konar viðvörun til ann-
arra, en nokkur brögð munu hafa
verið að þvi að keppendur lyftu
glösum eftir að þeir hafa lokið
keppni.
Blaðamenn hafa ekki alveg
sloppið við að verða fyrir barðinu
á öryggiskerfinu. Þannig misstu
sænskur blaðamaður og vestur-
þýzkur Ijósmyndari passa sína um
tíma, eftir að hafa óhlýðnast fyrir-
mælum starfsmanna í íþróttahöll-
unura.
Undirritaður ætlaði sér i
'Ólympíuþorpið s.l. fimmtudag, en
ekki gekk það þrautalaust að
komast þangað inn. Þegar að síð-
asta hliðinu við þorpið kom fundu
lögreglumenn út að hinir nauð-
synlegu pappírar og passar voru
ekki rétt út fylltir. Þurfti undir-
ritaður því að fara aftur á skrif-
stofu þá sem útbýtir pössum og fá
pappírunum breytt. Stúlkan sem
það gerði krassaði kæruleysislega
yfir vitleysuna og skrifaði það
sem átti að standa á pappírunum.
Ekki líkaði lögregluþjónunum
þetta þegar að hliðinu kom í ann-
að sinn. Sögðu þeir að undirritað-
ur hefði falsað þetta sjálfur og
með það sama var hann leiddur af
tveimur lögregluþjónum á lög-
reglustöð við Ólympíuþorpið. Þar
hringdu lögregluþjónarnir síðan í
allar áttir þar til þeir eftir hálf-
tima voru sannfærðir um að þeir
höfðu ekki klófest glæpamann og
mistökin voru þeirra eigin fólks,
en ekki blaðamanns Morgun-
blaðsins. Fékk undirritaður nú
lögreglufylgd inn f þorpið eins og
Elísabet Bretadrottning á dögun-
um og þegar inn fyrir hliðið kom
háðu þessir kanadisku herra-
menn mikillega afsökunar. Bentu
þeir þó réttilega á að þeirra starf
væri að sjá um að gæta öryggis
þorpsbúa og að enginn færi inn
fyrir hliðið nema hafa alla sína
pappíra rétt útfyllta.
fjórir flóttamenn
Aðeins
AÐEINS fjórir iþróttamenn frá
Austur-Evrópu urðu eftir í Kanada
er þátttókuliðin héldu heimleiðis
að loknum Ólympiuleikunum.
Fyrirfram hafði verið búizt við þvi
að taSa pólitiskra flóttamanna úi
hópi keppenda og áhorfenda frá
Austur Evrópu yrði mun hærri
eða svipuð og i Munchen 1972
en þá báðust 117 iþróttamenn
hælis.
Það voru tveir Rúmenar, einn
Sovétmaður og einn af þjóðerni
sem ekki hefur enn verið gefið
upp. sem urðu eftir i Kanada.
Mikið fjaðrafok varð út af flótta
Sovétmannsins. og hótuðu
Sovétmenn þvi að hætta þátt-
töku á leikunum og fara heim,
yrði honum ekki skilað. Sá er hér
um ræðir var keppandi i dýfing-
um og er aðeins 1 7 ára að aldri.
Kanadamenn vildu ekki skila
piltinum, og svo fór að Sovét-
menn hættu við að hætta.
John Walker, varð að hafa
meira fyrir sigri sfnum í
1.500 metra hlaupinu á Ól-
ympíuleikunum í Montre-
al á laugardaginn en vænta
mátti. Eftir að heimsmet-
hafinn í þessari grein,
Tanzanfumaðurinn Filbert
Bayi, hélt heamleiðis um
það leyti er Ólympíuleik-
arnir hófust var almennt
búizt við því að eftirleikur-
inn yrði Walker auðveld-
ur. Úrðu það öllum frjáls-
fþróttaunnendum sár von-
brigði að þessir tveir frá-
bæru hlauparar skyldu
ekki fá tækifæri til þess að
leiða saman hesta sína á
leikunum, þar sem þeir
hafa verið framúrskarandi
undanfarið og náð frábær-
um árangri í hverju mót-
inu af öðru.
Byrjunarhraðinn í 1.500 metra
hlaupinu í Montreal á laugardag-
inn var mjög lítill og henti það
sem oft kemur fýrir I byrjun
slíkra hlaupa á stórmótum þar
sem sigurinn skiptir miklu meira
máli en árangurinn, að enginn
virtist vilja taka forystuna og
ráða ferðinni. Þar kom þó að tran-
um Eamonn Coghlan leiddist þóf-
ið, tók forystuna og jók hraðann.
Þegar einn hringur var eftir voru
hlaupararnir enn i þéttum hnapp,
en upp úr þvl hófst baráttan fyrir
alvöru. Belgíumaðurinn Ivo van
Damme tók forystuna og Walker
fylgdi á hæla hans. Þegar um 300
metrar voru eftir af hlaupinu lét
Walker til skarar skríða, en Belg-
inn þráaðist hins vegar við um
stund. Walker tókst síðan að kom-
ast fram úr van Damme, en aldrei
að slíta hann af sér. Fylgdi van
Damme honum sem skuggi alla
leiðina I markið og munaði aðeins
1/10 úr sekúndu á tíma þeirra.
Fyrir leikana hafði Walker sagt,
að hann óttaðist van Damme jafn-
vel enn meira en Bayi, og kom
það á daginn, að sá ótti var ekki
ástæðulaus.
— Það var auðvitað afskaplega
gaman að sigra I þessu hlaupi,
sagði John Walker, eftir sigurinn
— en gleðin er svolítið blandin
vegna fjarveru Filberts Bayi.
Menn munu endalaust segja:
Hvað hefði gerzt ef Bayi hefði
verið með? Sjálfur er ég ákaflega
leiður yfir því að misvitrir stjórn-
málamenn skyldu eyðileggja
möguleika þessa frábæra Iþrótta-
manns til að taka þátt i leikunum,
sem hann var búinn að eyða svo
miklum tlma I að undirbúa sig
fyrir. Ég er hins vegar þeirrar
skoðunar að ég hefði unnið jafn
örugglega þótt Bayi hefði verið
með. Hlaupið hefði auðvitað orðið
allt öðru vísi. Það er háttur Bayis
að taka forystuna þegar I upphafi
og freista þess að hlaupa þá
keppinauta sína af sér. Ég vár
búann að búa mig sérstaklega
undir slfkt hlaup I Montreal, og
það sem gerðist I úrslitahlaupinu
var því alls ekki I takt við undir-
búning minn.
Sigur John Walkers var Ný-
Sjálendingum eðlilega ákaflega
kærkominn. Þeir höfðu gert sér
vonir um betri frammistöðu sinna
manna á leikunum I Montreal, og
átt von á þvf að þeir Dick Quax og
Rod Dixon yrðu atkvæðamiklir.
Quax hlaut reyndar silfurverð-
laun I 5.000 metra hlaupinu, en
fyrir kappa sem hann var það
ekki einu sinni hálfur sigur, hvað
þá meira.
John Walker er nú 23 ára að
aldri. Sjálfur segist hann engin
áform hafa um framtíðina, önnur
en þau að hann ætlar sér að setja
heimsmet i 1500 metra hlaupi. —
Hvort ég þrauka það lengi I þessu
að ég eigi erindi á leikana 1980,
það er alveg óvist. — Það er orðið
svo krefjandi að æfa með það
fyrir augum að vera i fremstu
röði sinni grein, að menn geta
ekki staðið I því nema mjög tak-
markaðan tíma, sagði Walker.